Morgunblaðið - 10.11.1956, Page 13

Morgunblaðið - 10.11.1956, Page 13
Laugardagur lö. nóv. 1956 M ORCUNBLAÐIÐ 13 Sjötug i dag: Guðbjörg Magnúsdóttir í DAG verður Guðbjörg Magnús- dóttir, nú til heimilis á ísafirði, 70 ára. Útlit hennar og atgjörvi gefur ekki til kynna að aldur hennar nemi nú 7 áratugum. Hinn 10. nóv. 1886 fæddist Guð- björg á Hafnarhólmi í Steingríms firði. Foreldrar hennar voru hjón in Guðrún Mikaelsdóttir og Magnús Kristjánsson, sem þar bjuggu. Á árunum fyrir síðustu aldamót markaðist uppvöxtur æskulýðsins af því að starfa og nýta tímann til vinnu sem bezt. Á barnmörgum heimilum eins og á æskuheimili Guðbjargar var það nauðsyn, að hin eldri börn legðu alla atorku sína fram til að vinna, vinna fyrir hinu daglega brauði. Þá lifði íslenzka þjóðin við önnur skilyrði en í dag, og þá þurfti hinn ungi maður og hin unga kona að skilja að vinnan var máttur lífsins. Þannig var aldarandinn fyrir og um s. 1. aldamót, og við þau skilyrði og Afmælishátíð Karlakórs Reykjavíkur sem halda átti í kvöld er frestað um óákveðinn tíma vegna veikinda. — Aðgöngumiðar verða endurgreiddir 1 Bókaverzlun ísafoldar. Stjórnin. * ■*» «• * Á tímabilinu frá 1. nóv. 1956 til 31. marz 1957 kosta farseðlarnir fjórir — fram og aftur — milli Ameríku og íslands ekki nema 10.445 kr. í>ess vegna er nú orðið kleift að bjóða allri fjölskyldunni í ferðalagið með LOFTLEIöUM Kynnið yður hin hagstaeðu FJÖLSKYLDUFARGJÖLD Loftleiða milli Ameríku og íslands. 5 LOFTLEIÐIR •* Bátaofnar Laugaveg 6 — Sími 4550. Malbiksframleiðsla staðhattu fæddist Guðbjörg og ólst upp. Arfurinn frá föðurhúsum hefur sjálfsagt verið henni sterkt veg- arnesti. Skaplyndi foreldranna, samfara atgjörvi og dugnaði, hóg- værð og góðvild, allt var þetta sem hún nam og erfði frá æsku- heimilinu. Sá sem ritar þessar línur, minnist æskuára sinna. Á þeim árum og ennfremur síðar varð reynslan sú að sá er vinur, sem í raun reynist. Guðbjörg hef- ur ávalit verið hin styrka stoð ættmenna sinna og vina á stund reynslunnar. Ung að árum yfirgaf hún æsku- heimili sitt í Steingrímcíirði, og fluttist til Bolungarvíkur, þar sem hún kynntist manni sínum, Pétri Sigurðssyni, skipstjóra, en hann i..issti Guðbjörg árið 1939. Þau eignuðust eitt barn, sem þau misstu á ung.i aldri. Guðbjörg gekk í móðurstað börnum Péturs heitins frá fyrra hjónabandi hans, og alla tíð hefur hún reynzt þeim svo góð sem bezta móðir. Dóttir Guðbjargar, Halla Einarsdóttir á ísafirði ólst upp á heimili þeirra hjóna. Nú í dag dvelur Guðbjörg hér í Reykjavík, á heimili fósturson- ar síns, Sigurðar Péturssonar og konu hans Inu Jensen, Bólstaðar- hlíð 31. Fósturbörn hennar og dóttir eru þar öll saman komin í dag. Ég óska þér, Guðbjörg mín, til hamingju með þennan merkis- dag og ég er viss um að hlýjar kveðjur berast þér frá öllu því samferðafólki sem þú hefur kynnzt, því þar sem góðir menn fara þar eru guðs vegir. Guðs blessun veri með þér öll ókomin ár. Á. Sendisvein vantar nú þegar á skrifstofu borgar stjóra. Upplýsingar á Ráðningar- stofu Reykjavíkurbæjar. BarberGreene verður hagkvæmust með gerðinni 845, sem skilar 60 tonnum á klst. Þessi samstæða getur unnið úr 3—4 mismunandi tegundum af hráefni og er algjörlega færanleg. Tilheyrandi samstæðunni er allt sem nota þarf við framleiðslu á malbiki. Samstæðuna er mjög auðvelt að setja upp á skömmum tíma án sérstaks undirbúnings. €!■ LAUGAVEGI 166 Á sævarslóðum og landleiðum Eftir Óskar Jónsson. Höfundur þessarar bókar hefir stundað margvísleg störf um ævina, ferðast mikið bæði innan lands og utan og komið víða við. í bókinni segir hann frá því, sem fyrir hann hefir borið við störf og í ferðalögum, lýsir útróðrum á áraskipum og vélbátum, störfum á innlendum og erlendum togurum, ferðum um óbyggðir íslands og skemmti ferðum um mörg framandi lönd. Hann hefir verið sjómaður og verzlunarmaður, í op- inberum störfum og m.a. átt sæti í Nýbyggingarráði, sem hafði meiri og örlagarikari áhrif á hag og afkomu þjóðarinnar, en jafnvel nokkur önnur stofnun, sem starfað hef- ir. Segir hann í löngum kafla frá störfum sínum og félaga sinna þar. Þá er og í bók- inni mjög athyglisverður kafli með dulrænum frásögnum. Hér er um athyglisverða bók að ræða. Höfundurinn gerir ekki kröfu til þess að á hann sé litið sem rithöfund, en stíll hans og frásagnarmáti er lipur og aðlaðandi — athyglinni er haldið vakandi frá byrjun til enda. Á sævarslóðum og landleiðum er 224 blaðsíður að stærð og prýdd mörgum myndum. Bókaútgáfan Barðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.