Morgunblaðið - 16.02.1957, Qupperneq 7
Lavspn'X'xrnr ifi ^f>br. 1957
MORGVWBL4ÐIÐ
7
Franco verður æ valtari í sessi, og virðist engin orðsnilld eða
handapat geta stenunt stigu við þeirri öldu ódnægjunnar, sem nú
ríður yfir Spán.
ÓLGAN Á SPÁNI
NLÝEGA var frá því skýrt hér í blaðinu, að óeirðir hefðu brot-
izt út í Barcelona og víðar á Spáni. í Barcelona neituðu
menn að ferðast með sporvögnum í mótmælaskyni við hækkun
fargjalda. Eftir tveggja vikna „bann“ almennings á sporvögnum,
tóku menn aftur að ferðast með þeim, og er enginn vafi á því, að
hinii aukni liðsstyrkur lögreglu frá Madrid átti sinn þátt í því.
Franco er mikið í mun að halda ró í Barcelona, hvað sem það
kostar, því þessi fornfræga höfuðborg Kataloníu hefur jafnan
haft orð á sér fyrir uppreisnarhug og frelsisvilja. Með aukinni
dýrtíð síðustu vikna hafa óánægjuraddirnar orðið æ háværari,
en Franco hefur ekkert nema valdbeitingu til að þagga þær.
ára valdatíð hans, er hann enn
alvaldur eins og sjá má á síðustu
atburðum í Barcelona. Allsherj-
arverkfallið, sem boðað var til,
hefur borið jafnlítinn árangur og
„bannið“ á leikhúsum og kvik-
myndahúsum, sem stofnað var til
fyrir skömmu. Hins vegar virð-
ast stúdentarnir vera að herða
andróður sinn gegn stjórninni
dag frá degi.
YFIRVOFANDI HRUN
Hinar eiginlegu orsakir ólgunn
ar á Spáni eru ekki fyrst og
fremst pólitískar, heldur efna-
hagsíegar og félagslegar. Utan-
ríkisviðskiptin eru í stöðugri aft-
urför. Skuldir rikisins inn á við
og út á við aukast sifellt. Og
gjaldmiðillinn (peseta) hefur
fallið svo í gengi, að til stór-
vandræða horfir. Algeru hruni
verður aðeins afstýrt með stór-
felldum sparnaðarráðstöfunum,
en margir ráðherranna óttast
þær. Þegar fyrir síðustu jól kom
upp djúprættur skoðanamismun-
ur innan stjórnarinnar, og er
gert ráð fyrir víðtækum breyt-
ingum á henni. En ástandið
versnar hröðum skrefum og ráð-
herrarnir verða æ ráðvilltari og
hræddari. Á síðasta stjórnar-
fundi er sagt, að komið hafi til
hvassra orðaskipta. Ósamlyndið
er greinilega í algleymingi meðal
ráðamanna á Spáni, og gæti það
vel leitt til þess að Franco yrði
enn valtari í sessi enda þótt
hann geti enn sem komið er barið
niður alla mótstöðu nxeð vopna-
valdi.
Lausar stöður
Tvær stöður byggingaverkfræðinga og ein staða
vélaverkfræðings eru lausar til umsóknar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Stéttar-
félags verkfræðinga við ríkisstjórnina frá 25. júlí
1955.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist samgöngumálaráðuneytinu fyrir 25.
febrúar næstkomandi.
Hús til sölu
íbúðarhúsið Nesvegur 57 er til sölu ásamt 490
ferm eignarlóð. Húsið er ein hæð og kjallari.
Útborgun kr. 80—100 þús.
íbúðar- og verzlunarhúsið Vitastígur 10 er til sölu.
Útborgun og verð éftir samkomulagi.
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON,
hæstaréttarlögmaður
Austurstræti 1.
Atburðirnir í Barcelona og
sömuleiðis í Sevilla, þar sem
sporvögnum var hvolft og önn-
ur skemmdarverk unnin, gefa til
kynna, að hér sé ekki um að
ræða einbera óánægju eða ill-
vilja, heldur skipulögð samtök
afla, sem álíta, að nú sé þeirra
tími upp runninn. Eins og svo oft
áður í sögu Spánar og eins og svo
víða annars staðar í Evrópu nú-
tímans, eru það háskólarnir, sem
hýsa óróaöflin.
„ÞÚ ERT EINN AF OKKUR“
Tvisvar á tveimur mánuðum
hefur lögreglan í Barcelona orð-
ið fyrir grjótkasti frá stúdent-
um. f nóvember s.l. v.orð að Ioka
háskólanum eftir að komið hafði
til slagsmála milli lögreglu og
stúdenta í anddyri skólans. Mynd
af stofnanda Falangistaflokksins,
José Antonio Primo de Rivera,
var rifin niður af vegg háskólans
og tröðkuð i svaðið af stúdentun-
um. í hennar stað var sett upp ný
mynd við hátíðlega atlxöfn að við
stöddum helztu broddum flokks-
ins. Morguninn eftir hékk á girð-
ingunni umhverfis háskólann
mynd af Franco með þessari
undirskrift: „Þú ert einn af okk-
ur, því þú ferðast aldrei með
sporvögnum". Þessi skemmtilega
og illkvittnislega vísbending til
„sporvagnabannsins“ er einkenn-
andi fyrir hið hnitmiðaða háð og
skörpu kímni, sem Spánverjar
beita, þegar þeir reyna að gefa
pólitxskri óánægju sinni útrás.
En ekki alls fyrir löngu hefði
enginn þorað að setja slíkt plagg
upp á vegg, heldur hefði skrýtlan
verið sögð í hálfum hljóðum
meðal náinna vina.
STÚDENTAR HERÐA
ANDRÓÐUR
Andstæðingar stjórnarinnar
eru orðnir opinskáari. Útlending-
um kemur það svo fyrir sjónir,
að menn séu farnir að vanmeta
þau tæki til valdbeitingar, sem
Franco hefur til umráða. Enda
þótt ástandið í landinu sé nú
verra en nokkru sinni fyrr í 20
Skrifstofuherbergi
í miðbænum til leigu
Er um 30 ferm. að stærð.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: Miðbær —2017.
Skagfirðingar í Reykjavík og nágrenni:
ÞORRABLÓT
heldur Skagfirðingafélagið í Reykjavík í kvöld klukkan 7,30 í Breiðfinðingabúð.
— Góður íslenzkur matur verður á borðum.
SKEMMTIATRIÐI:
Söngur: Sigurður Ólafsson
Gamanþættir: Guðmundur Ágústsson
Fjölmennið og mætið stundvislega. —
D a n s
Aðgöngumiðar verða seldir í Verzl. J.Þorláksson & Norðmann, Bankastræti og
Verzl. Mælifell, Austurstræti 4 og eftir kl. 2 i dag í Breiðfirðingabúð.
&
■ . . - . • '
:fn- . £fi>: r- :•>»»’ *i. ■ •*!»'•;: ;Í4Íí.nV . . *, * • .•-fr^stjír*. -f?*,. *•
_
BOOKS
Aðalumboðsmenn á Islandi:
3nffDjonwonsscm*\i
THE ENGUSH B00KSH0Í>
Hafnarstreeti 9, Reykjavik. Sími 1936. Símnefni: Books.
Nýkomið stórt úrval af ódýrum amerískum bókum frá POCKET BOOKS Inc.: Pocket
Books, Cardinal Editions, Pocket Library og Permabooks. Verð kr. 6.60, 9.25 og 13.20
600—700 titlar sígildar bækur, bandbækur, skáldrit og reyfarar. Hver maður getur
fengið bók við sitt hæfi. Sendum ókeypis prentaða lista yfir bækurnar. Lítið í glugg-
ana í Hafnarstræti 9. Komið inn og gerið góð kaup. Aðalumboðsmenn á íslandi:
Snsrbjömlíómson&Cb.h.f
THE ENGLISH BOOKSHOP
v