Morgunblaðið - 16.11.1956, Page 6

Morgunblaðið - 16.11.1956, Page 6
V MORGVNBLAÐIÐ FSstudagur 16. ndv. 1956 / fáum orðum sagt: >rTTTTTTTTYt fTTTTTTT^ 4 4 4 4 < Ég ldna persónunum í bili eitthvað af sjdlfum mér segir Jón Aðils á 25 ára leikafmæli sínu ÞEGAR ég hringdi til Jóns Aðils og spurði hann, hvort við gætum rabbað dálítið sam- an í tilefni af 25 ára leikafmæli hans, sagðist hann ekki hafa mik- inn tíma til slíkra hluta, hann þyrfti að fara á leikæfingu eft- ir hálftíma. Hann spurði, hvort það væri nægur tími — og auð- vitað varð svo að vera. — Þjóðleikhúsið hyggst halda upp á 25 ára leikafmæli Jóns með sýningum á Tondeleyo, og var hann í óða önn að undirbúa sig undir þær. — Mér þykir vænt um hlutverk mitt í því leikriti, sagði Jón, þegar ég hitti hann i búningsherbergi hans í Þjóðleik húsinu — og sýningin í heild var ákaflega vönduð á sínum tíma. ___... ^ JÓN kveikir sér í sígarettu, leggst upp í dívan og lætur fara vel um sig. Hann býður mér dús, og ég fæ tækifæri til að kynnast manninum sem gerði Ben frænda svo úr garði að ó- gleymanlegt er. Ég sé strax að mér hefur skjátl- azt. Ben frændi og Jón Aðils eru ósköp ólíkir! Ég hafði látið mér detta það í hug að þeir væru steyptir í sama móti. Góður leik- ur ruglar mann oft í ríminu. Jón er að vísu rólegur og getúr vafalaust verið kaldhæðinn raun- hyggjumaður, en hann er fyrst og fremst gáskafullur og glett- inn alvörumaður. Ég játa að bað kom mér á óvart. Og þessi rödd sem hefir verið færð í munn svo margra óhugnanlegra persóna er óvenju alúðleg, þegar farið er að ræða við Jón Aðils í góðu tómi. Það er annars undarlegt, hvað góður leikari getur breytt sér á sviðinu. — Ha, röddin, segir Jón, þegar ég minnist á hana, mér finnst hún alltaf annkannaleg, þegar ég hlusta á sjálfan mig á bandi, en er ekkert hræddur við hana, aðeins hálffeiminn! Svo bætir hann við, þegar ég spyr, hvort það hafi ekki áhrif á sálarlíf leikarans að bregða sér í öll þessi undarlegu gervi: — Nei, það hefur engin áhrif. Ég skal segja þér, ég lána per- sónunum í bili eitthvað af sjálf- um mér. Það er allt og sumt. ★ ★ ★ EG skyggnist um í búningsher- berginu. Hér má sjá hluta af þeim furðulegustu persónum sem hugsazt getur; hér eru t.d. 3. hár- kollur með ýmsum litum. Þó að þær séu kannski allmikilvægar á leiksviði Þjóðleikhússins, eru þær einar heldur ófullkomnar, ef j skapa á nýja persónu. Það þarf meira til; mikinn lærdóm, reynslu og þennan eilífa neista sem breytir lífi í list — eða öllu heldur list í líf. Hér fyrir fram- an mig er einn þeirra manna sem hefur þennan neista í sér og hefir kunnað að nota hann með góðum árangri. — Jón segir og bendir á svörtu hárkolluna: — Þessi er t.d. úr Tehúsinu. Ég nota hana ekki sjálfur. En þessi gráa þarna fyrir framan þig, það er mín kolla. Ég hugsa með sjálfum mér: Hvernig skyldi maður nú líta út, ef maður setti þessa upp?; en segi ekkert í þá átt, óttast að Jón bjóðist til að lána mér hana um stundarsakir. En auðvitað er ekki á það hættandi. Það gæti komið sér illa að missa persónu- leikann, eins og Þórbergur, já og það svona í ókunnum húsum. Ég sný mér því að öðru: — En hvað er þetta hér, Jón? — Ja, þetta, svarar hann og hlær, þetta er ether og brennslu- spíritus. — Til drykkjar? — Nei — nei. Notum það til að ná af okkur skegglími. — En þessar byssur þarna? — Önnur er úr Tondeleyo. En fílabyssuna hef ég aldrei notað. Fyrir ofan einn spegilinn hang- ir orða með rauðu bandi. Ég spyr Jón, hvort hann sé nýbú- inn að fá Fálkaorðuna. Hann hristir höfuðið, hlær: Ævar Kvar- an hefur notað hana þessa í einhverju leikriti. ★ ★ ★ OG nú er þessum stutta formála lokið og ástæða til að hefja samtalið. Þetta er ekki nema hálf tími og nauðsynlegt að ganga rösklega til verks. Jón Aðils segir: — Nei, þú vilt ekki skrifa neina ævisögu. Það er of snemmt. Hann hlær kaldhæðnisiega. Ben frændi? — hugsa ég. Nei — nei, það er ómögulegt. Jón heldur áfram: — Ég hefði gaman af að þú byrjaðir með því að minnast á Litla leikfélagið. Hjá því lék ég fyrst. Já, að því stóð áhugafólk sem sá um sýningar á barnaleik- ritum Óskars Kjartanssonar. — Og hver var fyrsti leikstjór- inn þinn? — Valur Gíslason. En fyrsta hlutverk mitt var Hervarður líf- varðaforingi í Hlyna kóngssyni. Jón hlær. — En hvers vegna tókstu upp á því að fara allt í einu að leika? — Það var tilviljun eins og hjá flestum. En heyrðu láttu það koma með, hvað gömlu leikararn- ir voru hjálplegir. Þeir vildu undantekningarlaust allt fyrir okkur yngri leikarana gera. Ég minnist ekki sízt vináttu þeirra Brynjólfs Jóhannessonar og Vals Gíslasonar, já og ekki má gleyma gömlu leikstjórunum okkar, Ind- riða Waage og Haraldi Björns- syni. — Það hefur margt breytzt síð- an þú fórst að leika. — Já, það má nú segja. Það hefur margt breytzt. Ég man t.d. eítir því, þegar vatnið var í ökla x kjallaranum í Iðnó gömlu og rotturnar átu allt „smynkið" okk- ar, þar sem það stóð á borðunum. Þær átu allt sem tönn á festi, blessaður vertu. Jón Aðils: — Mér þykir vænt um hlutverk mitt í Tondeleyo. — Þið eigið víst eltki von á neinum slíkum heimsóknum hér í Þjóðleikhúsinu. — Nei, hér eru engar rottur og ekkert vatn — nema heitt og kalt vatn í krönunum. Hér er aðbúnaður ágætur. í alla staði. shrifar úr daglega lifinu SKAMMT gerist nú stórra högga á milli í umferðarslysum þeim sem ávallt eiga sér stað. Tvö dauðaslys um eina helgi og ör- kuml að auki er mikið skakkafall fyrir fámenna þjóð. Furðulegt má heita að þrátt fyrir síendurtekin dauðaslys skuli bifreiðastjórar og aðrir ekki gæta betur að ferð- um sínum. Víst eru nú dauða- slysin í Reykjavík einni komin upp í nær tuginn á þessu ári. Mun það eflaust mjög há hlutfalls- tala. Hver eru úrræðin? 17’N hvað er til ráða? Vandamál þetta er nú þegar orðið svo alvarlegt að hefjast verður handa af festu og dugnaði til þess að ráða bót á því. Hér dugir ekkert hálfkák. Við Islendingar erum allt of fámenn og lítil þjóð til þess að við höfum efni á því að glata tugum manns- lífa á ári hverju undir aurugum hjólum gálausra bifreiða. En hvað hefir verið gert? Sam- keppni um umferðarmál er hald- in með miklum auglýsingum og háum verðlaunum. Vitrir menn senda inn tillögur, margar ágæt- ar. Umferðarnefnd er stofnuð sem er þó gjörsamlega valdalaus, hef- ir aðeins tillögurétt, og kemur með margar góðar úrbótatillögur. En þær eru ekki framkvæmdar. Lögreglan í höfuðborginni horf ir steinþegjandi á mannfjöldann á aðalgötunum brjóta allar um- ferðarreglur. Sjálfur hefi ég gengið yfir götu móti rauðu ljósi fyrir framan nefið á lögreglu- þjóni. Hann draup höfði, samúð- arfulkur á svipinn og mælti ekki orð frá vörum. Áhugamenn hafa stofnað með sér slysavarnafélög til þess m. a. að fækka bílslysun- um. Bindindisfélag ökumanna hefir verið stofnað í sama til- gangi. Engar raunhæfar aðgerðir. EN slysunum íjölgar frekar en en að þeim fækki og engar raunhæfar aðgerðir sjást neins staðar. Félög áhugamanna eins og þessi tvö hafa heldur engin völd, hið opinbera verður að Þ 1. Þetta er leiðin. AÐ sem hér þarf að gera er: ganga hér á undan. Hér þarf starf og dugnað en ekki svefn og rúm- leti, sem drepið hefir gjörsam- lega mátt úr þeim opinberum að- ilum, sem um þetta eiga að sjá. Lögreglumenn sem með rann- sókn umferðarslysa fara, hafa sagt mér hve sárgrætilegt þeim sjálfum þyki að yfirheyra sömu ökuníðingana mánuð eftir mán- uð. Það eru tiltölulega fáir menn sem flest brotin fremja, en lögin virðast ekki ná yfir þá. Þeir eru kannske sviptir ökuleyfi stuttan tíma og farnir að keyra nær jafn ótt aftur eða þá rannsókn máls- ins tekur langan tíma og dóms- uppsaga dregst von úr viti — og þeir aka eins og ljón á meðan og fremja ný afbrot. Það er t. d. engin tilviljun að í bæjum eins og Akureyri, sem telur þó um 8.000 manns, skuli ekkert dauðaslys né alvarlegt um ferðarslys hafa átt sér stað í ára- tug. Þar er gætnin og löggæzlan með ágætum, tillitssemi og aðgát 1 bifreiðastjóranna í bezta lagi. miklum mun, jafnt með því að bifreiðar haldi umferðarreglur sem gangandi fólk. 2Þyngja mjög dóma fyrir um- • ferðarbrot, og svipta menn ökuleyfi ævilangt fyrir stórfelld gáleysisbrot öðru eða þriðja sinni. 3Svipta menn ökuleyfi ævi- • langt fyrir að aka bifreið und ir áhrifum áfengis, við fyrsta brot. (Frumvarp þessa efnis frá Skúla Guðmundssyni liggur nú fyrir þinginu). 4Þyngja að mun skilyrðin til • þess að fá að stjórna bifreið, og taka upp sérstakt próf og öku- skírteini fyrir hjólreiðamenn, svo sem Danir hafa nú í hyggju. Þetta eru stór spor og miklar breytingar frá núgildandi ástandi í umferðarmálum þjóðarinnar. En dauðaslysin falla ekki úr sögunni við það eitt að tala um málin, halda verðlaunasamkeppnir og góðaksturskeppnir eða negla blinda lögregluþjóna niður á stærstu gatnamótin, þótt þénan- legt sé, á sína vísu. Ilvað verður biðin löng? ÉR hefir alltaf virzt að um- ferðarmálin séu eitt þeirra stóru hagsmunamála sem allri þjóðinni ber skylda til þess að sameinast um, líkt og skógrækt- armáiin. Þótt einu mannslífi að- eins væri borgið með þessum ráð- stöfunum, sem hér hafa verið nefndar hefðu þær þegar gold- ið sjálfar sig margsinnis. En hve lengi eigum við hóglátir og valdalausir borgararnir að bíða eftir því að opinberir aðilar hefj- ist handa? Því kannske fylgir valdinu hvergi eins mikil ábyrgð eins og i þessum málum. — En hugsaðu þér aðbúnað þeirra leikara sem voru upp á sitt bezta, áður en mín kynslóð kom til sögunnar. Þá var ekki einu sinni komið gas, hvað þá raf- magn. Ekkert nema ofn ein- hvers staðar úti í horni. — Hverjir voru eftirlætisleik- arar þínir á þessum fyrstu leik- árum? — Ja, þeir voru margir, en við skulum ekki fara að nefna nein nöfn. Annað máttu minnast á. Það er mikið talað um að sam- komulagið sé slæmt milli leikar- anna. En ég er viss um að það er mun betra en gengur og ger- ist. — Já, það er ýmislegt sagt um leikarana — en eru þeir ekki einmitt ágætt umræðuefni? —- Jú, ágætt, eins og gefur að skilja. Hárkollurnar eru enn á sínum stöðum og mér er tíðlitið á þær. Hvað er þetta eiginlega, eru þær byrjaðar að fara í taugarnar á mér? Nei, það er ómögulegt. En mér finnst samt full ástæða til að spyrja: — Hvers konar tilfinning er það að setja svona nokkuð á hausinn á sér? — Tilfinning, segir Jón og glottir. — Ja, maður vonar að- eins að maður komizt í persón- una sem á þetta. — Og það er auðvitað misjafn- eins að maður komist í persón- urnar“? — Jú. En það er alltaf erfið- ast að túlka þær persónur sem verst eru skrifaðar. — En eigum við ekki heldur að taka upp létt- ara hjal? — Jú, ekki er ég á móti þvl. Hverju hefurðu til að tjalda í þeim efnum? — Ja, það er ýmislegt skemmtl legt sem komið hefur fyrir. Ég ætti kannski að segja þér frá því, þegar við fórum með Top- aze til Vestur- og Norðurlands- ins. Við urðum að selflytja allt okkar hafurtask — og það vakti mikla kátínu, þegar við Haraldur Björnsson bárum sófann útí bát á Barðaströndinni. Það þótti mik- ið afrek. — En hvernig gekk það? — Jú, hann komst um borð. Siðan fórum við að rabba um það, hvaða hlutverk Jóni hefði þótt skemmtilegast að leika. Við minntumst þá fljótt á Ben frænda í Sölumanninum eftir Miller. Jón sagði: Framh. á bls. 11.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.