Morgunblaðið - 08.03.1957, Qupperneq 12
MORCVNBLAÐIÐ
Fostudagur 8. marz 1957
12
GULA
herhergiS
eftii MARY ROBERTS RINEHART
Framhaldssagan 70
— Augun í þér ættu að vera
eins góð og þau eru falleg. Við
skulum nú sjá til, hvað þú getur
fundið. Hugsum okkur, að þú
vildir fela slatta af niðursuðu-
dósum einhvers staðar. Hvernig
myndirðu fara að því?
— Fela þær? Þú átt við að
grafa þær niður?
— Þess þyrfti varla, eins og
undirskógurinn er hér. En náttúr-
lega gæti blikað á þær, svo að
betra væri að breiða að minnsta
kosti yfir þær Við skulum leita.
— Biddu andartak, sagði hún,
um leið og hún steig út úr bíln-
um. — Áttu við, að einhver hafi
hafzt hérna við?
— Hugsanlegt er það. Það er
það, sem við þurfum að komast
eftir.
Hann þurfti ekki að útskýra
þetta frekar og það var Carol
sjálf, sem fann dósirnar, kyrfi-
lega faldar undir gömlum kassa,
hjá einu útihúsinu. Hún horfði nú
á þær, og Dane stóð við hlið henn-
ar.
— Hvað þýðir þetta? spurði
hún.
— Það getur hjálpað til þess
að sann- sakleysi Gregs, sagði
hann. — En taktu samt ekki of
mikið mark á því. Margt þarf að
gera, en þetta er fyrsta alvarlega
sporið í áttina. Og þú hefur stig-
ið það.
Þegar þau komu aftur upp í
bílinn, var andlit hans svo al-
varlegt og hugsandi, að henni
fannst hann alveg hafa gleymt
því, að hún væri þarna.
— Ég ætla að tala við Floyd,
sagði hann. Ég skil þig eftir á
brautinn. Og segðu engum frá
því, sem við fundum. Engum,
mundu það! Það gæti verið hættu
legt.
Hann ók síðan hratt til þorps-
ins og sá á eítir Richurdson of-
ursta inn til Floyds. Þegar hann
sjálfur kom þar inn, sat Floyd
í venjulega sætinu sínu og Mason
ruggaði sér á stól sínum úti í
UTVARPIÐ
Föstudagur 8. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.30 Framburðarkennsia í
frönsku. 18. fO Létt lög. 19.10
Þingfréttir. 20.30 Daglegt mál
(Arnór Sigurjónsson ritstjóri).
20.35 Kvöldvaka: a) Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur talar um
veðrið í febrúar o. fl. b) Laugar-
vatnskórinn syngur; Þórður Krist
leifsson stjórnar (plötur). c)
Hallgrímur Jónasson kennari flyt-
ur frásögu og stökur: Á fjöllum.
d) Kjartan Bergmann skjala-
vörður flytur frásöguþátt af
Fjalla-Bensa. 22.10 Passíusálmur
(17). 22.20 Upplestur: Hugrún
les frumort kvæði. 22.30 Tónleik-
ar: Björn R. Einarsson kynnir
djazzlög. 23.10 Dagskrárlok.
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir). 16,30 Endurtek-
ið efni. 18,00 Tómstundaþáttur
barna og unglinga (Jón Pálsson).
18,30 Útvarpssaga bamanna:
„Steini í Ásdal“ eftir Jón Bjöms-
son; II. (Kristján Gunnarsson
yfirkennari). 18,55 Tónleikar
(plötur). 20,20 Leikrit: „Höfuðs-
maðurinn frá Köpenick" eftir Carl
Zuckmeyer, í þýðingu Bjama
Benediktssonar frá Hofteigi. —
Leikstjóri: Indriði Waage. 22,10
Passíusálmur (18). 22,20 Danslög
(plötur). 24,00 Dagskrárlok.
horni. Hvorugur stóð upp, og of-
urstinn stóð uppréttur við borðið.
Enginn tók eftir Dane.
— Jæja, ofursti, sagði Floyd,
— hvað get ég gert fyrir yður?
— Ég hef nokkuð að segja yð-
ur, sagði ofurstinn og stóð kyrr,
með háttinn í hendinni en hvítc
hárið flaksaðist fyrir strokunni,
sem stóð inn um gluggann. — Ég
vona, að það geti bjargað Spencer
höfuðsmanni frá sakamálshöfðun
í næstu viku. Hann er saklaus,
en svona nokkuð loðir við menn.
Lögreglustjórinn leit snöggvast
á Dane en heilsaði honum ekki.
— Það kalla ég vel gert, ef
þér getið bjargað Spencer, sagði
hann kæruleysislega. — Við höf-
um nóg í höndunum til þess að á-
kæra hann bæði tvisvar og
þrisvar. Hann var giftur þessari
Barbour-stelpu og svo trúlofaður
þessari rauðhærðu — hún er hér,
og næg ástæða til morðs, hvenær
sem er — og hann hefur enga fjar
verusönnun fyrir þessa nótt. Og
ég held, að við getum sannað, að
hann hafi veri* hér þá. Hvað vilj-
ið þér svo hafa það meira?
Ofurstinn settist niður og setti
hattinn kyrfilega á hné sér.
— Ég get sannað, að hann hafi
ekki skotið á systur sína, sagði
hann.
— Hvað kemur það málinu við?
Hann hefur aldrei verið sakaður
um það.
Ofurstinn roðnaði. — Þér hald-
ið, að hér í nágrenninu séu fleiri
en einn morðingi? Það er eins og
hver önnur vitleysa, Floyd.
— Hvers vegna meira en einn?
— Ég er ekki einn þeirrar trú-
ar, að Gregory hafi engan glæp
framið, sagði hann dræmt. —
Kannske hefði ég átt að tala fyrr,
en atburðirnir hafa bara skeð svo
ört, En bæði er það, að frú Ward
hefur fengið slag og Ward gamli
gengur með skammbyssu í vasan-
um, jafnvel í gærkveldi; þá sá ég
hana greinilega í vasanum í sloppn
um hans. .. .
Floyd varð hissa á svipinn. —
Ekki eruð þér þá að bera það upp
á Ward gamla, að hann skjóti á
fólk?
— Vissulega ekki. Maðurinn,
sem skaut á Elinor var hærri vexti
en Ward.
— Nú, hvert í veinandi! Eruð
þér að halda því fram, að þér haf-
ið séð hann?
— Einmitt. Víst sá ég hann, en
bara ekki nógu nærri til þess að
þekkja hann.
Floyd gat ekkert sagt fyrir undr
un og kjálkinn á Mason seig veru-
lega. Hvorugur tók eftir Dane, né
heldur tók fram í fyrir ofurstan-
um.
Honum sagðist svo frá, að kvöld
ið, sem skotið var á Elinor, hefði
hann, illu heilli, drukkið kaffi eft-
ir kvöldmat, með þeim afleiðing-
um, að hann gat ekki sofið. Hann
hafði farið niður klukkan um eitt,
að ná sér í eitthvað að lesa, og stóð
við borð í miðri stofunni, er hann
sá andlit á glugganum. Það var
húðarrigning. Rúðan var blaut og
hann sá andlitið ekki nema snöggv
ast, en það var samt ekki um að
villast.
Hann slökkti ljósið samstundis
og fór út. Þar var enginn, en hann
heyrði einhvern hlaupa. Hann gat
séð, að það var karlmaðu,, frekar
hávaxinn og í dökkum frakka eða
regnkápu, en meira gat hann ekki
séð.
—- En undanfarið hafði svo
margt grunsamlegt gerzt, sagði
ofurstinn og leit nú jafnframt á
Dane, — að mér fannst ráðlegast
að elta manninn. Hann hljóp upp
götuna milli Crestview og Ward-
hússins. Ég reyndi að draga á
hann, til þess að sjá, hver hann
væri, en ég var í inniskóm og er
auk þess ekki ungur lengur. Og
þá heyrði ég skotið.
— Hvers vegna hafið þér ekki
tilkynnt þetta fyrr? spurði Floyd
reiðilega.
— Ég væri ekki kominn enn,
svaraði ofurstinn, ef gömul og góð
vinkona mín hefði ekki verið að
deyja, rétt áðan. Frú Ward dó
núna fyrir einni klukkustund.
Hana getur þetta ekki sakað héð-
an af.
— Hvað eigið þér við með því?
Ofurstinn dró andann ujúpt.
Dane tók eftir því, að yfirlitur
hans var veikindalegur.
— Maðurinn hljóp inn til
Wards, sagði hann og þagnaði síð-
an. Eftir andartaksþögn sagði
Floyd:
— Og urðuð þér einskis frekar
vísari. Athuguðuð þér þetta ekki
nánar?
Ofurstinn leit á hann dapur-
lega. — Ég fann Elinor Hilliard,
sagði hann, — og dró hana upp í
brekkuna, svo að hún yrði ekki
undir bíl, sem kynni að verða
þarna á ferðinni. Hún lá á sjálf-
um stígnum. Síðan hljóp ég heim
til mín og hringdi í lækninn. Sím-
inn hans var á tali og þá ætlaði
ég að ná í spítalann, þegar ég
heyrði mannaferðir og mannamál
og vissi þannig, að hún væri fund
in. Svo að ég gerði ekki annað en
bíða. Hefði hún beðið bana af
þessu, hefði ég auðvitað ekki þag-
að.
Floyd horfði gaumgæfilega á
á gamla manninn, og augnaráðið
var hart og tortryggnislegt.
— Og hvers vegna segið þér þá
frá því nú? spurði hann.
— Vegna þess, að þetta var
ekki Gregory Spencer. Ég hef
þekkt Greg alla hans ævi, og þessi
maður var ekki eins hár og hann.
Kvenfólk
óskast í frystihúsvinnu
Frost hf.
Hafnarfirði — sími 9165.
Ifefi opnað Bækningasiofu
í Vesturbæjarapóteki.
Viðtalstími kl. 15.00—16.00
og eftir samkomulagi.
Stofusími 80530 — Heimasími 7708.
JÓN ÞORSTEINSSON,
læknir.
Vinnuvélar til sölu
Áhaldahús bæjarins hefur til sölu eftirtaldar vélar:
Vélskófla, Barber-Greene (samdausa)
Jarðýta, Cleatrac
Jarðýta, Caterpillar mod. R 4
Jarðýta, Inlernational TD-9.
Vélarnar eru til sýnis í Áhaldahúsi bæjarins, Skúla-
túni 1 og veitir áhaldavörður frekari upplýsingar. Vél
arnar seljast í því ástandi, sem þær eru nú, en nokkuð
af varahlutum í sumar þeirra selzt sérstaklega. Tilboðum
í hverja vél fyrir sig sé skilað á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Skúlatúni 2, fyrir kl. 12 föstudaginn 15. marz
n.k. og verða þau opnuð þar kl. 13,30 sama dag, að við-
stöddum bjóðendum.
er blað barnanna. Hann kemur út einu sinni í mánuði,
16 siður með tilheyrandi kápu; en þar af, er tvöfalt sum-
arblað og þrefalt jólablað, eða árangurinn samtals 172
síður án auglýsinga. — Áskriftarverð er kr. 30.00.
Ritstjóri Ljósberans er Ástráður Sigursteindórsson,
skólastjóri.
Ljósberinn flytur í hverju blaði tvær myndasögur,
spennandi framhaldssögu, urmul af smásögum, ljóðum
ög frásögum, ásamt fjölda mynda.
Ljósberinn vill hafa holl og bætandi uppeldisáhrif á
börnin. Foreldrar og barnavinir, gefið börnunum Ljós-
berann!
Nýir áskrifendur fá stórt jólablað í kaupbæti og þeir,
sem senda áskriftargjaldið með pöntun, fá heilan eldri
árgang, hvorttveggja á meðan upplag endist.
Útfyllið meðfylgjandi áskriftalista og sendið hann strax
í dag.
Ég undirrit.... gerizt hér með áskrifandi að bama-
blaðinu Ljósberinn.
Nafn ............................................
Heimili ...........................................
Utanáskrift blaðsins er: Ljósberinn, Pósthólf 276, Rvik.
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd G''—
HERE, JOHNNX S
get youe CLornes
1) — Flýttu þér Jonni. Við
verðum tafarlaust að slcipta um
föt.
2) Nú er Jonni handfljótur I 3) Og aftur leggur hann af
og fer hann í þurr klæði Markús- stað, en nú eru hinir keppend-
urnir allir komnir langt fram
úr.