Morgunblaðið - 12.02.1957, Qupperneq 3
Þriðjudagur 12. febr. 1957
MORCVNBLAÐIÐ
3
Eitt atriði úr „Kátlegum kvonbænum" eftir Oliver Goidsmith.
Herranótt Menntaskólc•
nemenda í Iðnó í kvöld
Frumsýndur verður gamanleikurinn
,,Kátlegar kvonbœnir"
IKVÖLD verður Herranótt Menntaskólanemenda í Iðnó. Frum-
sýndur verður gamanleikurinn „Kátlegar kvonbænir" eftir
enska skáldið Oliver Goldsmith. Menntaskólanemendur fara að
venju með öll hiutverkin en leikstjóri er Benedikt Árnason. Leik-
ritið sem að þessu sinni hefur orðið fyrir valinu er bráðfyndið og
skemmtilegt og f jallar um ástamál tveggja ungra manna í Englandi
um miðja 18. öld.
Stjórnarirumvarp um breyt-
inga ó kostningalögnnnm
IGÆR var lagt fram á Alþingi frumvarp það, er Her-
mann Jónasson hafði látið tilkynna kjörbréfanefnd
þingsins sl. fimmtudag að fram yrði lagt, um breytingu
á lögum nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis.
Frumvarpið hljóðar svo:
1. gr.
1. málsgr. 144. gr. laganna orðist svo:
Varamenn þingmanna í kjördæmi, þar sem kosið er hlut-
bundnum kosningum, taka þingsæti eftir þeirri röð, sem
þeir eru kosnir, þegar þingmenn þess lista, sem þeir eru
kosnir á, falla frá eða forfallast, og án tillits til þess, hver
þingmaður listans það er. Segi varamaður af sér, missi kjör-
gengi eða falli frá, tekur sá varamannssæti, sem næstur
er á listanum og ekki var áður varamaður. Varamenn lands-
kjörinna þingmanna taka sæti eftir hliðstæðri reglu.
2. gr.
Varamenn fyrir þá alþingismenn, er kjörnir voru í al-
þingiskosningunum 24. júní 1956, skulu taka sæti á Alþingi
samkvæmt reglum 1. gr.
Stjórn samtakanna.
Samtök matreiðslu- og
framleiðslumanna 30 ára
Félagið heffur látið skólamál stéttarinnar til sín taka
IDAG eru samtök matreiðslu- og framleiðslumanna 30 ára. —
Félagið var stofnað 12. febrúar 1927. Þann dag komu saman
fimm framleiðslumenn og tveir matreiðslumenn en tii fundarins
hafði verið boðað í því skyni að undirbúa og taka ákvörðun um
stofnun stéttarfélags. í gær áttu fréttamenn viðtal við stjórn sam-
takanna að þessu tilefni. Formaður er Sveinn Símonarson. —
Skýrði hann frá stofnun og starfi félagsins.
TILEINKAÐ DR. JOHNSON
Herranætur Menntaskólanema
er nú orðinn vinsæll og fastur
þáttur í bæjarlífinu og það bregst
aldrei, að leikritin, sem Mennta-
skólinn sýnir á vetri hverjum
ná miklum vinsældum leikhús-
gesta. Á ensku nefnist þetta leik-
rit sem í kvöld er frumsýnt „She
stoops to conquer".
Er það vinsælasta og þekktasta
leikrit Oliver Goldsmiths og iðu-
lega sýnt í leikhúsum í Bretlandi.
Leikritið er tileinkað einkavini
Goldsmiths Dr. Johnson. í leik-
ritinu eru bráðfyndin samtöl,
Skdk-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
34..... Kf7—e6
2. BORÐ
S,rart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
30. Dd3—eS
sem draga dám af kaffihúsalífinu
í London mn miðja 18. öld, og
segja má að leikritið gefi góða
hugmynd af brezkri leikritagerð
á þessu tímabili.
GÖMUL ERFDAVENJA
— Það er líka markmið okkar,
sagði Ólafur B. Thors inspector
scholae í gær, að setja á svið
leikrit, sem ekki muni annars
sjást hér í leikhúsum, og svo var
um Menntaskólaleikinn í fyrra
og í ár. Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi hefir þýtt leikritið,
en hlutverk eru 22. Aðalhlutverk
in leika Jón Ragnarsson, Ólafur
Mixa, Guðmundur Ágútsson,
Hólmfríður Gunnarsdóttir og
Brynja Benediktsdóttir. Frum-
sýningin hefst kl. 8 í kvöld.
Búningar eru fengnir að láni
í Þjóðleikhúsinu.
Með þessum leiksýningum
halda menntaskólanemendur
við fornri erfðavenju, allt frá
Skálholts og Bessastaðaskóla, og
í Menntaskólaleikjunum hafa
komið fram í fyrsta sinn margir
þeir leikendur, sem nú eru lands
kunnir. Það er vissulega óhætt
að mæla með Herranóttunum og
hvetja alla, sem leiklist unna
til þess að leggja leið sína í Iðnó.
★ f Englantíi varð allsnarpur
jarðskjálftakippur í dag og
hrundu hús og önnur mannvirki
víða um landið.
- Hamnarshjöld
Framh. af bls 1
febrúar s.l. tvær ályktanir um
málið. í hinni fyrri er lagt fyrir
ísraelsmenn að kalla heim heri
sína þegar í stað, en í þeirri síð-
ari er Hammarskjöld falið að
gera nauðsynlegar ráðstafanir til
að tryggja heimköllun herjanna,
m. a. að senda öryggissveitir S.Þ.
til að gæta vopnahléslínunnar
og Akabaflóans.
TVÆR SPURNINGAR
Tveim dögum síðar lagði Eban
til, að Hammarskjöld fengi
Egypta til að gefa yfirlýsingu
þess efnis, að þeir mundu ekki
hefja bardaga eða sltæruhemað
að nýju. Hammarskjöld svaraði
þessari umleitan með tveimur
spruningum:
1) Hvort ísraelsmenn gerðu
sér ljóst, að þeir yrðu að kalla
heim bæði herlið og embætt-
ismannalið frá Gaza-skikan-
um.
2) Hvort ísraelsmenn sam-
þykktu, að öryggissveitir S. Þ.
tækju sér stöðu við vopna-
hléslínuna INNAN ísraels
hjá E1 Alja.
ÓÚTKLJÁD MÁL
Hammarskjöld gaf í skyn, að
hamn gæti ekki leitað á fund
Egypta, fyrr en hann fengi skýr
svör frá ísraelsmönnum við þess-
mn spurningum. Skýrsla hans í
dag gaf til kynna, að hann hefði
ekki enn fengið þessi svör frá
ísrael. Hann sagði, að það væri
óútkljáð mál, hvort ísraelsmenn
yrðu við áskorun S. Þ. um heim-
köllun herja sinna, og hvort þeir
leyfðu öryggissveitunum að taka
sér stöðu við vopnahléslínuna.
SAMVINNA DEILIIADILA
SKILYRÐIÐ
Hammarskjöld hvatti til var-
úðar, en sag'ði hins vegar, að
stundum yrði að Ieggja út í
nokkra áhættu til að ná tilætluð-
um árangri. Friður við austan-
vert Miðjarðarhaf yrði að vera
ÖLLUM þjóðum á þessu svæði
í hag, sagði hann, og hann yrði
að byggjast á fullri virðingu fyr-
ir stofnskrá S. Þ. Samvinna
beggja deiluaðiía væri höfuð-
nauðsyn í þessu máli, því þeirra
væri ábyrgðin, ef ekki fengist
lausn á því. Hann sagði, að
Egyptar hefði heitið að virða
vopnahléssamninginn frá 1949,
ef ísraelsmean gcrðu slíkt hið
sama.
Bretar reyna
vetnissprengju
LONDON, 11. febr. Frá Reuter.
— Selwyn Lloyd, utanríkisráð-
herra Breta, sagði neðri málstof-
unni í dag, að Bretar hefðu í
hyggju að halda áfram tilraun-
um með vetnissprengjuna á
Kyrrahafinu. Bandarikin og
Sovétríkin hefðu þegar gert slík-
ar tilraunir, sagði harni, og þess
vegna mundu Bretar ekki hika
við sínar tilraunir. Hann bætti
því við, að tilraunirnar mundu
hafa í för með sér sáralitla aukn-
ingu á kjarnageislun í heimin-
Hinn 4. marz 1927 var fram-
haldsstofnfundur haldinn. Á þeim
fundi voru samþykkt lög fyrir
félagið og var þá endanlega geng-
ið frá stofnun þess. Hlaut það
nafnið „Matsveina- og veitinga-
þjónafélag íslands". Fyrsta
stjórnin var skipuð þessum mönn
um: Ólafur Jónsson, formaður,
Anton Valgeir Halldórsson gjald-
keri, og Kristinn Sigurðsson
ritari.
Félagið lét mjög til sín taka
skólamál matreiðslu- og fram-
reiðslumanna. Barðist það lengi
fyrir því að komið yrði upp sér-
skóla fyrir þessar greinar. Tókst
að fá því framgengt að þessari
starfsemi væri ætlað nokkurt
rúm í Sjómannaskólahúsinu
nýja. Var Matsveina- og veitinga
þjónaskólinn vígður 1. nóv. 1955,
og hefur starfað síðan undir
ágætri stjórn skólastjórans,
Tryggva Þorfinnssonar.
Félagið klofnaði á tímabili og
störfuðu um skeið tvö félög. Voru
þau sameinuð aftur 1950 og
þá skírð „Samband matreiðslu-
og framreiðslumanna". Félag
starfsfólks í veitingahúsum sem
stofnað var 1950 gerðist deild inn
an sambandsins árið 1955.
Árið 1954 voru fyrstu kaup og
kjarasamningar gerðir við Sam-
band veitinga- og gistihúsaeig-
enda. Voru þá gerðir samningar
bæði fyrir matreiðslumenn og
framreiðslumenn.
Formaður kvað aðalbaráttu-
mál félagsins í dag vera þau, að
lögfest verði ákvæði um réttindi
þeirra manna er gerast brytar á
verzlunarskipum og matsveinar
á fiskiskipum. í öðru lagi að frum
varp að nýjum veitingalögum
verði lagt fram á Alþingi og af-
greitt sem lög. Og í þriðja lagi
að fullnægt verði þeim skilyrð-
um í sambandi við veitingahús
sem þurfa til þess að hægt sé að
taka á móti erlendum ferða-
mönnum, en til þess þarf stórt
átak í gistihúsamálunum, sagði
formaður.
Þá tóku til máls Böðvar Stein-
þórsson, Friðsteinn Jónsson og
Magnús Guðmundsson. Hendrik
Ottósson mælti að lokum nokkur
orð fyrir hönd fréttamanna og
árnaði félaginu allra heilla.
Stjórn samtakanna skipa nú:
Sveinn Símonarson, form., Böðv-
ar Steinþórsson, Magnús Guð-
mundsson, Símon 'Sigurjónsson,
Borgþór ‘Sigfússon, Guðmundur
Júlíusson, Guðný Jónsdóttir,
Janus Halldórsson, og Jenný
Jónsdóttir. Varamenn eru: Svein-
björn Pétursson, Bjarni Guðjóns-
son, Haraldur Tómasson og Jón
Maríusson.
Afli Keflavíkurbáffa
KEFLAVÍK, 11. febrúar — f dag
voru aðeins 12 bátar á sjó héðan,
enda var ekki sem bezt útlit um
sjóveður. Afli þessara 12 báta var
almennt 4—5 tonn. Hæstur var
Ólafur Magnússon með 6 tonn.
Sjómenn telja ekki horfur á að
afli muni glæðast næstu daga,
því ekki geta bátarnir sótt nema
á grunnmið vegna storma úti
fyrir.
um.
MACMILLAN HITTIR
EISENHOWER í MARZ
London, 11. febr. Frá Reuter.
'Vl'ACMILLAN forsætisráðherra Breta mun eiga fund við Eisen-
hower Bandaríkjaforseta á Bermuda 21.—24. marz n. k.
Macmillan skýrði neðri málstofunni frá því í dag, að viðræðurnar
yrðu víðtækar, þar eð mikilvæg vandamál hvarvetna í heiminum
biðu úrlausnar. Hann sagði, að Selwyn Lloyd utanríkisráðherra
yrði I fylgd með sér, og bjóst við, að Dulles yrði í fylgd með Eisen-
hower.
Aðspurður sagði hann, að ekki ynnist tími til að halda samveldis-
ráðstefnu fyrir fundinn við Eisenhower, en kvaðst vonast til að
hægt yrði að halda slíka ráðstefnu síðar á árinu.
Eftir fundinn við Eisenhower mun Macmillan eiga viðræður við
kanadíska forsætisráðherrann, St. Laurent. Eisenhower mun hins
vegar eiga viðræður við Mollet, forsætisráðherra Frakka, í Washing-
ton 26.—27. febrúar n.k.