Morgunblaðið - 22.01.1957, Blaðsíða 9
ÞriSjudagur 21. jan. 1957.
MORCUWBLAÐ1Ð
9
//
Miðaldakon ungurinn
ágirnist Aden-borg
Imam Seif konungur Jemen er mesta
* hörkutól.
//
SYÐST á Rauðahafsströnd Arab-'
íuskaga er enn við lýði eitt furðu
legasta miðaldaríki þessa heims.
Það nefnist Jemen og í því er
einna kunnust borgin Mokka,
þaðan sem kemur Mokka-kaffið
ilmandi og gómsæta.
í Jemen búa 4 milljónir manna
á menningarstigi miðalda, flestir
ómenntaðir og fátækir. í höfuð-
borginni eru 6 þúsund íbúar. —
Jemen hefur verið konungsríki
frá ómunatíð. Konungurinn er
jafnframt trúarleiðtogi, umboðs-
maður og afkomandi spámannsins
Múhameðs og er slík biskupsstaða
nefnd á arabísku „imam“.
1 meira en 40 fyrstu ár þess-
arar aldar ríkti í Jemen einvalds-
konungurinn Imam Yahya. Hann
hélt landinu einangruðu frá um-
heiminum og átti sér stórt kvenna
búr. Viðurkennda syni með hefð
areiginkonum átti hann 16 tals-
ins. Það var það í febrúarmánuði
1948, þegar einvaldskonungurinn
var kominn yfir áttræðisaldur
að hann varð fyrir því óláni að
einhver illgjarn maður myrti
hann og þrjá af yngri sonum
hans. Samtímis þessu tilkynnti
frændi hans einn, ráðgjafi hans,
að hann hefði tekin völdin í sínar
hendur.
Elzti sonur hins látna konungs
vildi þó ekki sætta sig við það,
heldur gerði tilkall til ríkis-
erfða, safnaði liði í norðurhluta
landsins, vann bug á frænda sín-
um og tók sér sjálfur konung-
dóm. Hann er nú konungur Jem-
ens og nefnist Imam Seif
Ahmed.
Seif Ahmed er hið mesta hörku
tól. Hann tók við kvennabúri
föður síns og hefur bætt
það drjúgum síðar, auk þess sem
hann átti sjálfur fyrir nokkrar
konur. Hann hefur verið einangr
unarasinni eins og faðir hans, en
bróður sinn, Seif Abdullah, sem
næstelztur var, gerði hann að
forsætisráðherra. Seif Abdullah
■vildi hins vegar rjúfa einangrun
Jemen. Beitti hann sér fyrir því,
að tekið var upp stjórnmálasam-
band við nokkur ríki, svo sem
Egyptaland, Bretland og Banda-
ríkin og að Jemen gerðist með-
limur í S. Þ. Sjálfur mætti Seif
Abdullah sem fulltrúi Jemens á
fundum Sameinuðu þjóðanna og
vakti mikla athygli, ekki þó fyrir
neinn stjórnskörungshátt, heldur
fyrir arabískan klæðaburð.
Hvort sem utanríkismálin ollu
því eða annað, skarst brátt í odda
milli þessara tveggja bræðra. Og
2. apríl 1955 gerði Abdullah upp
reisn gegn bróður sínum með til-
styrk hersins. Fór hann að kon-
unginum með 666 manna vopnað
lið og tók hann höndum.
Konungurinn Seif Ahmed tók
þessú rólega. Kvaðst hann vilja
semja um þetta við Abdullah
bróður sinn. Hann væri fús til að
afsala sér konungdóminum, en
örðugra væri og gegn kenningum
Kóransins, að afsala sér biskups-
embættinu (imam). Nú þurfti að
rannsaka það trúfræðilega hvort
slíkt væri.hægt. Spekingar voru
kallaðir saman til að velta vöng-
um yfir því. Seif Abdullah hafði
ekki fregnir af því, að í norður-
hluta landsins hafði sonur kon-
ungsins skorið upp herör og allt
í einu voru 3 þúsund vopnaðir
sveitamenn búnir að umkringja
uppreisnarherinn.
það hraustlega gert. Hann er
mikill beljaki og minnir á stríðs-
kappa miðaldanna, sterkur og
hávaðasamur og með feikna
hnefa.
Egyptar hafa verið að hlutast
til um að Seif Ahmed opnaði
land sitt fyrir nútímanum, en
hann hefur verið tregur til. f
landi hans eru engar járnbraut-
ir, en fáeinar bifreiðir eru nú
til í landinu og ruddir vegir. Út-
varpsstöð er í höfuðborginn. Út-
lendir ferðamenn eiga einnig orð-
ið greiða leið þangað.
Það, sem nú gæti helzt valdið
því, að einangrun landsins hyrfi
með öllu, er ágirnd hins sextuga
valdhafa í hafnarborginni Aden.
Borg sú stendur á horni Aarabíu-
skaga, við mynni Rauða hafs,
mikilvæg hafnarborg og er undir
stjórn Breta, ásamt nokkru lands
svæði á suðurströnd Arabíu.
Þangað hafa nú á fáum árum
flutzt búferlum frá Jemen tug-
þúsundir manna, sem sækjast eft-
betri lífskjörum, nútíma þæg-
indum og meira öryggi og per-
sónufrelsi en í miðaldaríkinu, sem
þeir koma frá.
Seif Ahmed konungi leikur
mikill hugur á Aden. Að undan-
förnu hafa borizt þaðan að austan
fregnir af landamæraskærum og
smábardögum við eyðimerkur-
Seif Ahmed gengur um vopn- þæi. Jemen-konungur ber Breta
aður sveðju.
Nú var hætt að velta vöngum
yfir valdaafsali. Seif Ahmed kon
ungur lét taka Abdullah bróður
sinn og tvo aðra bræður höndum,
leiða þá út á völl og þar hálshjó
hann þá með eigin hendi. Þótti
þungum sökum, um að þeir geri
innrás í ríki hans og hefur kært
málið fyrir Sameinuðu þjóðun-
um. Bretar segja konunginn vera
óróavaldinn.
Og nú er í tízku í Arabalönd-
unum, að hrifsa bita og bita úr
hinu liðna brezka heimsveldi.
Fréttabréf frá Sauðárkróki:
Atvinna með meira móti
Allmiklar byggingaframkvæmdir
Læknaskipti á
á Klaustri
Kirkjubæjarklaustri, 19. jan.
UM s.l. áramót lét Úlfur Ragn-
arsson héraðslæknir á Kirkju-
bæjarklaustri af embætti. Mun
hann taka við læknisstöðu á
heilsuhæli Náttúrulækningafél.
íslands í Hveragerði. Er hann
nú farinn til Þýzkalands til að
búa sig undir þann starfa. Úlfur
hefur verið læknir á Síðunni s.l.
fimm ár við vaxandi vinsældir
héraðsbúa.
Brynleifur Steingrímsson frá
Blönduósi hefur verið settur hér-
aðslæknir á Kirkjubæjarklaustri
í stað Úlfs. Er hann ekki enn
kominn hingað austur, en í bili
er héraðinu þjónað af Guðmundi
Bjarnasyni stud. med.
— Fréttaritari.
Prá Sauðárkróki.
Sauðárkróki 5. jan. ’57.
AR IÐ 1956 má telja hagstætt
hvað atvinnu og afkomu
Sauðárkróksbúa snertir. Meiri
fiskur var lagður á land en
nokkru sinni fyrr í sögu staðar-
ins eða rúmlega 4000 tonn. Þar
af lögðu togarar upp um 3400
tonn. Norðlendingur landaði úr
sex veiðiferðum, en aðrir íogarar
í 12 skipti, allir frá Útgerðar-
íélagi Akureyringa.
Af þessu má ijóst vera hvílíka
^eysiþýðingu togaralandanir
hafa í atvinnulífi smábæjai sem
Sauðárkróks, enda bar nú minna
á hinu árstíðabundna atvinnu-
leysi en oftast aður.
Trillubátaútgerð var með
minnsta móti, enda afli lélegur
mikinn hluta ársins, a. m. k. inn-
fjarðar.
Byggingaframkvæmdir voru
rneð svipuðum hætti og undan-
farin ár. Alls voru í byggingu
16 íbúðarhús. Lokið var við
byggingu nokkurra þeirra, en
bygging annarra hafin. A£ öðr-
um byggingum má nefna:
Sundlaug, sem byrjað var á
síðla ársins 1955 og er byggingu
hennar svo langt komið að sund-
kennsla mun hefjast í henni á
n.k. sumri. Byggingarmeistari við
sundlaugarbygginguna er Vil-
hjálmur Hallgrímsson.
Unniö var að byggingu Beina-
mjöls- og feitfisksverksmiðju og
stækkun fiskgeymsluhúss Hrað-
frystistöðvarinnar. Hafin var
bygging áburðargeymslu á veg-
um' Áburðarverksmiðju ríkisins
og K. S.
Á s.l. hausti hófust fram-
kvæmdir við byggingu sjúkra-
húss Skagfirðinga, en þvi var
valinn staður á Sauðártúni, sem
er innan við kaupstaðinn. Stærð
um 700 ferm. að flatarmáli og
um 7800 rúmmetrar. í sjálfu að-
alhúsinu, sem mun verða þrjár
hæðir verður sjúkradeild, elli-
og hjúkrunardeild og heilsu-
verndarstöð. í viðbyggingu eru
fyrirhugaðar íbúðir starfsfólks.
Áætlað er að í hinni nýju bygg-
ingu verði rými fyrir 25 sjúk-
linga og 14 vistmenn í ellideild.
Nú þegar er búið að steypa grunn
og hluta af neðstu hæð, en tak-
markið mun vera að húsið verði
gert fokhelt á þessu ári.
Yfirsmiður við þessa byggingu
er Sveinn Ásmundsson bygginga-
meistari, en teikningar gerði Sig-
valdi Thordarson arkitekt.
Mikið var unnið á árinu að
jarðabótum og húsbyggingum í
héraðinu. Gömlu torfbæirnir eru
nú óðum að hverfa, en myndar-
leg og hentug steinhús rísa af
grunni. Sama má og segja um
gripahús.
Héraðsskólarnir, Bændaskól-
inn á Hólum og Húsmæðraskól-
inn að I.öngumýri starfa með
svipuðum hætti og áður. Aðsókn
að byggðasafninu í Glaumbæ
mun hafa verið með allra mesta
móti á s.l. sumri, eða komið
þangað um 3000 gestir.
Nú er að hefjast gagngerð
breyting og endurbætur á veit-
ingahúsinu í Varmahlíð. Um það
verk mun sjá Sveinn Ásmunds-
son.
Allmikið var unnið að dreif-
ingu rafmagns um héraðið. Bætt-
ust við 29 sveitabýli, sem tengd
voru við Gönguskarðsár- og
Skeiðsfossvirkjun. I Stíflu fengu
6 býli rafmagn, en önnur voru í
Vallhólmi og Blönduhlíð. — 140
sveitabýli í Skagafirði eru nú
rafmagnsins aðnjótandi í 7 af 13
sveitahreppum sýslunnar — Al-
mennt er reiknað með að haldið
verði áfram viðbótartengingum
á n.k. sumri, fyrst og fremst um
Sæmundarhlíð og Blönduhlíð,
þann hluta sem eftir varð á s.l.
ári.
Sauðfé bænda hefur fjölgað
ört á undanförnum árum. Einnig
hefur mjólkurinnlegg í Mjólkur-
samlag Skagfiröinga á Sauðár-
króki vaxið um 310 þús. lítra
eða 13.3% á árinu og reyndist
2.632.827 lítrar. .
Búfjáreign Sauðárkróksbúa,
þá er síðustu skýrslur greina,
var 1950 sauðkindur, 39 nautgrip
ir og 128 hross. Sauðfé fer fjölg-
andi, en nautgripúm fækkandi.
Skólamir hér eru skipaðir
svipuðum nemendafjölda og und
anfarna vetur. í barnaskólanum
eru 130, Gagnfræðaskólanum 62
og Iðnskólanum 26 nemendur.
Nú fyrir jólin barst Sauðár-
króksbæ að gjöf 6 m. hátt jóla-
tré frá vinabæ Sauðárkróks,
Varde á Jótlandi; var það úr
þeirra eigin skógi. Því var kom-
ið fyrir á Kirkjutorgi, þar sem
það var ljósum skreytt. Tréð var
hið fegursta og setti mikinn jóla-
blæ á umhverfið.
Allmikið var um skemmtanir
hér á milli jóla og nýjárs svo
sem venja er, en um jólin fjölgar
nokkuð í bænum, því þá kemur
heim margt af fólki, sem annars
er fjarverandi við atvinnu eða
nám.
Laugardaginn 5. jan, var hald-
inn álfadans hér við staðinn, með
blysför kringum volduga brennu.
Einnig fór fram í Bifröst skemmt
un og síðan dans. U.M.F. Seylu-
hrepps stóð fyrir þessum mann-
fagnaði, og gekk allur ágóði til
byggingarsjóðs sjúkrahússins.
Að undanförnu hefur afli ver-
ið allgóður. Héðan stunda tveir
Framh. á bls. 15.
STAKSTEIIVAR
Treysta varnirnar
Einar Olgeirsson hefur nýlega
stungið upp á því, að ísland beiti
sér fyrir upplausn Atlantshafs-
bandalagsins og gerist hlutlaust.
Tíminn svarar þessu svo hinn
15. janúar.
„-----Vekur það nokkra furðu,
að gamalreyndir stjórnmálamenn
hér hjá okkur skuli velja upphaf
hins nýja árs_ til að reka áróðmr
fyrir því, að ísland gangi úr At-
lantshafsbandalaginu, jafnvel að
héðan hefjist áróður fyrir því að
lima bandalagið sundur. Áróð-
ur af þessu tagi er ekki aðeins í
fullri andstöðu við yfirlýsta ut-
anríkisstefnu ríkisstjórnarinnar
og alls þorra landsmanna, heldur
líka ákaflega óraunsær og utan-
gátta. Lýðræðisþjóðunum er ljós-
ara nú en síðmstu árin, hver þörf
er á að þær standi saman. Sá lær-
dómur, sem þær hafa hlotið af at-
burðum síðustu mánaða, er og
líklegur til að greiða veg tillög-
um um nánara samstarf Atlants-
hafsþjóðanna á efnahags- og
menningarlegum sviðum, jaifn-
framt því sem sameiginlegar
varnir eru treystar. Slík þróun
nmndi vissulega styrkja aðstööu
íslands sem Atlántshafsbanda-
lagsþjóðar.
Að öllu samanlögðu virðist ein
sætt, að eftir reynslutíð siðustu
mánaða muni bandalag lýðræðis-
þjóðanna eflast á ný. Þá þróun
ber að styðja. Það er rökrétt
framhald íslenzkrar utanríkis-
stefnu“.
Ársfrestur Tímans.
Allur er þó varinn góður, þvi
að 6. jan. hafði blaðið sagt:
„Margt bendir til þess, að
bæði þessi og önnur mál, sem
nú eru efst á baugi í alþjóðlegum
efnum, muni liggja á ýmsan hátt
ljósara fyrir um næstu áramót en
nú. Árið nýja er líklegt til að
verði tíðindasamt og vonandi
mun það einkennast af tíðindum,
er færa mannkynið í rétta átt.“
Þarna er auðsjáanlega við það
miðað, að halda kommúnistum
rólegum út þetta árið. Vel megi
svo fara, að í árslokin verði allt
breytt og þá verði mögulegt að
reka herinn. (Þá fer líka að líða á
kjörtímabilið og þarf að gera sér
grein fyrir með hverju eigi að
blekkja kjósendur næst.).
Leikaraskapur
Kommúnistar þykjast hins veg-
ar vera hinir skeleggustu. Hinn
15. jan. birti Þjóðviljinn mikla
frétt. Þar segir:
„Krafa sósíalista á Akureyri:
Staöið verði við samþykkt Al-
þingis í hei’siöðvarmálinu.----
I tilefni af þeirri afgreiðslu
sem herstcc 'málið hlaut í vet-
ur var einrúma samþykkt eftir-
farandi:
„Fundur 1 Sósíalistafélagi Ak-
ureyrar, halúinn 11. janúar 1957,
skorar á ríkisstjórn íslands að
taka aftur til afgreiðslu svo fljótt
sem við verður komið uppsögn
herverndarsamningsins við
Bandariki Norður-Ameríku, í
fullu samræmi við samþykkt Al-
þingis frá 28. marz 1956 og stefnu
yfirlýsingu núverandi ríkisstjórn
ar““.
Ætlunin er sú, að kommúnist-
ar þykist brenna í skinninn yfir
að losna við varnarliðið. Hávær-
ar kröfur eiga að koma í athafna
stað.
Því að ekkert- á að gera fyrr
„en við verður komið“.
Að dómi hvers?
Allt er við það miðað, að
kommúnistar fái að halda aðal-
stöðvum sínum í stjórnarráðinu
þangað til mesta hættan á algeru
fylgishruni og einangrun er hjá
liðin.