Morgunblaðið - 15.01.1957, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.01.1957, Qupperneq 11
Þriðjudagur 15. janúar 1957 MORGUNBLAÐIÐ 11 Mnu 1. Plat d’ entre: Petits pains avec fromage. (Brauðhleif með osti) Faux champignons. (Sveppasúpa) Une rave crue. (Næpa) * 2. Piece de resistance: 10 Aranches de pain noir avec beurre. (Rúgbrauð með smjöri) Requin blanc. (Skyrhákarl) Requin á gelée. (Glærhákarl) 5 gouttes simples d’ eau de vie. (Ákavíti) * D e s s e r t: 1 banane avec peste noir. (Bananil ' * Boissons: Eau islandaise. (fslenzkt vatn) Acide de lait. (Mjólkursýra) Lait de vache islandais. (Mjólk) Huile de foie de morue. (Lýsi) Þetta er frumlegasti matseðillinn sem sézt hefur í Nausti. gaman að reka veitingahús, þeg- ar við vitum að þeir eru það. í>á er mitt starf það skemmtileg- asta sem til er. Og við viljum miklu fremur, að gestirnir kvarti yfir því, sem þeim þykir misjafnt vera, — en að þeir rjúki út í fússi. Þá gefst okkur tækifæri til að lag- færa það sem miður fer, og það er einmitt það sem við vilj- um. Og þetta er vafalaust ein meg- inástæðan til þess, að Halldóri Gröndal og hinu 27 manna starfsliði hans tekst furðuvel að fylla kvöld hvert 90 sætin í saln- um niðri og hin 30 uppi í súð- inni eða baðstofunni svo sem hún er líka nefnd. Islendingar eru að verða kaffi- húsaþjóð. Það er augljóst á aðsókninni að veitingahúsum okkar, og Naustið á sína föstu kaffikarla, sem ekkert vilja fara nema þangað og slíkir menn eru sannkölluð bankatrygging einu veitingahúsi. Og sumir þeirra eru meira að segja svo vanafast- ir, að ef þeir fá ekki sitt fasta skiprúm, Andvara, Skíðblaðni Matsveinninn gegnir mikilvægu eða emhvern annan, snuast þeir starfi j Nausti. Hér lima;. hann a hæli i stiganum og strunza a sundur kjöt m matargerðarinnar. Vínin eru alltaf vinsælt um- ræðuefni á íslandi, vafalaust vegna þess hve miklar og flókn- ar hömlur gilda í þeim eínum. Og ekki þarf að taka það fram að veitingahús án víns er í raun og sannleika ekkert veitingahús. í Naustið koma miklir vínmenn, svo miklir, að stundum liggur við, að maður geti nefnt þá drykkjumenn í góðu. Ég spurði Halldór að því hvað mest hefði verið drukkið í hans húsakynn- um, og svaraði hann því til, að það hefði verið í veizlu 24 karl- manna, sem hann hélt eitt sinn. Þar neytti að meðaltali hver veizlugestur einnar flösku af whisky um kvöldið auk borð- víns. — Það er mikið, segir Hall- dór, en trúðu því, það sá varla á þeim, þegar þeir fóru! En þótt stundum sé kalsað um það, að íslendingar séu miklir drýkkjumenn og drekki illa, þá er það staðreyndin samt eftir því sem opinberar skýrslur sýna, að þeir drukku aðeins rúman þriðj- ung á við frændur sína Svía. Og varla kemur það fyrir, að menn verði ofurölvi í Naustinu. Það um þjóðernum, jafnt Kínverjar, fer sífellt í vöxt, að ungir menn bjóði kærustunni eða konunni út til veizlufagnaðar þangað, og drekki aðeins hvítvín eða kampa vín allt kvöldið. Slíkt er fyrir- myndar-siður og dæmi um hvern ig víns má neyta í góðu hófi. En smekkurinn er líka mis- jafn. Mest er drukkið af whisky í Naustinu, þvínæst gini og þá ákavíti og íslenzkt, gamalt brennivín, og loks koma að jöfnu vodka, genever og kon- jakk. Til gamans skal þess getið, að á Borginni er helzt drukkið gin, á Röðli, meðan hann var og hét, var mest drukkið ákavíti og í Þjóðleikhúskjallaranum er helzt kneifað eðalt whisky. Þetta er nokkur fróðleikur og ef til vill getur hann gefið upplýsing- ar bæði um efnahag bess fólks, sem komur sínar venur á þessa veitingastaði og smekk þess. Já, smekkurinn! Hann er misjafn eins og gengur. Eitt sinn kom einn af betri borgurum bæjarins að máli við Halldór og vildi fá að halda veizlugleði í húsum hans, sem reyndist auðsótt mál. Ræddu þeir fram og aftur af gaumgæfni um samsetningu matseðilsins, og kunni veizluhöldur þar hin beztu skil á frábrugðnum réttum, enda matmaður mikill og „gourmet" að sama skapi. Og þá kom að því hvaða vín skyldi drekka með hverjum rétti, á undan mál- tíðinni og á eftir. Það val er, sem kunnugt er, engu ómikil- vægara í augum hins æfða veit- ingamanns en samning matseð- ilsins sjálfs. Halldór var í þann veginn að stinga upp á annað hvort Manhattan eða Martini kokteil á undan matnum, þeg- ar veizluhöldur grípur fram í fyrir honum og segir: — Ég held að það sé rétt að byrja á whisky, já og svo höfum við bara wiskhy með súpunni, whisky með fiskinum, whisky með kjötinu og endum á whisky! Og það var líka gert og er í annála skráð í Nausti hve góð veizlan hafi verið. Það er þannig ekki ofsögum sagt af því að smekkur mann- anna er jafnmargbreytilegur og víntegundirnar sem á boðstólum eru. En eitt áfengi hefir þó ver- ið öðrum vinsælla í seinni tíð. Það er vodka, en það fæst í Nausti ýmist beint komið frá vín •jeymslum Moskvuborgar, Var- já eða Prag. Ekki vilja forráða- menn Nautsins þó viðurkenna, að það standi í nokkru sambandi við pólitískan lit viðskiptavina sinna, nema síður sé, en eins og áður greinir er einn vinsælasti kokteillinn einmitt gerður af þessum drykk, Asninn (Moscow Mule). Og út frá spjallinu um vín- tegundirnar og þær marg- breytilegu manngerðir sem þær drekka berst talið að þeim eig- inleikum sem góður veitinga- maður þurfi að vera gæddur, ef hann vilji láta gestum sínum líða vel. Þar kemur til meiri sálfræði en margan grunar. Halldór á þykkan doðrant heima hjá sér í bókaskap, sem Banda- ríkjamenn hafa ritað um sál- fræði veitingahúsaresktrar, og má af því marka að víða not- ast sálfræðin, jafnvel til að græða fé, á þennan máta. Það er eitt af kjörorðum veit- ingamannsins, að góður viður- gerningur, og glaðir gestir eru gæfa hans sjálfs og veitingahúss hans. Og það veit Halldór. Ef borð brenglast og gestir í veizlu- skapi fá hvergi sæti, er þeim t.d. færður kokteill með beztu kveðj- um frá Nausti, á meðan þeir bíða. í brúðkaupsveizlum er brúð- inni færð blóm, til árnaðar ham- ingju og heilla um öll ókomin ár, og auðvitað er dýrasta og bezta kampavínið framreitt. (Heiðarleikans vegna er skylt að geta þess að það borgar faðir brúðarinnar). Það er kannski einmitt vegna þess, að í Naustinu hefir gestur- inn ávallt á réttu að standa, þjón arnir hlusta á hann, sjóða fyrir hann nýja súpu að bragði eða verma rauðvínið eilítið meir, sem svo margir koma þangað og svo mörgum líður þar vel, á glaðri kvöldstund. Og þeir eru ekki fáir sem gætu tekið undir með Jóni Leifs þegar hann segir: Naustið hefir beztu tónleikana, V^að líður að kvöldverðar- * tíma, káetuluktirnar hafa verið tendraðar yfir hverju skip- rúmi, einn þjónninn ber vín í fangi sér til stúkunnar, annar fægir glös og sá þriðji kveikir á olíutýrunum. Það glampar á netakúlumar í loftinu, og langir skuggar stökkva undan broddi hákarlaskutulsins í skarsúðinni. Það er ró yfir salnum, og fyrsta, ókennilega matarlyktin berst út um hálfopnar eldhúsdymar. Inn- an stundar munu tónar óm- þýðra Vínarlaga hljóma um sal- inn, og glaðir gestir minnast hvorir við annan. En ennþá er salurinn auður og hljóður. Halldór stendur við Halldór tekur á móti fyrstu gestum kvöldsins og leiðir þá til sætis. 60.000 manns koma árlcga í Naustið, af öllum litarháttum, en með eitt í huga: mat og vín. bezta matinn, beztu vínin og beztu þjónustuna. Jón sker að vísu aldrei lof eða last við negl- ur sér, flestir munu sammála um að í orðum hans felist nokkur sannleikur. stigann í kvöldklæðnaði með matseðil í hendi og bíður þess að fylgja fyrstu gestunum til sætis. Kvöldið er að hefjast í Nausti. g■ g■ s. Skál! Úr mörgu er að velja í vínstúkunni, og þaðan fer enginn þurrbrjósta. Mest er whisky kneifað, þá gin og konjakk. Vodkað verður ae vinsælla og kokteillinn sem vínstúkumaðurinn hristir þarna er úr vodka og nefnist asni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.