Morgunblaðið - 12.02.1957, Page 8

Morgunblaðið - 12.02.1957, Page 8
8 MORCUNBIAÐIÐ í>riðjudagur 12. febr. 1957 Kurylewicz jazz-hljómsveitin er talin meðal hinna beztu í Póllandi. Hér sjást nokkrir blásara hennar. Jazzinn hefur heltekið pólska æsku Louis Armstrong er átrúnaðargoðið PÓLLAND hungrar og þyrstir í jazz. Eftir að frjálsræði tók að aukast þar í landi hafa sprottið upp um allt landið jazz-hljómsveitir, jazz-klúbb- ar og „jam-sessjonir“. Unga fólkið hópast saman til að dansa undir hinni öru hrynj- andi frá trompettum og klari- nettum ungra manna, sem stæla Louis Armstrong eða Benny Goodman. ★ ★ ★ Hér skal ekkert reynt að skýra né skilgreina það sálfræðilega, hvers vegna hinn ameríski jazz fer sigurför um allan heim. í Pól- landi hefur það gert hann ennþá eftirsóknarverðari í eyrum æsku- lýðsins að í fjölda ár var jazz- inn bannaður með lögum, sem „úrkynjuð tónlist kapitalísku landanna." En æskulýðurinn hefur lítið skeytt um bönn og boð. Öll valda ár stalinistanna í Póllandi hlust- aði pólsk æska meira og minna á jazzinn í vestrænum útvarpsstöðv um. Og í mörgum skólum komu unglingar saman á laun til að hlýða á þessa villtu tónlist. Kann- ske varð hún líka sérstaklega sæt af því að hún var bannvara. BYRJAÐI 1949 Ein frægasta jazz-hljómsveit Póllands í dag er „Melomani" (þeir tónlistar-óðu). Hún var stofnuð árið 1949 í skóla einurrl í borginni Lodz. Þeir léku fyrst á leynilegum dansæfingum og sam- komum nemenda og hafa haldið þessu áfram síðan leynt og ljóst. Sama sagan gerðist í öðrum pólsk um borgum og Pólverjar eru ekki í nokkrum vafa um, að hvort sem valdhöfunum í Kreml líkar það betur eða ver hefur jazzinn flætt i leynum líka austur yfir slétt- ur Rússlands. GLÆPUR, SEM FJARLÆGIR LÍFSLEIÐA Það hefur oft komið fyrir á undanförnum árum í Póllandi, að nemendur væru reknir úr skólum fyrir að leikn jazz eða að dansa eftir jazzi. En eftir dauða Stalíns var bráðlega farið að losa á höft- unum. Árin 1954 og ’55 var farið að leyfa jazz opinberlega of bráðlega fóru stjórnarvöld- in jafnvel að styðja jazz-mús- ikina. Farið var að ræða um það opinberlega, að pólsk æska væri orðin full af lifsleiða eftir hörmungaár stalinismans. — Það sem helzt gæti lyft henni upp væri jazz-tónlist. Tónlist- argagnrýnendur fóru jafnvel að skrifa um jazzinn í pólsk blföð og þvi var lýst hver undraverð áhrif þessi fram- andi tónlist hefði á ungling- ana. Henni tækist að laða fram bros og hlátra, sem lengi höfðu ekki sézt á vörum pólskrar æsku. JAZZ-HÁTÍÐIN MIKLA Mesta byltingin varð þó í febr. 1956 eftir að Krúsjeff hafði for- dæmt Stalín á 20. flokksþingi rússneska kommúnistaflokksins. f Póllandi eins og í öðrum sósíalískum ríkjum starfar sér- stakt ráðuneyti, sem falið er að annast félagsmál og skemmtanir æskunnar. Síðastl. sumar skipu- lagði þetta skemmtanaráðuneyti mikla jazz-hátíð í borginni Zopp- at, sem er baðstaður við Eystra- saltið. Var nú komið í ljós að mikill fjöldi ágætra jazz-hljómsveita var starfandi í Póllandi og komu nokkrar þeirra til há- tíðarinnar. Þar var einnig ein- tékknesk og ein ensk jazz- hljómsveit. Aðsóknin að hátíð þessari sprengdi af sér öll bönd og fór svo langt fram úr öllum áætl- unum skemmtanaráðuneytis- ins, að slíkt hafði aldrei þekkzt áður. Chopin er að vísu vinsæll í Póllandi. En það hefur þó ekki komið fyrir á Chopin-tónleikum, að þúsundir ungmenna safnist saman kringum tónleikahúsið og heimti að því sem inni gerist sé varpað út með hátalara. En það gerðist í Zoppat. DIXIELAND Vestrænir ferðamenn sem dvöldust í Zoppat á tónlistarhátíð inni segja að margar hljómsveit- ir Pólverja séu allgóðar. Mikið gætir þar Öixieland-stílsins og Louis Armstrong er átrúnaðar- goð Pólverja. Hrifningin og lófa klappið var mest þegar enska jazz-hljómsveitin „The Dave Burman Jazz Group“ spilaði. E. t. v. var henni þó fagnað svo mjög vegna þess að þetta var vestræn hljómsveit. Sannast sagna spiluðu sumir Pólverjanna betur. Pólsku tónlistarmennirnir eru enn fæstir atvinnumenn. Þeir stunda sína vinnu eða eru skóla- nemendur. En öllum frístundum verja þeir í jazzinn. Það er ótrú- legt fyrir vestræna menn hve áhuginn er geysilegur. Pólverjar hlusta á vestrænar útvarpsstöðv- ar og taka hin beztu jazz-verk á segulband, því að vestrænar grammófónsplötur og nótur eru ófáanlegar á almennum markaði. Almenningur í Vestur-Evrópu getur sannfærzt um að jazzinn hefur sigrað í Póllandi. Auðveld- asta sönnunin er að hlusta á Varsjár-útvarpið. Það leggur sig í líma við að flytja sem bezta jazz-músik. Og útvarpsstöðin pólska virðist fá sér jafnóðum hinar nýjustu jazz-plötur frá Ameríku. Plöturnar eru varla komnar út, þegar Varsjár-útvarp ið er skyndilega farið að út- varpa tónlistinni um alla Evrópu. Pólskar jazz-hljómsveitir eru tíð ir gestir í útvarpssal og sent er einnig út frá danssölum. HÚLLUM HÆ Á VISLUBÖKKUM Nýjustu fréttir frá Póllandi herma að „Rock and roll“ eða húllum hæ dansmúsikkin sé farin að grípa um sig meðal pólsks æskulýðs. Hvort sú tónlist telst jazz skal látið liggja milli hluta, enda eru einlægir pólskir jazz- unnendur ekki hrifnir af þessu. En það er staðreynd jafnt fyrir það. Kvikmyndaklúbbur Varsjár- háskóla fékk lánaða hjá banda- ríska sendiráðinu kvikmyndina „Rock around the Clock“. Hún hefur víða verið sýnd. Og þó pólsk æska hafi sýnt að hún er sæmilega siðuð (hún kveikir t.d. ekki í kvikmyndahúsinu) er á- huginn og hrifningin yfir hinni nýstárlegu tónlist stórkostlegur. Húllum-hæið breiðist óð- fluga um Pólland. Ungling- arnir stappa í gólfið og rugga sér í takt. AHir eru í sólskins skapi og hætt er við að þessi farsótt stöðvist ekki við rúss- nesku landamærin. Hún held- ur áfram rakleitt til Moskvu og Leningrad, hvort sem valdhöfunum líkar það betur eða ver. Enn einu sinni sýnir æska Austur-Evrópu að hún er full af mótþróa gegn einræðis- valdinu og dansar og dansar. LEYNIÞJÓNUSTA BANDARÍKJ- ANNA KOMST Á SNOÐIR UM INN- RÁSARFYRIRÆTLANIR BRETA, FRAKKA OG ÍSRAELSMANNA Bandaríkin aðvöruðu þríveldin — en án árangurs Washington. NÚ FYRIR skömmu lýsti formælandi Bandaríkjastjórnar því yfir, að Bandaríkjamenn hefðu vitað um innrásarfyrirætl- anir Breta, Frakka og ísraelsmanna í Egyptaland skömmu áður en Súez-styrjöldin hófst. Fyrrnefnd ríki skýrðu Bandaríkjastjórn þó ekki frá fyrirætlunum sínum, heldur komst hún á snoðir um þær með aðstoð bandarískra njósnara. SKÝRSLAN OPINBER? Er nú búizt við því, að Banda- ríkjastjórn skýri frá vitneskju sinni og geri málið opinbert á næstunni. Eins og kunnugt er, situr nú á rökstólum nefnd á vegum Öldungadeildar Banda- ríkjaþings, sem hefir fengið það hlutverk að rannsaka stefnu Bandaríkjanna í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs á undan- förnum árum. Búast fréttaritar- ar við, að skýrsla bandarísku leyniþjónustunnar verði lögð fram í nefndinni. ÞRJÚ ATRXÐI Það er haft fyrir satt, að leyni- þjónustan hafi sent forsetanum „hvíta bók“ um innrásarfyrir- ætlanir þríveldanna 24 klst., áð- ur en þau réðust inn í Egypta- land. 1 bók þessari var m.a. skýrt frá eftirfarandi: 1) ísrael ætlar ekki að ráðast inn í Jórdaníu. (Fyrri skýrslur leyniþjónustunnar kváðu svo á, að ísraelsmenn hygðust hertaka allt landsvæðið fyrir vestan Jordan). 2) fsraelsmenn munu i staðinn gera innrás í Egyptaland. 3) Frakkar og Bretar munu gera árás á Súez. VILLANDI SVÖR Þegar upplýsingar þessar höfðu verið lagðar fram, gaf Dulles sendiherrum sínum í höfuðborg- um þríveldanna fyrirmæli um að komast að því, hvað væri á seyði. Stjórnmálafréttaritarar segja, að stjórnir Edens og Mollets hafi gefið villandi svör, en ísraels- stjórn baðst undan að svara. MIKIÐ TIL SÍNS MÁLS Nokkru síðar sendiu Bretar og Frakkar Egyptum úrslitakosti og mátti þá sjá, að hverju stefndi. Dulles lýsti því þá yfir, að „hern- aðaraðgerðir í Egyptalandi mundu riða þríveldunum að fullu“. — Þó að djúpt sé í árinni tekið, finnst Bandaríkjamönn- um, nú að Dulles hafi haft mikið til síns máls. Hornfirðingar reisa sér skíðaskála HOFN í Hornafirði, 8. febr. — Snjólaust hefur verið hér undan- farið og akvegir upp á það bezta. Ungmennafélagið Velvakandi í Höfn hefur undanfarin ár unnið að því að koma sér upp skíða- skála í Laxárdal í Nesjum. Er skálinn nú uppkominn og nú í vik unni voru 14 unglingar ásamt kennara þar yfir eina nótt í fyrsta skipti. Var hópurinn mjög ánægður með hið nýja hús sitt. — Gunnar. Fjögur rit um landbúnað NÝLEGA HAFA BLAÐINU bor- izt tvö fyrstu heftin að búnaðar- blaðinu Frey. 1. heftið hefst á grein eftir Gísla Kristjánsson, rit- stjóra, sem hann nefnir „Nýtt ár — ný viðfangsefni". Þá er athygl- isverð grein eftir J. C. Campbell ráðunaut matvælastofnunar Sam- einuðu þjóðanna (FAO), þýdd af Birni Sigurbjörnssyni, sem nefn- ist „Meðferð beitilands og vernd- un jarðvegs á íslandi“. Þá er ferðaþáttur eftir sr. Gisla Brynj- ólfsson, sem nefnist „Bændaför um Suðurland", þá „Árferði 1956“ eftir Jón H. Þorbergsson á Laxamýri. Sagt er frá heim- sókn erlendra búvísindamanna, sem hingað komu á sl. ári. Er þar fyrst getið fundar norrænna rík- isráðunauta um sauðfjárrækt, en hann sátu, auk íslenzka fulltrú- ans, S. Bell, Noregi, N. Inkov- aara, Finnlandi og D. Philipsson, Svíþjóð. Þá er getið Knuts Breir- em prófessor frá Ási í Noregi, sem hér flutti erindi um votheysverk- un og meðferð og fóðrun á mjólk- urkúm, ennfremur heimsóknar Þórðar W. Þórðarsonar prófess- ors í Norður-Dakóta. Loks eru „Molar“ o. fl. smágreinar. Annað hefti Freys hefst á grein um „Hrossasýningar á Suður- landi“ eftir Albert Jóhannsson, með mörgum myndum og lýsing- um á fallegum hestum. Grein er eftir dr. Halldór Pálsson, sem nefnist „Tvær stefnur“ og fjallar um sauðfjárrækt og stefnubreyt- ingu þá sem er að verða í henni hér á landi. Þá eru stuttar grein- ar sem nefnast „Færibönd í land- búnaði“, „Æfintýri danskrar loð- dýraræktar“ og „Björt eiga fjós- in að vera“. Svo er og „Hús- mæðraþáttur", „Annáll" og „Mol- ar“ o. fl. MERK GREIN UM BÚNABARBANKANN Þá hefir blaðinu og borizt „Ár- bók landbúnaðarins 1956“ 4. hefti. Fyrsta greinin heitir „Bændur og Búnaðarbankinn" eftir Hauk Þorleifsson. Er þetta útvarpserindi flutt 26. nóv. s.l. Er hér um að ræ»a allat- hyglisverða grein, sem fjallar um erfiðleika bænda með lánsútveganir og Reykjavíkur ferðir þeirra í því sambandi. Þess er getið að sparifé bænda liggi fyrst og fremst i innlánsdeildum kaupfélaganna en þar eru nú um 100 millj. króna. Jafnframt er sagt frá erfiðleikum með stofnun úti- búa Búnaðarbankans úti um land, meðan svo er að sarifé bænda er ekki ávaxtað í Bún- aðarbankanum, þó eru fyrir- heit gefin um að svo verði í framtíðinnl. Þá er grein eftir Svein Tryggva- son um „Verðlags- og afurðasölu- mál landbúnaðarins", „Um kjarn fóðurkaup" eftir ritstjórann Arn- ór Sigurjónsson, „Hvernig borga kýrnar kynbætur og kjarnfóð ur?“, „Fóðrun og vænleiki sauð fjár Fjárræktarfélags Þingeyinga 1906—1912“, skýrslur og smá- greinar svo og áætlun um fjár- tölu í vetur og slátrun að hausti. ÁRSRIT R. N. Þá skal og getið „Ársrits Rækt- unarfélags Norðurlands". Er margt athyglisvert í því eins og að vanda. Steindór Steindórsson og Karl Kr. Arngrímsson rita um Pál Bríem amtmann í tilefni aldarminningar hans. Ólafur Jónsson ritstjóri ritar „Enn að austan“ athyglisverða grein um Loðmundarfjörð, svo og ritar hann um „Haustfrostin og kart- öflurnar“ og „Fornbýli—Nýbýli —Smábýli". Rögnvaldur Gísla- son ritar um „Nýbýlinga—frum- býlinga" og Pálmi Einarsson um „Landnám í Finnlandi", Sigurð- ur Blöndal um „íslenzka skóg- ræktarmenn í Noregsför“ og Árni G. Eylands grein er hann nefnir „Eins og þér sáið og berið á mun- ið þér uppskera". Auk þessa eru fundargerðir o.fl. 1 ritinu. Olíuleiðsla yfir Afríku of dýr LONDON, 7. febrúar — Harold Macmillan forsætisráðherra Breta lýsti því yfir, að lagning olíu- leiðslu yfir þvera Afríku yrði svo kostnaðarsöm, að hún gæti aldrei borgað sig. Hann sagði þetta á þingfundi í dag sem svar við áskorun eins þingmanns íhalds- flokksins, Gerald Nazarro, um að leita samstarfs við aðrar þjóðir brezka samvedisins um byggingu slíkrar olíuleiðslu. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.