Morgunblaðið - 16.09.1956, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.09.1956, Qupperneq 14
14 MORGVNBLAÐID Sunnudagur 16. sept. 1S56 Hjörtut Þorkelsson 60 úru HJÖRTUR PORKELSSON, Heiðarvegi 6, Keflavík, verður sextugur á morgun. — Hann er fæddur að Ölvaldsstöðum í Borg- arhreppi 17. september 1896. -— Hann fluttist ungur til Akraness og átti þar heima lengst af, en bjó þó nokkur ár í Reykjavík, þar til nú fyrir fáum árum, að hann fluttist tíl Keflavíkur, byggði sér þar ágætt hús og hef- ur búið svo um sig þar, að allt bendir til þess að Hjörtur hyggi ekki til frekari búferlaflutmnga. Um ættlegg Hjartar er mér ekki kunnugt. En ef máltækið er rétt, að sjaldan falii eplið langt frá eikinni, þá mun Hjörtur af góðu íslenzku bergi brotinn, því að af hans fundi gengur maður jafnan heilli í huga og betri ís- lendingur, þvi að bak við hina látlausu og hógværu frásögn hins seðrulausa manns, sem fer um hafið í leit að björg, skynjar maður gleðina í undirvitundinni og íinnur hjartaslög íslenzkrar náttúru. Snemnia mun hafið hafa náð föstum tökum á huga Hjartar og gerði hann sjómennsku að ævi- starfi. Mun rúm hans jafnan hafa þótt vel skipað. Um eitt skeið reri hann á opnuni vélbát frá Akranesi, vestur undir Mýr- ar, var þá oft einn. Munu þess- ar ferðir hafa verið æði áhættu- samar og ekki fært öðrum en æðrulausum þrekmönnum. Varð Hjörtur manna kunnugastur á þessum slóðum. Var hann þvi fenginn til leiðsögu, þegar björg- unarsveit Akraness var kvödd til aðstoðar er franska hafrann- sóknarskipið Pourquoi Pas? fórst í fárviðri við Mýrar 16. sept. fyrir réttum 20 árum. Fyrir þátt- töku sína þar hlaut Hjörtur heið- ursmerki franska lýðveldisins. Hjörtur er giftur ágætri konií, Magneu Jensdóttur. Hefur hún jafnan staðið einhuga við hlið manns síns í lífsbaráttunni, og meiga þau hjón nú með gleði skyggnast til baka og horfa yfir farinn veg. Þau eiga 3 mannvæn- Kyiiningarvika M I Kynningarfundur með sendinefndunum frá Sovétríkj- unum kl. 2 í dag, sunnudag, í Gamla Bíói. Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri, flytur erindi og sýnir kvikmynd. Hallgrímur Jónasson flytur ræðu. Formenn sendinefndanna flytja ávörp. Operusöngkonan Tatjana Lavrova og píanósnll- ingurinn Dimitri Baskíroff skemmta. leg börn, sem nú hafa öll eignazt sín eigin framtíðarheimili. En frá heimili þeirra nú blasa við ævintýralöndin, sem fyrr á árum báru í sér fyrirheitin: Akranes, Reykjavík, Faxaflói — staðirnir, þar séna beztu mánn- dpmsárin liðu og margar hug- Ijúfar, minningar eru bundnar við. Gæfa þeirra hjóna var eigi að- eins sú að sjá inn á fyrirheitnu löndin, heldur einnig að fara um á þau og njóta þeirra. Góði vinur! Innilegar þakkir fyrir góðar samverustundir og megi íslenzk byg'gð enn njóta krafta þinna og heilinda um mörg ókomin ár. E. K. E. Ný búð í Keflavílt KEFLAVÍK, 14. sept. KAUPFÉLAG Suðurnesja bauð i dag fréttamönnum og öðrum gest um að skoða nýja kjörbúð að Hringbraut 55 hér í Keflavík, er opnuð verður á morgun, laugar- dag. Er verzlunin í nýju húsi, sem Kaupfélagið hefir reist og er hún búin fullkomnustu tækjum kjör- búða eftir nýjustu fyrirmyndum. Er kjörbúð þessi hin fimmta slíkra verzlana, er kaupfélögin hér á landi hafa opnað á einu ári. Deild þessi er teiknuð af Teikni stofu SÍS og innréttingar eru all- ar smíðaðar hérlendis. Þeir, er sáu um byggingu hússins eru eftirtaldir menn: Þórarinn Ólafsson, trésmíða- meistari, Valdimar Gíslason, múr arameistari, Guðbjörn Guðmunds son, rafvirkjameistari, Jón Ás- björnsson, pípulagningameistari og Guðni Magnússon, málara- meistari. í búðinni er fullkominn kæli- útbúnaður fyrir hina ýmsu vöru- flokka. Eru tveir kæliklefar fyrir mjólk og kjöt og auk þess frysti- hólf, er viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir úr. í þessari nýju búð verður auk nýlenduvörunnar selt kjöt mjólk og brauð. Þessi nýja búð kaupfélagsins er staðsett í vesturhluta bæjarins, í nýju hverfi. Hefir verið þar verzlunar laust og langt fyrir íbúa hverf- isins að sækja nauðsynjar sín- ar. Bætir því verzlunin úr brýnni þörf Vesturbæinga. MatráBskona og tvær stúlkur til aðstoðar í éldhús óskast 1. okt. Mötuneyti skólanna, Laugarvatni, Uppl. í síma 9, Laugarvatni. Tilkynning frá Olíufélögunum Olíufélögin hafa ákveðið að frá og með 17. þ.m. skuli gjald fyrir þvott á bifreið á þvottastöðvum íélaganna vera sem hér segir: Fyrir 4-manna bifreið kr. 15.00 Fyrir 6-manna bifreið — 20.00 Gjald fyrir að setja keðjur á skal vera kr. 10.00. OLÍUFÉLÖGIN Sendisveinn Oss vantar nú þegar dreng eða stúlku til léttra sendi- ferða hálfan eða allan daginn. Upplýsingar í skrifstofu vorri á mánudag kl. 10—12 f.h. Vátryggingafélagið hf. Klapparstíg 26 30 manna bifreið ekið austur til Hornafjarðar Langferðabifreiðin í Almannaskarði. Þann 10. júlí sl. fór 30 manna bifreið norður og austur um land áleiðis til Hornafjarðar. Það var vinnuflokkur Páls Guðjónssonar húsasmiðameistara í Reykjavík, sem þátt tók í ferðinni. Bílstjóri var hinn þjóðkunni Ingimar Ingimarsson, en bíllinn var af gerðinni Ford B600 model 1953. Þegar lagt var upp í ferð þessa var lagt út í óvissu, því óljósar fregnir voru fyrir hendi um veg- inn fyrir Berufjörð og um Lóns- heiði. Töldu margir að vegurinn væri algerlega ófær svo stórri bifreið sem R-5484, sem Ingimar ætlaði með. En eins og áður er um getið er Ingimar þjóðkunn- ur bílstjóri eltki sízt þegar um ófærur er að ræða. Hann lét ekki á svarinu standa þegar ég bað hann um að fara þessa ferð. Hæfileikar Ingimars komu bezt í ljós á leiðinni frá Berufirði til Hornafjarðar. Leiðin er seinfar- in og mætti geta þess að bíllinn var 14 tíma frá Egilsstöðúm til Hornafjarðar, með matarhléum þó. Til baka fór Ingimar með tóman bíl og var þá mun fljót- ari eða 9 tíma með nokkurn veg- inn stanzlausum akstri. Vegurinn fyrir Berufjörð er eins og áður um getur mjög sein- farinn svo stórum bílum sem þessum, en að sögn Ingimars þarf mjög lítið að gera við veginn, til þess að hann megi teljast mjög sæmilegur. Á Lónsheiði eru enn Til sölu Fasvél, frystikerfi og búðardiskar í kjötverzlun. Upplýsingar í síma 82245. HjáSparmótorhJóI Ný sending af hinum þekktu þýzku GÖEBEL- hjálp- armótorhjólum til sölu og sýnis á Flókagötu 45. (Einnig um helgar og á kvöldin). Mjög hagstætt verð. Afborg- unarskilmálar. Smáíbúðir Lagtækur maður, sem ræður yfir nokkru fé og flutn- ingabíl vill stofna til smáiðnaðar með manni sem hefir húspláss og iðnkunnáttu. — Tilboð, sem geti starfsemi, sendist Morgunblaðinu fyrir 19. þ.m. merkt: 1929 — 4320. duglegur og ábyggilegur, óskast. Meðmæli æskileg. , fmifíUZHtii, Laugavegi 8! mjög slæmir kaflar, þrátt fyrir miklar lagfæringar á veginum. Sem dæmi þess má geta, að í á- ætlunarbifreið sem gengur frá Hornafirði til Austfjarða er fólk- ið látið ganga á tveimur stöðmn á heiðinni. Ekki kærði Ingimar sig um að láta fólkið ganga og vissi það ekki fyrr en hann var kominn yfir verstu kaflana. Nú standa fyrir dyrum vegabætur miklar á Lónsheiði svo ætla mætti að þetta verði fært öllum bílum innan skamms tíma og er það vel því þessi landshluti er lítt þekktur af þjóðinni, en um fegurðina er ekki að spyrja. Á Hornafirði vakti koma bif» reiðarinnar mjög mikla eftirtekt, enda er þetta langstærsta bif- reiðin, sem þangað hefir kom- ið. Ég vil fyrir hönd ferðafélag- anna þakka Ingimar fyrir hana ágæta akstur og þennan ágæta farkost sem hann lét í té í þessa ferð. Fararstjóri. Athugasemd um * fegurðardrotlningu Á FORSÍÐU blaðsins „Frjáls þjóð“ í gær, laugardag, birtist grein eða frétt undir fyrirsögn- inni „Fegurðardrottning íslands amerískur ríkisborgari.“ í grein þessari er fullyrt að Ágústa Guð- mundsdóttir (að vísu ekki nafn- greind) verði ekki íslenzkur rík- isborgari, þegar Lundúnakeppn- in fer fram í næsta mánuði, og er svo að skilja, að val á fegurðar- drottningu hér að bessu sinni sé „ekki hneykslislaust fyrir land og þjóð“ væntanlega af því að hún er trúlofuð bandarískum manni. Áður en lengra er farið skal „Frjáls þjóð“ upplýst um það, að íslenzk kona, sem giftist Bandaríkjamanni, fær ekki bandarískt ríkisfang sjálfkrafa við það, heldur mun það taka hana um 5 ár að verða ríkisborg- ari Bandaríkjanna. Þetta hefði „Frjáls þjóð“ getað aflað sér upplýsinga um, ef það hefði vakað fyrir blaðinu að skýra rétt frá. En grein þessi er að öðru leyti rrámunalega ósmekkleg og ræt- in. Mönnum er spurn. Er íslenzk- um stúlkum ekki leyfilegt að giftast mönnum af hvaða þjóð- erni sem er, án þess að verða fyrir lævíslegu aðkasti á opin- berum vettvangi? Höfundur þessarar nafnlausu greinar í „Frjáls þjóð“ ætti að skammast sín fyrir þennan sam- setning, og allt heiðarlegt fólk hlýtur að hafa andstyggð á þess konar vinnubrögðum. Fegurðardrottningin, sem val~ in var sl. miðvikudag stendur jafnrétt eftir þessa lúalegu árás, og mun óefað verða landi sínu og þjóð til sóma á erlendum vettvangi. Hitt ber að harma, að nokkurt blað á íslandi skuli fást til að birta lesefni af því tagi, sem hér hefir orðið að umtalsefni. Það skal að lokum tekið fram, að öll dagblöð bæjarins hafa farið vinsamlegum og prúðmann- legum orðum um þessa fegurðar- samkeppni og þátttakendur i henni. Einar A. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.