Morgunblaðið - 03.01.1957, Page 12

Morgunblaðið - 03.01.1957, Page 12
12 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. jan. 1957 GULA Sfúlka óskast herhergið eftir MARY ROBERTS RINEHART til almennra skrifstofustarfa hjá vélsmiðju hér í bænum. Umsóknir, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, merktar: „Vélsmiðja — 1957 — 7469“ sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir föstudagskvöld. 4----------------------—----- Framhaldssagan 17 þá finnst mér þetta ekki koma akkur neitt við. Nema náttúr- lega ef það er njósnamál. — Nei, ég er hér um bil full- vUc um, að þetta er ófriðnum algjörlega óviðkomandi, og að einhver hefur bara þurft að losna við þennan stúlkuræfil. Að því er bezt verður vitað, er hún langt að komin. Hér er engrar stúlku saknað. Og hvernig hefur hún komizt þarna inn í húsið, rétt við hliðina á okkur? Og hvers vegna? Ekki var fjölskyldan heima. Eng- in nema þessi Nortor.kerling og þú hefur heyrt hennar sógu. Aiex ókyrrðist. — Eg skil ekki hvers vegna yður langar til að grennslast eftir þessu frekar. — O, sennilega til þess að hafa eitthvað fyrir stafni. Eg er nú orðinn svo langþreyttur á spítölum, læknum og hjúkrunar- konum, að það er gott að fá einhvers konar tilbreytingu. En hvað veiztu um þessa Norton- kerlingu? Á hún nokkra fjöl- skyldu? — Ekki nema Jóa gamla, mann inn sinn. — Engin efnuð skyldmenni? Enga frænku, sem væri líkleg til þess að heimsækja hana í loðtreyju? Alex taldi slíkt mjög ósenni- legt, og síðan viku þeir talinu að Spencer-fjölskyldunni. Aldrei fékk hann að vita, hvaðan Alex hafði alla vitneskjuna um það fólk. Kannske stóð það í sam- bandi við langa starfsemi hans á vegum lögreglunnar, fyrir ófrið- inn. En Alex vissi furðanlega margt um fólkið, t. d. um trú- lofun þeirra Carol og Don Richardson, og þrákelkni gamla ofurstans að vilja aldrei trúa því, IJTVARPIÐ Fimmtudagur 3. janúar. Fastir liðir eins og venjulega. 12.50—14.00 „Á frívaktinni", sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlendsd.) — 18.30 Framburðarkennsla í dönsku, ensku og espiranto. — 19.00 Harmonikulög. — 20.30 Erindi: Lönd í fjötrum frosta; I: Ferðatækni í heimskautslöndum (Guðm. Þorláksson kand. mag.). — 20.55 Islenzkar hljómplötur; fyrri þátttur: Jón R. Kjartansson flytur erindi með tónleikum, í til- efni þess, að liðin eru 50 ár frá því, er íslendingur söng fyrst inn á grammófónplötu. — 21.30 Út- varpssagan: „Gerpla“ eftir Hall- dór Kiljan Laxness; XIV. (Höf- undur les). — 22.10 Sinfónískir tónleikar (plötur). — 23.00 Dag- skrárlok. að Don væri dáinn; ennfremur góða frammistöðu Gregs í ófriðn um, þrátt fyrir orð það, er hann hafði haft á sér sem landeyða, og loks um hjónaband þeirra Elinor og Williards, með öllu, sem því fylgdi. Hann var orðinn hugsi, þegar frásögninni lauk. — Við getum þá afskrifað Nortonstjónin, sagði hann. — Og sennilega þorpið líka. Þá er eig- inlega ekkert eftir nema fjöl- skyldan, eða finnst þér ekki? Dane át síðan hádegisverð sinn úti fyrir dyrum, hálf-utan við sig, og horfði öðru hverju út yfir víkina. Hann var í hálfgerðum vandræðum með þetta allt sam- an. Jim Mason hafði athugað lauslega svefnherbergin í Crest- view og engin föt fundið. En hefði stúlkan dvalið eítthvað í húsinu, hlutu fötin hennar að yera þar einhvers staðar. Það var því tvennt til: annaðhvort hafði hún alls ekki dvalið í hús- inu, eða hún hafði dvalið þar, og þá höfðu liðið þrír dagar, þeg- ar hægt hefði verið að losna við fötin, sem hún hafði verið i. Þegar Alex kom aftur að sækja bakkann, hafði hann kveikt I pípu sinni, en vindlingurinn, sem hann hafði fundið í ruslakassan- um hjá Maggie, lá fyrir framan hann. — Hugsum okkur, að þú vildir koma af þér fötum af stúlku, og hefðir nógan tíma til þess, hvern- ig myndirðu fara að því? Alex hugsaði sig um. — Hvern- ig væri að brenna þau? Þarna eru nóg eldstæði. Dene hristi höfuðið. — Þýðir ekki neitt. f kvenfatnaði er ails konar drasl, sem ekki er hægt að brenna: rennilásar, krókar, lykkj- ur, smellur. Og meira að segja naglar úr skóm. Þú ættir að þekkja það. — Nú, ef til minna kasta kæmi, mætti láta sér detta í hug að senda það burt með skipi. Það er erfitt að rekja ferilinn, ef þannig er farið að. Ég man einu sinni.... — Ég skil. Jú, þetta maetti láta sér detta í hug. Þú gætir rann- sakað skipaferðir héðan. Fengið að vita, hvort fjölskyldurnar hérna í kring hafa sent nokkra böggla alveg nýlega. Dane stóð upp. — Ég ætla á spítalann. Ég skal aka þér inn í þorpið. Meðan Alex var að þvo upp, fór Dane að hugsa um möguleik- ana á því að framkvæma fyrir- ætlun sína. Næsta hús þarna var Rockhill, sem Ward átti. En þau hjónin voru gömul og hreyfðu sig lítt af staðnum, og sama máli gegndi um Richardson ofursta. Svo var Daltons-húsið hinum megin við kofa Richardsons. Það vissi út að sjónum. Síðan kom —----------------------------—+ Burtons-húsið, þar sem hann var sjálfur, og þá var byggðin þarna eiginlega upp talin. Þarna var engin sála, sem væri líkleg til þess að fremja morð með köldu blóði. Og svo þetta, að fötin skyldu vera horfin; það gerði honum að öllu leyti erfið- ara fyrir. Ef stúlkan hafði eitt- hvað dvalið þarna í Crestview, hvers vegna í dauðanum var þá verið að fela fötin, úr þvi ætl- unin var að brenna húsið? Hann sté stirðlega upp í bíl- inn, og Alex horfði á húsbónda sinn með vanþóknun. — Þér ættuð að vera í rúminu, húsbóndi. Hvaða gagn er að því, sem ég er að reyna að gera fæt- inum á yður til góða, ef þér gætið hans ekki betur en þetta? — Ég hvíli hann seinna og ég verð ekki lengi þarna í spítalan- um. Það varð hann heldur ekki. Lucy Norton var ekki það hress, að heimsóknir til hennar væru leyfðar. Dane grunaði vitanlega, að hér væri Floyd að verki, en sagði samt ekki neitt. Og Alex, sem hafði snuðrað í þorpinu á meðan, tilkynnti, að hann hefði einskis orðið vísari. — Héðan hefur ekkert verið sent i heila viku. Eitthvert kven- félag sendi einhverja tunnu með hinu og þessu dóti til Grikk- lands, snemma í vikunni, sem leið, en síðan hefur ekkert verið sent. Dane hafði getið sér rétt til um Floyd. Um hádegi þennan dag var hann þegar orðinn þess vísari, að stúlkan hefði komið á föstudagsmorgun. Eftir hádegis- verð hélt hann fund í skrifstof- unni sinni, þar sem þessir voru mættir: Harrison læknir, Jim Mason, fulltrúi frá ríkislögregl- unni og Floyd sjálfur sá fjórði. Á borðinu hjá þeim lá hrúga af hálfbrunnum flíkum og nú benti Floyd á hana með stuttum fingri. — Jæja, hérna er það, sagði hann. — Engin merki eða neitt til að átta sig á. Dettur ykkur nokkuð í hug, herrar mínir? En engum hafði dottið neitt í hug, svo að Floyd hallaði sér aft- ur á bak í stólnum og skýrði þeim frá því, sem hann hafði orð- ið vísari um ferðir stúlkunnar, eftir að hún kom á staðinn. — Eitt er víst, sagði hann. — Stúlkan lagði af stað til Crest- view og komst alla leið þangað. Hún var ekki elt þangað; var sem sé eini farþeginn í vagnin- um, sem kom hingað klukkan hálf-sjö um morguninn, svo að hver svo sem hefur kálað henni, hefur verið fyrir hérna á staðn- um. Enginn hreyfði mótmælum og Floyd stóð upp. — Ég ætla í spítalann, sagði hann. — Lucy Bíleigendur Vil kaupa 4ra manna bíl. Eldra model en ’46 kemur ekki til greina. — Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 5. þ.m. merkt: Staðgreiðsla. Engin tár í augun frá sápu lengur LOKSII\IS ! Hárþvottalögur, sem ekki sviöur af þótt fari / augun JOHI\ISOIM9S HÁRÞVOTTALÖGIiR freyðir fljótt — hreinsar vel, gerir hárið mjúkt og gljáandi, auðveldara að bursta og leggja. Óviðjafnanlegt fyrir alla fjölskyld- una. Reynið og þið muriuð sanniærast. ftvfamun'*$otvmon Heildsölubirgfðir Friðrík Berlelsen & Co. h.f. sími 6620Hafnarhvol Föstudagur 4. janúar. Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Framb.kennsla í frönsku. — 18.50 Létt lög (plötur). — 20.30 Daglegt mál. — 20.35 Kvöldvaka: a) Richard Beck prófessor flytur síðara erindi sitt um tvö nýlátin vestur-íslenzk skáld, og fjallar það um Sigurð Júlíus Jóhannesson. b) Sinfóníuhljómsveit íslands leikur syrpu af jólalögum í útsetningu Jóns Þórarinssonar, sem stjórnar hljómsveitinni. c) Bergsveinn Skúlason flytur frásöguþátt: 1 Skor. d) Svala Hannesdóttir les afrisk ljóð í þýðingu Halldóru B. Björnsson. — 22.10 Erindi: Einn dagur á Mallorca (Margrét Jóns- dóttir rithöfundur). — 22.25 „Harmonikan". — Umsjónarmað- ur þáttarins: Karl Jónatansson. 23.10 Dagskrálok. MARKÚS Eftir Ed Dodd FONVILLE. I NEVER. DREAMED I OOULD EAT A CRAWFISH, . BLTT I f [ CANT WAIT » ) THEY’RE AUVOST READY, MOTHERj 1) — Nú eru krabbarnir næst- um til, mamma. — Mér hefði aldrei dottið í hug, aö ég gæti borðað vatna- krabba, en nú er mig farið að dauðlanga í þá. 2) — Mig líka, ég er glorhungr- aður. 3) — Og ég er pað líka, segir skuggalegi maðurinn. ■i) Þau eru að byrja að borða, en þá kemur skuggalegi maður- inn að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.