Morgunblaðið - 18.01.1957, Page 12

Morgunblaðið - 18.01.1957, Page 12
ff MORCUNBLAÐIÐ\ Föstudagur 18. jan. 1956 GULA herhertfið eftii MARY ROBERTS RINEHART BÍLAMALUN Getum tekið að okkur nokkra bíla til málunar, ef talað er við okkur strax. Bæssr h.i. SKÚLAGÖTU 59 — SÍMI 82550. gamla staifið sitt aftur? Eg trúi því varla. Ekki hér úti á hala ver- aldar? Alex hristi sig og setti bílinn í gang. — Bezt að spyrja hann að því sjálfan, svaraði hann og hafði eina augað sitt á veginum. — Eg hélt, að hann væri að hvíla þessa löpp sína. — Ekki aldeilis! svaraði Alex með viðbjðði. — Hann hefur þræl- að eins og skepna til þess að geta komizt í vinnu aftur. Og lét sér hundleiðast. Og svo þurfti þetta að koma til sögunnar. Löppin á honum....... — Já, en hvað var það, sem kom til sögunnar? Til hvers á að taka fingraför? Er það þetta Spencer- morð? — Það væri heppilegra, að majórinn segði yður frá því sjálf- ur. — Nú kom að Tim að stara. Síðan rak hann upp hásan hlátur. — Majórinn, ha, ha! Hvenær varð hann majór, ef ég mætti spyrja? — Þeir eru oft fljótir að hækka í tigninni, svona á ófriðartímum, svaraði Alex og lét sér hvergi bregða. — Að vísu, en þeir hækka nú ekki úr liðþjálfa upp í majór á hálf- ári. Seinast þegar ég sá hann, var hann að þræla út nokkr- um dátum við æfingar, og láttu þér ekki detta í hug, að mér hafi missýnzt. Ertu kannske að narra mig? Hann er í einhverju sérstöku LTVARPIÐ Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18.30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 Létt lög (plötur). 20.30 Daglegt mál (Arnór Sigur- jónsson ritstjóri). 20,35 Kvöld- vaka: a) Oscar Clausen rithöfund ur flytur síðari hluta frásöguþátt ar síns: Vestur í Dölum fyrir hálfri öld. b) Gils Guðmundsson rithöfundur les kvæði eftir Guð- mund Inga Kristjánsson. c) Is- lenzk tónlist: Lög eftir Karl O. Runólfsson (plötur). d) • Andrés Björnsson flytur frásögu eftir Þormóð Sveinsson á Akureyri: Um auðnir og árheima. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Erindi: íslenzkar vísindakenningar (Þorsteinn Jóns son frá Úlfsstöðum). 22,30 „Har- monikan". — Umsjónarmaður þáttarins: Karl Jónatansson. 23,10 Dagskrárlok. Laugardagur 19. janr' ■ Fastir liðir eins oc njulega. 12,50 Óskalög sjúklin;;a ''Bryndís Sigur jónsdóttir). 1400 Heimilis- þáttur. 16,30 Veðurfregnir. End- urtekið efni. 18,00 Tómstundaþátt ur barna og unglinga (Jón Páls- son). 18,30 Útvarpssaga barn- anna: „Veröldin hans Áka litla“, eftir Bertil Malmberg; IV. (Stef- án Sigurðsson kennari). 18,55 Tón leikar (plötur). 20,20 Leikrit Leik- félags Reykjavíkur: „Kjarnorka og kvenhylli" eftir Agnar Þórð- arson. —* Leikstjóri: Gunnar R. Hansen. Leikendur: Jorsteinn ö. Stephensen, Guðbjör™ r ' bjamar- dóttir, Helga Bachm'- -,'-ynjólf~ ur Jóhannesson, Á'—í Tryggva- son, Margrét Magnú "'tir, Gísli Halldórsson, Knútur 'Hagnússon, Nína Sveinsdóttir, Áróra Hall- dórsdóttir, Sigríður Hagalín, Steindór Hjörleifsson, Valdimar Lárusson o. fl. 22 30 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. starfi í upplýsingaþjónustunni, er það ekki? Alex hægði á bílnum við horn. Eina augað hans geislaði frá sér varkárni. —» Hlustaðu nú á mig, Tim, sagði hann. Margir náungar gegna einkennilegum og óvæntum störf- um í þessum ófriði. Ýmist eru þeir hér eða þeir eru þar. Kannske í Japan, kannske austur í Filips- eyjum. Og svo, áður en maður get- ur litið við, eru þeir komnir eitt- hvað annað. Hann var majór, þeg- ar hann fékk í sig skotið á Italíu. Eg var sjálfur með honum. — Var það þar, sem þú misstir augað? — Já, og þóttist sleppa vel, svaraði Alex ánægður. Tim þagði. Hann var ósvikinn íri frá Brooklyn, sem hafði brotizt til núverandi starfa síns, eftir að hafa unnið lengi hjá lögreglunni, og nú var svipur hans eins og hon- um væri skemmt. — Gott og vel! Svo hann er majór? Og hvað er ég þá flakkari? — Eg býst við að þú eigir að vera garðyrkjumaður. Tim glotti. — Ja, hvert í veinandi, sagði hann og svipurinn varð súr. — Garðyrkjumaður? Hvern fjandann sjálfan á það nú að þýða? Eg, sem sá ekki grasstrá fyrr en ég var kominn um þrítugt. — O, þú getur alltaf ýtt hand- sláttuvél, sagði Alex, sem hafði gaman af þessu öllu. — Jú, skil- urðu. Ýtir henni bara á undan þér, þá slær hún sjálf grasið. Svo rakarðu grasinu saman. Tim var svo móðgaður, að hann var þögull um hríð, en þá varð forvitni hans yfirsterkari. ' — Nú, jæja. Svo að ég á að slá gras fyrir einhvem. Og hvað svo meira? — Sennilega að hafa auga með þessari Spencer-stelpu. Majórinn heldur, að hún kunni að vera í hættu stödd. Nú kom að Tim að láta sér vera skemmt. — Nú, svo hann hefur orðið snortinn af stelpunni. Loksins. Hann sagði alltaf, að ef hann félli á annað borð, yrði það hart fall. Hvemig lítur hún. út? — O, rétt svona eins og stelpur gerast. Þú færð að sjá hana, þeg- ar þú ferð að pæla garðinn hennar. — O, ég ætla mér alls ekki að pæla neitt, svaraði Tim einbeitt- ur og svo þagnaði hann fyrir fullt og allt. Við morgunverðinn bráði samt af honum og þegar Dane kom um hádegið, var hann að fylla mynda- vélina sína. Hann glotti til Dane. — Góðann daginn, majór, sagði hann. — Maður heyrir, að þú haf- ir hækkað heldur betur í tigninni. — Bara í bili, Jim. Slepptu al- veg majórstitlinum, nema þegar einhver heyrir til. Hann leit á myndavélina. — Eg sé, að þú ert tilbúinn. — Til í allt! Næsta klukkutímann unnu þeir saman, á svipaðan hátt og þeir höfðu oft gert áður fyrr. Síðan átu þeir hádegisverð meðan verið var að framkalla myndimar fyrir Tim, og litu síðan á þær. Það voru fingraför á öllu postulíninu og eins á umgerðinni um ljósmynd- ina. Tim leit upp. — Það er líkast því, að það sé eftir kvenmann, sagði hann. — Af- löng og frammjó. Jafnvel þó að þau væru eftir mjög handsmáan karlmann, væri þau miklu breið- ari. Dane kinkaði kolli. Hann var í eingum vafa um, að Elinor ætti fingraförin, og þá fannst honum málið liggja ljóst fyrir. Hún hafði verið í Bayside, nóttina sem morð- ið var framið, og einhvern veginn hafði henni tekizt að bjarga þess- um dýrgripum móður sinnar áður en hún kveikti í húsinu. En þar staðnæmdist hann. Hún hafði ekki kveikt í húsinu. Það hafði ekki verið gert fyrr en seinna, sunnu- dags eða mánudagsnóttina. Og hvað þá? Svo var skóflan þama til þess að gera málið enn flóknara. Það voru óljós fingraför á skaftinu, en samt voru ein tvö þeirra nægi- lega skýr til þess að sýna, að það vom önnur og annars konar fingra för. Stór voru þau ekki, en engu að síður var Tim þess fullviss, að þau væru eftir karlmann. Vonlít- ill sendi Dane þau til Washington, og gætti þess að setja þau í póst á annarri stöð, og svo fór hann í spítalann seinni hluta dags. Hann spurði alls ekki eftir Lucy, en hann hitti Georg Smith í rúminu og settist hjá honum. — Líður þér ekki sæmilega? spurði hann. — Eg verð skárri, þegar þeir hætta að gefa mér þetta gums, sem þeir hafa verið að troða í mig, svaraði Georg ólundarlega. Hann leit á einkennisbúning Dahe. — Þú ert náunginn, sem býr í Bur- tonshúsinu? spurði hann. — Jú. Mér þótti réttara að tala við þig. Eg get ferigið mann til að gera verkin þín þangað til þú ert orðinn hress, ef þú kærir þig um. — Já, það kæri ég mig svei mér um, svaraði Georg og glaðnaði yf- ir honum. — Eg komst ekki lengra en að slá ofurlítið, og þá fékk ég þessa fjandans ótjálgu í mig. — Þú varst ekki farinn að gera neitt við garðinn, eða hvað? — Ekkert nema slá grasið og það ekki mikið. Þú getur sagt hin- um náunganum að hann muni finna öll verkfæri í röð og reglu Germania Kvikmyndasýning verður í Nýja bíói laugardaginn 19. janúar klukkan 2 e. h. Sýndar verða þýzkar frétta- og fræðslumyndir. Aðgangur ókeypis. Félagsstjórnin. Z ÍÍ M D A P P saumavelin veitir yður öll þau þægindi, sem bezt hafa verið fundin upp á því sviði. Einkaumboð fyrir ísland: ARINBJÖRN JÓNSSON, Mönckebergstrasse 3, Hamborg. Upplýsingar hér í síma 6821. Scahdia eldciv&lar Svendborcjar jDVcttapottar Scandia-eldavélar eru með hraðsuðuhellu, og hell- um í stað hringa. Svendborgar þvottapottar eru emaileraðir, með tæmingar hana, innmúraðar og því tilbúnir til notkunar. BIERING Laugavegi 6. Sími 4550. •*« *J* •J* *I**«MI* •** ^ *•* *♦• •*♦ »X« •!• •*♦ •*♦ ♦*» •*• •*♦ •*• •*♦ ♦*♦**• /**ðM3>*5N9M^9M5M9MSMfr4wC* ****♦♦ ’X* •5**X**I**IMI*íHJ* • 1) Skyndilega verður Hrólf ur veikur og fellur til jarðar. Finnur notar tækifærið og þrífur byss- 2) Nú hefur Finnur ráð Glæpa- mannsins í höndum sínum. 3) Vertu fljót mamma. Haltu byssunni og skjóttu ef þörf gerist. Ég ætla að binda hann. 4) En Finnur, hvað kom fyrir? Þetta voru eitruð ber, sem menn verða mjög veikir af að borða. una.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.