Morgunblaðið - 10.10.1956, Qupperneq 16
Veðrið
Hvass SV. Skúrir
232. tbl. — Miðvikudagur 10. október 1956
Lie skrifar um Ísland
Sjá grein á bls. 9
TilraunSr gerðar hér með
rafmagn við síldveiðar
¥ BLAÐINU Islendingur á Akur-
eyri, er samtal við Guðmund
Jörundsson útgerðarmann, um
síldveiðar. Skýrir Guðmundur m.
a. frá því að í ráði sé að reyna hér
rafmagn til fiskveiða.
Fréttamaður íslendings spyr
Guðmund að því hvað sé að frétta
af nýjum veiðitsekjum, er eiga að
auka síldveiði og því svarar Guð-
mundur m. a. á þessa leið:
— SíðaStliðið sumar var gerð
tllraun með stóira herpinót á
tveim skipum frá Akranesi. Sú
tilraun gaf að vísu nokkurn ár-
angur, en þó ekkert fram yfir þau
veiðarfæri, sem þegar eru fyrir
hendi. Nót þessi hefir nokkra ó-
kosti fyrir okkar staðhætti, t. d.
hve straumfrek hún er, og stafar
það af því, hve nótin er smárið-
in. Er það mitt álit, að hún hentí
betur fyrir síld við suð-vestur-
landið með tilliti til þess, hve oft
finnast þar stórir síldarflákar.
Nót þessi er miðuð við að geta
tekið mjög stór köst, þó hins veg-
ar verði alltaf sami vandinn ó-
leystur hvað viðvikur straum alls
staðar kringum landið.
Annars eru nú í uppsiglingu
hér á landi tilraunir með síldar-
flotvörpu, sem notuð yrði með
aðstoð rafmagns á þann hátt, að
hafa áhrif á fískinn með raf-
straumi í opi vörpunnar. Að vísu
er þetta á byrjunarstigi, en er
mjög athygiisvert, þegar á það er
litið, að Þjóðverjar hafa fengið
nokkurn árangur af slíkum til-
raunum.
Langt komið mænusóltar-
bólusetningu skólabarna
Bóluefni komið frá Danmörku.
FULLYRÐA má, að engin þjóð hefir veitt íslendingum jafnvíð-
tæka hjálp til þess að vinna bug á mænusóttinni og Danir. — Er
nú komið til landsins allmikið magn bóluefnis við mænusótt, sem
dönsk heilbrigðisyfirvöld leyfðu, fyrir sérstaka velvild, útflutn-
ing á hingað til lands. Heilbrigðisyfirvöldin hér hafa fest kaup
á bóluefni, sem nægir til fullnaðarbólusetningar 50,000 manns.
ing bóluefnisins frjálsan, fyrr en
lokið væri að fullu bólusetningu
landsmanna, en yfirmenn heil-
brigðisyfirvaldanna brugðu fljótt
og vel við, er íslendingar leituðu
hófanna um kaup á bóluefni, svo
sem kunnugt er.
Skrifstofa borgarlæknis skýrði
blaðinu frá þessu í gær og gat
þess, að _ byrjað væri á því að
bólusetja með hinu danska bólu-
efni. Nú er langt komið fyrstu
bólusetningu barna í barnaskól-
um bæjarins, og innan skamms
verður byrjað að bólusetja börn
innan skólaskyldualdurs, allt nið-
ur í hálfs árs börn, svo og ungl-
inga í framhaldsskólum og ung-
menni í æðri skólum. — Munu
blöðin skýra almenningi frá því,
er þessi bólusetning hefst og
hvernig hún verður skipulögð.
Framlags Dana til baráttu ís-
lendinga við mænusóttina mun
lengi verða minnzt hér á landi.
Er mö'nnum í fersku minni, hve
vel Danir brugðust við, er mænu-
sóttarfaraldurinn herjaði hér í
fyrra, en þá sendu Danir hingað
sérfræðinga og hjúkrunarlið og
buðu fram margháttaða aðstoð.
Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa
ekki séð sér fært, að gefa útflutn-
Óvenjulega mikið er nú af rjúpu í Þingeyjarsýslu og hópast hún
niður í hyggð. Rjúpurnar eru mjög gæfar og sést það m.a. af
þessari mynd, sem tekin var á tröppunum fyrir framan Sparisjóð
Húsavíkur. Ljósm. Snorri Jónsson.
Ný nefnd - Nýr banlri
RÍKISSTJÓRNIN hefur tilkynnt
að hún hafi skipað enn eina
nefndina. Á þessi nýja nefnd að
endurskoða bankalöggjöfina og á
sú endurskoðun að miða að því
að stofnaður verði nýr banki er
sérstaklega annist seðlaútgáfu.
Fer tilk. ríkisstjórnarinnar hér á
eftir:
Rikisstjórnin hefur skipað
nefnd til þess að endurskoða
bankalöggjöf landsins og gera til-
VIRKJIJIMARAÆTLANIR HITAMAL
IVIEÐAL BÆNDA í SKORRADALNUIH
í HINUM fagra og friðsæla
borgfirzka dal Skorradal, er
nú uppi á teningnum þvílíkt
hitamál, að orsakað getur einn
góðan veðurdag almenna mót
mælagöngu Skorradalsbænda
til höfuðborgarinnar. Hér er
um að ræða ráðagerðir um
hækkun Skorradalsvatns
vegna Andakílsárvirkjunar.
Er blaðamenn voru uppi í
Skorradal á sunnudaginn, bar
mál þetta mjög á góma. Töldu
bændur hér um að ræða þvílíkt
alvörumál, að því yrði að hreyfa
í blöðum.
SÓTT UM LEYFI
Andakílsárvirkjun hefur sótt
um fjárfestingarleyfi hjá yfir-
völdunum til þess að byggja stíflu
garð við virkjunina til þess að
hækka vatnsborð Skorradals-
vatns um 2 metra. Þetta telur
virkjunarstjórnin nauðsynlegar
framkvæmdir til þess að komið
verði við vatnsmiðlun og til að
forðast rafmagnsskort í langvar-
andi þurrkum og frostköflum.
Skorradalsbændur segja að
mál þetta hafi tæpast verið
við þá rætt. Hér sé þó um
það að ræða hvort Skorra-
dalur, en þar eru milli 25—30
býli, verði fyrir slíku áfalli
að fleiri eða færri jarðir muni
fara í eyði, þar eð búskapar-
möguleikar þeirra myndu
rýrna svo, og aðrar færu að
mestu undir vatn, ef af þessu
yrði.
Óttast stórfellda eyðileggingu verði
vatnsborð Skorradalsvafns hækkað
SLÆLEGUR
UNDIRBÚNINGUR
Bændur deildu mjög fast á
Andakílsárvirkjunarstjórn fyrir
alls ófullnægjandi undirbúning
málsins. Hún virtist ekki gera
sér grein fyrir því hvaða afleið-
ingar það hefði í för með sér
fyrir búskapinn í dalnum að
hækka yfirborð Skorradalsvatns.
Eins hefði stjórnin ekki nægilega
kannað tæknilega lausn málsins.
Innan þessara tveggja ramma
ræddu þeir svo fjölmörg atriði,
sem þeir töldu að kanna bæri
áður en svo langt yrði gengið að
sækja um fjárfestingarleyfi, svo
sem gert hafi verið.
Einn bændanna sagði að þetta
mál væri málið í dag og málið
á morgun fyrir Skorradalsbænd-
ur. — Annar taldi þessar ráða-
gerðir með öllu ósamrýmanleg-
ar, ræðum og skrifum um flótt-
ann úr sveitum landsins og nauð-
synina á því að reisa nýbýli.
Að lokum upplýstu bændurnir,
að allir hreppsbúar, sem opin-
ber gjöld greiða, hefðu sent mót-
mælabréf suður (til Reykjavík-
ur).
| SKORRADALUR KORT-
LAGÐUR
Á þessum „blaðamannafundi",
var staddur maður úr stjórn
Andakílsárvirkjunar. Beindust
öll spjót gegn honum. — Hann
i kvaðst vona að mál þetta yrði
leyst á þann veg að allir gætu
vel við unað. Andakílsárvirkjun-
arstjórn hefði látið gera loftkort
af Skorradal og yrði nú farið að
vinna úr því til þess að fá glögga
yfirsýn yfir það hve mikið land
bænda myndi fara undir vatn,
væri yfirborð vatnsins hækkað
um tvo metra. Hann kvað nauð-
synlegt fyrir Andakílsárvirkjun
að koma á vatnsmiðlun til að
komizt verði hjá rafmagnsskorti
og eins væri nauðsynlegt að gera
rekstur stöðvarinnar öruggari, en
þar er nú ein vélasamstæða, sem
er spennt til hins ýtrasta, og að-
kallandi væri að stækka stöðina.
Netin sukku
undan síld
KEFLAVÍK, 9. okt.: — Skipstjór
ar reknetjabátanna, sem komu úr
róðri í dag, skýrðu frá því, að
mikil síld væri á miðunum, en
aflinn hefði verið misjafn nokkuð
m.a. vegna veðurs. Var aflinn frá
155 tunnum niður í sjö. Nokkrir
bátar misstu netin. Þau sukku í
djúpið undan þunga síldarinnar,
sem var komin í þau. Þannig
missti einn bátur 30 net og ann-
ar 20, en nokkrir bátar fleiri töp-
uðu einnig netjum. Aflahæsti
bátur í dag var Geir með 155
tunnur. — I.
lögur um framtíðarskipulag
bankamálanna, er m.a. séu við
það miðaðar, að seðlabankinn
verði settur undir sérstaka stjórn.
í nefndinni eiga sæti alþingis-
mennirnir Friðjón Skarphéðins-
son, formaður, Einar Olgeirsson
og Skúli Guðmundsson.
Alþingi sett í dag
I DAG verður Alþingi sett.
Guðsþjónusta hefst í Dóm-
kirkjunni kl. 13.30 og prédikar
sr. Jakob Jónsson. Siðan verður
gengið í Alþingishúsið óg fer þar
þingsetning fram með venjuleg-
um hætti. Forseti íslands flytur
þingsetningarræðuna og siðan
tekur aldursforseti til máls og
minnist látinna þingmanna. Þá
skipta þingmenn með sér í kjör-
deildir.
Utvarpað verður frá þingsetn-
ingunni.
Kveikt í gömlu
Sjávarborg
VEGNA þeirra framkvæmda &
innanverðri Skúlagötunni, sem
staðið hafa yfir, voru gömlu skúr
arnir fyrir neðan götuna, m. a.
gamla Sjávarborg, látin rýma. —
Var húsið, sem er skúrbyggt og
allstórt, látið upp á tunnur. —
Þannig hefur það staðið lengi
vel, og í ráði hefur verið að flytja
það. Síðd. í fyrrad. var því veitt
eftirtekt, að farið var að rjúka
úr kofanum. Þegar slökkviliðið
kom, stóð eldurinn út um nokkra
glugga, og var mikið eldhaf inni.
Var eldurinn í mikilli hrúgu af
smápjötlum, sem notaðar eru
til húsgagnabólstrunar. — Brann
þetta allt meira og minna eða
eyðilagðist af vatni, svo og timb-
ur, sem þar hafði verið geymt.
Var kofinn vótryggður, en hann
er ónýtur talinn og verður rifinn.
Það var öllum þegar ljóst, að
! hér var um að ræða íkveikju og
er lögreglan að rannsaka málið.
Hreyfilsfélagar,
hrindið árás kommúnis 'a
Kjósið B-lislann. Kosningu lýkur í kvöld.
IKVÖLD lýkur fulltrúakjörinu í Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli.
Kosið er í skrifstofu félagsins, Ægisgötu 10, og hefst kosningin
í dag kl. 1 og stendur til kl. 9 sd. Listi lýðræðissinna er B.-LISTINN.
Kommúnistar og fylgifé þeirra vonast til þess að vinna þessa
kosningu og geta á þann hátt náð tökum á samtökum bifreiðastjóra
til að geta notað þau eins og önnur verkalýðsfélög sem þeir stjórna,
til að efla þá upplausnarstefnu, sem þeir reka í íslenzku þjóðlífi.
Það er mál út af fyrir sig, að vissir menn, sem árum saman hafa
unnið með lýðræðisöflunum í Hreyfli, skuli nú gerast viljalaus
handbendi kommúnista og styrkja þá í því að veikja samtökin og
ganga með þeim erinda hins alþjóðlega kommúnisma. Það er þung
ábyrgð, sem þessir menn hafa tekið á herðar sér og getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Hreyfilsfélaga.
En kommúnistar hafa fyrr gert harða hríð að Hreyfli. Þeir hafa
mörg undanfarin ár gert allt, sem í þeirra valdi hefur staðið til
að ófrægja samtökin og rægja forustumenn Hreyfils, sem allir
Hreyfilsfélagar vita að hafa unnið stóra sigra í hagsmunabaráttu
stéttarinnar. Þeir mörgu anðstæðingar kommúnista í Hreyfli þekkja
vinnubrögð þessara manna og þeir munu sem fyrr berjast ótrauðri
baráttu á móti kommúnistum og tryggja sigur þeirra manna, sem
skipa B.-LISTANN.
Hreyfilsfélagar sameinist í starfi. Komið í skrifstofu B.-LISTANS
og veitið aðstoð í kosningunum. Sími skrifstofunnar er 81192.
1 MUNIÐ X—B.-LISTINN.