Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 20
MORCVNBL4Ð1Ð Fðstuclagur 16. nóv. 1956 20 LOUIS COCHRAN: SONUR HAMANS Framhaldssagan 77 líka, höíuðsmaður?" „Kannske“, svaraði vinnuveit- andi hans. — „Hvað sem öðru líður, þá höfum við nú eignazt hér fyrsta flokks vinnsluvélar til þeirra hluta.“ Svo þagnaði hann, annars hug- ar og leit ástúðlega til dóttur sinnar, sem gaf honum leynilegt merki með örlítilli höfuðhneig- Wigu, sem enginn annar við- jtaddra tók eftir. Höfuðsmaðurinn snéri sér aft- ur að Lije: — „Heyrðu annars Lije“, sagði hann svo. — „Ég var húinn að lofa Elizabeth dóttur minni að ganga hér um staðinn með henni og sýna henni allt það markverðasta, en Trimble er nú á förum með morgni og við þurf- um alveg nauðsynlega að ræða nokkur áriðandi viðskiptamál áð- ur en hann fer. Þess vegna verð- ur þú nú að koma í minn stað, sýna henni það sem hana langar til að sjá og segja henni svo að fara heim. Segðu henni líka að senda mér miðdegisverðinn hing- að.“ Lije yfirgaf mennina tvo, svo að þeir gætu hafið að ræða við- skiptamál sín og gekk hægum skrefum til stúlkunnar, þakklát- ur yfir því tækifæri sem bauðst honum til að tala við hana, en engu að síður gripinn einhverjum innri óróa, sem hann gat naum- ast gert sér grein fyrir. Hann gekk niðurlútur, þar til hann staðnæmdist frammi fyrir henni og leit upp með vandræða- legu brosi. Því næst tók hann af sér hattinn og strauk hárið aftur, með hinni hendinni: „Halló, Elizabeth", sagði hann. — „Fortenberry höfuðsmaður ÚTVARPIÐ Föstudagur 16. nóvember: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 Létt lög. 19,10 Þing fréttir. — Tónleikar. 20,30 Dag- legt mál (Grímur Helgason kand. mag.). 20,35 Kvöldvaka: a) Guð- mundur Þorláksson kand. mag. talar um ferðir íslenzkra farfugla. b) Kristmann Guðmundsson skáld les kvæði. c) Kórar úr Kirkjukóra- sambandi Suður-Þingeyjarpróf- astsdæmis syngja (Hljóðritað að Skjólbrekku í Mývatnssveit í júní S.I.). d) Ólafur Þorvaldsson þing- vörður flytur erindi: Uppgrónir þjóðvegir. 22,00 Fréttir og veður- fregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Þýtt og endursagt: Ástir og land- ráð. — Frá Erlendi Nikulássyni; síðari hluti (Helgi Hjörvar). 22,*35 Tónleikar: Björn R. Einarsson kynnir djassplötur. — 23,15 Dag- skrárlok. Laugardagur 17. nóvemiier: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 Heimilis- þáttur (Þóra Jónsdóttir). 16,30 Veðurfregnir. — Endurtekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur barna og unglingá (Jón Pálsson). 18,30 Utvarpssaga barnanna: „Leifur“ eftir Gunnar Jörgensen; IV. (Elísabet Linnet). 19,00 Tónleik- ar (plötur, 20,30 Einsöngur: Beniamino Gigli syngur syngur í Carnegie Hall í New York; Dino Fedri leikur undir (Hljóðritað á tónleikum í apríl 1955). 21,05 Leik rit: „Æskuvinur" eftir Edmond Sée, í þýðingu Emils H. Eyjólfs- sonar. — Leikstjóri: Lárus Páls- son. 22,10 Danslög (plötur). — 24,00 Dagskrárlok. sagði mér að fylgja yður um bygginguna. Og hann bað þess líka að sér yrði sendur miðdegis- verður að heiman. Hann er víst önnum kafinn við einhver við- skiptamál.“ Stúlkan kastaði hnakka, óeðli- lega föl yfirlitum, að því er hon- um virtist og leit til hans kulda- lega. Svo snéri hún sér hægt að gamla þjóninum: — „Joe“, sagði hún skipandi röddu. „Farðu heim og segðu mömmu að senda mið- degisverðinn hans pabba hingað. Og segðu henni líka að ég muni koma mjög fljótlega." Hún gekk til hliðar, til þess að hleypa svertingjanum framhjá sér, sem tautaði eitthvað lágt við sjálfan sig um leið. Lije stóð í sömu sporum vandræðalegur yfir hinni hálfleyndu lítilsvirð- ingu negrans og skyndilegri breyt ingu í látbragði stúlkunnar. Fram koma hans sjálfs breyttist, hann varð þurrlegur, rödd hans kulda- leg og hás. Hann setti hattinn hægt á höfuð sér aftur og lét hann hallast fram á ennið. „Og faðir yðar sagði líka, að þér ættuð að fara heim.“ — Hann talaði hörðum rómi og stærilæti hans var misboðið. — „Hann er önnum kafinn". *Hann hikaði og vissi ekki hvort hann ætti að | ganga í burtu eða halda kyrru fyrir. Unga stúlkan rétti úr sér og á andlit hennar kom sami þóttasvip urinn og sá, er hann mundi svo vel eftir frá því um kvöldið er þau komu heim úr boðinu frá Molly frænku. „Ég fer, þegar ég kæri mig sjálf um það“, svaraði hún fast- mælt. „Ég kom til þess að skoða þessa byggingu og ég ætla mérj að skoða hana. Segðu mér, hvað er þetta?“ Hún benti á pressukassann, sem nú var því sem næst alveg fullur af samanþjöppuðu línskari. „Auðvitað gerið þér það sem yður sýnist“, sagði Lije stuttur í spuna. — „En það væri betra fyrir yður að fá einhvern svert- ingjann til þess að leiðbeina yður. Ég þarf að sinna öðru.“ Hann bjóst til að hraða sér framhjá henni, en stúlkan rétti snöggt fram aðra hendina og greip í handlegg nans: — „Nei,“ sagði hún og dró andann ört. — „Ég vil að þú sýnir mér allt það, sem mig langar til að sjá hér. Pabbi sagði þér líka að gera það“. Lije starði á hana og hið til- finninganæma stærilæti hans særðist enn meiya af hinni óvæntu framkomu hennar. — „Ég er alls enginn þræll, þó að þér e. t. v. haldið það. Ég ætla að ná í einhvern niggarann. til þess að leiðbeina yður.“ Aftur bjóst hann til að yfirgefa stúlkuna og fingur hennar slepptu takinum, um leið og and- litsdrættir hennar mýktust: „Þá það, ef þú vilt alls ekki gera það sjálfur. En það er dálítið sem mig langar til að spyrja þig um, — aðeins ein spurning.“ „Við skulum þá koma út“, svar aði hann og gat ekki leynt ákafri eftirvæntingu sinni. — „Hérna er varla staður fyrir persónulegar yfirheyrslur." Hún fylgdi honum þögul út fyrir dyrnar og gekk svo á undan honum bak við skemmuna. Þeg- ar þau voru horfin sjónum hinna forvitnu áhorfenda, sem störðu á eftir þeim, nam Kún staðar og beið þess að hann staðnæmdist fyrir framan sig, í fyrsta skiptið hræddur við hin athugulu, rann- sakandi augu hennar. „Jæja og hvað er það svo sem stendur til?“ spurði hann þrjózkulega. — „Þér breytið svo stanzlaust framkomu yðar og við- móti, að ég er alveg hættur að skilja yður. Hvað er það nú sem amar að?“ Hún leit fast á hann og reyndi eftir megni að skoða hann seitt hvern annan óbreyttan þjón. Höf uðið bar hún hátt og sjálfbirg- ingslega og það var djúpur roði í kinnum hennar. „Ég ætti ekki að eyða tíma mínum í það að tala við yður“, sagði hún svo. — „En kannske er það skylda mín. Pabbi hefur feng ið álit á þér, að því er virðist og vissulega hefur þú þörf fyrir ein- hvern, til þess að leiðbeina þér. Ég — ég —“ Hún leit undan hinu hvassa augnaráði hans og horfði svo aft- ur á hann, drembilega: — „Mér skilst, að þú hafir nýlega verið með þessari Carrie Finney, — henni sem þú varst svo upptek- inn af, kvöldið er við vorum í boðinu hjá Molly frænku.“ Lije virti hana fyrir sér, þrjózkulegur á svip og fann til vaxandi gremju innra með sér. „Ég hafði sosum engan áhuga á henni“, mótmælti hann. — „Ég bara spurði sem svo, hvort hún hefði ekki komið til boðsins." „Það skiptir engu máli. Er það satt, að þú hafir verið heilt kvöld og jafnvel langt fram á nótt, heima hjá henni, núna nýlega? Er það satt, Lije?“ Lije tvísté órólegur í skapi, fyr- ir framan stúlkuna. „Hver sagði yður það?“, spurði hann og fór' undan í flæmingi. „Þarf ég kannske að gefa yður skýrslu um allt það sem ég geri og segi, vegna þess eins að ég vinn hjá föður yðar?“ „Hún sagði mér það sjálf — þessi stúlka, Carrie Finney. Ég fór til borgarinnar með pabba í morgun, áður en ég kom hingað og þessi stúlka kom inn í búð- Nýjar uppskriftir, áður ill- framkvæmanlegar, sér KENWODD CHEF um á stuttum tíma. Með KENWOOD verður matreiðslan leikur einn. KENWOOD CHEF er traustbyggð, einföld í notkun og umfram allt: afkastamikil og fjölhæf. Verð með hjálparvél kr. 2.730.00. Jjekla Austurstræti 14 sími 1687 * Aukið þægindin * þvottovélin hefir um árabil notið mikilla vinsælda meðal húsmæðra . . . og nú í vaxandi mæli. MMa ^ Eignist Rondo ^ Austurstræti 14 sími 1687 SjáGfsafgreiðsltsbuð óskar eftir stúlku. — Tilboð með upplýsingum um fyrri störf sendist Mbl. fyrir laugardagskvöld merkt: „3333“. **X**X**X**H***,*X***H**X**H,MXM«**X’*H4*í*i“X**í**4**X4*X**X**l**«**J*****«**»**t**^*i**t**í4* M ARKÚS Eftir Ed Dodd i Fonville had beén 50 ANXIOUS TO PRACTICE HIS COOKING THAT HE FAILED tO CLEAN AWAV THE TRASH AROUND H15 CAMPPlRE 1) — Finnur hafði haft svo miklar áhyggjur af því hvemig matartilbúningurinn gengi, að hann gleymdi að ganga frá eldi sínum. 2) Þremur klukkustundum síð- ar: Eldurinn hefir náð ískyggi- legri útbreiðslu. 3) Tommi vaknar við reykjar- lykt. — Eldur, eldur, hrópaði hann. 4) Drengirnir berjast við eld- inn og ráða niðurlögum hans. Tommi: — Hver átti þennan eld?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.