Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
9. tbl. — Laugardagur 12. janúar 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
EDEN KVEÐUR
Ungverskir verkomenn grýttu
lögreglu Kodor-stjórnarinnar
Svo að rússneskir
skriðdrekar „hjálpuðu
íí
Búdapest 11. jan. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
VOPNUÐ lögregla ungversku kommúnistastjórnarinnar
hóf í dag vélbyssuskothrið á hópgöngu verkamanna í
Búdapest. Samkvæmt ritskoðuðum fréttaskeytum frá Ung-
verjalandi létu að minnsta kosti tveir verkamenn lífið og
fjórir særðust. Þetta eru fyrstu fregnirnar í margar vikur
um átök á strætum ungversku höfuðborgarinnar.
Kadar-stjórnin hefur bannað alla fjöldafundi og hópgöng-
ur. Fullfrúi stjórnarinnar viðurkenndi í dag að atvinnu-
og efnahagsmál Ungverjalands séu í kalda koli. Framleiðsl-
an nemi aðeins 10% af því sem var fyrir byltinguna.
Vegna óeirðanna í Búdapest eru rússneskir skriðdrekar
og herlið aftur komnir út á strætin og Rússar standa aftur
vörð við brýrnar yfir Dóná.
KJARASKERÐING
Það voru verkamenn í Kob-
anya-verksmiðjunum í suðaustur
hluta Búdapest, sem lögðu niður
vinnu og efndu til mótmæla-
fundar vegna kjaraskerðingar.
Fréttir í stuttu máli
Myndin var tekin á miðvikudag þegar Sir Anthony Eden gekk út I
úr forsæfisráðherrabústaðnum í Downing Street í hinzta sinn.
PARÍS, 11. jan. — Malik, utan-
ríkisráðh. Líbanon, mun fljúga
Fellur hann
líka?
★ ★
★★
Verður Selwyn Lloyd
fórnað eins og Eden?
London, 11. jan. — Einkaskeyti frá Reuter.
Macmillan, sem falin hefur verið myndun brezkrar ríkis-
stjórnar, sat í dag miðdegisverð á heimili Sir Winston
Churchills. Hafði Sir Winston boðið Macmillan einum og er
ekki vafi á, að þeir hafa rætt myndun hinnar nýju ríkis-
stjórnar.
Ekki er þess vænzt að Macmillan tilkynni skipun í einstök
ráðherraembætti fyrr en á sunnudagskvöld. Er úrslitanna
fceðið með mikilli eftirvæntingu í Bretlandi og víðar, því
að mönnum er ljóst að sundurþykkja muni vera í Ihalds-
flokknum. Eftir sé aðeins að sjá til hvers hún muni leiða.
Selwyn Lloyu utanríkisráðherra
Breta var ákveðnasti stuðnings-
maður Edens í Súez-málinu. —
Telja margir að vegna þess verði
honum ekki vært í ríkisstjórn-
inni.
f DOWNING-STRÆTI
Harold Macmillan boðaði í dag
ýmsa leiðtoga íhaldsflokksins á
fund sinn í forsætisráðherra-bú-
staðnum Downingstræti 10. Meðal
annars urðu menn þess varir að
Butler og Eccles menntamálaráð-
herra komu tvisvar á fund þar.
HVAÐ VERÐUR UM
SELWYN LLOYD?
Lennox Boyd nýlendumálaráð-
herra Breta, kom í dag heim úr
Afríkuför sinni. Dvaldist hann í
Rhodesíu þegar fregnirnar bárust
af lausnarbeiðní Edens og hélt
skjótlega heim á leið.
Frh. á bls. 15.
til Lundúna á sunnudaginn og
ræða við brezka ráðamenn um
Súez-vandamálið. Hann hefur áð-
ur lýst yfir stuðningi við áætlun
Eisenhowers forseta í málum
nálægra Austurlanda.
LUNDÚNUM — Brezk yfir-
völd hafa gert ráðstafanir til
að stöðva vopnaða innrás í
Aden-svæðið frá Jemen á
Arabíu-skaga. Hafa Bretar
gert flugárásir á stöðvar inn-
rásar og uppreisnarmanna í
bænum Katabe. Mannfall hef-
ur verið mikið í bardögum og
skemmdarverkum að undan-
förnu. Telur Aden-stjórn að
nokkur hundruð manna hafi
látið lífið.
HELSINGFORS, 11. jan. — Kek-
konen forseti Finnlands, hefur
skipað nefnd manna, sem mun
ræða við norsk yfirvöld um mögu
leika á efnahagslegu samstarfi
milli Norður-Noregs og Norður-
Finnlands. Viðræður um þetta
hefjast í Osló 25. jan. n. k.
Lögregluríki ■ Búdapest
verra en nokkru sinni
Vinarborg 11. jan.
Einkaskeyti frá Reuter.
★ öruggar heinrildir enu nú
fyrlr því að minnst 500 manns
hafi verið dæmdir í skyndirétt
arhöldum i Ungverjalandi og
samstundis teknir af lífi und-
anfarinn hálfan mánuð.
★ í dag tilkynntu blöðin i
Búdapest að tveir menn hefðu
verið dæmdir til dauða og af-
teknir fyrir smygl á vopnum.
Sex drengir voru dæmdir í
5—6 ára fangelsi fyrir sama
verknað.
★ Hermdarlögregla komm-
únistastjórnarinnar hefur ver •
ið endurskipulögð. Nefnist
hún nú ekki lengur AVO, held
ur PAGS. Er það mál manna,
að hún sé jafnvel illskeyttari
en Avóarnir voru á dögum
Rakosis. Eru lögreglumenn á
stöðugum nuuinaveiðum í
borgum landsins.
★ Fulltrúar alþjóða Rauða
krossins í Vínarborg segja að
skortur sé nú á flestum vörum
í Búdapest nema matvælum.
Þó telja þeir að matvælaskort-
ur sé yfirvofandi. Verstur er
nú hinn mikli kolaskortur.
Hermdarlögregla komm-
Eden mun láta af þing-
mennsku og leita hvíldar
London, 11. jan. — Einkaskeyti frá Reuter.
SIR ANTHONY EDEN afsalaði sér í dag þingmennsku í
Warwick-Lemington kjördæminu, en hann hefur verið
fulltrúi þess á þingi samfleytt í 33 ár.
Tilkynning um þetta var lesin upp á fjölmennum fundi í
félagi Ihaldsmanna í Lemington. Var hún t bréfi frá Eden,
þar sem sagði að heilsu hans væri svo háttað að hann teldi
sig ekki geta gegnt þingmennskunni eins og vert væri og
svo góðir kjósendur ættu heimtingu á. Hann þakkaði kjós-
endum fyrir öruggan stuðning á undanförnum árum.
í síðustu kosningum var Eden kosinn í þessu kjördæmi
með 13 þúsund atkv. meirihluta.
★
Fréttastofa Reuters kveðst hafa örugga vitneskju um það
að Elísabet Englandsdrottning hafi boðið Eden aðalstign.
Hefði hann þá fengið rétt til setu í lávarðadeildinni. En
Eden hafnaði því á þeim grundvelli að hann ætlaði nú að-
eins að hvíla sig og reyna að ná fullum bata á heilsu sinni.
Eden og kona hans munu dveljast í um vikutíma á sveita-
setri forsætisráðherra Checkers. Síðan flytjast þau til litils
sveitahúss sem þau eiga í Wilshire.
Verksmiðja þessi framleiðir
járnbrautarvagna m. a. fyrir
Indland og Egyptaland. Þegar
vinnulaun voru nýlega greidd,
kom í ljós að mánaðarlaun
þeirra voru nú aðeins 600 for-
intur (ísl. kr. 850,00) en voru
áður 800 forintur (ísl. kr. 1150).
Á fjöldafundinum voru þús-
undir verkamanna saman komn-
ar og héldu margir ræður og
mótmæltu kjaraskerðingunnL —
Voru verkamenn mjög æstir yfir
hinum margsviknu loforðum
Kadar-st j órnarinnar.
LÖGREGLA GRÝTT
Vopnaðir lögreglumenn
kommúnistastjórnarinnar
voru sendir af stað íil að
halda uppi röð og reglu. Fyrst
skutu þeir af byssum sínum
upp í loftið, en síðan segir
sjónajvottur, að hann hafi
séð þegar lögreglumaður
tæmdi úr lítilli vélbyssu sinni
yfir hópinn. Réðust verka-
menn eftir þetta á lögregluna
með grjótkasti og hlaðin voru
á skömmum tíma nokkur
götuvirki úr götusteinum. —
Réðu lögreglumennirnir ekki
við neitt, en rússneskt herlið
þar á meðal skriðdrekar
kontu á vettvang og dreifðu
hópnum. Er það í fyrsta
skipti í nokkrar vikur, sem
rússneskir skriðdrekar sjást á
götum Búdapest og hafa þeir
síðari hluta dagsins farið í
gæzluferðir um borgina.
VIRKI VIÐ CSÉPEL
Svo virðist sem verkamenn í
Csépel-verksmiðjunum hafi nú
reist ramger virki á hluta verk-
smiðjusvæðisins. Rússneskt her-
lið hefur slegið hring um allt
svæðið svo að ekki er auðvelt að
Kadar staddur
hfá húsbænd-
unum
MOSKVA, 11. jan. — Tass-frétta-
stofan tilkynnir að Janos Kadar
quislings-forsætisráðherra Ung-
verjalands sé staddur í Moskvu,
og eigi nú viðræður við Búlgan-
in, Krúsjeff, Mikoyan og Shepi-
lov. Einnig ræddi Kadar við
Chou En-lai, sem er á ferð í Rúss-
landi. í sameiginlegri ályktun
þessara kommúnistaforingja seg-
ir, að sósíalísku ríkin verði að
gæta þess að láta ekki róg auð-
valdsaflanna spilla samkomu-
laginu sín á milli. — Reuter.
fá sannar fregnir af því sem er
að gerast. Verkamennimir mót-
mæla uppsögnum, sem Kadar-
stjórnin hafði ákveðið. Um 40
þús. verkamenn hafa atvinnu
sina íverksmiðjunum, en ráð-
gert er að segja um 10 þúsund
þeirra upp vinnu, vegna þess að
hráefni og kol skortir. Skothríð
hefur heyrzt frá verksmiðju-
svæðinu við og við.
Það er nú ljóst af upplýs-
ingum Kadar-stjórnarinnar að
alvarleg kreppa er í Ungverja
landi. Iðnaður landsins liggur
svo til í rústum. Framleiöslan
er ekki nema 10% af því sem
var fyrir byltinguna og vöru-
kortur er nú mjög mikill.