Morgunblaðið - 16.01.1957, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.01.1957, Qupperneq 15
1fí Innnar 1ð57 MOPCTJN nr 4 T)IT) 15 12 milljónir dala VÍNARBORG, 15. jan.: — Al- þjóðaflóttamannastofnunin hefir lýst því yfir, að enn vanti mikið fjármagn, ef sjá á öllum ung- verskum flóttamönnum í Austur- ríki farborða. Rauði krossinn skýrði frá því, að aldrei hefði safnazt eins mik- ið í alþjóðasöfnun til Rauða krossins og nú. Þegar allt kæmi til alls, hefðu safnazt 12 millj. dollara í Ungverjalandssöfnun- ina. — Reuter. ÍBÚÐ Ekkja sem lengi hefur verið búsett erlendis, óskar að fá leigða litla íbúð, sem næst Miðbænum. Skipti á íbúð í Kaupmannahöfn gæti kornið til greina. Tilb. merkt „Nörre- bro“ sendistMbl.fyrir 19. þ.m. 4 SKIPAUTGCRB RÍKISINS SKJALDBREIÐ vestur um land til Akureyrar hinn 19. þ.m. Tekið á móti flutningi til Tálknafjarðar, Súgandafj arð- ar, Húnaflóa og Skagaf jarðar- hafna, Ólafsfjarðar og Dalvíkur, í dag. — Farseðlar seldir á fostu- daginn. HEKLA austur um land í hringferð hinn 22. þ.m. — Tekið á móti flutningi til Fáskrúðsf jarðar, Reyðarfjarð- ar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð isfjarðar, Þórshafnar, Raufarhafn ar, Kópaskers og Húsavíkur í dag og árdegis á morgun. Faðseðlar seldir á mánudaginn. Ríkisskip. Félagslíi Knattspyrnufélagið Þróttur heldur kvöldvöku fyrir yngri fé- laga í félagsheimilinu, í kvöld kl. 9. — Skemmtiatriði og dans. ÞjóSdansafélag Reykjavíkur Börn: Æfingar í dag á venju- legum tíma. — FullorSnir: Ný námskeið hefjast í kvöld kl. 8. — Gömlu dansarnir kl. 9. Þjóðdans- ar og gamlir dansar kl. 10. þjóð- dansar. Innritun á sama stað. — Unglingafl. og sýningarfl.: Mun- ið æfinguna á morgun. Skjaldarglíma Árnianns Skjaldarglíma Ármanns verður háð föstudaginn 1. febrúar n. k. í íþróttahúsinu að Hálogalandi. — Þátttökutilkynningar sendist Herði Gunnarssyni, Múla við Suð urlandsbraut, fyrir 27. jan. n.k. SkíSadeild I.K. Munið kaffikvöldið í kvöld, í Aðalstræti 12 (uppi). I. O. G. T. St. Mínerva nr. 172 Fundur í kvöld kl. 8,30 á Frí- kirkjuvegi 11. Kosning og vígsla embættismanna. — Æ.t. St. Einingin nr. 14 Fundur í G.T.-húsinu í kvöld kl. 8,15. — Klukkan 9 hefst skemmtikvöld: 1) spiluð félags- vist. 2) spurningaþáttur. — Fé- lagar, fjölmennið og takið gesti með ykkur á skemmtikvöldið. — ÆSsti templar. Somhomur KristniboSshúsiS Belanía Laufásvegi 13 Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. Gunnar Sigurjónsson talar. Allir velkomnir. Fíladelfía Vakningasamkoma hvert kvöld kl. 8,30. Einar Gíslason o. fl. tala. Allir velkomnir. Landakröfiir New York, 15. jan.: í DAG urðu í Allsherjarþinginu umræður um Aden og rósturn- ar á landamærum Adens og Jemens. Málshefjandi var full- trúi Jemens hjá S.Þ., Tawif Chamandy, og sagði hann m.a., að Aden væri óaðskiljanlegur hluti af Jemen. Bretar hefðu hins vegar sölsað Aden undir sig með „vafasömum samningi“, eins og hann komst að orði. Á fundi Allsherjarþingsins í dag gerðu Argentínumenn kröfu til Falklandseyja, sem um nokk- ur undanfarin ár hefir verið þrætuepli milli þeirra og Breta. Þá gerðu Argentínumenn og Guatemalamenn kröfu til Brezku Hondúras og Spánverjar lýstu því yfir, að þeir ættu kröfu til Gíbraltar. Bæjakeppni í handknattleik HIN árlega bæjakeppni milli Reykvíkinga og Hafnfirðinga fer fram næstkomandi föstudag og sunnudag. í gærkvöldi var kunnugt um lið Reykvíkinga í Mfl. karla og verður það þannig skipað: — Markm. Sigurður Björnsson, Val til vara Guðjón Þ. Ólafsson KR. Vörnin verður: Þorbjörn Frið- riksson KR, Hörður Felixsson KR og Valur Benediktsson Val. Fram línu leikmenn verða Þórir Þor- steinsson KR, Karl Johannsson KR, Heinz Steinmann KR, Her- mann Samúelsson ÍR, Geir Hjart- arson Val og Matthías Ásgeirs- son ÍR. Fyrirliði verður Hörður Felix- son og leikstjóri Frímann Gunn- l laugsson. Unglinga vantar til blaðburðar í HBíðarvegur Hjartans þakkir færum við öllum nær og fjær, fyrir heimsóknir, gjafir og skeyti á 25 ára brúðkaupsdegi okkar. Guð blessi ykkur öll. Lilja Túbals, Jón Guðjónsson. Hugheilar þakkir til allra fjær og nær, vina og vanda- manna, sem sýndu mér hlýhug á sjötugs afmælinu. Sigurveig Sveinsdóttir. VerzlunarmannaféSag Reykjavíkur heldur árshátíð sína í Þjóðleikhúskjallaranum laug- ardaginn 26. janúar nk. Skemmtunin hefst kl. 18,30. Tekið á móti miðapöntunum í skrifstofu félags- ins, Vonarstræti 4. Sími: 5293. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur F. í. H. F. í. H. Búðin DANSLEIKUR í Búðinni í kvöld klukkan 9. --- Tvær hljómsveitir —;- K. K. sextettinn. ★ Jónas Dagbjartsson og hljómsveit. ★ Söngvari: Ragnar Bjarnason. Bregðið ykkur í Búðina. Aðgöngumiðar frá kl. 8. Kjallari til leigu í Kópavogi (óinnréttaður), getur verið tvö herbergi og eldhús, leigist gegn standsetningu eða fyrirframgreiðslu, sem íbúð eða geymsla. Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins fyrir föstudagskvöld merkt: „Kjallari —2982“. Móðir okkar INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR, Þormóðsstöðum, lézt 14. janúar í Landakotsspítalanum. Börn hinnar látnu. Eiginmaður minn og faðir okkar JÓHANNES ZOÉGA MAGNÚSSON lézt að Landspítalanum 13. þ. m. Sigríður Þorkelsdóttir og börn. Eiginmaður minn EINAR BENEDIKTSSON andaðist að heimili sínu, Háteigsvegi 23, 13. þ. m. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Elínborg Einarsdóttir. AÐALSTEINN TEITSSON skólastjóri, Sandgerði, lézt að heimili sínu 14. þ. m. Guðný Björnsdóttir og börn. ANNA, dóttir okkar, dó að kvöldi þess 13. þ. m. á heimili okkar, Miklubraut 44. Hún verður jarðsungin í Fossvogskirkju, föstudaginn þ. 18. þ. m. kl. 10,30 fyrir hádegi. Kristín Guðlaugsdóttir, Magnús Pjetursson. Jarðarför systur minnar AÐALHEIÐAR GÍSLADÓTTUR, Lokastíg 8, fer fram þann 18. þ. m. frá Dómkirkjunni klukkan 1,30. Sigríður Gísladóttir. Maðurinn minn BRYNJÓLFUR JÓNSSON, trésmiður frá Akureyri, andaðist þriðjudaginn 15. þ. mán. að heimili sínu, Blómvallagötu 10. Jarðarförin ákveðin síðar. Ólafia Einarsdóttir. Maðurinn minn ARI GUÐMUNDUR BOGASON, er lézt 10. þ. m., verður jarðsunginn fimmtudaginn 17. janúar frá Fossvogskirkju kl. 1,30 síðd. Sigríður Rósa Sigurðardóttir, Hvammsgerði 13. Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarð- arför mannsins míns og sonar GARÐARS BENJAMÍNSSONAR Steinvör Kristófersdóttir, Benjamín Jónsson. Faðir okkar og tengdafaðir INGIMUNDUR PÉTURSSON, Framnesvegi 57, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 17. þ. m. klukkan 1,30. — Blóm afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hins látna, eru beðnir að láta' líknarstofnanir njóta þess. Börn og tengdabörn. Innilegt þakklæti til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför KRISTJÁNS ÞORBERGSSONAR fyrrum bónda að Arnarstöðum, Hraungerðishreppi: Elínborg Bjarnadóttir, Guðmundur V. Agústsson, Kristján Guðmundsson, Ágúst Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.