Morgunblaðið - 03.01.1957, Side 16
Veðrið
SV-átt, él, en síðd. vaxandi SA-
átt, rigning.
Áramótaávarp
forsetans á bls. 9.
1. tbl. — Fimmtudagur 3. janúar 1957.
Togarinn ísóifur „brýzi út“ úr höfn
í Færeyjum eftir kyrrsetningu þar
Útgerðin skuldor iæreyskum
siómonnum um 200,000 krónur
rpOGARINN ísólfur frá Seyð
isfirði, er nú „einhvers
staðar“ á siglingu, skilríkja-
laus eftir að öll skipsskjöl
höfðu verið tekin úr skipinu,
er það kom til hafnar í Skála-
firði í Færeyjum, en þar var
það Fiskimannafélagið, sem
lét leggja hald á skipsskjölin
vegna stórskuldar útgerðar-
innar á Seyðisfirði, Bjólfs h.f.,
sem á skipið.
Togarinn kom til Skálafjarðar á
gamlárskvöld. Var hann á leið til
Þýzkalands með ísfiskfarm, en
ketilbilun varð svo að togarinn
varð að leita þar haínar.
FISKIMANNAFÉL. KEMUR
TIL SKJALANNA
Fiskimannafélag Færeyja, sem
Á þvælingi
allan daginn
í GÆRKVÖLDI var lýst í út-
varpið eftir tveim drengjum, 7 og
8 ára. Þeir höfðu farið að heiman
frá sér um hádegisbil í gær, en
voru ekki komnir heim um kl.
8 í gærkvöldi og var þá lögreglan
beðin um aðstoð. Klukkan að
ganga 10, komu þeir í leitirnar
heilir á húfi. Þeir höfðu þá sögu
að segja á lögreglustöðinni, að
þeir hefðu verið á þvælingi í
Miðbænum og niður við höfn
allan daginn. Þeir höfðu farið í
bíó klukkan 7, en kona hefði gef-
ið þeim á bíóið. Þeir voru niðri
á Lækjartorgi er maður nokkur,
sem kannaðist við þá, sá til ferða
þeirra og gerði hann lögreglunni
viðvart. Lögreglan flutti dreng-
ina heim til þeirra.
togarasjómenn þeir, sem verið
hafa á íslenzku togurunum, eiga
aðild að, kom brátt til skjalanna.
Það fékk yfirvöldin í Þórshöfn til
þess að kyrrsetja skipið á þeim
forsendum að eigendur þess
skulduðu færeyskum sjómönnum
er á togaranum höfðu verið um
200.000 krónur, sem væru ógoldin
laun til Færeyinganna.
SKIPSSKJÖLIN TEKIN
í beinu framhaldi af þessu fóru
yfirvöldin um borð í skipið og
lögðu þar hald á skipsskjölin. —
Með slíkum aðgerðum var skipið
ekki lengur ferðafært, því skip
án skipsskjala er sama og ferða-
maður í útlöndum án nokkurra
skilríkja.
BRÝZT ÚT
í fregnum frá Þórshöfn í gær
var svo skýrt frá því, að togarinn
Bílar yfir
Skeiðarársand
KIRKJUBÆJARKLATJSTRI, 2.
jan.: — Tíðarfar hefir verið mjög
gott síðustu vikurnar, stiilur og
hlýindi, cn töluvert um úrKomu.
Alautt er upp á efstu fjallabrún-
ir og klaki lítill sem enginn í
jörðu. Færð á vegum er ágæt, og
geta má þess, að í dag komu tveir
bílar austan úr öræfum út yfir
Skeiðarársand, en hann er nú
mjög sjaldan farinn nema á vor-
in. Er talið, að vötnin á söndunum
séu nú eins greið yfirferðar og
þau geta frekast verið.
Goðanes strandaði við
Færeyjar í gærkvöldi
ITM ÞAÐ leyti sem Mbl. var að fara í prentun bár-
ust því þau hörmulegu tíðindi, að togarinn Goða-
nes frá Neskaupstað, hefði strandað í gærkvöldi í
Skálafirði, sem er á austurströnd Sandeyjar í Fær-
eyjum. Þá var ekki vitað um mannbjörg.
VAR AÐ SÆKJA SJÓMENN
Það mun hafa verið um klukkan 9 í gærkvöldi,
sem togarinn Goðanes strandaði. Hann mun hafa átt
það erindi til Skálafjarðar að sækja þangað færeyska
sjómenn. Var ekki vitað hvort skipið var á innleið
eða útleið, en þarna í Skálafirði eru sker eða grynn-
ingar, sem nefnast Flesjar, en þar strandaði Goðanesið.
Þegar Mbl. hafði fregnir af atburði þessum, var þess
og getið að hjá togaranum væru tveir íslenzkir togar-
ar, Austfirðingur og Isólfur, og einnig væru þar fær-
eyskir bátar.
STINNINGSKALDI Á STRANDSTAÐ
Ekki var vitað með vissu hvernig veðrið var á
strandstaðnum, en Veðurstofan skýrði svo frá að
samkvæmt veðurlýsingu í Þórshöfn í gærkvöldi
klukkan sex, mætti ætla að þar væri stinnings-
kaldi af suð-austri, 4—6 vindstig og hiti yfir frost-
marki.
I fregninni sem hlaðinu harst var eins og fyrr
segir ekkert nefnt um mannbjörg, né heldur aðsíæður
til björgunarstarfa.
Isólfur heföi þrátt fyrir skips-
skjalaleysið, látið úr höfn í
Skálafirði í gær. í gærkvöldi var
hér í Reykjavík ekki vitað hvert
togarinn hafði farið, en sennilegt
þótti að hann hefði snúið heim,
því gagnsiaust er fyrir skipstjór-
ann að ætla sér að ieita erlendrar
hafnar án þess að hafa skipsskjöl-
in meðferðis.
ALVARLEGT MÁL
Hér er um mjög vítavert og
hættulegt atferli að ræða og
hreint utanríkismál, en ekkert
einkamál Bjólfs-útgerðar
á Seyðisfirði og Fiskimanna-
félagsins. Þessi háskalega
framkoma kann að verða
„Þrándur í Götu“ fyrir
oss íslendinga, sem nú leitum
fyrir okkur í Færeyjum um
að ráða hingað að minnsta
kosti 800 sjómenn. Er þess
vissulega að vænta að hið op-
inbera skerist í Ieikinn áður
en frekara tjón hiýzt af þessu
frumhlaupi.
Maðnr linnst
örendnr í bíl
í FYRRINÓTT fannst maður ör-
endur í bíl sínum og var það
Guðmundur Laxdal Friðriksson,
til heimilis í Blesugróf.
Um miðnætti hafði Guðmund-
ur Laxdal farið út í bílskúr sinn
til þess að laga þar bíl sinn, sem
hann var vanur að fara á til
vinnu sinnar. Hafði Guðmundur
fyrr um kvöldið athugað bílinn
og þá talið sig þurfa að skipta
um geymi í honum.
Þegar hann fór út í bílskúrinn
um miðnæturskeið ætlaði hann
að setja annan geymi við bílinn.
Hann kom ekki aftur. Kona hans
fór út í skúrinn um klukkan 2 um
nóttina og fann hún hann örend-
an undir stýri bílsins. Er ekki
vitað hvort lofteitrun, sem
myndazt hefur er hann ræsti vél-
ina, hefur orðið honum að bana,
eða hvort hann hafi orðið
bráðkvaddur þarna inni í bíln-
um.
Af verksummerkjum mátti sjá,
að Guðmundur heitinn hefur
hugsað sér að gera lokatilraun
til að ræsa vélina, áður en hann
skipti um geymi.
Guðmundur Laxdal Friðriks-
son var 69 ára að aldri.
Það var mikið un; dýrðir á gamlárskvöld, eins og myndin sýnir.
Ól. K. M. hafði ljósmyndavél sína opna í nokkrar mínútur um
miðnættið — og það stóð ekki á henni að framleiða þetta „abstrakt“-
málverk.
Hörgull á mönnum á bátaflotann
Enn fleiri erl. sjómenn þarf nú
Illviðri er Hekla var í Færeyjum
og hún kom með aðeins um 170
ÚTGERÐARMENN og sjómenn
hafa á undanförnum vikum verið
vongóðir um það, að ver'tíð gæti
hafizt þegar í byrjun janúarmán-
aðar, en því miður munu margir
bátar ekki geta hafið róðra vegra
skorts á sjómönnum. Á undan-
förnum árum hafa íslendingar
notað erlent vinnuafl í vaxandi
mæli við fiskveiðarnar, sem kunn
ugt er. Á s.l. ári störfuðu hér um
800 færeyskir sjómenn og svo
virðist sem enn fleiri erlendra
sjómanna verði þörf á þessu ári,
ef fullnýta á allan þann fiskiskipa
flota, sm vér höfum yfir að ráða.
Brennuvargur kveikir í húsi
Ránnsóknarlögreglan er nú að reyna að komast til botns
í brunamáli, er eldur kom upp í þrílyftu steinhúsi Guðsteins
Eyjólfssonar kaupmanns að Laugavegi 34, laust fyrir klukkan 4 á
sunnudagsmorguninn.
Það fer ekki milli mála, að þar
hefur verið um að ræða hreina
íkveikjutilraun. Nærri því sam-
tímis kom eldur upp í húsinu á
tveim stöðum.
Menn sem áttu leið fram hjá
húsinu um kl. 3.45 um nóttina,
urðu þess varir að eldur var í
forstofu hússins, sem opin var.
Var farið að loga þar í dálitlu
af greni sem lá þar í hrúgu.
Nærri því samtímis, sem búið var
að slökkva þennan eld, sem ekki
olli teljandi skemmdum, tók all-
mikinn reyk að legg.ia upp úr
kjallara hússins. Þegar komið
var niður í geymsluherbergi,
kolageymslu, þar sem gamall
legubekkur hafði verið geymdur,
var farið að loga í honum. Var
eldurinn fljótt slökktur.
Af þessum íkveikjum mun íbú-
um í húsinu ekki hafa staíað sér-
stök hætta. Það er augljóst mál,
að þarna er um að ræða elds-
upptök af mannavöldum, brennu-
vargur að verki. Rannsóknarlög-
reglan taldi sig ekki geta gefið
nánari uppl. varðandi mál þetta
á þessu stigi rannsóknarinnar.
Landssamb. ísl. útvegsmanna
heíir haft milligöngu um ráðn-
ingar færeyskra sjómanna fyrir
fiskiskipin, en erfitt hefir verið
að koma þeim til landsins vegna
slæmra samgargna við Færeyj-
ar. _Til að bæta úr þesSu leigði
LÍÚ strandferðaskipið Heklu og
fór hún til Færeyja þann 29. des.
sem kunnugt er, *og kom í gær-
morgun úr þeirri ferð. Með skip-
inu komu 170 færeyskir sjómenn
í stað um 300, sem vonazt hafði
verið eftir. Ástæðan til þess, hve
fáir fengust með skipinu, mun
aðallega vera sú, að vont veður
var í Færeyjum er Hekla kom
þangað og erfitt fyrir sjómenn
utan Þórshafnar að komast þang-
að.
Nokkrir togarar hafa einnig
sótt sjómenn tii Færeyja. Næsta
skipsferð þaðan er með Dr.
Alexandrine, sem kemur um miðj
an mánuðinn frá Færeyjum.
Einnig hefir verið óskað eftir því
við Eimskipafélag íslands, að
Gullfoss kæmi við í Færeyjum á
leið til Islands um miðjan mánuð-
inn. Ef ekki rætist úr um ráðn-
ingu íslenzkra sjómanna munu
margir bátar verða að biða bundn
ir í höfn, þar til hinir færeysku
sjómenn koma.
Þetta er áhyggjuefni þeirra, er
að útgerð starfa og væri rétt að
almenningur íhugaði einnig þess-
ar ískyggilegu horfur, því sam-
dráttur sjávarútvegsframlciðsl-
unnar getur haft slæmar afleið-
ingar, ekki aðeins fyrir útgerðar-
menn, heldu einnig fyrir þjóðar-
heildina, segir Sigurður H. Egils-
son framkvæmdastjóri L.Í.Ú.