Morgunblaðið - 15.01.1957, Síða 2
I
MOnGTJT\nLAT>1Ð
f>riðjudagur 15. janúar 1957
— Brezka stjórnin
Framh. af Ms, 1
11« ! sambandl vió nýju stjóm
ina. 1 fyrsta lagi ew þau ánægð
með skipun Fetets Thorney-
crofts i embættl fjármálaráð-
horra. Undanfarin 5 ár hefur
hann verið forseti hrezka verzl-
unarráðsins og þykir hafa sýnt
frábæran dugnað og hugvit. t
öðru lagi fagna þau þvi, að
Richard Butler er áfram inn-
siglisvörðtor konungs og formæl-
andi stjórnarinnar í neðri mál-
stofunni. Hins vegar eru skiptar
skoðanir um skipun hans í em-
bættl innanríkisráðherra. Times
segir, að hann muni að líkindum
hafa meira að gera en honum
sé hollt.
NÝR RÁÐHERRASTÓLL
Þá vekur hið nýja embætti
orkumálaráðherra mikið um
viiji forsætisráðherrann sýna, að
stefna Breta í Súez-málinu sé
óbreytt. Ennfremur muni það
koma í veg fyrir betri sambúð
Breta og Bandaríkjamanna. Seg-
ir blaðið, að þetta skref sé íurðu.
legt og sorglegt.
íhaldsblöðin eru á öðru máli.
Daily Mail segir, að með þessu
skrefi hafi Macmillan lýst yfir
trausti sínu á Lloyd, og Daily
Express álítur, að með því hafi
hann viljað sýna það svart á
hvítu, að Bretar ætli ekki að
gera „óvirðulega kúvendingu“ á
stefnu sinni í utanríkismálum.
Tveir ráðherranna, sem hækk-
að hafa í sessi, fá hrós í öllum
blöðum. Þeir eru Sir David
Eccles, hinn nýi forseti verzlun-
arráðsins, og Duncan Sandys
hinn nýi landvarnaráðherra. Blöð
in harma það aðeins, að enn einu
sinni hafi verið skipt um land-
varnaráðherra, en þau skipti hafa
verið tíð síðan 1951. Times bend-
ir á, að síðustu 11 árin hafi set-
ið eigi færri en 10 landvarnaráð-
herrar.
RICHARD BUTLER
tal. Bent er á, að orkumála-
ráðherrann muni ekki aðeins
hafa umsjón með kolum, gasi,
rafmagni og olíu, heldur muni
starfsvið hans einnig taka til
járn- og stáliðnaðarins, svo og
til nýtingar kjarnorkunnar í
þágu iðnaðar. Þannig verður
starf hans sérstaklega mikil-
vægt brezkum iðnaði. Plest
blöðin helga þessu nýja em-
bætti fyrirsagnir sínar og
benda á, að það sé sönnun
þess, að Macmillan sé staðráð-
inn í að taka nú efnahagsmál
Breta til rækilegrar endur-
skoðunar.
EKKI STJÓRNMÁLAMAÐUR
Einasta gagnrýnin í sambandi
við embætti orkumálaráðherrans
er sú, að ekki hefur verið val-
inn í það stjórnmálamaður, held-
ur fyrrverandi opinber embættis-
maður, sem nú er iðjuhöldur.
Þessi maður er Sir Percy Mills
og er 67 ára gamall. Blöð stjóm-
arandstöðunnar segja, að skipun
hans í embættið sýni ljóslega,
að íhaldsmenn skorti hæfileika-
menn á þingi. íhaldsblaðið Daily
Telegraph segir, að leitt sé til
þess að vita, að ekki hafi fundizt
neinn stjórnmálamaður til að
gegna embætti, sem krefjist
reynslu í þingstörfum.
SKIPTAR SKOÐANIR
UM LLOYD
Um skipun Selwyn Lloyds í
embætti utanríkisráðherra eru
skoðanir mjög skiptar. Frjáls-
lynda blaðið „Manchester Guard-
ian“ segir, að með þessu skrefi
Verkefni nýju stjórnarlnnar
FRÁ sjónarmiði Breta er bætt
sambúð þeirra við Banda
ríkjamenn eitt hið þýðingar
mesta verkefni sem liggur fyrir,
en stjóm Bandaríkjanna hefur
aðstöðu til að hjálpa Bretum
margs konar vanda. Verkefni
hinnar nýju stjómar eru mörg,
en efnahagsleg viðreisn landsins
er eitt meðal hinna alvarlegustu.
Súez-ævintýrið varð Bretum
dýrt og efnahagsleg afkoma
þeirra er nú tvísýn. Alvarleg
kreppa sýnist vera þar í aðsigi og
það krefst átaka af hálfu allrar
þjóðarinnar að stemma stigu við
henni. í embætti fjármálaráð-
herra hefur nú verið skipaður
einn af þeim mönnum, sem tal-
inn er hafa verið með hinum
ötulustu þingmönnum íhalds-
flokksins.
Peter Thorneycroft er tæplega
fertugur og hefur lengi verið
þingmaður, en varð fyrst ráð-
herra árið 1945, en hefur síðan
1951 farið með verzlunarmál.
Hann hefur lengi verið einn af
mest áberandi mönnum meðal
hinna yngri þingmanna íhalds-
flokksins og hefur oft staðið um
hann talsverður styr.
Annað höfuðverkefni er á
sviði utanríkismálanna. Hernað-
araðgerðirnar í Egyptalandi hafa
haft óheillavænleg áhrif á að-
stöðu Breta almennt í heiminum,
en sérstaklega hafa þær þó haft
óheppilegar afleiðingar fyrir
sambúð Breta og Bandaríkja-
manna. Samveldislöndin hafa
heldur ekki fylgt Bretum óskipt
og afstaða vestrænna þjóða inn-
an Sameinuðu þjóðanna hefur
einnig orðið verri eftir aðgerðir
Breta og Frakka. En af öllum
er það viðurkennt, að nauðsyn-
legt er að bæta samstarf þjóð-
anna eins og fram kemur í ræð-
um og yfirlýsingum stjórnmála-
manna víða um*heim og mun nú
hin nýja stjóm vafalaust koma
þar fram með útréttar hendur.
Auk þess liafa svo verið uppi
háværar raddir um að Bretar
þyrftu að taka hernaðarmál sín
til gagngerðrar endurskoðunar.
Það hefur heyrzt að þau mál hafi
verið mjög í molum, enda hefur
oft verið skipt um land- arna-
ráðherra á síðustu ámm. Súez-
deilan sýndi að England getur
ekki stuðningslaust framkvæmt
meiri háttar hemaðaraðgerðir
og fjárhagsástand landsins er svo
bágborið að það er ekki lengur
fært um að bera þau hernaðar-
útgjöld, sem stórveldisaðstaða
þess útkrefur. Hingað til hefur
verið dregin fjöður yfir þá stað-
reynd að það sem fæst fyrir það
fé, sem lagt er til herbúnaðar,
stendur í engu hlutfalli við þá
gífurlegu fjárhæð, sem til þessa
fer á ári hverju.
Rússar kalla saman þing
Moskva, 14. jan. Frá Reuter—NTB.
rpASSFRÉTTASTOFAN rússneska tilkynnti í dag, að þing Sovét-
ríkjanna, verði kvatt saman 5. febrúar n.k. Það verður fyrsti
fundur þingsins síðan í júlí í fyrra. Tilkynningin hafði ekki að
geyma neinar upplýsingar um dagskrá þingsins, en talið er lík-
legt að þar verði rætt um fjárlögin fyrir yfirstandandi ár. Einnig
má telja vist, að hin endurskoðaða sjötta 5-ára áætlun verði lögð
fram. Miðstjórn kommúnistaflokksins samþykkti á fundi sínum í
desember, að leggja ætti áætlunina fyrir þingið á „fyrra helmingi
ársins 1957".
Heimsveldisdraumur og gaml-
ar venjur hafa komið í veg fyrir
endurskoðun hernaðarmálanna í
heild. En hinn hernaðarlegi ósig
ur í Egyptalandi og efnahags-
kreppan í landinu hafa nú opn-
að augu margra fyrir þeirri stað-
reynd að hemaðarútgjöldin þarf
af samræma betur en verið hefur
við núverandi stöðu Bretlands í
alþjóðamálum og fjárhagsgetu
landsins. En einnig hér verður
að koma til greina ssunstarf við
aðrar vestrænar þjóðir.
Það er með hliðsjón af þessu,
sem Macmillan hefur kvatt nýj-
an mann til að gegna ráðherra-
embætti landvamaráðherra. —
Duncan Sandys, sem var áður
húsnæðismálaráðherra, er nú
gerður landvarnaráðherra í stað
Anthony Head (en í þinginu var
mjög á hann ráðizt vegna hinnar
hemaðarlegu hliðar á aðgerðun-
um gagnvart Egyptalandi). Dun-
can Sandys er vel þekktur úr
enskum stjórnmálum. Hann er
48 ára að aldri og er tengda-
sonur Churchills. Hann varð
fyrst ráðherra 1944, en hefur
gegnt ýmsum embættum og var
nú síðast birgðamálaráðherra.
AFSTAÐAN
TIL BANDARÍKJANNA
Eins og vikið er að hér að
framan er bætt sambúð Breta og
SELW KN LI.o
Bandaríkjamanna eitt höfuð-
verkefni hinnar nýju stjórnar,
enda þurfa Bretar nú á aðstoð
Bandarikjanna að halda meir en
nokkru sinni fyrr.
Afsögn Edens hefur vakið
óblandna ánægju meðal stjórn-
málamanna í Washington og er
engin fjöður yfir það dregin þar.
Vissulega er látin í Ijósi samúð
vegna heilsuleysis hins fyrrver-
andi íoráætisráðherra, en að öðru
leyti kemur ljóst fram, að Banda
ríkin telja að brottför hans hafi
verið nauðsynleg. í stjómartíð
Edens versnaði að mun sambúð
Bandaríkjanna og Breta og vafa-
laust hefur það átt sinn þátt í
falli hans. Ekki er þó svo að (
skilja að Bandaríkjamenn hafi
beinlínis haft áhrif á brottför
Edens en vafalaust er þetta þó
ein af helztu orsökunum. Eisen-
hower forseti færðist einnig und-
an að hitta Eden meðan hann
dvaldi á Jamaica, en forsetinn
var á sama tíma þar ekki langt
frá. Forsetinn og Dulles hafa
varpað sökinni á Eden fyrir að
hefja aðgerðirnar gegn Egypta-
landi án samþykkis Bandaríkja-
manna og án þess að ráðgast við
þá. Á það er sérstaklega bent,
að þetta gerðist meðan kosninga-
bardaginn stóð í Bandaríkjunum
og styrjöld hefði á þessum tíma
getað veikt mjög aðstöðu Eisen-
howers í þeirri baráttu.
Nú þegar Eden er farinn frá
hafa þeir Eisenhower og Dulles
að vísu látið í Ijós samúð sína
með Eden persónulega, en ekki
með einu orði harmað að þessi
umskipti skyldu eiga sér stað.
Það er talið fullvíst að nú er
opnuð leið fyrir betra samkomu-
lagi milli Breta og Bandaríkja-
manna eftir að upphafsmaður
Súez-átakanna er farinn frá.
Hér við bætist að hinn nýji
forsætisráðherra er mjög vel
þekktur meðal bandarískra
stjómmálamanna. Hann hafði
náið samstarf með Eisenhower á
styrjaldarárunum og á báðum
fundunum í Genf stóðu Mac-
millan og Dulles hlið við hlið.
Að vísu var Macmillan fylgj-
andi aðgerðum Breta í Súez, en
hvað sem því líður er talið að
hann hafi mjög góða aðstöðu til
þess að bæta sambúð Breta og
Bandaríkjamanna og ef til vill
betri en nokkur annar meðal
brezkra stjórnmálamanna. Mac-
millan er einnig bandarískur í
aðra ætt. Honum hefur líka
verið tekið mjög vel af ame-
rískum stjórnmálamönnum og
mun hann hitta Eisenhower for-
seta að máli bráðlega. Staða Mac-
millóui sem forsætisráðherra er
í Bandaríkj unum talin trygging
þess að ekki komi framar til
sams konar átaka milli þjóðanna
og gerðist út af Súez-deilunni.
Það er vafalaust þessi sterka,
persónulega aðstaða, sem gert
hefur Macmillan fært að halda
Selwyn Uoyd í embætti utan-
ríkisráðherra. Lloyd er dugmik-
ill maður, sem á sterk ítök í
flokki sínum og vafalaust hefur
íhaldsflokknum þótt mælirinn
fullur þótt ekki þyrfti einnig að
varpa honum fyrir borð vegna
Súez-átakanna, en mörgum Breta
finnst nú auðmýking landsins
vera orðin ærin. Það hefur víða
vakið nokkra furðu að Lloyd,
sem átti sinn þátt við hlið Edens
í Súez-málunum, skuli halda
embætti sínu en þá ráðstöfun
ber vafalaust að skoða að nokkru
í ljósi þess, sem sagt er hér á
undan.
EINING
iHALDSFLOKKSINS
Auk þeirra verkefna hinnar
nýju stjórnar, sem hér hafa ver-
ið talin eru svo mál íhaldsflokks-
ins sjálfs, en honum liggur nú
lífið á að græða sár sín og ná
aftur innbyrðis samheldni eftir
átök undanfarinna mánaða. Það
er frumskilyrði þess að flokkur-
inn eigi að hafa nokkra von um
að vinna næstu kosningar. Erfið-
leikar þeir, sem auðsjáanlega
voru á nýrri stjórnarmyndun
sjýna hve ágreiningurinn innan
flokksins var djúpstæður. Hinir
frjálslyndari sætta sig ekki vel
við Macmillan en hinir íhaldssam
ari studdu hann til valda gegn
Butler og þeir hafa orðið ofan á,
eins og nýskipan stjórnarinnar
ber vott um.
Macmillan á vafalaust erfiða
daga framundan, enda hefur
land hcuis sjaldan staðið í meiri
vanda á tímum, sem eiga þó að
heita friðartímar.
Till. um ráÖstafanir til
aö greiða úr umíerðinni
EINS og kunnugt er og rætt hef-
ur verið í blöðunum þóttu þær
ráðstafanir, sem gerðar voru í
jólaumferðinni, takast vel, og
umferðin gekk greitt þrátt fyrir
gífurlegt álag á hinar mjóu göt-
ur og þrönga gatnakerfi.
Reynslan af þessum ráðstöfun-
um leiddi í Ijós, að sumar þeirra
væri rétt að taka upp til fram-
búðar og hefur Umferðarnefnd
bæjarins nú samþykkt að leggja
til við bæjarráð, að bifreiðastöð-
ur verði bannaðar við 3 götur,
þar sem slíkt bann þótti gefast
vel til þess að fyrirbyggja um-
ferðartruflanir um jólin. Göturn-
ar eru Njálsgata, Barónsstígur og
Ægisgata.
Leggur Umferðarnefnd til, að
bifreiðastöður verði algerlega
bannaðar allan sólarhringinn
— Afvopnun
Framhald e.f bls. 1.
<rgðum af kjarnorkuvopn-
im. Þessar birgðir þyrfti að
minnka og reyna eftir mætti
að draga úr hættunni, sem
stafar af kjarnorkuvopnum.
2) Gera þyrfti ráðstafanir til
að koma í veg fyrir skyndi-
árásir og draga þannig úr
styrjaldarhættunni.
3) Draga þyrfti úr kostnaðinum
við vígbúnað og bæta þannig
lífskjör allra þjóða.
4) Tryggja þyrfti, að rannsókn-
ir og tilraunir með geimför
og önnur tæki, sem ætlað er
að rannsaka himinhvolfið og
aðra hnetti, séu eingöngu
helgaðar vísindalegum og
friðsamlegum tilgangi.
5) Draga þyrfti úr viðsjám
þjóða á meðal og skapa mögu
leika á að leysa öll deilu-
mál á friðsamlegum grund-
velli.
Einstök atriði þessara 5 til-
lagna verða rædd nánar á fund-
um undirnefndarinnar, sem fjall-
ar um afvopnunarmál, en í henni
eiga sæti Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Kanada og Sovétrík-
in.
norðan megin á Njálsgötu allri,
vestan megin á Barónsstíg,
milli Bergþórugötu og Hverfis-
götu og báðum megin á Ægisgötu
milli Tryggvagötu og Vesturgötu.
Ennfremur hefur nefndin til
athugunar að setja einstefnuakst-
ur á Lindargötu, sem þótti takast
vel í jólaumferðinni. Árangur af
öðrum ráðstöfunum í jólaumferð-
inni í bænum er í athugun.
Skók-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
17......... f7—f5
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss )
16. Bcl—e5