Morgunblaðið - 14.11.1956, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1956, Blaðsíða 1
20 síður 43. árgangur 262. tbl. — Miðvikudagur 14. nóvember 1956 Prentsmiðja MorgunblaðsHM Viðbúnaður í Búlgaríu Vínarborg, 13. nóv. NOKKRIB Búlgarar, sem sátu á kaffihúsi í Sofia og ræddu ungversku uppreisnina, voru handteknir og minntir á, að þetta umræðuefni væri stór- hættulegt. Eftir þessa viðvör- un var þeim sleppt. Augljóst var, að Búlgarar höfðu fylgzt vel með gangi mála í Ung- verjalandi og létu þeir óspart í ljós samúð sína. Lögreglan í Sofia hefur verið aukin og henni fengnar vélbyssur og rifflar, og stendur nú vörður við öll pósthús og aðrar opin- berar byggingar. RÚSSfiR FLYTJfl ÆSKUMENN UNGVERJALANDS NAUÐUGA ÚR LANDI Síðustu fréttir : Líðsflutningar Rússa FRÉTTIR seint í gærkvöldi hermdu að Rússar hefðu í gær Hutt mikinn herafla Rauða bersins í Austur-Þýzkalandi að landamærum Póllands. — Fréttir um liðsflutninga þessa eru enn óljósar, en frétta- menn eru þeirrar skoðunar að herflutningar þessir standi í sambandi við brottrekstur Rokossovskís. Allskergarverkfall í landinu — Nagy beðinn um að taka þátt í stjórninni? Búdapest, 13. nóv. — Til Mbl. frá Reuter. FRÉTTAMENN segja að kvislingsstjórn Kadars og Rússar hygg- ist nú reyna að semja við Nagy um það að hann taki þátt í leppstjóm þeirri, sem Rauði herinn setti á laggimar í Ungverjalandi. þegar hann gerði hina sviksamlegu atlögu sína að ungversku þjóð- inni. Þá herma óstaðfestar fregnir einnig að leitað hafi verið til foringja annarra flokka, bæði Bænda- og Jafnaðarmannaflokksins. Eins og kunnugt er, hefur kvislingsstjóm Kadars verið allt að því óstarfhæf vegna þess að hún nýtur ekki stuðnings þjóðarinnar, getur hvorki friðað landið né fengið fólkið til að taka upp vinnu. MIKILL ÓTTI Rússar hafa nú byrjað brott flutning ungverskra æsku- manna frá Ungverjalandi og er ákvörðunarstaður einhvers staðar í Sovétríkjunum. Eink- um eru fluttir á brott stúd- entar og menn á herskyldu- aldri, en einnig ungir drengir (sjá nánar hér á eftir). Hefur mikill ótti gripið um sig í þá ósk að nefnd frá þeim fengi leyfi til að rannsaka ástandið í þessu stríðshrjáða landi. Bæði Rússar og stjórn Kadars hafa barizt gegn því með oddi og egg að S. Þ. létu sig málið skipta. í gær sendi kvislingsstjórn Kad- ars, sem hefir ekkert umboð til að fara með völd í landinu, skeyti til S. Þ., sem sannar það svart á hvítu, að stjórnin er ekkert annað en leppstjórn Rússa, eins og allir vissu raunar. í skeytinu segir að Rauði herinn sé í Ungverjalandi Margir menn úr ungversku öryggislögreglunni flýðu til Austur- rikis, þegar bardagar hófust þar. Hér á myndinni sést öryggis- lögreglumaður, sem hefur verið afvopnaður. flokossovski setftnr Ifá Gomulka fer til Moskvu um helgina Warsjá, 13. nóv. — Reutersskeyti til Mbl. IDAG sagði Rokossovski marskálkur, yfirmaður pólska hersins, af sér störfum landvarnaráðherra Póllands. Eins og kunnugt er, hefur skorizt í odda með honum og núverandi stjórn landsins undir forsæti Gomulka, enda er marskálk- urinn óvinsæll í Póllandi. Hann er alinn upp og skólaður í Rússlandi. — Við störfum landvarnaráðherra hefur tekið einkavinur Gomulka, Spychalski, hershöfðingi. — Þess má geta að nýlega voru 30 rússneskir hershöfðingjar í pólska hernum reknir frá störfum. „Burt með Zionista" Lundúnum, 13. nóv. ÍRAKSSTJÓRN gaf í dag út yfirlýsingu þar sem segir m.a. að friður verði aldrei tryggð- ur fyrir botni Miðjarðarhafs nema „Ísraelsríki verði leyst upp og Zionistar verði fluttir aftur þangað sem þeir voru, áður en Ísraelsríki var stofn- að“. —Reuter. -□ REKINN Marskálkurinn var rekinn úr Btjórnmálanefnd pólska komm- únistaflokksins í október s.l., þegar Gomulka tók við leiðsögn flokksins aftur. Rokossovski hef- ur ætíð verið álitinn tákn rúss- neskra áhrifa í Póllandi. Hafa rússnesku kommúnistaleiðtogam- ir barizt fyrir þvi með oddi og egg að marskálkurinn héldi stöð- um sínum í Póllandi. Gomulka fer sennilega til Moskvu um helgina til að ræða við rússneska kommún- istaleiðtoga um áframhaldandi samstarf rússneska og pólska kommúnistaflokksins. Er vit- að, að margt ber á milli þeirra um þessar mundir. Hammarskjöld frestar Kairóför sinni ny íS. Þ. New York, 13. nóv. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB. DAG HAMMARSKJÖLD aðal- ritari S. Þ. frestaði í dag Kairó för sinni. Eins og kunnugt er, hugðist aðalritarinn fara til Kairó til skrafs og ráðagerða við stjórn Nassers um gæzlu- lið S. Þ. við Súez. Hann frest- aði för sinni út af Ungverja- landsmálunum. — Ungverska stjórnin hefir beðið S. Þ. um að senda til Iandsins hjúkrun argögn og lyf. Allsherjarþing S. Þ. var sett í gærkvöldi. Forseti þingsins var kosinn Van prins frá Thailandi. Þá var kosið í fastanefndir þings- ins og ákveðið að taka Súez-mál- ið og atburðina í Ungverjalandi á dagskrá þingsins. Allsherjarþingið hefir sam- þykkt í einu hljóði inntökubeiðni þriggja þjóða: Túnis, Marokkó og Súdans. Með inngöngu þeirra eru S. Þ. nú orðnar 78 að tölu. Skilaboð til foreldranna Lundúnum, 13. nóv. ENN er barizt í Ungverjalandi, m. a. utan við Búdapest. Þær fregnir berast frá Ungverjalandi að fundizt hafi miðar við járnbrautateina í landinu, þar sem á eru skráð nöfn og heimilisföng ungra manna, sem Rússar hafa flutt úr landi. Eru „skilaboð“ þessi skrifuð af ungu mönnunum sjálfum og hefur þeim síðan verið kastað út. um glugga járnbrautaklefaxma. Þeir sem finna miðana eru beðnir um að koma þeim skilaboðum til foreldra ungu mannanna — að þeir hafi verið fluttir nauðugir til Rússlands. Ungverjalandi vegna þessara fregna. Stjórn rithöfundafélags Ung- verjalands hefur sent frá sér ályktun, þar sem þess er krafizt, að Rauði herinn hverfi á brott úr landinu og þjóðinni verði veitt almenn mannréttindi. Hefur álylrtunin verið límd upp á húsveggi víða í Búdapest. Ályktun þessi var einnig undir- rituð af félagssamtökum stúd- enta, hljómlistarmanna, leikara, arkítekta, vísindamanna, blaða- manna og verkamanna. — í dag voru miklar biðraðir fyrir fram- an matarverzlanir í Búdapest. ★ EINN af stjómmálafréttarit- urum brezka útvarpsins gerði Ungverjalandsmálin að umræðuefni sínu í gær. Hann komst m. a. svo að orði: Rússar og stjórn sú, sem þeir hafa sett á laggirnar í Ungverjalandi, hafa neitað rannsóknarnefnd frá Sameinuðu þjóðunum um leyfi til að rannsaka ástand- ið í Ungverjalandi eftir að Rauði herinn hefur lagt það í eyði, að heita má. Sama dag og Rússar gerðu árás sína á Ungverja sam- þykkti Allsherjarþingið til- lögu, þar sem þess er kraf- izt að rússneski herinn hverfi á brott úr landinu hið bráð- asta. Auk þess báru S. Þ. fram samkvæmt beiðni stjórnarinnar. Þar segir ennfremur að S. Þ. komi ekkert við ástandið í Ung verjalandi. Rauði herinn, segir og í þessu skeyti, sem sent var frá borg eyðileggingarinanr og hungursins, er aðeins í Ungverja- landi til þess að koma á friði í landinu. Herinn hefir ekkert gert á hlut ungversku þjóðarinnar, segir kvislingastjórnin enn- fremur, og í engu brotið í bág við mannréttindayfirlýsingu S. Þ. — Þess vegna eru öll afskipti sam- takanna af ástandinu í Ungverja- landi harðlega bönnuð. Þó er leyft að aðildarríki S. Þ. sendi matvæli og lyf til Ungverjalands. AUGU HEIMSINS HAFA SÉÐ OFBELDI RÚSSA Það er því augljóst að rann- sóknarnefnd S. Þ. á ekki að fá tækifæri til að kynna sér hryðju- verk, grimmdaræði og morð Rússa í Ungverjalandi. En við þekkjum samt hinar hörmulegu staðreyndir. Ungverjaland liggur í hjarta Evrópu og Rússum tókst ekki að fremja glæpi sína á laun, eins og þeim hefir tekizt á und- anförnum áratugum. Tugir vest- rænna fréttamanna voru í Búda- pest, þegar Rússar hófu ofbeldis- árás sína. Augu heimsins fylgd- ust með atburðunum, heimurinn hlustaði á sprengjuregnið og neyð aróp kúgaðrar þjóðar. Hann veit, hvað gerðist — og hann á eftir að fá að vita meira, þegar frétta- mennirnir fara að rifja upp þá Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.