Morgunblaðið - 25.01.1957, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Föstudagur 25. ian. 1957
IViðursett verð
Kvenkuldaskór
- v yerð kr. 98,00 — áður kr. 149,00
Garðastræti 6
Gjaldkeri
*- Eitt af stærri fyrirtækjum bæjarins óskar eftir stúlku
til gjaldkerastarfa. Þarf að hafa bókfærsluþekkingu.
* Tilboðum sé skilað til Mbl. fyrir sunnudag merkt:
Gott starf — 7522.
Atvinna
Maður óskast til hjólbarðaviðgerða.
Upplýsingar ekki í síma.
B A R Ð I N N HF.
Skúlagötu 40 (við hliðina á Hörpu).
ÁvÖxtun peninga
Þeir, sem óska að fá á fullkomlega lögmætan hátt, án
framtalsskyldu til skatts með ríkisábyrgð og með skatt-
frjálsum vöxtum ríflega vexti af peningum sinum, leggi
nöfn sín og heimilisfang í umslag á afgreiðslu blaðsins
undir merkinu „Ávöxtun fjár — 7527“ og geti um upp-
hæðir þær, sem þeir hafa yfir að ráða og til hve langs
tíma þeir vilja binda þær. Algerri þagmælsku heitið og
hennar krafizt.
Segulbandstæki — Tóngæði
Viljum selja nýlegt segulbandstæki, mjög lítið
notað. Tækið er sérstaklega vandað að því er tóngæði
snertir. Einkar hentugt fyrir tónlistarmenn, söngkóra,
hljómsveitir, skemmtistaði o.s.frv.
Mjög hagstætt verð. Upplýsingar veittar í síma
82834, daglega.
MAIJÐUNGARIJPPBOÐ
verður haldið hjá varðskýiinu á Reykjavíkurflugvelli
eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík o.fl., föstudaginn
1. febrúar n.k., kl. 1.30 e.h. — Seldar verða eftirtaldar
bifreiðar:
R-530, R-576, R-952, R-1256, R-1392, R-1603, R-1652,
R-1761, R-1823, R-1927, R-1948, R-1967, R-2424, R-2680,
R-2812, R-2878, R-3095, R-3282, R-3326, R-3418, R-3505
R-3508, R-3555, R-3558, R-3559, R-3854, R-4112,
R-4135, R-4376, R-4496, R-4544, R-4708, R-4918, R-4939,
R-5032, R-5108, R-5115, R-5323, R-5356, R-5358,
R-5435, R-5575, R-5785, R-6013, R-6251, R-6278,
R-6425, R-6436, R-6463, R-6498, R-6562, R-6599, R-6778,
R-6886, R-7097, R-7168, R-7197, R-7223, R-7224, R-7754,
R-7576, R-7865, R-7945, R-8148, R-8310, R-8474, R-8496,
R-8963, R-8965, og B-149.
Geiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Skipverji á Northern Crown segir:
Við hefðum allir drukknað ef
ekki hefðu verið gúmmíhátar
Stýrimaður var ekki
á sijórnpalli
SKIPSMENN af brezka togaranum Northern Crown, sem
fórst í Húllinu við Eldey 11. október s.l. staðhæfa það,
að enginn þeirra 20 að tölu hefði komizt af, ef ekki hefðu
verið gúmmíbátar á skipinu. Rannsókn þessa sjóslyss fer nú
fram í Grimsby og segir Fishing News frá rannsókninni.
Einn skipsmanna Kenneth Chapman sagði t. d. fyrir rétt-
inum: „Það má vera að einhverjir okkar hefðu getað haldið
sér við eitthvert brak úr skipinu. En samt er það skoðun mín,
að við hefðum allir drukknað, ef ekki hefðu verið gúmmí-
bátarnir."
YNGSTI SKIPSTJÓRINN
í þessari veiðiferð var Colin
Newton skipstjóri á Northem
Crown í forföllum Ágústs Eben-
eserssonar, sem er íslendingur
ættaður frá Flateyri. Colin er
yngsti togaraskipstjóri Breta, 25
ára, og talinn traustur og dug-
legur maður. Má þó vera, að
Coiin Newton, ungur skipstjóri
hann verði sakfelldur fyrir óað-
gætni.
SKEKKJUR SKIPSTJÓRA
Þeir sigldu frá Grimsby 6.
október, en þegar veiðin þar
reyndist léleg ákvað skipstjórinn
að taka stefnu til suðurstrandar
íslands. Segja kunnugir menn,
að svo virðist sem skipstjórinn
hafi ekki gætt þess, að miklar
breytingar verði á misvísun átta-
vitans á þessari leið og einnig
hafi hann misreiknað siglinga-
timann. Ferðin hafi tekið styttri
tíma en hann áætlaði.
VANRÆKSLA
STÝRIMANNS
Stýrimaðurinn R. F. Macdon-
ald er þó líklega í meiri hættu
að því er Fishing News segir.
Því að það hefur komið fram
við vitnaleiðslur, að þótt hann
ætti vaktina var hann ekki í
brúnni einn og hálfan tíma áður
en slysið varð. Mun hann verða
ákærður um alvarlegt gáleysi.
Um stýrisvöl skipsáns hélt
einn hátsetinn Kenneth Chap-
man. Hann kvaðst haía stýrt
skipinu eins og fyrir hann
hafði verið lagt. Allt í einu
sá hann hvítt brim rísa upp
um hundrað metra framan
við skipið og svo rakst skipið
á skerið með miklu brothljóði.
Skipið hallaðist strax á bak-
borða og hásetinn kastaðist til
í stjórnklefanum. Hann sá að
bakborðs-björgunarbáturinn
hafði brotnað og hijóp nú aft-
ur til að gera mönnum að-
vart og til þess að taka gúmmí
bátana úr sérstökum festing-
um, sem þeir eru geymdir L
Skipsmenn blésu bátana fljót-
lega út og voru tíu í hvorum
þeirra. Skipti það engum tog-
um að skipið hvarf í hafið.
Hinir ensku fiskimenn hrósa
mjög aðbúðinni á íslenzka
varðskipinu Þór, sem bjargaði
þeim.
RÓM, 18. jan. — Undanfarna
tvo daga hafa utanríkisráðherr-
ar Ítalíu og Bretlands, þeir
Selwyn Lloyd og próf. Martino,
ræðzt við hér í borg. — í dag
lauk viðræðum ráðherranna og
gáfu þeir út sameiginlega yfir-
lýsingu. í henni segir m. a., að
sameiginlegur markaður Vestur-
Evrópulandanna muni stuðla
að því að víkka út viðskiptasvið
þeirra. Reuter.
Péfiur Bjarnason
skipsljóri áttræður
PÉTUR BJARNASON, skipstjóri,
á Bíldudal, varð 80 ára 31. des.
síðastliðinn.
Pétur fæddist aið Vaðli á
Barðaströnd 31. des. 1876. For-
eldrar hans voru Ólína Ólafsdótt-
ir og Bjarni Pétursson. Sjö ára
gamall fluttist Pétur með for-
eldrum sínum að Dufansdal í
Arnarfirði og ólst þar upp ásamt
systkinum sínum.
Enemma fór hugur Péturs að
hneigjast að sjónum og var hann
ekki gamall, þegar hann fór að
draga björg í bú, enda ekki langt
Innrétfingar
Tökum að okkur smiði á búðar- og skrifstofuinn-
réttingum. Ennfremur eldhúsinnréttingum.
HF. HJÁLMAR ÞORSTEINSSON & CO.
Klapparstíg 28, sími 1956
út á miðin, rétt fram fyrir land-
steina út á Fossfjörðinn, eða þá
á silungsveiðar í Dufansdalsá,
sem rennur skammt frá bænum.
Árið 1896 réði Pétur sig fyrst
á þilskip og var tvö sumur á
skipi frá Patreksfirði, sem
Markús Snæbjörnsson átti.
Árið 1905 giftist Pétur Valgerði
Kristjánsdóttur, smiðs á Bíldudal
og árið eftir fluttust þau til Bildu
dals, þar sem hann hefur dvalizt
síðan. Þeim varð 7 barna auðið,
4 dætra og 3 sona og eru fjögur
þeirra á lífi. Konu sína missti
Pétur árið 1933 og hefur síðan
búið hjá Kristínu, dóttur sinni.
Árið 1906 varð Pétur fyrst for-
maður á skipi, sem P. Thorsteins-
son átti, og um 30 sumur stundaði
hann sjómennsku, ýmist sem
skipstjóri eða stýrimaður. Einnig
vann Pétur við Bildudalsverzlun
hjá Hannesi B. Stephensen um J7
vetur.
Heilsugóður hefur Pétur verii
alla sína ævi og stundar enn
kolaveiði með net á sumrin.
Margt fólk heimsótti hann 6 af-
mælisdaginn á heimill Kristínar
dóttur hans og manns hennar,
Kristins Péturssonar, og bárust
honum margar heillaóskir.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka Pétri góða viðkynningu,
fyrr og síðar, og óska honum
gæfu og gengis á hinu nýbyrjað*
ári.
Friðrik Valdemarsson.