Morgunblaðið - 05.01.1957, Page 1
44. árgangur
3. tbl. — Laugardagur 5. janúar 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins
l)m 160 þús. ungverskir
flóttamenn komnir
til Austurríkis
Kommúnistar skjóta óspart
á flóttafólkið
Vínarborg, 4. jan.
1USTURRÍSKA blaðið Die Presse segir í dag, að nú
séu 158,183 ungverskir flóttamenn komnir til Austur-
ríkis frá því uppreisnin hófst. 89 þús. þessara flóttamanna
hafa verið fluttir til nýrra heimkynna.
HERT Á '
LANDAMÆRAGÆZLU
Blaðið segir ennfremur, að
færri flóttamenn hafi komið yfir
landamærin s.l. sólarhring en
áður og sé ástæðan sú, að hert
hefur verið á landamæragafezlu,
herlið verið sent til landamær-
anna og þau lýst upp á mörgum
stoðum.
ÞEIR SKUTU HANA
Þá segir blaðið, að skot hafi
oft heyrzt yfir landamærin
undanfarnar nætur. í nótt
komu nokkrir flóttamenu yfir
landamærin með konulík. Hin
látna var skotin af landamæra
vörðum, en félagar hennar
tóku líkið með sér yfir landa-
mærin.
440 í NÓTT
í nótt komu 440 flóttamenn til
Austurríkis.
Flugvélar fyrir
1 milljarð
KANADÍSKA flugfélagið TCA
undirritaði í dag samninga við
brezku flugvélaverksmiðjuna
Vickers um kaup á 20 farþega
þotum af gerðinni Vickers Vangu
ard. Flugvélar þessar verða 4
hreyfla og geta borið 100 farþega
með 670 km hraða á klst. Verða
þær tilbúnar til afhendingar ár-
ið 1960. Kaupsamningurinn um
allar flugvélarnar nemur 24
milljónum sterlingspunda eða
rúmlega 1 milljarð króna.
— Reuter.
46 sátu hjn
LUNDÚNUM, 4. jan.: — Þær
fregnir berast frá Sýrlandi, að
hin nýja stjórn E1 Assali hafi í
dag fengið traust þingsins. 69
þingmenn greiddu atkvæði með
stjórninni, en 4 á móti. 46 þing-
menn sátu hjá. — Reuter.
Nú er hreinsun Súez-skurðar hafin og sýnir myndin hollenzkan kafara og aðstoðarmenn við egypzku
herskipin Abukír og Hercules, sem sökkt var í suðurhluta skurðarins.
Krusjeff lýsir yfir aðdáun
sinni á Stalin
*
E nýársboðskap Krusjeffs
voru brigzlyrði og hótanir
Lundúnum.
IÐALRIT ARI rússneska kommúnistaflokksins, Krúsjeff,
átti viðtal við réttamann frá tékkneska kommúnistablaðinu
Rude Pravo um áramótin. Krúsjeff var mjög hvassyrtur, eins og
vandi hans er, þegar illa stendur í bólið hans, og réðist heiftarlega
á alla andkommúnista sem hann nefndi heimsveldissinna.
f viðtalinu segir Krúsjeff m. a.:
„Allar tilraunir heimsveldissinna
til að eyðileggja þann árangur,
sem hin sósíalísku lönd hafa náð,
verða miskunnarlaust barðar nið-
ur“. Og aðalritarinn hélt áfram:
„Eitt af því sem liðið ár hefur
kennt oss er það, að nauðsynlegt
er að vera vel á verði til þess að
heimsveldissinnarnir geti ekki
aukið áhrif sín.“
Körner, forseti Auslurríkis, lézl í gær
THEODOR KORNER, forseti
Austurríkis, lézt í dag, 83 ára að
aldri. Hann hefir vcrið forscti
Austurríkis síðan 1951.
Körner var göfugra ætta, gekk
ungur í herinn og . ar orðinn höf
uðsmaður í herforingjaráðinu að
eins 26 ára gamall. í fyrri heims
styrjöldinni var hann yfirmaður
herforingjaróðs landhers Austur-
ríkis og vann síðar að skipulagn-
ingu austurriska lýðveidishcrs-
ins
1920 sagði Körnes skilið við
hermennskuna og sneri sér að
stjórnmálum. Hann varð þing-
máður jafnaðarmanna 1925. Hann
varð borgarstjóri Vínarborgar
1945 og þangað til að hann var
kjcrinn forseti lands síns. Sú
kosning varð allsöguleg, því að
enginn sex frambjóðenda hlaut
tilskilinn meirihluta. Því varð að
kjósa aftur milli Körners og
Cleissners, fulltrúa Þjóðflokksins,
og bar Körner sigur úr býtum,
fékk um 170 þús. atkv. fram yfir
keppinaut sinn.
Körner var vinsæll maður,
enda hógvær aog lítillátur, en þó
fastur fyrir, ef með þurfti.
Krúsjeff nilnntist lítillega á
Ungverjaland og sagði a3 at-
burðirnir þar hefðu sýnt, „að
Vesturveldin ala enga von í
brjósti um það, að kalda stríð-
inu linni“. Og hann bætti við:
„Atburðimir í Ungverjalandi
sýna að stríðssinnaðar klíkur
á Vesturlöndum reyna að
koma í veg fyrir friðsamlega
lausn mála.“
ALLIR STALÍNISTAR"!
Krúsjeff hélt ræðu á nýársdag
í veizlu, sem haldin var til heið-
urs æðstu mönnum Kreml og
voru þar viðstaddir fulltrúar er-
lendra ríkja í Moskvu. í ræðu
sinni var aðalritarinn einnig
mjög hvassyrtur og sagði að af-
staða Stalíns til heimsveldissinn-
Lýðræðislegri kosning-
ar í Póllandi en áður
VARSJÁ. — Tilkynnt hefir
verið hér í borg, að mjög fáir
af gömlu kommúnistaleiðtog-
um verði í kjöri í þingkosn-
ingunum, sem fram eiga að
fara í Póllandi 20. þ.m. Flest-
ir frambjóðendurnir eru lítt
þekktir kommúnistar, en þó
eru allmargir Bændaflokks-
menn í kjöri, svo og nokkrir
úr Lýðræðisflokknum og 15%
frambjóðendanna eru óflokks
bundin, að því er pólska
fréttastofan hermir. — Frétta-
stofan segir ennfremur að með
al frambjóðendanna séu all-
margir stjórnmálamenn sem
getið hafa í fangabúðum
kommúnista vegna falskra á-
kærana.
anna hefði verið hin eina rétta.
Og hann bætti við:
„Eg er stoltur af því, að við
erum allir Stalínistar að þessu
leyti. í andstöðu okkar við
heimsveldissinnana erum við
allir Stalínistar“. — Þegar
Krúsjeff sagði þetta, ráku
Sovétleiðtogarnir upp fagn-
aðaróp.
Sambandsríki
Búlgarskir stúdenlar
handteknir hópum
saman
VARSJÁ, 4. jan. — Pólska
blaðið Sztambar Mlodych skýr
ir frá því, að fjölmargir stúd-
entar í Sofíu, höfuðborg Búlg
aríu, hafi verið handteknir
undanfarna daga. Blaðið hef-
ir það eftir fréttaritara sínum
í Sofíu, að mikil ólga sé nú um
alla Búlgaríu og óánægjan
með stjórnina vaxi með hverj-
um degi sem líður.
— Reuter.
Egypta og
Sýrlands?
DAMASKUS, 3. jan. — Forsæt-
isráðherra Sýrlands flutti þing-
inu í dag stefnuyfirlýsingu hinn-
ar nýju þjóðstjórnar sem komið
hefur verið á með samstarfi
allra flokka. Hann sagði eitt meg
inverkefni stjórnarinnar vera að
stofna Sambandsríki Sýrlands og
Egyptalands. Ein meginkrafa
stjórnarinnar í utanríkismálum
væri að ísraelsmenn hlýddu á-
lyktun S. Þ. um brottflutning alls
herliðs af egypzku landssvæði og
þá einnig af Gaza-lengjunni.
— NTB.
Pólverjar sýna
Rússum fjandskap
LUNDÚNUM, 4. jan. — Málgagn
Gómulkastjórnarinnar kvartar
yfir því í dag, að margir Pólverj-
ar sýni rússneska herliðinu í land
inu ókurteisi og fjandskap. Segir
blaðið, að siík framkoma komi
engum að gagni og skorar á Pól-
verja að sýna stillingu og góða
hegður.. Góð sambúð við Rússa sé
nauðsynleg. B’aðið nefnir nokk-
ur dæmi um fjandskap við
Rússa, einkum rússneskar her-
mannafjölskyldur. — NTB
Banna innflutning
á pólskum blodum
BERLÍN, 4. jan. — Kommún-
istvstjórnin í Austur-Þýzkalandi
hefir lagt _ blátt bann við því,
að pólsk blöð og tímarit séu flutt
iil landsins, segir blaðið Ðie
Welt.
Blaðið segir ennfremur, að
stjórnarvöldin óttist nú mjög, að
atburðirnir í Póllandi geti haft
mikil áhrif á innanríkismál Aust
ur-Þýzkalands og einkum þykir
þeim hætta á því, að frekari vit-
neskja um viðbrögð pólskrar al-
þýðu undanfarið, geti haft í för
með sér opinbera andstöðu við
austur-þýzku kommúnistastjórn-
ina. Einkum sé hætta á, að stúd-
entar og verkamenn hefji róttæk-
ar aðgerðir í því skyni að fella
stjórnina.
Ráðherrar vígja
flugleið
OSLO, 3. jan. — Halvard Lange,
utanríkisráðherra Norðmanna og
Osten Undén, sem gegnir sömu
stöðu í Svíþjóð, hafa þegið boð
Skandinaviska flugfélagsins SAS
um að fá far með fyrstu flugvél
félagsins, sem flýgur yfir Norð-
urpólinn til Tokyo. Svar H. C.
Hansen í Danmörku er ókomið,
en þess vænzt að hann sláist í
förina. Flugleið þessi verður vígð
24. febrúar n.k. og komið til
Tokyo daginn eftir. — NTB.