Morgunblaðið - 26.06.1956, Side 13
Þriðjudagur 2G. júní 1956
MORGUISBLAÐÍÐ
13
Opna í dag
Tannlækningastofu
að Tjarnargötu 16 — sími 80086.
Viðtalstími kl. 10—12 og 2—6.
SIGURBJÖRN PÉTURSSON,
tannlæknir.
AIR-WiCK - /UR-WiCK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefnL
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími81370
Bifrei&askohun
I Dalasýslu fer fram sem hér segir:
Mánudaginn 2. júlí kl. 10—12 og 1—6.
Þriðjudaginn 3. júlí kl. 10—12 og 1—6.
Við skoðun skal bifreiðaskattur, skoðunargjald og ið-
gjald skv. 112. og 113. gr. almenna tryggingalaga greitt.
Sýnd skulu skilríki fyrir því, að lögbundin vátrygging
sé í gildi.
Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á áður
auglýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð skv.
bifreiðalögunum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem
til hennar næst.
Sýslumaðurinn í Dalasýslu 16. júní 1956.
Járnsmiðir
og rafsuðumenn
óskasl
Farangursgrindur
Fyrirliggjandi stækkanlegar farangursgrindur, hentug-
ar fyrir allar gerðir fólksbíla.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Bílavörubúðin Fjöðrin
Hverfisgötu 108 — sími 1909.
LJOSMYNDARAR
Ljósmyndari getur fengið gott húsnæði á bezta stað í
miðbænum gegn því, að taka lærling. Umsóknir merktar
„Ljósmyndari —2754“, sendist blaðinu fyrir 30. þ. m.
Rafiagnaverkstæði til sölu
Af sérstökum ástæðum er raflagnaverkstæði í fullum
gangi til sölu. Tilboð sendist fyrir fimmtudagskvöld á
afgreiðslu Mbl. merkt: „Framtíð •—2755.“
Sigríður Jónsdóttir
frá Eyvindarmúla
NÝLEGA var borin til hinztu
hvíldar að Eyvindarmúla í
Fljótshlíð, Sigríður Jónsdóttir,
fyrrum húsfreyja þar.
Með henni er héðan horfin ein
af þeim mörgu húsfreyjum í
Fljótshlið austur, er skipuðu sess
sinn með sæmd og prýði á fyrstu
tugum þessarar aldar.
Hún var komin af góðum
stofnum, þó að ætt hennar verði
lítt rakin hér.
Sigríður var fædd 27. okt.
1863 að Hlíðarendakoti. Voru
foreldrar hennar Jón Sveinsson
frá Lambalæk og kona hans,
Halla Jónsdóttir. . Var faðir
Höllu sonur sr. Ólafs Pálssonar
í Eyvindarhólum og Helgu konu
hans, er var dóttir eldprestsins
fræga, Jóns prófasts Steingríms-
sonar á Prestbakka, sem kunnur
er úr sögu Skaftáreldanna.
Hún ólst upp í stórum hópi
systkina, þar sem foreldrarnir
urðu að vinna hörðum höndum
til aS sjá fjölmennu heimili far-
borða.
f Hlíðarendakoti var tvíbýli
og eining meðal fólksins eins og
bezt má verða. í hinum bænum
ólst upp skáldið Þorsteinn Er-
lingsson, og var hann einn af
leikbræðrum Sigriðar, að vísu
fáum árum eldri.
Leiki barnanna í Hliðarenda-
koti um þessar mundir hefur
Þorsteinn gert ódauðlega með
sínu létta lipra kvæði, sem er
og verður mikið sungið: „Fyrr
var oft í koti kátt.“
Ung vandist Sigríður vinnunni
sem önnur systkini hennar. Hún
varð snemma rösk og velvirk og
vandaði störf sín í hvívetna.
í Hlíðarendakoti átti hún
heima unz hún 27. okt. 1894
giftist Auðuni bónda Jónssyni
á Eyvindarmúla, sem var dótt-
ursonar Auðunar prests Jóns-
sonar í Landþingum, er drukkn-
aði í Ytri-Rangá 1817, og miklar
ættir eru frá komnar. En faðir
Auðuns yngra var Jón alþm.
Þórðarson á Eyvindarmúla. Sig-
ríður varð við giftingu hús-
freyja á gömlu ættaróðali.sem
gengið hefur í beinan karllegg
frá föður til sonar, mann fram
af manni, og er nú vel setið af
einkasyni Auðunar og Sigríðar.
Þeim hjónum varð sex barna
auðið. Eru þau: Steinunn, gift
Bergsteini Kristjánssyni fræði-
manni, frá Árgilsstöðum, Þórður,
kvæntur Njólu Jónsdóttur frá
Stokkseyri, uðbjörg, ekkja Jóns
Úlfarssonar frá Fljótsdal, Þuríð-
ur, gift Skúla Magnússyni,
starfsmanni við Áfengisverzlun
rikisins, Vilborg, kennari í
Keflavík og Helga, sem verið
hefur vanheil síðustu árin.
Öll eru systkinin vel gefið
myndarfólk.
Þau Auður og Sigriður bjuggu
stóru búi að Eyvindarmúla á
fjórða tug ára. Var heimili
þeirra jafnan í fremstu röð um
búsýslu og gestrisni. En oft var
vinnudagur húsfreyjunnar lang-
ur. Hún varð jöfnum höndum
að annast stóran barnahóp, sjá
um mannmargt heimili og sinna
fjölda gesta, er að garði bar. —
Á fyrstu búskaparárum þeirra
hjóna var kirkjustaður á Eyvind-
armúla, eins og verið hafði
lengst í aldur aftur, eða fram á
aldamót, þegar Eyvindarmúla og
Teigssóknir sameinuðust um
kirkju á Hlíðarenda.
Brátt hlóðust mörg innansveit-
arstörf á húsbóndann. Var hann
forvígismaður í félagsmálum
ýmsum Fljótshlíðinga um langt
skeið, og oddviti hreppsnefnd-
ar um hálfan þriðja tug ára.
Fyrir þessar sakir átti margur
brýnt erindi að Eyvindarmúla,
enda þótti löngum gott að eiga
tal við húsbóndann, sem var
maður gáfaður og fjölfróður í
senn. Öll innanbæjarstörf leysti
húsfreyjan af hendi með prýði.
Þrifnaður allur í bezta lagi og
handbragð hennar á öllu, er hún
vann að, með ágætum, hvort
heldur hún óf dúka, prjónaði
eða spann. Sendi hún hluti á
iðnsýningu oftar en einu sinni
og hlaut viðurkenningu fyrir.
Hún var ráðdeildarkona í
gerðinni, enda stóð hagur þeirra
hjóna ávallt föstum fótum, þó
að fyrir mörgu væri að sjá. Að
sjálfsögðu átti húsbóndinn sinn
hlut í þessu efni.
Sigríður var kona glaðsinna og
íélagslynd. Þótti henni gott að
blanda geði við aðra, er tóm
gafst, einkum við þá, sem hún
hafði lengi þekkt, og trygglynd
var hún flestum fremur. — Allt
fram í elli skildi hún öðrum
betur þörf unga fólksins til að
njóta skemmtana, og gat jafnvel
sjálf stigið enn dansspor eftir að
hún var komin á háan aldur.
Hún var greind kona, hógvær
og stillt í framkomu. Og að
flestu leyti hygg ég það eigi
heima um Sigríði það er Þor-
steinn Erlingsson ltvað við and-
lát Höllu móður hennar:
„Það líf var okkur lán, en henni
sómi.
Hún leyndist nærri, en var þó
stéttarprýði,
og það, sem mörgum sækist seint
í stríði,
það sigraði hún allt með brosi
og hlýjum rómi.“
Börnin hennar geyma dýr-
mætar minningar um milda og
góða móður, sem unni þeim af
hjarta og fann sín mestu verð-
mæti í fórninni fyrir þau. Bræð-
ur hennar sakna elskulegrar
systur og minnast órjúfandi
tryggðar hennar. Undirritaður
er einn í hópi hinna mörgu
frænda hennar og vina, sem á
henni margt að þakka, alla
tryggðina og hlýhugann frá því
fyrsta til hins síðasta. Margar
eru þær ljúfar minningastund-
irnar frá hennar tið á Múla,
sem eigi fá fyrnst. Og sveitung-
ar hennar og nágrannar meðal
eldri og miðaldra kynslóðarinn-
ar, munu geyma mynd hennar
í þakklátum liuga, því að hún
var merk kona og góð.
Eftir að Sigríður hætti búskap
átti hún heima hjá syni sínum
og tengdadóttur á Eyvindar-
múla. En síðustu árin dvaldi hún
lengst af hjá Guðbjörgu dóttur
sinni í Reykjavik, er stundaði
hana af mikilli alúð eftir að ellin
sótti hana heim.
Sigríður á Múla hefur nú safn-
azt til feðra og mæðra í sinni
fögru ættarbyggð, þar sem hún
leysti dagsverk sitt af hendi með
fullri sæmd. Hvergi var henni
kærara að hvíla. Nú er hvíldin
fengin.
„Blessun hlý vakir við,
verður hjá, hjúpar í
helgan frið hvílu þá,
þar sem sætt við sólarlag
sofnaði eftir langan dag.“
Sigurjón Guðjónsson.
VERITAS
saumavélar
Verð í ferðatösku krónur
1275. —
Verð í eikarkassa krónur
1075,00.
Carðar Císlason h.f.
Reykjavík.
Stofa ftil leigu
við Njaiðargötu, í nýju
húsi. Forstofustofa með
smá herbergi með vaski og
skápum. Leigist einhleyp-
um. — Sími 5045.
Tilboð óskasft
í Chevrolet 1955, leggist inn
á afgr. blaðsins fyrir
fimmtudag, merkt: „Góður
— 2755“.
Bifreiðar fil sölu
Dodge og Plymouth 1941 og
'42. Ford ’46 og Humber ’46
BifreiSasala
Stefáng Jóhannssonar
Grettisgötu 46. Sími 2640.
Unglingsstúlka
óskast að raflýstu sveita-
heimili við Dýrafjörð. Sér
herbergi. Uppl. Vesturbraut
9, Keflavík, sími 159 eða
Bólstaðahlíð 39, Reykjavík.
Loksius
er tími komir.n til að
planta sumarblómunum og
trjáplöntunum frá