Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 2
2 MORCVNBLÁÐIÐ Laugprdagur 12. Jan. 1957 Bimdsker það er togarmn steytti á var ekki merkí á kortiB mm siglf var eftii Sjépróf ú% af Goðanesslysinu AUSTUR í Neskaupstað er lokíð sjóprófi út af stiandi togarans Goöaness í Skálafirði í Færeyjum hinn 2. janúar s.l. Hefur blaðinu borizt endurrit úr sjódómsbókinni og er það um 20 folíósíður. Jén Rögnvaldsson læfur af slörfum NÚ um áramótin urðu yfirverk- stjóraskipti hjá Eimskipafélagi fslands. Jón Rögnvaldsson, sem haft hefur þetta umfangsmikla og erilsama starf með höndum i áratugi, hefur látið af því þar eð hann hefur nú náð hámarksaldri starfsmanna félagsins. Jón Rögn- valdsson yfirverkstjóri hefur ver- ið frábær maður í starfi sínu JÓB Rögnvaidsson og allir þeir mörgu sem á liðnum árum hafa unnið undir hans stjórn, en þeir munu skipta þúsundum, munu samdóma um það, að betri mann muni Eimskip ekki hafa getað íengið í þetta starf, enda er Jón mjög vinsæll meðal hafnarverkamanna. Mun þeim vafalaust þykja sjónarsvipt ir að því að sjá nú ekki Jón, þennan kempulega dugnaðar- mann á hafnarbakkanum, með alla þá tauma í hendinni sem snertir vinnu þessara manna, hvort heldur var í lest, í vöru- skemmu eða á hafnarbakkanum við að taka á móti vörunum úr skipunum. Við starfi Jóns Rögnvaldssonar hefur tekið Sigurður Jóhannsson, Hafnfirðingur, sem nú síðast var L stýrimaður á Gullfossi og hef- ur verið skipstjóri á þessu ílagg- skipi flotans er Jón Sigurðsson skipstjóri hefur verið í leyfi frá störfum. EKKI ALLIR I BJARGVESTUM Þegar togarinn strandaði var hann á fullri ferð. Talsverður vindur var og dálítil alda. Eftir að skipið strandaði á boðanum braut á því og skerjum nálægt því. Náttmyrkur var mikið, en ljós sást í landi. Er verið var að losa björgunarbátana lét skipið svo illa á skerinu að illstætt var. Er það talin orsök þess, hvernig fór um björgunarbátana tvo. Bjargbeltum varð eigi náð handa 4 af áhöfninni, þar eð ekki var hægt að komast fram eftir skip- inu. Var skipstjórinn, Pétur Haf- steinn Sigurðsscai einn þeirra, sem ekki hafði á sér björgunar- vesti. Svo ört sökk skipið fyrst í stað, að mennimir sem voru aft- an á bátapalli komust nauðug- lega fram á brúna og óðu sumir upp í mitti. Þegar tekizt hafði að koma björgunarlínu yfir í Goðanes, voru skipbrotsmennirnir dregn- ir um 100 faðma leið og fóru þeir á kaf í sjóinn er ólög riðu yfir. Er ljóst á framburði vitnanna, að björgunin hefur verið hættu- leg á stundum meðan hún stóð yfir og litlu mátt muna um suma skipsmenn. STRANDH) Háseti, sem var við stýrið er Goðanes strandaði sagði, að ný- lega hefði verið búið að taka land er hann tók við stýrinu, og siglt hafi verið eftir radar breyti- lega stefnu inn Djúpin. Var búið að beygja fyrir Austurnes í átt að Skálafirði er maður þessi tók við srtýrinu. Radarinn var í gangi og notaður við siglinguna. Var af honum lesið í kortaklefa og þang- að inn fór skipstjórinn til að lesa af honum. Voru hásetanum síðan gefin fyrirmæli um, hvernig stýra skyldi, úr kortaklefa unz honum var sagt að stýra „þetta beint“. Kom skipstjóri þá fram í brúna. Hásetinn sagðist hafa séð vita framan til við þvert á stjómborða, sem sýndi grænt Ijós. Örskamma stund var siglt í þessa stefnu. Þá kemur mat- sveinn skipsins hlaupandi upp í brúna og kallaði hann: Land framundan! Þá var skipstjóri að koma úr kortaklefanum. Hann hringdi þá samstundis stanz á vélsíma og strax á eftir á fulla ferð aftur á bak. Hásetinn fann rétt í það mund að skipið tók niðri og hoppaði það tvisvar á skerinu, sagði hásetinn. Lítilli stundu síðar varð Goðanesmönn- um ljóst að björgun skipsins var útilokuð. Plankar í þilfari höfðu lyfzt upp. Þauinig lýsti hásetinn strandi togarans. Skipsmenn allir róma mjög framgöngu hins látna skipstjóra síns Péturs H. Sigurðssonar við björgun mannanna. Eins bera þeir mikið lof á loftskeytamann- inn Axel Sigurðsson, sem ekki yfirgaf sendistöðina fyrr en um það bil er skipið valt út aí sker- inu og sökk. SJÓKORTH) Það hefur einnig komið fram við sjóprófið að kort það sem notað var við siglinguna var í svo stóriun mælikvarða, að á fló- amun á milli Straumeyjar og Austureyjar hafi ekki verið nein örnefni, en á sjókorti sem lagt var fram í sjóréttinum af sigl- ingaleið á þessum slóðum, eru blindsker sem nefnd eru Flesjar. Á þeim strandaði togarinn. Loftskeytamaðurinn sá skip- stjórann ásamt fjórum mönnum öðrum í sjónum utan við brúar- vænginn fáeinum augnablikum áður en skipið sökk. Harm hafði þá skömmu áður skorið frá belg einn, sem var við blökk úr björgunarstól. Mennimir sem í sjóinn fóru björguðust allir sem kunnugt er upp í trillubáta, nema skipstjórinn Pétur Haf- steinn Sigurðsson. Skipbrotsmenn hafa skýrt frá því að björgunin hafi farið skipu lega fram, en henni stjómaði skipstjórinn. Allir voru ásáttir með þá röð sem þeir fóru í. Sumir vildu draga eigin björgun og láta aðra fara á undan sér. GÚMMÍBÁTAR Þá spurðu sjódómendur þeirr- ar spumingar hvort skipshöfnin hefði getað bjargað sér fyrr, ef gúmmíbjörgunarbátar hefðu ver- ið til taks á skipinu. Þessari spurningu svaraði eitt vitnið á þá leið að hann teidi að allir skipverjar hefðu getað bjargazt í gúmmíbátum strax eftir strand- ið. Annað vitni segir um þetta atriði að mjög miklar líkur séu til þess að nota hefði mátt gúmmíbáta við björgunina. Skýrt er frá þvi að 11 menn frá togaranum Austfirðingi hafi verið við björgunarstarf í fær- eyskum skipum. Tekið er fram að Færeyingamir og íslending- amir sem að björgun skipbrots- mannanna unnu hafi sýnt mik- inn dugnað og ósérhlífni. Að lokum er frá því skýrt að öll siglingatæki skipsins htifi verið í bezta lagi. Skemmlunin endaði illa f FYRRINÓTT kom upp eldur í leigubíl fullum af farþegum, þar sem hann var á ferð eftir Suður- landsbrautinni. Eldur kom upp í flugeldum, sem farþegi er sat í framsæti bílsins hélt á. 'arð þarna mikið eldhaf á svipstundu og brenndist stúlka er sat í fram- sætinu milli bílstjórans og far- þegans mjög mikið. Tvo farþega aðra sakaði nokkuð. Bílstjórinn slapp ómeiddur, en bíllinn hans stórskemmdist, því að eldur læsti sig um hann allan meira og minna. Stúlkan, sem brennd- ist er í sjúkrahúsi og var líðan hennar slæm í gær. Hún er þó eigi talin í hættu. Fólkið var að skemmta sér og ætlaði að slá botninn í skemmtan sína með því að skjóta flugeldum uppi í Ár- túnsbrekkum. Talið er að sígar- ettuneisti hafi valdið þvi að í flugeldunum kviknaði. SIGLUFIRÐI, 11. janúar: — Togarinn Elliði losaði hér 160 lestir af fiski í fyrradag. Hafliði losar hér í dag 180 lestir. Þessi afli fer allur til frystihúsanna héma. — Guðjón. Unglinga vantar til blaðburðar í Lækjargotu Háaleitisveg Hafsteinu Austiuauu: Viil, að fóík langi tU að skoðá myndimar. Fólk þarf ekki að kaupa neina málningu, þótt það skreppi inn í sýningastofu Regnbogans Þar sýnir nú unpr málari, Hafsfeinn áusfmann Á MYNDINNI hér að ofan er Hafsteinn Austmann, ungur Vopn- -»■ firðingur, sem um þessar mundir sýnir nokkrar myndir eftir sig í sýningastofu Regnbogans. — Hafsteinn hefur numið málara- list hjá Þorvaldi Skúlasyni, Skarphéðni Haraldssyni teiknikennara við Gagnfræðaskóla Austurbæjar og í Handíðaskólanum hjá Sig- urði Sigurðssyni. Síðan fór hann utan til náms og var í París 1954—1955. Þar sýndi hann myndir í Salon de realite nouvelle. Hann hélt einnig sjálfstæða málverkasýningu í Listamannaskál- anum í sumar sem leið. Fram að helgi sýnir Hafsteinn^ nokkur olíumálverk i sýninga- stofu Regnbogans, en um helgina skiptir hann um og setur upp nokkrar vatnslitamyndir. Sýn- ingastofan er opin á venjulegum búðartíma. Myndirnar eru allar til sölu. Hafsteinn sagði við Mbl., þeg- ar það hittí hann sem snöggvast að máli: „Fólk þarf ekki að kaupa neina málningu, þótt það skreppi inn og skoði myndimar." Og um myndir sinar sagði hann einungis: „Jú, auðvitað hef ég áhuga á, að fólk langi til að skoða þær.“ Með boð trá Nasser RÓMABORG — Cyril Banks hinn brezki þingmaður, sem vinnur persónulega að því að reyna að bæta aftur sambúð Breta og Egypta og átt hefur tal við Nasser kom til Rómaborgar í dag á leið- inni heim til Englands. Hann kvaðst hafa merkilega orðsend- ingu að flytja frá Nasser, en hann myndi ekki skýra frá henni fyrr en hann lenti á Lundúnaflugvelli. Þangað er búizt við, að hann kotni annað kvöld. Austurbæjarbíó sýnir hér um þessar mundir mjög athyglisverða mynd, „Óttínn“, sem er tekin eftir smásögu Stefan Zweig. Aðal- hlutverkið lelkur Ingrid Bcrgmann, em Rosselini maður hennar hefur annazt leikstjóm, Kvikmyndin er alveg sérstaklega listrænt tekin. Hún er einnig efnislega mjög spennandi og vel leikin. Þó nokkuð sé vikið frá sjálfum ganginum í sögu Zweigs er þó inni- haldinu raunverulega alveg haldið, en þetta er með frægustu sögum ■káldsins. Það borgar sig á alian hátt að sjá þessa mynd, bæði vegna þess hve vet hún er tekin og eins vegna þess hve hén beldur athyglinni vakandi og er um leið efnismikil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.