Morgunblaðið - 16.01.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. janúar 1957
MOFCUTVBL 4Ð1Ð
7
Davíð Stefánsson:
Ljóð trá liðnu sumri
ÞAÐ VERÐUR að teljast þörf og
sjálfsögð manndygð, að þakka
ýmislegar velgjörðir frá manni
til manns, bæði efnislegar og and-
legar, — ekki síður þær andlegu.
Ekkert síðari tíma skáld, á jafn
skýlausan rétt til að hljóta hið
stóra nafn: þjóðskáld, sem Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi, enda
hefir hann notið mikils lofs, og
verðugs, frá tungum og pennum
margra snjallra bókvitsmanna, í
borg og bæjum, fyrir ljóð sín og
leikrit.
Hitt er mér ekki kunnugt, að
bændur, eða nokkur sveitamann-
eskja hafi penna hreyft, til að tjá
skáldinu þökk sína og virðing,
fyrir ljóð þess og skáldsnilld.
Þó er vitað og víst að ekkert
skáld, núlifandi, hefir ort um ís-
lenzkan náttúru-mikilieik og
sveitalífsbaráttu ai svo ríkum
skilningi og djúpri samúð sem
hann. Hann er moldar sonur en
ekki malar.
En Davíð gerir meira en dást
að þrótti og fegurð íslenzkrar
náttúru, skilja og virða störf og
baráttu hins ötula bónda.
Fá skáld, fyrr o'g síðar, hafa
Ijóðskráð svo gullna lofstafi þoli
andlegs jafnvægis og kærleiks-
dygðar sveitakonunnar, húsmóð-
urinnar, — móðurinnar, sem
hann. Með hinu stórathyglisverða
leikriti sínu „Gullna hliðið“, hef-
ur hann hafið hinar lofsverðugu
kvendygðir, umburðarlyndið og
kærleikshyggjuna, til hæstu
tinda, þar sem hann lætur vand-
ræðamanns-konuna sigrast á mót
stöðu allra máttarvalda himna-
ríkis og helvítis, og fá bcrgið. um
eilífð, sál síns breyska bónda.
Að ég, gamall bóndi, vil með
nokkrum línum, tjá skáldinu frá
Fagraskógi heila þökk mína, fyr-
ir ljóð hans og skrif, er ekki
vegna þess að ég telji mig hafa
Ijóðvit mikið, né eiga tök á skrúð
málgu lofi, um skáldlega Ijóð-
skipan, heldur vegna hins að mér
er hlýtt um hug og hjarta til
hans, sem annarra Jistgáfumanna,
er viija, og geta með ljóðsnilld
eða annarri listgöfgri tjáningu,
flutt bæði minni og annarra
manna sálum fegurri skilning og
réttari, á hinum sönnu og eftir-
sóknarverðu verðmætum, og bar-
áttuviðhorfum mannlegs lífs.
Til slíks andlegs umbótastarfs,
tel ég engan, nú ljóðyrkjandi ts-
lending, jafnfæran og Davíð
Stefánsson Irá Fagraskógi.
Ég tel mig hafa lesið flest það.
er á prenti hefir sézt í bundnu
máli og óbundnu, eftir Davíð
skáld, og alltaf met vaxandi að-
dáun og þakklætishug, og nú síð-
ast „Ljóð frá liðnu sumri“.
Ekki þarf lesendum að levnast,
við lestur hins fyrsta kvæðis bok-
arinnar „Segið það móður minni
-----“ að skáldið telur líða nær
kveldeykt ævi sinnar. Einnig hitt,
að nú séu viðhorfin önnur og ólík
en fyrr var, að lífsins og barátt-
unnar niðurstöður hafa skapað
skáldinu djúpstæðari og tryggari
undirstöður á að byggja.
Skáldið segir að „héla, sem
huldi rúður“ hafi „hjaðnað og
runnið“. Og í sama kvæði:
... Ungur í annað sinni
eygi ég nýja vegi,
fagna kyrrlátum kvöldum
og komanda degi.“
t síðasta erindi þessa fagra móð-
urljóðs, hins lífsreynda skálds,
segir:
„Segið það móður minni,
að mold sé farin að anga,
svali leiki um sali
og sólbrennda vanga.
Býst ég nú brátt til ferðar,
brestur þó vegnesti.
En þar bíða vinir í varpa,
sem von er á gesti“.
Brestur hér ekki bjartsýni til
nýrra viðhorfa, nýrrar farar.
Það hefir löngum svo reynzt,
að Davíð skáldi hefir ekki orðið
tregt um orð á tungu er hann lýs-
ir í Ijóði andlegri göfgi islenzkr-
ar sveitahúsmóður. Kvæðið „Hús-
móðir“ í þessari nýju ljóðabók,
er svo dásamlegur óður um verk
og kærleikshug hinnar dánu,
nafnlausu dalkonu, að fegurri
lýsing mannkosta, getur varla, í
Ijóði.
.. .Er sálin var úr fjötrum leirsins
leyst,
var líkt og byggðin vaknaði af
dvala.
Til fjallsins heyrðist fákum vera
þeyst,
af fleygum vængjum lagði nætur-
svala.
Á bleikum jó, sem ber sitt höfuð
reist,
hóf brúður dalsins för til himin-
sala,
en móðir guðs lét móti henni
fara
sinn mikla, hvíta flokk, sinn
englaskara.
Er dimmum skugga yfir byggðir
brá,
sló bjarma út um alla hennar
glugga.
Þá bar hún hæst, sr byljir skullu
á,
og brauzt gegn þeim, sem væri
hríðarmugga.
Með fórn og elsku vann hún veg-
semd þá,
er veitist þeim, er gefa líf og
hugga.
Hún fann, hvað þegn og þjóðir
mestu varðar,
var þerna guðs og dóttir sinnar
jarðar.
Þótt hausti að á gömlum bónda-
bæ
og blikni hlíðar, tún og engi
slegin,
og kólni loft og kyngi niður snæ,
þá kemur vorið fyrr en þrýtur
heyin.
En þegar andar heitum himinblæ,
er hulin kona á ferð um dala-
veginn,
og skyggnir sjá í fylgd með henni
fara
á fákum vorsins hvítan engla-
skara“.
Slík eru viðhorf skáldsins, til
hinnar hljóðlátu, íslenzku kven-
dygðar.
t kvæðinu „Gesturinn“. þyiur
skáldið þessa ljóðstafi:
Þú hlýtur að hafa villst af vegi.
—Ég vitja sérhvers manns.
Er gesturinn ekki göngumóður?
Gangan er köllun hans.
Til hvers leggur þú land undir
fót?
— Ég lækna andleg sár.
Nutu menn lengi náðar þinnar?
— í nítján hundruð ár.
Vilja þá engir við þig kannast?
— Þeir veiku taka mér bezt.
En hinir, sem trúa á mátt sinn og
megin?
— Margir fá stundar frest.
Býður þér enginn sess eða
svölun?
Gjöf til Slysavarnafélagsins
BÖRN Þorbjargar Guðmunds-
dóttur, ljósmóður frá Bíldudal,
hafa afhent Slysavarnafélagi
íslands kr. 10 þús. í minningu um
móður þeirra í tilefni af því að
hún hefði orðið 70 ára í dag ef
hún hefði lifað.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins á Bíldudal hafði við andlát
Þorbjargar heit. stofnað sjóð til
minningar um hana að upphæð
rúml. 4 þús. kr. er deildin þá
afhenti Slysavarnafélaginu í
sjúkraflugvélarsjóð félagsins. Er
það ósk barna Þorbjargar að
þessi upphæð renni einnig í
þennan sjóð.
Þorbjörg heitin lézt 20. sept.
1953. Hún var gift Guðmundi
Árnasyni, sem er á lífi og á heima
á Bíldudal. Þau hjón eignuðust
10 börn og tóku í fóstur nýfætt
barn, er móðir þess dó frá því.
Frá SVFÍ.
Davíð Stefánsson
— Sumir falskan koss.
Herra, herra, hvað berð þú á
baki?
— Bjálka í nýjan kross.“
Myndi hér ekki þörf ábending,
og í tíma töluð, nú þegar mikið
er talað um jólagestinn, en svo
virðist hann fjöldanum geymdur
og gleymdur til næstu jólaupp-
hrópana.
Kvæðið „Hugvekja", er skörp,
fáorð, ádeila á verandi Guðsspott,
og trúarlegt alvöruleysi.
Þar segir skáldið:
„... Auðmýkt allri
er á eld kastað.
Hæða háðfuglar
heilög rök.
Engin andstyggð
er ömurlegri.
Þræll þóttans
ber þyngsta sök.
SNYRTIVÖRUR
Helena Rubinstein
Elisabet Post
— Sérfræðileg aðstoð —
Bankastræti 7.
VARAHLUTIR
í Ford fólksbifreið, 22 ha.,
model 1938, til sölu. Enn-
fremur ný Chevrolet-vél
3t4” borvídd og gírkassi o.
fl., í Morris 1938. Uppl. í
Bílaiðjunni, Þverholti 15.
Aurhlífar
Bretlahlífar
Sólskermar
Speglur
Ljóskastarar
Stýrisáklæði
Loftnetsstengur
Krómlistar á hjól
Felgulyklar
Kertalyklar
Rafgeyniar
Klukkur
SNJÓKEÐJUR
560x15
550x16
640x15
og ke^iuhlekkir
PSleJúnssonfi).j
103 - simiJVSO ^
En sízt mun saka
þann, er sól kveikir,
þótt æði óvitar
og æpi hátt,
lýður Ijósfælinn
og lítilsigldur
sendi sandkornum
í sólar-átt“.
Það er raunar óþarft að taka
hér upp mörg ljóðvers þessarar
bókar, enda þótt ég hefði gjarna
viljað meira að gera.
Ég tel víst, að hvert einasta
eintak hennar sé uppselt og í
flestra þeirra höndum er yfir
mætra bóka blöð vilja líta, —
enda ætti slík ljóðgerð að gista
hvert íslenzkt heimili.
Flest eru ljóð þesarar bókar
lýsandi fögru útsýni hins and-
lega þroskaða skálds — skálds,
sem hugsar og hoi-fir frá dýpsta
dal, til efstu tinda mannlegs lífs.
Það er ekki aðeins hin fágaða
bragsnilld hins meitlaða forms,
sem skapar Davíð skáldi ást og
aðdáun fólksins, heldur dýpt
skilnings hans, á hinum torráðnu
lífsins og tilvérunnar gátum.
Er hann bregður okkur í handa
krika sinn, sjáum vér sýnir, og
öðlumst skilning, er við fyrr ekki
nutum.
Slíkar úrlausnir viðfangsefna,
gefa ekki nema speki-skáld. Það
er íhyglivert, og táknrænt, að
þetta, nú hæzt berandi skáld okk-
ar, þjóðskáldið Davíð Stefánsson,
skuli borinn og uppvaxinn w í
Fagraskógi, og það er ekki ólík-
lega ályktað, að í því Berurjóðri
hafi skáldinu vaxið megin þess
fagurgróðurs, er prýðir hug hans,
kenndir og ljóð. Svo að lokum
heils hugar þakkir til skáldsins
frá gamla dalbóndanum,
Þorbirni Björnssyni,
Geitaskarði.
AIR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefnL
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Simi 81370
TILLÖGUR
uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um stjórn og aðra
trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1957, liggja frammi í
skrifstofu félagsins frá og með 17. þ. m.
Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu Dagsbrúnar
fyrir kl. 6 e. h. föstudaginn 18. þ. m., þar sem stjórnar-
kjör á að fara fram 26., 27. þ. m.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
Sjálfvirkir
Stefnuljósarofar
(þýzkir)
Verð frá kr. 54.00.
Enn fremur mikið úrval af stefnuljósum fyrir allar
tegundir bifreiða.
6 og 12 volta samlokur 40—50 volta.
Vinstri skipting. — Sterkur geisli.
BRAUTARHOLT 6
Símar: 5362 og 82215.