Morgunblaðið - 16.01.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.01.1957, Blaðsíða 16
Veðrið SV-kaldi. Dálítil rigning. 12. tbl. — Miðvikudagur 16. janúar 1957. Æskan og framfíðin Sjá blaðsíðu 10. Kommúnistar svínbeygja Alþýðufl. í Hafnarfirði ABÆJARSTJÓRNAItFUNDI í Hafnarfirði í gær kom I í Ijós, að kommúnistar hafa svínbeygt Alþýðuflokkinn þar. En eins og kunnugt cr rofnaði bæjarmálasamvinna þess- ara flokka á s.l. hausti, vegna þess að kommúnistar höfðu forystu um að reka Alþýðuflokksmann úr forstjórastöðu við bæjarútgerðina. Alþýðuflokksmenn launuðu kommúnistum þessa dáð þeirra í gær með því að kjósa formann kommúnistaflokksins í Hafnarfirði, Kristján Eyfjörð, fyrir forstj. vinnumiðlunar- skrifstofunnar. Ennfremur kusu þeir með kommúnistum í allar nefndir bæjarstjórnarinnar. há er og talið að kommúnistar muni eiga að ráðstafa bókhaldarastarfi hjá bæjarútgerðinni. Almenningi í Hafnarfirði þykir sem Alþýðuflokkurinn hafi hér orðið að sæ'.a hinum mestu afarkostum af hálfu kommúnista. Fullt hús — sýningum hætt! SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld sýndi Þjóðleikhúsið leikritið „Fyrir kóngsins mekt“, eftir séra Sigurð Einarsson í 8. og síðasta sinn. Var leikhúsið þá troðfullt og undirtektir leikhúsgesta hinar á- gætustu. Var útselt á sýninguna á miðjum degi og eftirspurn mikil eftir aðgöngumiðum. Á næstsíðustu sýningu leik- ritsins var leikhúsið einnig svo að segja fullskipað. Það hefur vakið nokkra undrun að sýningum skuli nú allt í einu hætt á þessu leikriti meðan að- sókn að því er góð. Er óhætt að fullyrða að margt fólk hefði kos- ið að sækja sýningar á því enn um skeið, enda hefur því yfirleitt verið mjög vel tekið að þeim, sem hafa séð það. Nýjasta fiskiskip Færeyinga varð að leifa hér hafnar Skipskaðar eru fátíðir í Færeyjum segir skipstjórinn Skipstjórinn á Vesturhafinu blíða, tók virkan þátt í björgun- inni á skipsbrotsmönnunum af Goðanesi og voru 13 menn teknir um borð í skipið. Vesturhafið blíða, er nýjasta fiskiskip Fær- eyinga, stálskip, búið ratsjá og öðrum öryggis og siglingartækj- um og einnig fisksjá. Efri hluti yfirbyggingarinnar er úr alum- íníum. — Myndir þessar tók ljós- myndari Mbl. í gærkvöldi. AÐ TOGURUNUM nýju slepptum, þá er þetta glæsilegasta fiski- skipið í flota Færeyinga um þessar mundir. Það var skip- stjórinn Jakob Andreas Vang, á Vesturhafinu blíða, sem þannig liomst að orði um skip sitt, sem nú er í „jómfrúrveiðiför" sinni. Vesturhafið blíða, sem í fyrra- dag fékk veiðarfærin í skrúfuna, komst hingað inn til Reykjavíkur af eigin rammleik í fyrrmótt. TÓKST AÐ HREINSA AF SKRÚFUNNI Það kom sjór á skipið aftan til og skolaði þá út kaðaltrossu er lenti aftan til undir skipið. Fljót- lega var allt komið í skrúfuna og vafðist kaðallinn þar svo fast um að við gátum ekki hreyft öxul skipsins. Um kvöldið vildi ég enn gera tilraun til þess að slíta þetta af skrúfunni og tókst það eftir nokkrar tilraunir. Hér í Reykja- vík fengum vjð svo kafara til þess að fara niður og hreinsa skrúfuna alveg, sagði skipstjór- inn. Blaðamaðurinn hafði orð á því við hinn vörpulega skipstjóra á þessu fallega skipi, að það myndi vera nýtt af nálinni. Já, það er alveg nýtt og við í fyrstu veiði- förinni hingað. Erum við 24 á skipinu og hér ætlum við að vera á línuveiðum, salta aflann jafn- óðum og vonumst til þess að geta Eldur í strœtisvagni út frá bilun í rafkerfi ÁRDEGIS í gær kom skyndilega upp eldur í strætisvagni er hann var að koma að biðstöð við Nóa- tún. Var þetta hraðferðavagn, milli Austur- og Vesturbæjar, af Myndin er tekin inni í hinum brunna strætisvagni, út í gegnum Volvo gerð einn hinna eldri vagna framrúðuna við sæti bílstjórans, en báðar framrúðurnar sprungu íyrirtækisins. Vagninn stór- ... . , . , skemmdist, en hvorki vagnstjora vegna hita. Allt svart og brunnið, stynð gluggaumbunaður og mæla- n^ farþega sakaði borð. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Vagnstjórinn varð þess allt í Skeljungur varð fyrir 175 þús. kr. tjóni er 150 lestir olíu runnu í sjóinn Ólafsfirði SÍÐASTLIÐNA tvo sólarhringa' hefur geisað vestan stórviðri á Ólafsfirði, meira cn elztu menn telja sig muna, eftir því sem fregnritari blaðsins þar símaði í gær. í veðrinu i fyrrirótt færð- ist olíugeymir sem Shcll á til á grunni sínum með þeim afleið- ingum að um 150 lestir olíu runnu í sjó út. Var það öll olían sem í geyminum var. Olíugeym- ir þessi stendur norðanvert við höfnina skammt frá sjónum. Geymdi Shell í honum hráolíu fyrir frystihúsið á Ólafsfirði og vélbátana. Var þaö eini hráolíu- geymirinn á staðnum. í veðrinu mun hann hafa færzt til um allt að hálft fet, eða nóg til þess að leiðslurnar slitnuðu með þeim afleiðingum sem fyrr greinir. Hefur þetta væntanlega skeð um miðja nótt, því að í gærmorgun, er menn komu á vettvang var geymirinn þcgar tæmdur. Hér hefur olíufélagið beðið allmikið tjón eða ca. 175 þús. króna, en forstjóri Skelj- ungs Hallgr. F. Hallgrímsson sagði blaðinu í gærkvöldi að fé- lagið teldi sig vátryggt fyrir þessum skaða. Ólafsfjörður er nú olíulaus bær og er það mjög bagalegt. Ekki vissi fréttaritari blaðsins hvenær von væri á olíu til bæjarins í stað þeirrar sem spilltist. í dag heldur verkfræðingur Skeljungs norður til að kanna skemmdirn- ar og sjá um að viðgerð á geym- inum hefjist fljótlega. í ofsaveðri þessu fuku járn- plötur af húsum og rúður brotn- uðu allvíða. í gær hafði veðrið þó heldur gengið niður. einu var að farið var að loga undir mælaborðinu í vagninum. Gx'eip hann þá til handslökkvi- tækis en slík tæki eru í öllum vögnunum. Tæmdi hann það yfir eldinn, án þess að ráða niðurlög- um hans, og breiddist eldurinn óðfluga upp með framrúðum og upp í klæðninguna í þaki vagns- ins. Stóð þessi stóri strætisvagn alelda eftir 2—3 mínútur. Slökkvi lið var kallað og á augabragði hafði því tekizt að slökkva eld- inn. Það mun kosta mikið fé að laga brunaskemmdirnar sem orðið hafa á þessum strætisvagni. Farþegar voru fáir í þessari ferð. Vagninn var í einni af síð- ustu ferðum fyrir hádegið. Elds- upptökin eru talin stafn frá bilun í rafkerfi vagnsins. siglt heim með fullfermi kring- um 10. marz næstkomandi. —- Skipið er 160 tonn. HÖRMULEGT SLYS — Þið tókuð þátt í björgun skipbrotsmanna af Goðanesinu í Skálafirði. — Þetta var hörmulegt slys, sagði Vang skipstjóri. í þessum firði er ég mjög kunnugur, t.d. á skipið mitt heimahöfn í Runa- vík í Skálafirði og við fjörðinn á ég sjálfur heima. Skerin sem Goðanes rakst á, Flesjur, eru nokkuð úr siglingaleið. Þau eru einu skerin í firðinum öllum sem annars er djúpur. Segja má að kringum þau sé grunnt á litlu svæði. Ég hef veitt því eftirtekt, að þau koma ekki fram í ratsjá skipa nema þá að logn sé. Kvöld- ið sem Goðanes fórst var kalsa- veður og tel ég fullvíst að þau hafi ekki komið í ratsjána. — Eru skiptapar tíðir í Fær- eyjum? — Nei, þeir eru það ekki og mér er ekki kunnugt um að skip hafi fyrr farizt á Flesjunum í Skálafirði. FALLEGT SKIP Að lokum skýrði Vang skip- stjóri frá því að togarinn Jón for- seti hefði verið kominn skipinu til hjálpar er honum tókst að slíta kaðaltrossuna úr skrúfunni. Vesturhafið blíða er smíðað í Ulsteinvik í Noregi. Skipið er mjög fallegt hvar sem á það er litið, og komu margir sjómenn um borð í það og skoðuðu í gær- dag. í gærkvöldi um klukkan 8 lét Vesturhafið blíða úr höfn, til fiskiveiða. Það er ganggott skip, um 10—11 mílur með farm. i HEIMDALLUR, félag ungra Sjálfstæðis- manna, efnlr til grímudansleiks í Sjálf- stæðishúsinu fimmtudaginn 24. þ.m. kl. 8,30 e. h. Aðgöngumiðapantanir í síma 7103. Fé- lagsmenn eru vinsamlega beðnir um að panta miða í tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.