Morgunblaðið - 10.11.1956, Síða 3

Morgunblaðið - 10.11.1956, Síða 3
Laugardagur 10. nóv. 1956 M ORCVN BL AÐ1Ð 3 Bátaiítgerðin er i íslenzkum ein mdttarstoðin þjóðarbúskap Það verðai að sjá Fiskveiða- sjóði iyrir auknu íjáimagni gerð góð skil í greinargerð frum- varpsins. Vil ég því einkum árétta það, sem þar er fram tekið og mestu máli skiptir — en auk þess benda á fleiri staðreyndir, sem hafa úrslitaþýðingu." Umræbur á Alþingi i gær JÓHANN HAFSTEIN hélt í gser framsöguræðu af hálfu Sjálfstæðis' rnaima á Alþingi fyrir frumvarpi þeirra um eflingu Fiskveiða- sjóðs. Sýndi hsmn með glöggum rökum fram á. mikilvægi málsins cg nauðsyn skjótra úrræða þings og stjómar. í lok hinnar greinargóðu ræðu sinnar komst hann svo að orði: Ég vtl að lokum minna á eftirfarandi staðreyndir um þýðingu bátaútgerðarinnar fyrir fjárhag þjóðarinnar og atvinnuöryggi: 1. Viðskipti þjóðarinnar út á við og fjárhagsieg afkoma er meira undir útveginum koinin en nokkriun öðrum atvinnuvegi þjóðar- itMtar, en framleiðsla sjávarútvegsins hvíiir á tveim meginstoðum, annars vegar bátaflotaJium, htns vegar togurunum. 2. Af því aflftmagni, sem á land kemur árlega, eru nær 57% frá bátaflotaitum og svipað verður hlutfallið, að því er snertir þau verðmæti, sem framlcidd eru til útflutnings úr aflanum. 3. Á bátafiotanum munu að jafnaði vera milli 4000 og 5000 ajómenn, sem hafa aðalframfæri sitt af þessari atvinnugrein. t ölitun kaupstöðum og kauptúnum á suðvesturhluta Jandsins, ef frá er tekin Beykjavík og að nokkru leyti Hafnarfjörður, byggist nfkoma manna að langmestu leyti á bátaútveginum og sérstaklega má nefna stað eins og Vestmannaeyjar, sem byggir afkomu sína að öHu leyti á bátaútveginum. Víðs vegar um iandið eru vaxandi sjávarþorp með nýtízku fiskiðnaði í landi, nýjum og vistlegum íbúðarhúsum og almcnnri velmegun ávöxtur bátaútgerðarinnar. 4. Bátaflotinn hefur sérstöðu til hagnýtingar auknum afia- brögðum vegna friðunarráðstafana í hinni nýju og vaxandi land- heigi og síldveiðamar má segja, að grundvallist á bátaflotanum. 5. Það er á færi eiastakiinganna sjálfra, sjómanna og samtaka þeirra að stofna til bátaútgerðar svo sem hin öra þróun og ný- sköpun bátaflotans á síðustu 2*4 ári sýnir, en á þeim tíma hefur hann aukizt um 4276 rúmlestir, meðan aukning togaraflotans hefur verið einstakÍHigunum algerlega ofviða. 6. Af framangreindu má m. a. marka grundvallarþýðingu báta- útgerðarinnar í þjóðarbúskap landsmanna, hún skapar hlutfalls- lega mesta vinnu, skilar tiitölulega mestu af verðmæti aflans til mannanna er að útgerðinni vinna, tiltölulega mestum erlendum gjaldeyri og krefst minnst fjármagns. Eru því fá verkefni Alþingis og rikisstjómar veigameiri en að skapa Fiskveiðasjóði íslands aðstöðu til að gegna hinu mikilvæga hlutverki að veita bátaútveginum nauðsynleg stofnlán framvegis, því að elia væri fótum kippt undan einni meginstoð íslenzks atvinnulifs, bátaútveginum. A3 öðru leyti fórust þingmanni orð á þessa leið: í sambandi við frv. það, sem hér er til umræðu um eflingu Fiskveiðasjóðs, á þskj. 18, tel ég nauðsynlegt, að háttv. þingmenn geri sér grein fyrir heildarmynd mólsins og mikilvægi þess. Er þá annars vegar um að ræða fjárreiður Fiskveiðasjóðs, eins og þær nú eru, en hins vegar þá lánsfjárþörf, sem ætla verður að sé fyrir hendi á næstunni, miðað við verkefni Fiskveiðasjóðs. Skal ég fyrst ræða fyrri þátt málsins — eða fjárreiður sjóðsins nú. Segja má, að þessu atriði séu FISKVEIÐASJÓÐ SKORTIR FÉ í síðustu skýrslu sjóðsstjórnar- innar um fjárhag sjóðsins koma m. a. fram eftirfarandi atriði: Á yfirstandandi ári, fram til 25. þ. m. hefur sjóðurinn veitt lán, sem nema alls rúmum 42 millj. ki'óna. Loforð sjóðsins um lán til af- greiðslu fyrir lok þessa árs eru um 20 milljónir króna. Þeesar upphæðir koma ekki allar tii útborgunar á þessu ári, vegna þess að yfirleitt hefur fengizt 1—3 ára gjaldfrestur */2 andvirðis þeirra báta, sem er- lendis eru smíðaðir. Útborganir til áramóta, eða þar um bil hafa verið áætlaðar um 16 milljónir króna, en bankainni- stæður sjóðsins nú eru tæpar 10 milljónir. Er þá sjóðurinn meira en þurr- ausinn, þó að nokkrar tekjur falli til fram að áramótum, því að hér eru heldur ekki taldar ýmsar brýnar lánabeiðnir, sem fyrir liggja og nauðsynlegt er að geta afgreitt á næstunni. Þessar niðurstöður eru í sam- ræmi við áætlanir og horfur síð- ari hluta árs 1955, en þá var fyrrverandi hæstv. ríkisstjórn bent á að óhjákvæmilegt væri að afla Fiskveiðasjóði viðbótarfjár, 10 millj. kr. á ári 1956 og 1957, til þess eins að hægt væri að veita lán til skipasmíða, sem þá var þegar hafin eða um það bil að hefjast. í þessu sambandi verð ég að leiðrétta það, sem fram kemur í greinargerð um framlög til Fiskveiðasjóðs af greiðsiuafgangi ríkissjóðs 1955 og 1956, en það á við árin 1954 og 1955. Áætlaðar árstekjur sjóðsins að óbreyttum kringumstæðum eru nú um 18 milljónir króna. Ca. kr. Afb. og vextir 7.500.000.00 Hluti útfl.gj. af sjávarafurðum 8.500.000.00 Ríkissj óðsframlag að óbr. lögum 2.000.000.00 Kr. 18.000.000.00 Björgunarbátasýning í Sundhöllinni A' HORFENDAEVÆÐIÐ í sundhöllinni var þéttskipað í fyrrakvöld, er þar var haldin sýnikennsla í meðferð gúmmí- björgunarbáta. Var þessi sýn- ing á vegum Skipaskoðunarinnar og Landssamb. ísl. útvegsmanna. Sjómannaskólanemendur voru með gúmmíbátana, tvo sem not- aðir voru, en meðferð þeirra er nú fastur þáttur orðinn í sjó- mannaskólanáminu. Sýnt var er bátnum var kastað frá „skipi“ og hvernig hin sjálf- virka loftdæla blés gúmmí bétinin upp á 15 sek., þannig að hann var fær í flestan sjó. Sýnt var og hvernig báturÍRn er rétt- ur við, ef svo slysalega tekst til að hann fari á hliðina. Slíkt er auðvelt fyrir einn mann. — Þá vakti það einnig mikla athygli á sýningunnl, er sjómannaskóla- nemendumir sýndu hvernig þeir stukku ofan í bátinn úr „stóru skipi“ og stukku þeir þá af dýfingarbrettum Sundhallar- innar. Sýning þessi þóttl takast mjög vel. Gestir, sem voru einkum út- gerðarmenn og sjómenn, létu í ljós mi-kla hrifningu yfir því að fá tækifæri til þess að kynnast ágæti þessara báta. Töldu þeir að með tilkomu gúmmibátanna væru mörkuð merk tímamót í ör- yggismálum sjómanna við strend ur landsins. Skipaskoðunarstjóri Hjálmar Bárðarson skýrði fyrir gestum einstök atriði þessarar sýnikennslu. í ráði mun vera að efna til slíkrar sýnikennslu aftur síðar og einnig utan Reykjavíkur í verstöðvum eftir því sem að- stæður leyfa. í gærdag var svo fulltrúum skipaskoðunarinnar út um land sýnt hvernig pakka skal bátum þessum og ganga frá þeim, en það er vandasamt verk, ef það á að vera gert þannig að bátanúr ekki skemmist. Næstu 2 ár, 1957 og 1958 falla | árlega til afborgunar af erlend- um bráðabirgðalánum til báta- kaupanna undanfarið um 10 millj. króna á ári. Verður þá handbært fé til út- lána næstu tvö ár, að öðru óbreyttu 8 millj. kr., sem eins og nú er hrekkur ekki einu sinni til að endurnýja vélarnar í báta- flotanum árlega, hvað þá meira. Að vísu veit ég að þessi fjár- skortur Fiskveiðasjóðs kemur háttvirtum alþingismönnum ekki á óvart, því að alkunna er, að reynt hefur verið að fá erlent lánsfé til Fiskveiðasjóðs tvö und- anfarin ár frá Alþjóðabankanum án árangurs. Frumvarp það, sem hér er fram borið um að hækka hið árlega ríkissjóðsframlag þegar í stað um 10 milljónir króna miðar að því að firra vandræðum, eins og nú horfir. í»að leysir ekki lánsfjár- þörfina, sem framundan er. En það er vissulega ekki tál of mikils mælzt, að af hinum risavöxnu útgjöldum ríkissjóðs fari árlega 12 milljónir króna í hinn mikil- væga stofnlár.asjóð sjávarútvegs- ins, Fiskveiðasjóð íslands. LÁNSFJÁRÞÖRFIN MJÖG MIKIL Ég vil þá víkja nokkrum orð- um að lánsfjárþörfinni, sem fyr- ir hendi er, ef tryggja á að Fisk- veiðasjóður geti haldið áfram að gegna sínu mikilvæga uppbygg- ingarhlutverki í ísl. sjávarútvegi. Eins og fram kemur í greinar- gerð frv., fskj. IV, er hin árlega lánsfjárþörf áætluð rúmar 44 millj. kr. Þetta sundurliðast þannig: I M.kr. Til aukningar bátaflotans, miðað við sömu þróun og undanfarin 2% ár....... 26.250 Til vélakaupa............ 9.000 Viðgerðir skipa og véla .. 2.000 Verbúðir og vinnslustöðvar 7.000 Samtals 44.250 Ef til vill er þessi áætlun rifleg og mætti komast af með minna til sumra liða hennar. En þá er á það að líta, að önn- ur aðkallandi verkefni eru fyrir hendi, sem Fiskveiða- sjóður hefur ekki treyst sér til að sinna, eða ekki nema að nokkru leyti og á ég þar við margs konar verkefni í sambandi við hagnýtingu afl- ans í landi. Og alveg sérstak- lega vek ég athygli á þeirri miklu þörf, sem fyrir hendi ec hjá söltunarstöðvunum á Siglufirði og víðar — til end- urnýjunar og nýbyggingar — en þörfum þcssara aðila hef- ur Fiskveiðasjóður ekki gctað mætt — og ég óttast, að þeir eigi ekki í nokkur hús að venda, eins og nú standa sak- ir. Af öllu þessu má marka, eins og fram kemur í greinar- gerð, að til stórra vandræða horfir, enda þótt þetta nauð- synlega frv. yrði að lögum, ef ekki tekst jafnframt að hagnýta 50 millj. kr. láns- heimild þá, sem fyrir hendi er í gildandi lögum um Fiskveiða sjóð nr. 40 frá 1955. EIRÍKUR ÞORSTEINSSON ANDVÍGUR FRUMV.? A3 lokinni framsöguræðu Jó- hann Hafstein tók til máls þing- maður Vestur-ísfirðinga Eirik- ur Þorsteinsson. Flutti hann all- langa skrifaða ræðu og reyndi í henni að leitast við að sanna að Sjálfstæðismenn hefðu ek-ki unn- ið sem skyldi fyrir sjávarútveg- inn. Varð vart betur skilið af ummælum hans öllum en að hann væri þessu frumvarpi um Fiskveiðasjóð lítt fylgjandi. Og er Jóhann Hafstein hvatti hann til þess að lýsa því skýrt og skor- inort yfir hvort hann væri fylgj- andi frumvarpinu eða ekki, kvaðst Eiríkur mundi greiða því atkvæði til annarrar umræðu, en meira var ekki hægt að fá út úr honum. Varð þingmaður sér til lítils sóma í sambandi við þetta stórfellda hagsmunamál sjávar- útvegsins, enda benti Jóhann Hafstein á að Vestur-ísfirðingar bæru til hans lítið traust í sam- bandi við afskipti hans af sjávar- útvegsmálum. SEYÐISFIRÐI, 7. nóv. — Fyrir hálfum mánuði, var byrjað að grafa fyrir toppstöð hér rétt inn- an við Seyðisfjarðarkaupstað. Eru vélarnar til stöðvarinnar komnar hingað fyrir löngu. Verð- ur haldið áfram með verkið, en því miðar vel áfram, meðan veðrátta leyfir. Er stöðin byggð með það fyrir augum, að nota hana, sem varastöð, ef rafmagn þrýtur hér í kaupstaðnum frá aðalstöðinni. -—Benedikt. DANSLEIKUR verður í Samkomuhúsinu Káranesbraut 21, Kópavogi í kvöld klukkan 9 Bílhappdrætti SjálfstæbiJískksiRS Dregið eftir 2 daga Enn nokkrir miðar óseldir. Fást í bílnum í Austurstræti og í skrit- stofu Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.