Morgunblaðið - 15.01.1957, Side 6

Morgunblaðið - 15.01.1957, Side 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. janúar 1957 Valbjörn setti ísl. met í stangarstökki 3,88 m Frjálsíþróttamenn fara vel af stað I'ÞRÓTTAFÉLAG REYKJAVÍKUR efndi til innanfélagsmóts í tveimur greinum innanhússíþrótta á sunnudaginn. Var keppt í stangarstökki og í langstökki án atrennu. Valbjörn Þorláksson, ÍR, setti ísl. met í stangarstökki innanhúss, stökk 3,88 og bætti gamla metið um 8 cm. r? , -V ■; i ■-ím ★ NÁLÆGT HÁMARKI!! Stangarstökkskeppnin í ÍR-hús- ínu við Túngötu er nokkuð erfið, at.vennubraut mjög stutt og senni lega ekki hægt að stökkva hærra en 4 metra þar vegna lofthæðar hússins. Hins vegar er það ákaf- lega þýðingarmikið fyrir stang- arstökkvara okkar,' að geta verið að stökkva allt árið, i stað þess að snerta varla á stönginni í marga mánuði, eins og áður var. ★ ÚRSLIT Valbjórn var mjög nálægt því að stökkva 4 metra, en úrslit urðu sem hér segir: Valbjörn Þorláksson ÍR 3,88 m Brynjar Jensson 3,45 — Valg. Sigurðsson 3,35 — í langstökki án atrennu urðu úrslit þessi: Vilhjálmur Einarsson ÍR 3,17 m Valbjörn Þorláksson 3,09 — Giafur Hólm 2,80 — Árangur í báðum greinum má telja góðan, þar sem æfingar V' '-V ' Agostini frá Trinidad 4. í Melbourne í 100 m. hl. frjálsíþróttamanna eru nýlega hafnar að aflokinni hvíld frá keppnistímabilinu. Má sannar- iega vænta mikils meira af f r j álsíþr óttamönnunum. Valbjörn stekkur Nokkur vundi upp kominn vnrðnndi riðil íslnnds í heimsmeisfnrnkeppninni ‘ jVrOKKUR vandi er upp kominn í undanrásum heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu. Eins og kunnugt er, er ísland í riðli með Belgíu og Frakklandi og leikum þessum á að vera lokið á þessu ári. Það lið sem efst verður í þess- um 3. landa hóp mætir til úr- slitakeppninnar í Svíþjóð. Nú stendur þannig á að keppnistímabil Frakka og Belgíu- manna annars vegar og íslend- inga hins vegar eru ekki á sama tíma nema að mjög litlu leyti. Frakkar og Belgíumenn eiga eins og flestar aðrar þjóðir fri frá knattspyrnukeppni yfir hásumar- ið. Keppnistímabilinu lýkur í maí og hefst svo aftur síðast í ágúst. í maí eru ísl. knattspyrnumenn ekki komnir í þá æfingu sem landsleikur krefst og í ágúst vilja hinar þjóðirnar ekki keppa lands- leiki, þar sem þeir hafa þá ný- lega hafið æfingar. Þeirra uppástunga er að ís- leiidingar komi utan og leiki við Belgíu og Frakkland (í sömu ferð) og þeir komi svo hingað í októbermánuði. Allir sjá að það er útilokað. Af þeim sökum er mál þetta komið til alþjóðaknattspyrnusam bandsins og þar til framkvæmda- nefndar (3 manna). Henní er ætlað að kveða upp einhvers konar Salomonsdóm í þessu máii. Hugsanlegt er að úrskurður hennar verði þannig, að íslend- ingar geti ekki gengið að. En vonandi tekst nefndinni að finna einhverja þá leið sem fær er báðum aðiljum. Á vegum KRR fóru fram 19 mót — 187 leikir AÐALFUNDUR Knattspyrnuráðs Reykjavíkur var haldinn dag- ana 14. nóv. og 28. nóv. s. 1. í Félagsheimili Fram við Sjó- mannaskólann. Fundurinn var fjölsóttur og sátu hann 25 fulltrúar frá öllum knattspyrnufélögunum í Reykjavík, auk margra gesta. Starfsskýrsla ráðsins fyrir síð- asta ár ber með sér, að knatt- spyrnuíþróttin dregur til sín sí- fellt fleiri áhangendur bæði virka iðkendur og áhorfendur. Alls fóru fram 19 knattspyrnumót á vegum ráðsins s. 1. sumar og 187 kapp- leikir, þar af 18 leikir gegn er- lendum meistaraflokksliðum, og hafa þeir leikir aldrei verið fleiri, en einnig fóru fram 9 leikir gegn erlendum unglingaliðum. Merkasta knattspyrnuheimsókn in á sumrinu var heimsókn rúss- neska knattspyrnuliðsins Loko- motíf, sem lék hér 3 leiki á veg- um ráðsins í lok júlí-mánaðar. Mun óhætt að fullyrða, að þetta lið hafi verið eitt alíremsta knatt- spyrnulið, sem hingað hefur kom- .ð. Tvö félög sendu flokka til keppni erlendis, Valur sendi meistaraflokksbð sitt til Þýzka- lands og Englands, og Fram sendi 2. flokkslið sitt til Danmerkur. Mörg mál bar á góma á fund- inum, dómaravandamál, skipu- lagning leika meistaraflokks og samræming við landsliðsferðir, lýsing vallanna í Reykjavík og sameiginleg lausn á þjálfaravand kvæðunum. Langmest var rætt um vandkvæðin á að fá dómara til þess að starfa og um framtíð- arlausn þess máls. Framundan eru miklar fram- kvæmdir á vegum knattspyrnu- félaganna, Víkingur býður hing- að erlendu meistaraflokksliði í byrjun júní, og Valur öðru meist- araflokksliði síðari hluta sumars, einnig er von á dönsku 2. flokks liði á vegum Fram. Þá ráðgera 2—3 félaganna utanferðir yngri flokkanna. í sambandi við 10 ára afmæli knattspyrnusambandsins verður hér í Reykjavík efnt til þriggja landsleika í júlí, og koma hing- að landslið Dana og Norðmanna til keppni. Stjórn róðsins næsta ár verður þannig skipuð: Páll Guðnason, Val, formaður, Jón Guðjónsson, Fram, varaformaður, Ólafur Jóns Son, Víking, gjaldkeri, Haraldur Gíslason, KR, ritari og Haraldur Snorrason, Þrótti, bréfritari. Er stjórmn óbreytt frá fyrra óri að mestu, en Sigurgeir Bjarnason, fulltrúi Þróttar lét af störfum, en við tók Haraldur Snorrason. shrif*ar úr daglega lífinu ÞEIR Reykvíkingar sem leið sína leggja suður Hafnar- fjarðarveginn hafa efalaust tekið eftir því að lýsingm á þeim vegi er mörgum sinnum fullkomnari en áður var. Má segja að mest alia leiðir.a séu komin upp götu- Ijós, en þó er nokkur vegarkafli dimmur. Rauð 3jós betri en hvít. 17 N í því sambandi má nú segja að full reynd sé komin á það hvor ljcjsin eru betri, hin blá- hvítu Ijós sem allvíða tíðkast hér á vegum, t.d. við hluta Suður- landsbrautarinnar í Reykjavík, á Strandgötunni í Hafnarfirði og Gránufélagsgötu á Akureyri, eða hin gulrauðu ljós, sem sett hafa verið við nokkra vegarkafla. Byrjaðir knattspyrnu- æfingar áhverjum degi Sama hvort þurrf er eða vott DAGAR HINS svartasta skammdegis eru liðnir, og undirbúningur keppnismanna fyrir sumarið er hafinn — að minnsta kosti sums staðar. Fáir knattspyrnumenn munu þó vera komnir til æf- inga fyrir alvöru, en eitt er það félag, sem kemur til æfinga á hverjum degi og æfir úti. Það eru nýliðarnir í 1. deild, lið Hafn- firðingg. Albert Guðmundsson er sem kunnugt er þjálfari liðsins. Er mikið líf í liðsmönnum, bæði fé- lagslega séð og íþróttalega. — Við höfum æft óslitið síðan í sumar, og nú eru æfingar hafnar á hverjum degi. Við æfum úti, og það skiptir engu máli hvort það er hagstætt veður, rigning, völlurinn sé þurr eða ataður for. Við æfum. Við látum myrkrið ekki aftra okkur, en höfum kom- ið upp kastljósum við völlinn. Og mest gaman finnst strákunum að æfa og leika knattspyrnu í snjónum. Og síðan heldur Albert áfram. — Við höfum boðið Val til æfingarleiks, en þeir voru ekki tilbúnir. Við buðum Víking og Þrótti. Þeir voru heldur ekki til- búnir enn. Við höfum hlerað, að hin félögin séu heldur ekki til- búin til leiks, og því höfum við látið staðar numið við boðin, en við vildum gjarnan fara að leika slíka æfingaleiki. Hafnarfjarðarliðið heldur vel saman, og það er ótrúlegt hve langt þeir hafa náð félagslega séð á stuttum tíma, en nánar um það síðar í vikunni. Munurinn á þessum tveimur tegundum lýsingar er svo gífur- legur, að nær er sem maður aki inyrkri, þegar ekið er í bláhvítu Ijósunum, svo illa lýsa þau borið saman við birtuna af hinum gul- i'auðu. Hér er um mikið velferð- armál allra bifreiðastjóra og fót- gangandi manna að ræða, og þess er að vænta, að vegamálayfirvöld in og rafveitustjórnir þær, sem um lýsingu vega fjalla, geri sér far um að lýsa vegina hér eftir rneð rauðgulu ljósunum, þar sem þau eru svo mikiu skærari og veita betri birtu. Dnlkunum hefir borizt bréf um málið og fer það hér á eftir: Götuljósin á Ilafnar- fjarðarvegi. ÞESS ber að geta sem gert er“. Ég fór í gærkvöldi suður í Hafnarfjörð og naut þá þeirra nýju og ágætu Ijósa, sem okkur vegfarendum voru gefin í jóla- gjöf á þeirri leið. >að eru mikil viðbrigði að aka nú þessa leið, sem ljósin eru komin á, frá því sem áður var. Það er mikið ánægjuefni hvert takmark, sem næst í því að bæta lýsingu á fjölförnustu vegunum og bægja með því frá þeim hræði- legu umferðarslysum, sem allt of oft kcma fyrir og eiga því miður of oft rætur sínar að rekja til lé- legrar eða engrar götulýsingar. Það var nýlega sagt frá nýju lýsingunni ó Hafnarfjarðarveg- inum í Morgunblaðinu og þá sagt eitthvað á þá leið að nú væri að kalla óslitin ljós á staurum roilli Rvíkur og Hafnarfjarðar. Þetta finnst mér því miður ckki rétt. Það eru enn alltof langir kaflar óupplýstir á þessum vegi, t.d. við Fossvogslæk er langur kafli og á Öskjuhlíðinni. Eftir að þessi ljós er’.i nú komin frá Hraunsbolti að Kópavogsbrú má vel segja með sanni að ennþá meiri nauðsyn sé á betri iýsmgu áfram yfir Digranesið og alla leið á Miklatorg. Sérstaklega álít ég þetta vegna þess, að þar sem gangandi fóik er fremur á ferð á þeirri leið, sem um þéttbýlifjUigg- ur, þá er slysahættan meiri þar, og það er mjög slæmt að koma úr góðu ljósi inn á svæði þar sem illa er upplýst. — Nú vil ég skora á alla, sem að einhverju leyti geta stutt það velferðarmál, að komið verði upp góðri götulýsingu á þeirri leið sem eftir er, að liggja nú ekki á liði sínu. Slysavarnar- félag íslands og Tryggingafélög- in ættu að láta þetta mál til sín taka. — L. H. Á slóðum mávanna. Kk AÐ er oft ó sunnudögum að ég geng niður að höfn og fæ mér gönguferð eftir hafnarbiikkunum. Bæði er það að ég er alinn upp á sjávarbakka, ef svo má segja, og hefi alla mína ævi elskað haf- ið. Skip voru lenai vel furðutæki í mínum augum og allt sem að þeim laut, þangað til flugvélarn- ar tóku að kljúfa loftið og renna sér niður á sjóinn rétt eins og mávarnir og aðrir sjófuglar. En alltaf hefi ég jafngaman af að ganga við höfnina og virða fyrir mér skipin, allt frá tígulegum og tar.durhreinum Fossunum og Fell unum niður í skítuga smákoppa, sem kúra sig upp að bátabryggj- unum, niðurbeygðir á svip. Þótt ég sé sjólfur dæmalaus land- krabbi og hafi það eitt mér til lífsframfæris að hamra á ritvél allan liðlangan daginn, þykir mér lyktin af þangi og tiörguðum skipsbotni góð. Líklega er það vegná þess, að á slíkum stundum rifjast upp fyrir mér ljúfar bernskuminningar um ieik að kú- fiskskeljum fyrir norðan í fjöru- sandinum fyrir neðan naustið, og ótal svaðilfarir á flekum, búnum gömlum benzíntunnum út um vog og fjörð. Sunnudagsgöngurnar við höfnina hér í Reykjavík eru daufur en ánægjulegur endur- ómur slíkra gamalla ævintýra og þess vegna verður mér svo títt reikað á skipanna slóðir. Þrifnaði við höfnina ábótavant. EN EITT er það, sem ég hefi tekið eftir á þessum sunnu- dagsgöngum mínum og ekki þótt nema í meðallagi gott. Það er hve fádæma höfnin hér í Reykjavík er sóðaleg. Oft er það svo, þegar veður hefir ekki haldizt burrt lengi, sem sjaldan kemur fyrir í Reykjavík, að varla er gangfært um hafnarbakkana fyrir elg bleytu og forar. Vörur liggja þar og í óhirðu að sjó, staflað á ólík- legustu stöðum, en aðallega er það, að svo sýnist sem höfnin sé nær aldrei þrifin nema þá sjald- an að maðtir merkir menn frá Eimskip með slöngu á lofti. Nokkuð víða hefi ég farið um heiminn, og mikill er munurinn á þrifnaði hér við höfnina eða t.d. í Kaupmannahöfn, eða skítugustu borg allra borga, Leith á Skot- landi. Þess vegna eru það eindreg in tilroæli mín ti) hafnaryfirvald- anna, að þau láti betur vinna að því að þrífa höfnina, og gera um- hverfi hennar geðslegra en nú er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.