Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 16
Yeðrið SA stormur og rigning í kvöld. 9. tbl. — Laugardagur 12. janúar 1957. Kom í heimsókn og sfal peningaskápslyklunum Stórþjóínoðunnn í hoppdrætti D.A.S. npplýstor Rannsóknarlögreglunni hefur nú tekizt að upplýsa stór- þjófnað þann, er framinn var í haust í skrifstofu Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, en þar var stolið 63,000 krónum í peningum. Taldi gjaldkerinn sig hafa týnt lyklum sínum að skrifstofunni, en á hring með skrifstofulyklun- um var einnig lykill að peninga- skáp. Er kunnugt varð um þjófn- að þennan, var þá þegar augljóst mál, að þjófurinn hafði haft lykla þá undir höndum, er gjald keri happdrættisins, Sigurður Ingvarsson, taldi sig hafa týnt. — í fyrradag handtók raiuisókn- arlögreglan ungan mann, Krist- mund Ingvar Eðvarðsson, sem er fjölskyldumaður, Selásbletti 3C. Játaði hann að hafa framið þjófn- aðinn. Þessi ungi ógæfusami maður hefur aldrei fyrr svo vitað sé gerzt brotlegur við landslögin. Kristmundur Ingvar hefur um árabil þekkt Sigurð Ingvarsson gjaldkera, og hjá honum bjó hann um skeið. I HEIMSÓKN Að kvöldi 3. sept. síðastl. fdr Kristmundur Ingvar heim til Sig- urðar, sem þá var nýlega kom- inn heim úr vinnu sinni. Sátu þeir og spjölluðu saman fram að kvöldmat, en þá fór hann leiðar sinnar. LYKLARNIR TÝNDIR Síðar þetta kvöld saknaði Sig- urður Ingvarsson lyklakippu sinnar. Hann taldi fullvíst, að hann hefði tapað henni á förn- um vegi, einhvers staðar á göt- unum eða þá í strætisvagni. Og um nóttina var hann á verði við húsið alllengi, þar eð hugsazt gat, að sá, sem fyndi lyklana myndi átta sig á því, að þeir gengju að skrifstofum DAS- happdrættisins þar eð veskið var auðkennt með stöfunum D.A.S. — Þetta bar ekki árangur. Næsta morgun var kunnugt um að farið hefði verið í skrifstofuna og stórþjófnaðurinn framinn. TÓK LYKLANA Víkur nú sögunni aftur til Kristmundar Ingvars. Hattn sat fram undir kvöldmatarleytið hjá Sigurði. Á meðan þeir höfðu set- ið og rabbað saman, hafði Sigurð- ur lagt lyklakippuna á borð þar Róðrar í verstöðvum í Árnessýslu ekki byrjaðir SELFOSSI, 1L janúar: — Til sjávarins hefur verið mikil ótíð og ógæftir. Ekki hefur gefið á sjó nema endrum og eins, vegna brims en nokkur fiskur hefur verið þegar gefið hefur. í Þorlákshöfn verða s.iö bátar gerðir út í vetur. Þar af eru sex heimabátar og einn aðkomubátur, frá Eyrabakka. Frá Eyrabakka verðá þrír bátar væntanlega gerð ir út á vertíðina og þrír frá Stokkseyri. Ekki er ennþá farið að róa frá þessum verstöðvum en búizt er við að róðrar í Þor- lákshöfn hefjist upp úr miðjum mánuðinum, og frá Eyrarbakka og Stokkseyri nokkru seinna. — G.G. Kristmund og gerði hjá honum húsleit, sem ekki bar neinn ár- angur. En nokkru síöar var hann handtekinn á ný og aftur gerð hjá honum húsleit, sem eins og hin fyrri, bar ekki árangur. Eigi í stofu sinni og skömmu seinna ( þóttu liggja nægileg rök fyrir, brugðið sér úr stofunni. Á meðan greip Kristmundur Ingvar kipp- una og stakk á sig. Er Sigurður kom aftur, tóku þeir upp tal sitt, þar sem frá var liorfið. Nokkru síðar kvaddi Kristmundur Ingvar Sigurð. LÉT GREIPAR SÓPA Þá hélt Kristmundur Ingvar beint niður í skrifstofu D.A.S.- happdrættisins og með lyklunum opnaði hann skrifstofuna og fór síðan í peningaskápinn. Þar voru umræddar 63 þús. kr. í búntum, 100 og 500-króna seðla, og stakk Kristmundur Ingvar pen- ingunum á sig og hélt síðan leiðar sinnar og lokaði á eftir sér. Ekki var vitað um númerin á þessum peningaseðlum. GRÓF PENINGANA Nokkrum dögum síðar fleygði hann lyklunum í höfnina. Pen- ingana hefur hann síðan fært úr einum felustaðnum í annan, ýmist utanhúss, þar sem hann hefur grafið þá í jörðu, eða þá innanhúss. Eftir handtökuna í fyrradag kvaðst hann nú hafa eytt miklu af peningunum, en hann þykir eigi enn sem komið er hafa gert viðhlítandi grein fyrir því, hvað af þeim hafi orð- ið. Ekkert af peningunum hefur enn komið til skila. TVÆR ATLÖGUR Strax eftir þjófnaðinn féll grunur á Kristmund Ingva. En það tafði stórlega fyrir rann- sókninni, að Sigurður Ingvars- son gjaldkeri, taldi sig ekki hafa lagt kippuna frá sér heima hjá sér og lyklunum hefði hann tap- að á fömum vegi. Mun hann ekki hafa grunað kunningja sinn um græsku. En þrátt fyrir þetta handtók rannsóknarlögreglan til þess að hneppa hann í varð- hald. LIFÐI UMFRAM EFNI Þrátt fyrir þessar tvær atlögur að honum, taldi ramnsóknarlög- reglan sig enn hafa ástæðu til að gruna Kristmund Ingvar. Ákveð- ið var að fylgjast með líferni hans, en hann hefur ekki haft fasta atvinnu. Þegar augljóst þótti, að Kristmúndur Ingvar lifði langt um efni fram, var ákveðið að hann skyldi handtek- inn enn á ný, en það var sem sé gert í fyrradág. Við yfirheyrslu játaði hann á sig D.Á.S.-þjófnað- inn, og situr hann nú í gæzlu- varðhaldi, en rannsókn málsins heldur áfram. Þessi mynd var tekin í gær um borð í varð- og björgunarskipinu Albert, sem nú er í smíðum hér í Reykjavík. Er unnið af fullum krafti að því að ljúka smíðinni og er það verk langt komið. Hér eru þeir Guðmundur H. Guðmundsson húsgagnasmíðameistari, Har- aldur Guðmundsson verkstjóri í Landssmiðjunni og Jón Jónsson, sem verða mun skipherra á skipinu, að skoða teikningar af inn- réttingum skipsins, sem Landssmiðjan smíðar en Húsgagnaverzlun Reykjavíkur smíðar öll húsgögn í skipið —Ljósm. Mbl.: Ól.K.M. Verður miSsföð rannsókna við Korpúlsstaði Rannsóknarráð ríkisins falasl eftir léð þar RANNSÓKNARRÁÐ ríkisins, sem hefur með höndum yfirstjórn þeirra rannsóknarstarfa sem unnið er að í Atvinnudeild há- skólans hefur mikinn hug á því, að nú þegar verði stefnt að því að koma hér upp í bænum miðstöð ýmiss konar náttúrurannsókna. Hefur Rannsóknarráðið í þessu skyni sótt um spildu úr landi Korpúlfsstaðu. f gær átti Mbl. stutt samtal við Þorbjörn Sigurgeirsson fram- kvæmdastjóra Rannsóknarráðs. Þorbjörn sagði að aðkallandi væri fyrir Atvinnudeildina í há- skólahverfinu að fá stærra hús- næði til starfseminnar. Þar eru tvær deildir til húsa, iðnaðar- Samkeppnisstaða ísl. iðnaðarins versni ekki ALMENNUR félagsfundur í Fé-' lagi ísl. iðnrekenda var haldinn ? Þjóðleikhúskjallaranum föstu- daginn 4. þ.m. Formaður félags- ins. Sveinn B. Valfells, setti fund- inn, en fundarstjóri var kjörinn Eggert Kristjánsson. Sveinn B. Valfells hafði íram- sögu um dagskrármálið, sem var viðhorf í iðnaðarmálum. Þá gerði Pétur Sæmundsen, viðskiptafræð- ingur, grein fyrir helztu ákvæð- um hinnar nýju löggjafar um út- flutningssjóð, sem varða iðnað- inn. Að loknum ræðum frummæl- enda hófust umræður um málið og tóku margir til máls. Voru fundarmenn einhuga um að standa fast, saman um hagsmuna- mál iðmðarins og samþykkti fundurinn tillögur í þeim málum, sem efst eru á baugi meðal iðn- rekenda, þ. á. m. tillögu þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hlutast til um að samkeppnis- aðstaða innlendrar iðnaðarfram- leiðslu versni ekki í neinni grein frá því sem var fyrir gildistöku hinna nýju laga um útflutnings- sjóð. Var félagsstjórniiini falið að fylgja #þessum málum eftir við stjórnarvöldin. I Neplúnus með hæstn solu V.-Þýzkulundi ENN kemur togarinn Neptúnus við sögu. f gærmorgun seldi hann 163 tonn af fiski í Cuxhaven í V-Þýzkalandi fyrir 145,815 mörk. Er þetta hæsta fisksalan í V- Þýzkalandi á þessum vetri og er mjög góð sala. Togarinn var þó með „Eng- landsfisk“, ýsu og kola, sem ekki fæst sambærilegt verð fyrir í Þýzkalandi og í Bretlandi, en þar eru þessar fisktegundir í hæsta verðflokki. Var togaran- um snúið á Þýzkalandsmarkað, því löndunar-„kvótinn“ í Bret- landi í janúarmánuði er nú al- veg ásettur, Er fullvíst, að hefði Neptúnus getað landað sínum „Englandsfiski" í brezkri höfn, og markaður verið hagstæður, hefði farmur hans selzt mjög háu verði. og landbúnaðardeild, en starf- semi beggja þessara deilda hefur aukizt mikið á undanfömum ár- um. Verður nú ekki hjá því kom- izt, enda nauðsynlegt, að taka hús næði á leigu eða byggja nýja rannsóknarstofu, þar eð stækk- un Atvinnudeildarhússins er af ráðamönnum ekki talin æskileg. Það eru rannsóknir þessara. deilda á sviði byggingariðnaðar- ins og jarðvegsrannsókna, sem búa við alls ófullnægjandi hús- rými I Atvinnudeildarbygging- unni. HUGSA ÞARF FRAM í TÍMANN Þorbjörn Sigurgeirsson sagði ennfremur að tímabært væri að hugsa fram í tímann og tryggja landrými þar sem hægt væri að koma upp miðstöð fyrir hvers konar náttúrufræðilegar rann- sóknir þegar tímar líða fram. Er Rannsóknarráðið þeirrar skoðun- ar að mjög hentugt sé að slik stöð rísi upp í landi Korpúlfs- staða. Einnig þar hefur verið sótt um 15 hektara lands fyrir jarð- ræktarrannsóknir á vegum bún- aðardeildarinnar, sém nú eru reknar að Varmá í Mosfellssveit á mjög óhentugu landi til slíkra rannsókna. Þá er þess einnig' að geta að Raforkumálaskrifstofan hefur sótt um spildu í landi Korpúlfsstaða og verði þar m.a. framkvæmdar rannsóknir á nýt- ingu jarðhitans. Á fundi sínum á þriðjudaginn tók bæjarráð erindi Rannsóknar- ráðs fyrir og afgreiddi það síðan til samvinnunefndar þeirrar, er fjallar um skipulagsmálin. Spilakvöld Hvatar á mániidagskvöld SJÁLFSTÆÐISKVENNA- FÉLAGIÐ HVÖT heldur sitt ár- lega spilakvöld mánudaginn 14. þ.m. í Sjálfstæðishúsinu. Hefst það kl. 8,30 síðdegis. Verður þar spiluð félagsvist, frú Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður flytur ávarp og sýnd verður hin ágæta Hornstrandakvikmynd sem Ósvald Knudsen hefur tek- ið. Ennfremur verður kaffi- drykkja. Aðgangur er ókeypis. Fél jn- konur mega bjóða með sér mönn- um sínum eða öðrum gestum. Spilakvöld Hvatar eru mjög vinsæl og hafa jafnan verið mjög fjölmenn undanfarin ár. Má því gera ráð fyrir mikilli aðsókn, einn ig að þessu sinni. Allsherjaratkvæðagreiðsla í Iðju f FYRRAKVÖLD var ákveðið, að allsherjaratkvæðagreiðsla skuli fara fram um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs í Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík. Eins og venjulega ætluðu komm únistar sér að láta fara fram óhlutbundna kosningu um stjórn og trúnaðarmannaráð á fundi í félaginu, þar sem mættur væri aðeins örlítill hluti félagsmanna og höfðu þeir auglýst hann í Þjóð viljanum í fyrradag. Lýðræðissinnum í Iðju tókst að hindra þetta og lögðu fram í gær undirskriftir fjölmargra Iðju- félaga um kröfu og að allsherj- aratkvæðagreiðsla skuli viðhöfð. Á s. 1. hausti þegar kosið var um fulltrúa Iðju á Alþýðusam- bandsþing kom í ljós að komm- únistar höfðu svipt mikinn hluta Iðjufólks atkvæðisrétti þótt það hefði greitt full félagsgjöld jafn- vel árum saman mreð þeirri tylli. ástæðu að það hefði ekki undir- ritað inntökubeiðni í félagið og tekið félagsskírteini. Er því fastlega skorað á alla andstæðinga kommúnista í Iðju að afla sér nú þegar fullra fclags- réttinda, og er hægt að fá félags- skírteini afhent í skrifstofu félags ins á Þórsgötu 1, kl. 10—12 f. h. í dag og aðra virka daga kl. 4—6 e. h

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.