Morgunblaðið - 07.10.1956, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.10.1956, Blaðsíða 4
4 M fí i? c rnv p i a fí J fí Sunnudagur 7. okt. 1956 f dag er 281. dagur ársins. Sunnudagur 7. október. Árdegisflœ8i kl. 8,03. Síðdegisflæði kl. 20,19. Slysa varðstofa Reykjavíkur er opin allan sólarhringinn. — Lækna vörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað kl. 18—8. — Sími 5030. NæturvörSur er í Lyf jabúðinni Iðunni, sími 7911. — Ennfremur eru Holts-apótek, Apótek Austur- bæjar og Vesturbæjar-apótek opin daglega til kl. 8, nema á laugar- dögum til kl. 4. Holts-apótek er opið á sunnudögum milli kl. 1 og 4. HafnarfjörSur: — Næturlæknir er ólafur Einarsson, sími 4583. Akureyri: — Næturvörður er í Akureyrar-apóteki, sími 1032. — Næturlæknir er Erlendur Konráðs I.O.O.F. 3 == 1381088 = O □ EDDA 59561097 — 2. □ Mímir 59561087 — 1 atkv. -□ - • Veðrið • I gær var suð-austan átt um ailt land. — Stinningskaldi á Suð-Vesturlandi, en hægara á Norður- og Austurlandi. Or- koma vestanlands, en bjart- viðri austanlands. — 1 Rvík var hiti kl. 3 í gærdag 9 stig, á Akureyri 4 ;tig, á Galtar- vita 7 stig og á Dalatanga 6 stig. — Mestur hiti mældist á Hellissandi kl. 3 í gærdag, II stig, en minnstur á nokkr- um stöðum Norðanlands 4 st. í London var hiti áhádegi í gær, 11 stig, París 11 stig, £ Berlín 7 stig, í Osló 7 stig, í Stokkhólmi 6 stig, í Kaup- mannahöfn 10 stig, í Þórs- höfn í Færeyjum 4 stig og í New York 12 stig. D-----------------------p • Messur • Dómkirkjan: — Messað kl. 2 e. h. í messunni verða fenndar þess- ar stúlkur: . Elísabet Elínborg Guðmunds- dóttir, Grettisgötu 92. Ingibjörg Lilly Bjömsdóttir, Stórholti 29. Séra Jón Auðuns. Elliheimilið: — Guðsþjónusta kl. 10 árdegis. Séra Sigurbjöm Gísla son. — Keflavíkurkirkja: — Bamaguðs þjónusta kl. 11 árdegis. Ytri-Njarðvík: — Barnaguðs- þjónusta í samkomuhúsinu kl. 1,30 Séra Björn Jónsson. Brúðkaup í gær voru gefin saman í hjóna- band af séra Jóni Sigurðssyni — ungfrú Kristín Þóra Sæmundsdótt ir, Melstað, Grindavík og Jóhann Aðalbjörnsson, Árbakka, Grenivík. Heimili ungu hjónanna er á Mel- stað, Grindavík. Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Ráðhúsinu í Kaup- mannahöfn, Halla Valdimarsdótt- ir, Sörlaskjóli 20, Rvík og öm Ævar Markússon, lyfjafræðinemi, Miklubraut 13. Heimili þeirra verður fyrst um sinn öresundsvej 47 A., Kaupmannahöfn. Laugardaginn 6. október voru gefin saman í hjónaband í Landa kotskirkju frú Ragnhildur María Schopka, Shellvegi 6 og John Cos- grove, lögregluþjónn, Keflavíkur- flugvelli. FERDBNAND J Vu D í gær voru gefin saman í hjóna band í Kaupmannahöfn ungfrú Elsa Pétursdóttir, Smáragötu 3 og Einar Benediktsson, hagfræðingur Marargötu 3. — Heimili þeirra verður að 139 Rue de la Tour, París. — I gær voru gefin saman £ hjóna- band af séra Þorsteini Björns- syni ungfrú Svanhildur Bjama- dóttir skrifstofumær og Þórarinn Guðmundsson iðnnemi. Heimili þeirra verður að Gunnarsbraut 28. • Hjónaefni • 1 gær opinberuðu trúlofun sina ungfrú Gerður Guðmundsdóttir, Jarðarsbraut 10, Akran. og cand. med Daniel Guðnason, sem starf- að hefur við sjúkrahúsið þar i sumar. • Skipafréttir • Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Reykjavík. Esja er á Austfjörðum á suðurleið. Herðu- breið er á Austfjörðum á suður- leið. Skjaldbreið er á Snæfellsnes höfnum. Þyrill er væntanlegur til Isafjarðar kl. 17 í dag. Gullbrúðkaup eiga í dag, á Akranesi, hjónin frú Guðrún Sveinsdóttir og Bene- dikt Tómasson frv. skipstjóri. Kvenfélagið Keðjan Fundur þriðjudaginn 9. október, að Aðalstræti 12 kl. 8,30 e.h. Austfirðingafélagið í Rvík heldur skemmtun í Tjamarkaffi fimmtudaginn 11. október kl. 8,30. Félag. austfirzkra kvenna heldur fund í Grófin 1, þriðju- daginn 9. október kl. 8,30. Lamaða stúlkan Afh. Mbl.: Ónefnd kona krónur 150,00; K Þ B kr. 100,00. Lamaði íþróttamaðurinn Afh. Mbl.: G S krónur 70,00. Háskólahljómleikar 1 dag kl. 5 síðdegis leika banda risku tónlistarmennimir J. Mitc- hell fiðluleikari og píanóleikararn- ir J. Wolfe og S. Suzowski fyrir stúdenta og starfsmenn háskólans og gesti þeirra, í hátíðasal skól- ans. Aðgangur er ókeypis. Ungmennastúkan Framtíðin byrjar starfsemi sína að nýju n.k. mánudagskvöld kl. 20,30, í Templarahöllinni. Áríðandi er að félagar fjölmenni og taki þátt í störfum sem fram undan eru. — Kvikmyndasýning og fleira. Bæjarbókasafnið Lesstofan opin alla virka daga 10—12 og 1—10. Laugardaga 10 —12 og 1—7. Sunnudaga 2—-7. — Útlánsdeiláin er opin alla virka daga 2—10, laugardaga 2—7 og sunnudaga 5—7. — Útibú á Hofs- Útlánadeildin er opin alla virka nema laugardaga 6—7. — Útibú a g bók Bæði áttræS Á morgun, 8. október, er áttrajður Ásgeir Stefánsson frá Hafnarfirði. Hann er fæddur að Halakoti á Vatnsleysuströnd. Áratugum sam- an stundaði hann sjómennsku bæði á skútum og opnum bátum. Árið 1904 kvæntist hann Þóru Jónsdóttur, en hún varð áttræð 28. september s. 1. Um tvo áratugi áttu þau Ásgeir og Þóra heima í Hafnarfirði unz þau á síðastliðnu vori fluttu til Ingibjargar dóttur sinnar á Kirkjubæjarklaustri á Síðu. í Efstasundi 26 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga 5,30— 7,30. — Náttúrulækningafélag Reykjavíkur Endurtekur matreiðslunámskeið sitt i Borgartúni 7, n.k. þriðjudag kl. 2. Námskeiðið stendur yfir í þrjá daga. (Sýndir eru grænmetis réttir). Morguntónleikar útvarpsins í dag Brandenborgarkonsert nr. 6 í B-dúr eftir Johann Sebastian Bach (Hljómsveit undir stjóm Jascha Hornstein leikur). — Sex sónötur fyrir tvær fiðlur, tvær flautur, tvær klarínettur, fagott og tvö horn eftir Carl Philip Emanuel Bach (Brezkir blásarar leika). — Aría og dúett úr óper- unni „Lakmé“ eftir Delibes (Pierrette Alarie og Leopold Si- moneau syngja). —- Fiðlukonsert nr. 1 í g-moll eftir Max Bruch (Jascha Heifetz og Sinfóníuhljóm sveit Lundúna leika, Sir Matcolm Sargent stjórnar. Gamlir nemendur frk. Sigurborgar Kristjánsdótt- ur, fyrrum forstöðukonu Staðar- fellsskólans hafa ákveðið að efna til samsætis i tilefni af sjötugsaf- mæli hennar 11. október. Samsætið verður haldið í Tjamarkaffi 14. október og hefst kl. 7. Nemendur fyrr og síðar, sem vilja taka þátt í samkvæmi þessu, tilkynni þátt- töku sína í síma 80756 og Regn- hlífabúðina, Laugavegi 19. Án bindindi hrakar íþrðttamenn ingu þjóðarinnar. — Umdæmisstúkan. Áheit og gjafir á Strandakirkju Afh. Mbl.: G P kr. 50,00; S Þ 30,00; Á S 10,00; N N 100,00; S J V 200,00; S S 10,00; K A N 10,00; K G 15,00; G G 10,00; K S 100,00; K K 150,00; A I 500,00; gamalt áheit frá Stokkseyring 100,00; G B 50,00; S G I 20,00; X 100,00; ónefndur 500,00; gamalt áheit V J 150,00; A J 40,00; S T S 100,00; Þ E 20,00; K L 50,20; J C 25,00; A H (áheit) 50,00; M G 50,00; M G 20,00; N M 60,00; N N 20,00; S J 15,00; Svava 25,00; Jóa Gíslad., 50,00; g. og nýtt áheit Rúna 150,00; N N 100,00; S O 500,00; B B B 200,00; gömul kona 10,00; B S 350,00; S B 100,00; g. áheit M Ó 100,00; Þverá E P 17,00; G S 100,00; áheit M J 200,00; A K 50,00; D A G 50,00; J K 100,00; J E 75,00; R M J 100,00; g. áheit G A 10,00; J 50,00; H F áh., 20,00; S V 50,00; Siddi 100,00; J O 50,00; R 100,00; Þ Ó M 30,00; ónefnd 200,00; S O E 100,00; M Á H 50,00; G G 20,00; kona í Hafnarfirði 200,00; G T 100,00; A J 40,00; g. og nýtt áheit frá mæðgum 200,00; N N 125,00; -tveir fóstbræður 100,00; S H 300,00; Dísa 100,00; Gunna 50,00; N N 50,00; þakklát 83,45; B L S 150,00; N N 100,00; G J 200,00; Þór, Vestm.eyjum, 100,00; S N 50,00; G H 20,00; Þ Þ 55,00; áheit G N 50,00; S V 10,00; N D 20,00; g. áheit Pálmína 125,00; E 25,00; N N 750,00; H E 50,00; N N 100,00; tvö áheit Ö Æ G 200,00; Guðni og Gunnar 50,00; S S 50,00; Helga 20,00; Inga 20,00; G P 50,00; G G 100,00; N O 100,00; J Þ 25,00; Guðbjörg 30,00; Þ E 100,00; O D 100,00; H G 100,00; g. áheit N N 25,00; V J 50,00; H 1 20,00; Óli 50,00; H H 200,00; þrjú áheit S G B 150,00; S P 100,00; Svana 100,00; N N 10,00; Inga 120,00; G S K 10,00; V K 220,00; N N 100,00; Jóhann 20,00; N N 15,00; S. Jóh., 50,00; Q A 300,00; M Ó 100,00; S H 100,00; Þ M 30,00; nokkur áheit frá konu 30,00; F M 60,00; Tóta 300,00; E K 30,00; N N 40,00; S T 50,00; Björg 50,00; A Þ 10,00; Hallfríð- ur Jónsd., 20,00; S M 60,00 ;Ebd 100,00; Ebd 10,00; Ebd 10,00; S S áh., 200,00; Þ S 50,00; A S 100,00; M Þ Norðfirði 150,00. Orð lífsins: Eg þakka þér, Guð feðra minna, og vegsama þig, fyrir það, að þú hefur gefið mér vizku og rnátt og nú látið mig vita það, er vér báð- um þig um, því að þú hefur opin- berað oss það, er kommgurinn. vildi vita. — (Dan. 2, 23). ____ -mtfr Vv- Kæra harn, þér incgið til aS scgja mér hvar þér hafið keypt þeniian yndislega lallega hatt. Það sem sást í kikinum yJlfe =rní níik ~yr~ Bóndinn tók eítir því að ljós log aði við eitt útihúsið. Hann fór að aðgæta þetta og hitti þar fyrir vinnumann með ljósker í hendinni. — Hvað ertu að gera með ljós á þessum tíma? spurði hann. — Sjáðu til, ég ætla að fara gegnum skóginn til þess að hitta unnustu mina. t — Nú, hvers vegna viltu ekki hitta hana í myrkrinu, það mundu nú flestir vilja. Þegar ég hitti kon- una mína fyrst var niðamyrkur. — Já, svaraði maðurinn, það er nú alveg greinilegt. Tveir soltnir flækingar sátu á vegarbrún og voru að borða krydd síld, sem einhver hafði gefið þeim. — Eg vildi að þessi sild væi i orðin að hryggjasneiðum, sagði annar. — Hvað, eins og þú vitir nokk- uð hvernig hi-yggjasneiðar eru, hefurðu nokkurn tíma borðað h r yggj asne i ða r ? — Já, svaraði hinn, — ég skal segja þér, að ég sá einu sinni mann, sem hafði þekkt mann, sem hafði þekkt annan mann, sem allt- af borðaði hryggjasneiðar. Roskinn málfræðikennar-i, (kven maður), gekk upp að töflunni og skriíaði eftirfarandi á hana: — Eg hef leiðzt mér voðalega þennan vetur. — Hvað á ég að gera til þess að lagfæra þetta? — Fá þer kærasta, gall við I einum nemandanum. í aftasta bekk. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.