Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 15
Föstudagur 16. nóv. 1956
M ORGU1VBT/4ÐIÐ
15
Sextugur í dag:
Þorleifur Jónsson írkvstj.
ÞORLEIFUR JÓNSSON, fram-
kvæmdastjóri á Eskifirði, er sex-
tugur í dag. Hann er fæddur
16. nóv. 1896 í Efra Skálateigi i
Norðurfjarðarhreppi í Suður-
Múlasýslu og voru foreldrar hans
Jón Þorleifsson bóndi þar og
kona hans Guðríður Pálsdóttir.
Þorleifur fór til Hafnarfjarð-
ar mjög ungur og stundaði nám
við Flensborgarskóla 1915—17.
Þorleifur dvaldist siðan oftast í
Hafnarfirði til ársins 1951, er
Éjörg Olafsson sjötug
ÞEIR sem erlendis dveljast mik-
inn hluta ævi sinnar, gleymast
nokkuð fljótt hjá nýrri kynslóð í
heimalandi sínu, þótt fyrrum hafi
nafn þeirra verið á flestra vör-
um.
Samt eru það fleiri en gamlir
vinir Ingibjargar Ólafsson, sem
senda henni hlý hugskeyti á af-
mælisdeginum hennar núna, því
að mörgum 1-öndum sínum hefir
hún leiðbeint og liðsinnt fyrr og
síðar fram á þennan dag.
Hún er fædd á Másstöðum í
Vatnsdal 7. sept. 1886. Foreldrar
hennar voru Jón Ólafsson bóndi
þar, síðar á Mýrarlóni í Krækl-
lingahlíð — og kona hans, Guð-
rún Ólafsdóttir frá Eiríksstaða-
koti í Svartárdal. í Galtarnesi í
Víðidal ólst hún upp árin 1880
Englandi og er prinsessa af gam-
alli konungaætt grískri.
Ókunnugt er mér í hve mörg-
um félagastjórnum Ingibjörg hef-
ir verið um dagana, en það veit
ég, að 19 ár var hún í stjórn
„Dansk-Islandsk Kirkesag“, sem
séra Þórður Tómasson stofnaði
til eflingar góðum kynnum milli
kirkna Danmerkur og íslands.
Ingibjörg fór úr þeirri stjórn
1938, „er of fjarri báðum löndum
til að geta gjört þar gagn“, sagði
hún. Ennfremur er hún, — síðan
1934 — í stjórn ensks félags, er
nefnist „The Viking Society -for
Northern Research" og fulltrúi
Danmerkur í The International
Bureau for the Suppression of
Traffic in Women and Children,
og fulitrúi íslenzka biblíufléags-
hann réðist framkv.stjóri við
togarafélagið Austfirðing h.f. á
Eskifirði.
Meðan Þorleifur dvaldist í
Hafnarfirði tók hann mjög virk-
an þátt í félagslífi bæjarins.
Hann var m. a. stofnandi mál-
fundafélagsins Magna, auk þess
var hann um tvo áratugi, einn af
forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði. Honum
voru falinn af flokksmönnum
sínum fjölmörg trúnaðarstörf,
m. a gegndi hann bæjarfulltrúa-
störfum frá 1930—1951 og sat oft-
ast í bæjarráði.
Sjávarútvegsmál hafa frá
öndverðu verið mikil áhugamál
Þorleifs og var hann m. a. form.
fiskimálanefndar og forrh. stjórn-
ar fiskimálasjóðs eftir að sjóð-
urinn var stofnaður.
Síðastl. 5 ár hefur Þorleifur
starfað á æskustöðvum sínum og
rekið af dugnaði og hagsýni þá
útgerð, sem hann hefur haft með
höndum.
Við vinir hans og kunningjaf
sendum honum og fjölskyldu
hans beztu afmæliskveðjur í til
efni þessara merku tímamóta
lífi hans. M. Á. M.
til 1900. Skömmu eftir aldamótin i ins og heiðursfélagi þess síðustu
sá ég hana oft í Reykjavík hjá
frú Ragnhildi Briem ekkju séra
Eggerts á Höskuldsstöðum. Var
frú Briem hin mesta merkiskona
og ákveðnari og opinskárri um
kristindómsmál en venjulegt var
um þær mundir í Reykjavík. Tel
ég vafalaust að gáfaða og fram-
sækna unga stúlkan hafi hlotið
varanlega blessun af dvöl sinni
hjá frú Briem.
Um þessar mundir fór Ingi-
björg á Kvennaskólann í Rvík
og síðar á hvern skólann eftir
annan: Gagnfræðaskólann á Ak-
ureyri, lýðháskóla, bæði í Askov
og Vallekilde í Danmörku, kenn-
araháskóla í Kaupmannahöfn og
Kingsmead College í Englandi.
Mér er enn í dag óljóst hvernig
hún fór að kljúfa þetta fjárhags-
lega. En þrek hennar og gáfur
voru svo áberandi „að það var
ekki hætt við að féleysi hefti för
hennar“, eins og danskur prest-
ur sagði við mig um hana, er
hún var ung þar í landi.
Ingibjörg kom heim aftur til
íslands árið 1909 eða 1910 og
gjörðist framkvæmdastjóri K. F.
U. K. í Reykjavík í 2 ár, en fór
þá aftur alfarin 1912. — „Sjald-
séður gestur", tvisvar eða þrisvar
á íslandi í 44 ár, sem síðan eru
liðin.
Danir kunnu að meta starfs-
krafta hennar, og fengu henni
hvert trúnaðarstarfið öðru meira, I
enda þótt þá væri einatt lítil j
meðmæli í Danmörku að vera!
íslendingur. Hún var fram- j
kvæmdastjóri K. F. U. K. í Vejle j
1912—1916, ferðafulltrúi K. F. U. !
K. í Danmörku 1916—1919, aðal-
fnamkvæmdastj óri þess félags í
Kaupmannahöfn 1919—1922 og
loks í 8 ár ferðafulltrúi sambands
kristilegs félags ungra kvenna
um öll Norðurlönd. Ennfremur
sendu Danir hana til Þýzkalands
árið 1919 til að rannsaka hung-
ursneyð og varnir gegn henni,
— og til Bandaríkjanna árið 1924
til að heimsækja danska söfnuði
þar vestra. Heimili taldi hún i
Höfn en sjaldan var hún heima
í 8 ár eða lengur, og ferðalögin
fóru smám saman með heilsu
hennar. Því varð hún að draga
sig í hlé eftir 1930 og settist þá
að í Rottingdean á Suður-Eng-
landi, og býr þar enn með vin-
konu sinni nokkru yngri, er starf
að hefir lengi fyrir K. F. U. K. á
arm.
í Bjarma skrifaði hún við og
við fyrir löngu, en hinar erl. tíma
rita- og blaðagreinar hennar eru
orðnar fleiri en ég fæ talið.
Fyrsta ritið h'ennar: Um sið-
ferðisástandið á íslandi, 1912,
fékk svo slæmar viðtökur að þær
studdu að brottför hennar. Seinna
komu þessar bækur: Om at ældes
smukt, 1929, Thorkil pá Bakki,
1934, Tanker undervejs, 1936,
Ævisaga Jésú Krists, 1936, Do
not worry, 1937, og What is Con
version? 1937.
Sumaiið 1947 sat ég stundar-
korn hjá formanni díakonissu-
félags Finnlands, dr. Ukol Winén,
prófasts í Helsingfors. Ég flutti
honum kveðju Ingibjargar Ólafs-
son. En hann svaraði með þess-
ari spurningu: „Eruð þér íslend-
ingar svo ríkir af afburðastarfs-
kröftum að þér hafið efni á að
láta Ingibjörgu Ólafsson starfa
erlendis ævilangt?"
Ég sagði honum, að hún væri
ekki gleymd á fslandi, t. d.
hefði henni verið veitt fálkaorð-
an árið 1935. Dr .Winén vildi
vita fleira og eldra, sem hér er
ekki ástæða til að greina frá. En
oft hefir mér komið í hug síðan
að margt mundi vera öðru vísi
en nú er vor á meðal, ef þær
Ólafía Jóhannsdóttir og Ingibjörg
Ólafsson hefðu starfað og notið
sín eins vel á íslandi eins og þær
gjörðu erlendis. — Og þó var
alltaf hálfur hugur þeirra beggja
heima á Fróni. Það var mér full-
kunnugt.
En Guð hefir blessað sporin
þeirra hvar sem leiðin lá — og
þaá er aðalatriðið.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
NIÐÖRSyflyVÖRyR
frá Tékkóslóvakíu
EINKAUMBOÐ:
KRISTJÁN G. GÍSLASON H.F.
Nýjar vetrakápur
fyrir unglinga og fullorðna
ú mjög hagstæðu verði.
Höum einnig fengið ódýrar popiinkápur í fallegu úrvali.
Kápu- og dömubúðin,
Laugavegi 15.
TILKYNNING
til atvinnurekenda
Atvinnurekendur, sem ekki hafa skilað sköttum starfs-
fólks, eru áminntir um að gera það tafa*laust að viðlagðri
aðför að eigin ábyrgð á sköttunum.
Reykjavík, 14. nóv. .1956.
Tollstjóraskrifstofan,
Arnarhvoli .
Takið eftir
tækifæriskjólar
á aðeins kr. 100.00.
□ DYRI
M A R KAÐ URINN
Templarasundi 3
Admiral
KÆLISKÁPAR
IMý senáing komln
ADMIKAL kæliskáparnir fást í mörgum stærðum
(og litum, eftir pöntun).
ADMIRAL fást með og án sjálfvirkri affrystingu.
ADMIRAL kæliskáparnir eru með 5 ára ábyrgð á
frystikerfinu.
ADMIRAL kæliskáparnir eru mjög vandgðir og
hin mesta heimilisprýði.
Leitið nánari upplýsinga.
Olaíur Gíslasson & Co hf.
HAFNARSTRÆTI 10—12 — SÍMI 81370.