Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 11
Fostudagur 16. nðv. 1936
MORGUNBLAÐIÐ
lt
kallaður sósíalismi, er það ljóst,
Það er sannarlega mál til þess
komið, að íslendingar leggi niður
þann molbúa og útskagahugsun-
arhátt sem hér er að verki og
þó framar öðru að þeir hætti
að afsaka hann og réttlæta með
einhverju yfirskinsfrjálslyndi.
VESXRÆN MENNINGAR-
ARFLEIFÖ
Innsti kjarni sameiginlegrar
menningar vesturlanda er enn
óspilltur, og við höfum ástæðu
til þess að vona, að yngingar-
máttur hans sé slíkur, að sigra
megi aðsteðjandi vandamál.
Á okkur hvílir sú ábyrgð að
ávaxta þennan arf, svo að frarn-
þróun megi haldast.
En þegar slíkt verk er fram
undan, stendur okkur næst að líta
í eigin barm á þann þátt menn-
ingararfsins, sem frá þjóð okkar
er runninn og lífga með sjálf-
um okkur það, sem hann hefur
að geyma lífrænast á sviði mann-
ræktar og heimsskoðunar.
Yrði það allri framþróun drjúg
um hollara en þær dauðu 19.
aldar bókstafskenningar komm-
únista, sem allt mannkynið er
löngu vaxið upp úr, og leitt hafa
slíkt böl yfir einstaklinga og
þjóðir sem nú er ljóst orðið.
Fjarlæg þjóð er nú að úthella
blóði sinu fyrir málstað frels-
isnis. Hún hefur vísað veginn.
Á þetta höfum við viljað minna
i dag um leið og við hvetjum
til þess að gefa atburðum þessum
nákvæman gaum. Svo og öðrum
þeim atburðum sem í aðsigi virð-
ast vera handan járntjalds.
CMMÆLI ÞÓRBERGS
Þá vil ég um leið biðja menn
að hafa í huga ummæli eins
höfuðrithöfunda kommúnista,
Þórbergs Þórðarsonar, en á þau
held ég, að allir geti fallizt:
»Og valdhafar þjóðanna
myndn hafa gott af að minn-
ast þess, áður en það er um
seinan, að ekkert það ríki, sem
beitir þegna sína kúgsm og
ofbeldi á sér siðferðilegan til-
verurétt".
PÍSLARVOTXCR FRELSISINS
Það svartnætt kúgunar, morða
og mannréttindarána, sem komm-
únisminn hefur nú leitt yfir Ung-
verjaland gefur vissulega ekki
nein fyrirheit um það siðferðis-
afl, sem megna mundi að létta af
fári þessu.
En neyðarköllum ungversku-
þjóðarinnar, sem við höfum heyrt
í dag, munum við aldrei gleyma,
og þau verða hvorki kæfð með
dreyra né dýflissum.
Enn hefur frelsið eignazt
marga píslarvotta og enn sem
fyrr mun blóð pislarvottanna
verða útsæði frelsishugsjón-
anna.
að sagnfræðingurinn hefur hitt
naglann á höfuðið.
Það er einmitt önnur mann-
gerð, sem kommúnisminn þarfn-
ast og hana er leitazt við að
skapa.
Þessa manntegund einkenn-
ir einkum, þumbaldaleg sjálf-
umglöð þröngsýni, þannig að
ákveðnar aðfengnar hugmynd
ir um æskilegt þjóðfélag telj-
ast einar réttar og það hvernig
sem allt veltist, ískaldur, and-
laus og jafnframt þaulhugs-
aður ruddaskapur, sem rétt-
lætt getur allt ofbeldi og öli
hryðjuverk, er teljast í þágu
framkvæmda á þessum fyrir-
fram gefnu hugmyndakredd-
um, einfeldnisleg aðdáun á
öllu því sem hægt er að kenna
við kommúnisma, algert and-
legt þurftarleysl og helstirðn-
aðar hugsanavenjur.
Þar, sem þessi nýja mannteg-
und hefur verið sköpuð, skipta
atburðir eins og þeir, sem eru að
gerast í Ungverjalandi engu máli.
Þeir hafa eftir sem áður „jafn
bjargfasta trú á sósíalismanum
og kommúnismanum".
Þetfa er sá fagnaðarboðskapur
um manninn sem kommúnistar
hafa flutt og flytja enn.
Ég veit ekki hvernig þessari
sköpun nýrrar manngerðar miðar
hér á íslandi. Það mim þó senni-
lega koma í ljós áður en langur
tími er liðinn, þegar viðbrögð
kommúnista gagnvart atburðun-
um í Ungverjalandi koma í ljós.
Hitt er víst, að sáralítið hefur
ágengt orðið um endursköpun
þessa í Ungverjalandi, það hafa
atburðirnir síðustu daga sannað
rækilega, svo að ekki verður um
villzt.
Sá boðskapur verður hér eftir
ekki kæfður, hversu margir sem
þeir skriðdrekar verða, er Rússar
senda inn í landið, og sú skot-
hrið sem þeir nú halda uppi
mim heldur ekki þagga hann
niður.
HLUTUR fSLENDINGA
Ungverjar hafa fórnað lífi sinu
og úthelt blóði sínu.
Eftir er þá okkar hlutur ís-
lendinga. Hann er að vísu drjúg-
um minni einungis sá að við
höldum vöku okkar og gætum
grundvallarverðmæta. Kommún-
istar hreiðra um sig í þjóðfélagi
okkar og það fyrir tilstilli ým-
issa lýðræðisafla. Slíkar og því
„Islenzkir pennar“ — „KvenSeg
fegurif — „Vib, sem byggð-
um þessa borg’’ o.fl. bækur
frá Setbergi
SETBERG gefur út níu bækur í
þessum mánuði, sagði Arnbjörn
Kristinsson, er hann ræddi við
blaðamenn í gær. Sex bækumar
koma út á morgun, föstudag, en
hinar þrjár síðast í mánuðinum.
Bækumar, sem út koma í dag
eru þessar:
ÆVINTÝRI H. C. ANDERSENS
3. og 4. bindi 150 ára afmælis-
útgáfu ævintýra H. C. Ander-
sens, en sú útgáfa er gefin út á
fjölda tungumála, með teikning-
um eftir Gustav Hjortlund. í
þessum tveimur bindum eru æv-
intýrin Prinsessan á bauninni,
Það er alveg áreiðanlegt, Pápi
veit, hvað hann syngur, Nýju
fötin keisarans og Hans Klaufi.
Alls eru níu af kunnustu ævin-
týrum Andersens í þessum fjór-
um bindum.
KRISTfN LAFRANSDÓTTIR
Annað bindi „Kristínar Laf-
ransdóttm-“ (Húsfrúin) eftix
Sigrid Undset í þýðingu Helga
Hjörvar og Arnheiðar Sigurðar-
dóttur. — í fyrsta bindi greinir
frá æsku Kristínar og uppvaxtar-
ámm og áhrifum þeim, sem hún
verður fyrir í foreldrahúsum,
rakin ástarsaga hennar og Er-
lends og því jýkur með giftingu
þeirra. f þessu bindi er lýst hjú-
saparlífi þeirra framan af árum.
Þau höxðu bæði gerzt brotleg við
siðferðislögmálið, troðið rétt ann
arra undir fótum og valdið þeim
hjartasorgum, og verða nú að
þola hugarangur fyrir brot sín
og bæta fyrir þau.
SÝNISBÓK ÍSLENZKRA
SMÁSAGNA
„íslenzkir pennar“ nefnist sýn-
isbók íslenzkra smásagna á 20.
öld. Eru þar birtar smásögur 25
höfunda, er fimm bókmennta-
gagnrýnendur dagblaðanna hafa
valið, þeir Andrés Kristjánsson,
Bjami Benediktsson frá Hofteigi,
Guðmundur Daníelsson, Helgi
Sæmundsson og Kristmann Guð-
mundsson. Sögumar, sem birtar
eru, eru eftir þessa höfunda:
Einar H. Kvaran, Guðmund Frið-
jónsson, Jón Trausta, Kristínu
Sigfúsdóttur, Þóri Bergsson,
Jaob Thorarensen, Friðrið Á.
Brekkan, Helga Hjörvar, Hall-
dór Stefánsson, Guðm. G. Haga-
lín, Davíð Þorvaldsson, Krist-
mann Guðmundsson, Vilhj. S.
Vilhjálmsson, Sigurð Helgason,
Stefán Jónsson, Þórleif Bjarna-
son, Guðm. Daníelsson, Sig.
Magnússon, Jón Dan, Ólaf Jóh.
Sigurðsson, Jón Óskar, Thor Vil-
hjálmsson, Indriða G. Þorsteins-
son, Jóhannes Helga og Ástu
Sigurðardóttur.
Útgefandi segir m. a. í eftir-
mála að það sé von þeirra, sem
að bókinni standa, að hún gefi
skýra mynd af íslenzkri smá-
sagnagerð á 20. öld. Þá getur
hann þess að ekki hafi tekizt að
afla birtingarleyfis þriggja smá-
sagna, sem valdar höfðu verið
í bókina, eftir Gunnar Gunnars-
son, Halldór Laxness og Sigurð
Nordal.
Gagnrýnendurnir fimm urðu
sammála um ellefu höfunda og
sögur þeirra, fhnm hlutu fjög-
ur atkvæði, en fjórir þrjú og að
lokum valdi hver sína söguna
til viðbótar. „Vegna rúmleysis
hafa ýmisir góðir höfundar ekki
komizt í safn þetta“, segir út-
gefandi, „sem sjá má af því,
að 44 rithöfundar voru til-
greindir."
ENDURMINNINGAR NÍU
REYKVÍKINGA
„Við, sem byggðum þessa
borg“, nefnast endurminningar
níu Reykvíkinga, sem Vilhjálm-
ur S. Vilhjálmsson hefir skráð.
Hyggst höfundur
með þessari út-
gáfu og ef til vill
öðrum síðar, að
bjarga frá glöt-
un „sögum frá
f rumbý lingsár-
um R ey k j avík-
ur“, sem skaði
væri að tapa.
Þeir, sem segja
frá eru: Steinunn Þórarinsdótt-
ir, sr. Bjami Jónsson, Runólfur
Stefánsson frá Holti, Pétur
Bjömsson skipstjóri, Jón Björns-
son trésmiður, Eiríkur Hjartar-
son, raffræðingur, Jónas Ey-
vindsson símaverkstjóri, Pétur
Pétursson verkamaður og Þór-
arinn Jónsson á Melnum. — Bók-
in er tileinkuð Guðmundi Snorra
syni verkamannL
KVENLEG FEGURÐ
Sjötta bókin, eða sú fyrsta,
sem Setberg gefur út í dag, er
Kvenleg fegurð —■ fegurð —
snyrting — líkamsrækt, en frú
Ásta Johnsen fegurðarsérfræð-
ingur, hefir annazt ritstjóm
hennar.
Bók þessi nefnist á frummál-
inu „Frau ohne Alter“, og hafa
margir sérfræðingar lagt þar
hönd á plóginn. Hersteinn Páls-
son gerði íslenzku þýðinguna, en
Verkstférn
Kvenmaður vanur saumaskap, sem vill taka að sér
verkstjórn í iðnfyrirtæki, getur fengið vellaunaða fram
tíðar atvinnu. Umsókn er greini aldur og fyrri störf, send
ist Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt: „Undirfatnaður —
3344“.
líkar aðfarir eru gjarnan réttlætt-
ar með orðunum: frjálslyndi,
öfgaleysi og víðsýnL
Hitt verður öllum mönnum
að vera ljóst, að allar eiga
dyggðir þessar sér nokkur tak-
mörk — það er ekki hægt
að sýna yfirlýstum fjandmönn
um þjóðfélagsins takmarka-
lítið umburðarlyndi, og vissu-
lega er hægt að vera bæði
frjálslyndur og víðsýnn, þótt
slík samtök sem kommúnista-
flokkar séu eigi til oddaað-
stöðu leidd í þjóðfélaginu.
frá Ásta Johnsen hefir stytt
hana og staðfært og á nokkrum
stöðum bætt nýjum köflum inn
í hana, í bókinni eru um 300
myndir og útgáfan mjög vönd-
uð. —
Það má ganga út frá því sem
gefnu að þetta verði kjörbók
allra kvenna, sem karlmönnum
beri aðeins að kaupa, en ekki
hnýsast í þótt þeim sé helgaður
þar einn lxafli, „þessum lífverum,
sem eru okkur til eilífs hugar-
stóðs og ævinlegrar sælu, sem
við féflettum daglega, og við
játum stundum um, þegar við
erum alveg einlægar, að við get-
um ekki án verið.“
— I féttm oriíum sagt
Framhald af bls. 6.
—- Ben er stórt symból, hann
verður allan timann að vera við
hliðina á sölumanninum — en þó
verður haim alltaf að vera ó-
verulegur; hugarsýn sölumnnns-
ins, ef svo mætti segja. Ég vona
að manni hafi tekizt að gera Ben
frænda sæmilega úr garði. En ég
vil endilega að þú minnist hér á
eitt: hversu vinnubrögð Indriða
Waage eru skemmtileg. Hann
nær svo góðu sambandi við leik-
arana og á svo auðvelt með að
finna rétta tóninn. Það er ekki
þar fyrir að samstarf okkar við
aðra leikstjóra hafi ekki verið
gott. Síður en svo. T.d. hefur san»-
starf okkar Lárusar Pálssonar
alltaf verið prýðilegt og hann hef
ur gefið mér mörg ágæt tækifæri.
— En svo við snúum okkur
að öðru. Þú hefur aldrei séð eft-
ir því að hafa gerzt leikari, Jo»T
— Nei, síður en svo.
— Og þér finnst gott að vera
leikari á íslandi?
— Já. Leiklistaráhuginn hér w
logandi. Og fólkið lifir ákafleg*
vel með okkur. Það getur ekkl
verið> betra. — En nú verð ég
að biðja þig um að afsaka, þaS
er beðið eftir mér niðrL
íW
VIÐ stöndum upp, förum niðar
stigann og kveðjumst. Ég sé
hann hverfa inn á sviðið. Hann er
í hvítri skyrtu, ermarnar brettar
upp. Já, það er ekki tekið út
með sældinni. Það er stundum
nauðsynlegt að fara úr jakkan-
um, ef maður ætlar að „lána
öðrum persónum í bili eitthvað
af sjálfum sér“ — og halda síðan
áfram að vera maður sjálfur, eins
og ekkert hefði í skorizt. — M,
Höíum til leigu
í lengri eða skemmri tíma BÍLKRANA með ámoksturs-
skóflu og B-ÍLPRESSU.
BYGGINGAFÉLAGIÐ BRÚ H.F.
Sími 6298.
Clæsileg hæð í smílum
115 ferm., 3 herbergi, eldhús og bað, með sér geymslu
og sér þvottahúsi, í Laugarneshverfi. Rúmgóðar svalir
eru á íbúðinni. íbúðin selst fokheld, einangruð, með sér-
miðstöðvarlögn og er í því ástandi nú.
Útborgun helzt kr. 150 þúsund.
Nýja fasteignasalan,
Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e.h. 81546,
Gott úrval.
MARKAÐURINN
Laugavegi 100