Morgunblaðið - 25.01.1957, Qupperneq 15
Fðstudagur 25. jan. 1957
MORCUW fíLAÐIÐ
15
— Ungverska upprelsnin
Framh. af bls. 9
MÓÐGUN VIÐ
UNGVERSKT ÞJÓÐERNI
Yngri mennirnir sáu kjör yfir-
manna sinna og eldri samverka-
manna í verksmiðjum, og þeim
var ljóst, að þeir áttu hvergi
frama í vændum, nema þeir
gengju í flokkinn eða leynilög-
regluna. En það var viðbjóður
hverjum heiðarlegum manni. Við
þetta allt bættust svo óbærileg-
ar móðganir við ungverskt þjóð-
erni. Við vorum neyddir tii að
læra rússnesku, en stúdentarnir
neituðu því. Herinn var klæddur
rússneskum einkennisbúningum.
Við vorum þvingaðir til að halda
hátíðlega rússneska helgidaga. í
öllum greinum voru Rússar hafð-
ir að fyrirmynd. Á Ólympíuleik-
unum í Helsinki 1952 var ung-
verski þjóðsöngurinn leikinn oft-
ar en hann hafði heyrzt í Rúda-
pest-útvarpinu á fjórum undan-
gengnum árum. Þessi harðvítuga
barátta gegn þjóðerniskenndinni
vakti sterka andúð jafnvel í
fylkingum kommúnista.
GÖTIN Á JÁRNTJAEDINU
Hin harðlokuðu landamæri
okkar í vestri höfðu ótrúleg
áhrif á æskulýðinn. Við gát-
um ekki skilið, hvers vegna
hið „frábæra“ efnahags- og
menningarkerfi sovét-skipu-
lagsins óttaðist Vesturlönd.
Kommúnistar komu með alls
konar skýringar, en þær juku
aðeins á forvitni okkar. Sovét-
bækur lágu óhreyfðar í bóka-
búðum og söfnmn en háskóla-
stúdentar þýddu leynilega og
gáfu jafnvel út vestrænar
bækur, sem voru „rifnar út“.
Rússneskar kvikmyndir voru
sýndar fyrir tómum húsum.
En vestrænar kvikmyndir
gengu mánuðum saman, jafn-
vel þótt þær hefðu verið ræki-
lega „klipptar" og „lagfærð-
ar“. Ungverjar lærðu margt
um hinn vestræna heim hjá
íþróttafólki, sem ferðazt hafði
vestur fyrir jámtjald. Ung-
verjar voru það leppríki
Rússa, sem hafði víðtækust
íþróttasambönd við Vestur-
lönd. Fyrir mörgum okkar
opnuðu íþróttirnar stærstu rif
una á járntjaldinu. Við verk-
fræðingarnir sáum það af vest
rænum tækni-tímaritum, að
iðnaður okkar og öll tækni
stóð langt að baki því, sem
tíðkaðist í vestri. Þessi göt
á tjaldinu gerðu okkin: kleift
að bera saman líf okkar og
annarra þjóða — og það hlaut
alltaf að verða á kostnað sovét
skipuiagsins. Þessi saman-
burður gat af sér ótölulegar
skrýtlur og gamansögur, sem
fóru eins og eldur um landið
og komust jafnvel til eyma
leiðtoganna.
.'Saa
STÚDENTAR HEFJA :^r
HERÓPIÐ
Eftir dauða Stalins fundu all-
ir óvissuna meðal leiðtoganna.
Þegar losað var á böndunum,
fóru mótmælaraddirnar að heyr-
ast. Hinir þöglu ungversku rit
höfundar létu til sín heyra. Blöð
og tímarit, sem birtu kvartanir
þeirra, seldust upp á svipstundu
Stúdentarnir, sem vissu um
þjáningar fólksins, hófu upp
herópið. Þeir báðu ekki um
„þjóðlegan kommúnisma" (Tító-
isma). heldur algert fullveldi og
lýðræði.
HVERS VEGNA PÓLVERJAR
OG UNGVERJAR?
Þegar þess er gætt, að rúss
nesk kúgun hafði skapað sömu
aðstæður í öllum leppríkjunum
kann einhver að spyrja, hvers
vegna það voru einmitt Pólverjar
og Ungverjar, sem sönnuðu gagns
leysi hins kommúniska ,uppeldis‘
Svarið er augljóst. Pólverjar og
Ungverjar eiga glæsilega fortíð
þjóðemislegrar baráttu, sem blés
æskulýðnum í brjóst hugrekki á
hinu rétta sögulega augnabliki.
RÚSSAR EIGA TVO KOSTI
Það er hörmulegt, að frelsis-
barátta Ungverja var barin nið-
ur með rússnesku vopnavaldi. í
þessari baráttu var kjarninn úr
æsku Ungverjalands drepinn,
fluttur úr landi eða dreift um
allan heim. En andstaðasi var
ekki yfirunnin. Kúgunin í Ung-
verjalandi hefur aldrei fyrr átt
svo öflugri mótspyrnu að mæta.
Það er augljóst að ,/uppeldis-
aðferðir“ Rússa hafa algerlega
mistekizt. Þeir geta aðeins hald-
ið völdum í Ungverjalandi með
vopnum. Spurningin er, hvort
þeir þora að sleppa Ungverjum
af ótta við að missa líka önnur
leppríki. Að öðrum kosti veröa
þeir að beita grimmdarbrögðum
Staiins. Það mundi hafa í för með
sér tortímingu heillar þjóðar
beint fyrir augum Vesturlanda
— því ungverska þjóðin, sem í
fjóra daga andaði að sér fersku
lofti frelsisins, mun aldrei sætta
sig við harðstjóm aftur.
— Útilutningur sjnvnrniurðn
Framh. af bls. 3
mestu deilumálum þjóðarinnar.
Ómögulegt væri að sjá í svo
skjótri svipan, hvort frv. væri til
góðs eða ills.
FARIÐ FRAM Á FREST
TIL MORGUNS
Og þar sem ekki væri sýnt
að svo mjög lægi á afgreiðslu
málsins að það mætti ekki drag-
ast til morguns áð taka það á
dagskrá, kvaðst hann vilja fara
þess á leit að málinu yrði frest-
að, svo að þingmönnum gæfist
kostur á að kynna sér það, því
sumir þeirra hefðu jafnvel ekki
vitað að það var á dagskrá fyrr
en þeir komu á þennan fund. I
þessu sambandi gat Bj. B. þess
að í sambandi við afgreiðslu lag-
anna um útflutningssjóð, hina
— „Gosur“
Framh. af bls. 6
úr félaginu farið nokkrar keppn-
isferðir. Félagið getur státað sig
af nokkrum sigrum:
íslandsmeistarar í III. fl. 1954
og í II. fl. 1955. Meistaraflokkur
hefur komizt það lengst að verða
jafn Í.R. að stigum á íslandsmót-
inu 1954, en tapaði sökum óhag-
stæðara markahlutfalls.
Félagatalan hefur aukizt jafnt
og þétt, og eru félagar nú alls á
5. tug. Ahugi á körfuknatt-
leik fer vaxandi, og hefur æf-
ingasókn verið betri í vetur en
nokkru sinni fyrr og eiginlega
svo mikil, að til vandræða horfir,
því að félaginu er svo féfátt, að
það getur ekki haft fleiri æfinga-
stundir en það, að allir flokkar
verða að æfa samtímis, sem er
ótækt. Enda hafa þeir yngstu
flæmzt frá. Stjóm félagsins sá,
að við svo búið mátti ekki standa
og efnir því til happdrættis til
stuðnings starfsemi sinni. Vinn-
ingar eru 3 KUBA-útvarpsfónar
og verður dregið þann 15. marz
næstkomandi.
Stjóm félagsins er þannig skip-
uð: Form.: Ingi Þorsteinsson;
Guðm. Ámason; Geir Kristjáns-
son; Guðm. Georgsson og Ólafur
Thorlacius.
svokölluðu jólagjöf, hefðu ekki
verið haft- á móti afbr. vegna
þess að þá hefði verið fyrir hendi
viss þörf fyrir að ganga frá mál-
inu í skyndi. Að þessu sinni væri
slík þörf ekki fyrir hendi og gæti
það því ekki skipt meginmáli
þótt fyrirtekt málsins væri frest-
að til morguns.
ÞINGM. FJARVERANDI
VEGNA ÓFÆRÐAR
Varðandi síðara dagskrármál-
ið, frv. um atvinnuleysistrygg-
ingar fór Bj. B. þess á leit að
málinu væri frestað vegna fjar-
veru Kjartans Jóhannssonar, sem
sæti á í nefnd þeirri, sem fjallar
um málið, en hann hefði ekki
getað komizt til þings enn sök-
um samgönguörðugleika, sem
öllum væru kunnir. Að sjálf-
sögðu ættu Sjálfstæðismenn
ágætan fulltrúa í nefndinni, en
hins vegar hefði Kjartan Jó-
hannsson öðrum fremur þekk-
ingu á málinu þar sem hann
væri í stjóm atvimiuleysistrygg-
ingarsjóðs.
Forseti féllst þegar á að taka
síðara málið út af dagskrá, en
kvaðst hafa hugsað sér að fresta
umræðu að lokinni framsögu-
ræðu sjávarútvegsmálaráðherra
um fyrra dagskrármálið, en við
frekari áréttun Bjama Bene-
diktssonar féllst hann einnig á
að fresta því máli til morguns.
LJOS OG HITI
(horninu á Barónsstíg)
SÍMI 5184
PALL S. PALSSON
hæsiaréttarlögmaður
Bankastræti 7 — Sími 81511
Alhtiba
Verkfrcebiþjónusia
TRAUSTW
Skóla vörbusl ig Jð
5/ m i 8 26 24
SKIPAUTGCRB RIKISINS
SKJALDBREIÐ
til Snæfellsnesshafna og Flateyjar
hinn 29. þ.m. Tekið á móti flutn-
ingi í dag og árdegis á morgun. —
Farseðlar seldir á mánudaginn.
SKAFTFELLINGUR
fer til Vestmannaeyja í kvöld. —
Vörumóttaka í dag.
* VAákon & — (
) “ gultsmiðlr
'^-Ntihgötu 49 . Slml 9153»
Magnús Thorlacius
hæstaréuarlögmaður.
Málf lutningsskrif stof a.
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Frarn
Hlutavelta verður í Listamanna
skálanum n.k. sunnudag. — Tekið
á móti munum í Lúllabúð, Hverf-
isgötu 61. Félagsmenn eru beðnir
að mæta til vinnu £ Framheimil-
inu í kvöld, föstud., kl. 8.
— Stjórnin.
f.R. — Handknattleiksmenn!
Munið æfinguna að Hálogalandi
í kvöld kl. 8,30—9,20, fyrir meist-
ara- og II. fl. — Áríðandi að all-
ir flokkar mæti, vegna myndatöku.
— Stjórnin.
Ármenningar---- Skíðamenn!
Farið verður í Jósefsdal, laug-
ardag kl. 2 og 6. Ferðir frá B.S.R.
við Lækjargötu. — Nægur snjór.
Sjá auglýsingu skíðafélaganna á
laugardag. — Stjórnin.
K.R. --- Sunddeild — Skíðadeild
Skemtifundurinn er í kvöld kl. 9,
í Félagsheimilinu. Bingó. — Kvik-
mynd. Dans o. fl. Mætum nú öll!
— Nefndirnar.
Guðspekifélagið
Fundur í Septímu £ kvöld kl.
8,30, £ Ingólfsstræti 22. — Grétar
Fells flytur erindi: „Hin full-
komna bæn“. — Kaffi. — Gestir
velkomnir.
Kaup - Sala
K R Ó N U
gef ég fyrir amerisk sögublöð
og 75 aura fyrir leikarablöð. —
Bókaverzlunin, Frakkastíg 16.
Innilega þakka ég öllum vinum mínum og frændum,
f jær og nær, sem á einn eða annan hátt glöddu mig á átt-
ræðisafmæli mínu 21. þ.m. — Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Bjarnadóttir.
Búðin
(JRSUS sýnir
aflraunir
Dansleikur
í Búðinni í kvöld kl. 0
★ GUNNAR ORMSLEV
og hljómsveit
★ SIGR. JÓNSDÓTTIB
syngur
★ ROCK’N ROLL
sýning
Aðgöngumiðar seldir frá klukkan S.
Nú ættu allir að bregða sér í Búðina
Vörubílstjórafélagið Þróttur
Aðaifundur
Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn í húsi fé-
lagsins, sunnudaginn 27. þ.m. kl. 1.30 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN.
LOKAD
um óákveðinn tíma vegna breytinga.
\Jarzlun (j. (JJoeffa Lf.
Vesturgötu 6
LOKAÐ I DAG
föstudaginn 25. þ.m. vegna jarðarfarar
Klæðaverzlun Braga Brynjólfssonar
SIGURÐUR S. STRAUMFJÖRÐ
andaðist að heimili sínu Laufáeveg 48, 24. jan. 1957.
Anna Bjarnadóttir
Friðbjörg Sigurðardóttir, Bergljót Ingólfsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir
SIGURLÍN VALGERÐUR JÓNASDÓTHR
lézt að heimili sínu Öldugötu 7 þann 23. þ.m.
Guðlaugur Guðmundsson, Jónas Guðlaugsson,
Óskar Guðlaugsson, Dýrleif Tryggvadóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
JÓNU MARÍU SIGURÐARDÓTTUR
Patreksfirði.
Böm, tengdabörn, baraaböm.
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm—mmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Hjartanlega þökkum við öllum þeim mörgu, er auð-
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför
EINARS BENEDIKTSSONAR
Elínborg Einarsdóttir og dætur,
Vilborg og Benedikt Einarsson
og systkíni hins látna.