Morgunblaðið - 08.03.1957, Page 13
Föstudagur 8. marz 1957
Monnv^fír
13
Þorsfeinn Einarsson frá
Reykjum í Hrútafirði
ÞANN 20. desember sl., var
jarðsettur að Stað í Hrútafirði.
merkisbóndinn Þorsteinn Einars-
son, fyrrum bóndi að Reykjum.
Hann lézt í sjúkrahúsi í Reykja-
vík, eftir langa vanheilsu.
Þorsteinn var fæddur að Tann-
staðabakka í Hrútafirði 2. apríl
1882, sonur Einars Skúlasonar
gullsmiðs og bónda þar og konu
hans Guðrúnar Jónsdóttur, er þar
bjuggu lengi og gerðu garðinn
frægan. Hann ólst upp á Tann-
staðabakka í fjölmennum syst-
kinahópi, og naut í æsku betri
menntunar í heimahúsum en al-
mennt gerðist á þeim tíma. Um
aldamótin síðustu fer hann að
heiman og laerir Ijósmyndasmíði
á Akureyri, og mun á þeim ár-
um hafa notað tímann til að afla
sér meiri almennrar menntunar.
Ekki stundaði Þorsteinn lengi
ljósmyndagerð, því árið 1907,
byrjar hann búskap á Tannstaða
bakka á hálfri jörðinni, á móti
Jóni bróður sínum.
Árið 1910, 27. ágúst, giftist
Þorsteinn eftirlifandi konu sinni,
Guðrúnu Jónsdóttur, ættaðri úr
Skagafirði. Er Guðrún systir Sig-
urjóns forstjóra á Helgafelli, Sel-
tjarnarnesi, fyrrum bankastjóra
c alþingismanns á Isafirði, er
hún hin mesta rausnar kona og
var manni sínum styrk stoð á lífs-
leiðinni.
Vorið 1911 flytja þau hjón að
Reykjúm og bjuggu þar meðan
heilsa Þorsteins leyfði. Reykir
voru þá þjóðjörð, undanfarið
höfðu verið tíð ábúenda skipti
á jörðinni og henni því lítill sómi
sýndur. Varð hann á fyrstu ár-
um að endurbyggja bæinn, sem
kominn var að falli, nokkru síðar
fékk hann jörðina keypta og eftir
það beitti hann allri orku sinni til
að bæta hana og fegra. Árið 1926
byggði hann stórt og vandað íbúð
arhús, auk þess byggði hann nokk
uð af útihúsum, sléttaði tún og
stækkaði, var það að sjálfsögðu
miklu meiri erfiðleikum bundið
heldur en nú er, á tímum hinna
stórvirku véla.
Eins og þeir vita, sem kunn-
ugir eru hér í Hrútafirði, eru
Reykir í þjóðbraut, var þar því
oft gestkvæmt, enda gott þar
að koma, bæði hjónin samtaka
um að taka vel á móti gestum.
Minnist ég margra ánægjustunda
er ég náut á heimili þeirra.
Þau Guðrún og Þorsteinn áttu
Minningororð
fjögur börn, sem öll eru upp
komin og gift. Jóhanna, gift
Helga prófasti Konráðssyni, Sauð
árkróki Einar bóndi á Reykjum,
giftur Ósk Ágústsdóttur frá Gröf
á Vatnsnesi, Guðbjöx'g, gift Birni
Jóhannessyni, búsett í Reykjavík
og Sigurjón bifreiðarstjóri, giftur
Sigurbjörgu, systur konu Einars,
eru þau búsett í Reykjavík.
Þorsteinn var prýðilega greind
ur og mjög vel starfhæfur, enda
kom það sér vel, því fljótt tók
hann mikinn þátt í opinberum
málum fyrir sveit sína ©g sýslu.
Árið 1916 var hann kosinn í
hreppsnefnd Staðarhrepps og átti
þar sæti til 1937, nema árin 1922
—25, var hann jafnan oddviti
nefndarinnar, sýslunefndarmaður
nokkurt skeið, skattanefndar
maður frá 1921, þar til heilsa
hans bilaði. Öll störf, sem honum
voru falin, vann hann að með
alúð, og frágangur á öllu frá hans
hendi, var með hinni mestu prýði.
Þorsteinn var einn af hvata-
mönnum þess, að héraðsskólinn
var reistur að Reykjum. Átti
hann á þeim árum sæti í sýslu-
nefnd V.-Hún., var hann kjörinn
í fyrstu skólanefnd Reykjaskóla,
Hermálaráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnir, að orrustuflugvél
ar, sem eru við varðgæzlu í
Bandaríkjunum og Kanada hafi
nú verið búnar flugskeytum, sem
bera örlitlar kjarnorkukúlur.
Loftvarnarbyssur og fjarstýrð
loftvarnarskeyti í Bandaríkjun-
um og Kanada hafa einnig verið
búin þessum karnorkukúlum.
og átti þar sæti meðan kraftar
leyfðu, vann margt skólanum í
hag, m. a. gáfu þau hjón skól-
anum landspildu, sem fyrirhugað
var að nota til að rækta þar skóg,
þótt lítið hafi orðið um fram-
kvæmdir á því sviði ennþá.
Ég hef stiklað á stóru um líf
og störf vinar míns Þorsteins á
Reykjum, margt fleira hefði
mátt taka með. Aðalmarkmiðið
með línum þessum er að færa
honum þakkir fyrir margra ára
samstarf að ýmsum málum, og
þeim hjónum báðum þakka ég
órofatryggð veitta mér og mín-
um.
í guðs friði.
Ráðuneytið segir, að sprenging-
in sem verður af þessum kúlum
sé miklu minni en í fyrstu kjarn-
orkusprengjunum. Hún er þó það
sterk, að flugvélar á nokkur
hundruð metra svæði myndu
gereyðileggjast við sprenginguna.
Þar með er skapaður möguleiki
í fyrsta sinn til að stöðva fiug-
flota árásarfiugvéla.
Þ. B.
Skotfæri með alómkúlum -
nýjung í loftvömum
Washington, 20. febrúar — Einkaskeyti frá Reuter.
BANDARÍSKU landvarnirnar eru nú að taka í notkun skotfæri,
sem valda gerbreytingu í loftvörnum. Fram til þessa hefur
verið álitið að flugárásir verði aldrei með öllu hindraðar, alltaf
hljóti einhverjar árásarflugvélanna að sleppa í gegn. — Með hin-
um nýju tækjum, þykjast menn hins vegar sjá, að loftvarnir geti
orðið svo sterkar, að hægt sé að stöðva með öllu heila flota
árásarflugvéla.
Höfum enn lítilsháttar fyrirliggjsradi af eftirtöldum vörum
á hagstæðu verði:
Iðnfyrirfœki
í fullum gangi með góðum framtíðarmöguleikum, vantar
meðeigendur er gætu lagt fram fé til aukningar starf-
seminnar. Æskilegast væri, að viðkomendur væru r.iál-
arar, múrarar eða blikksmiðir.
Tilboð leggit inn á afgr. Mbl. merkt: „Framtíð —2245“.
Sokkahlífar
Höfum fengið hlífar til að sauma neðan í sokka, hentugt
sem inniskór, innan í hlífðarskótau og í ferðalög.
Tökum einnig upp í dag kvenkuldaskó, þýzkt sport-
model, þægilegir og fallegir vetrarskór í fjórum litum.
Skóverzl. Hector. Skóbuðin,
Laugavegi 11. Spítalastíg 10.
ftlýkomið —
UIMIKUM
ÞVOTTALÖGUR
Nýung — SparnaSur — Nýung
áfyllingar fyrirliggjandi. — Plastflaskan er fyllt þannig:
UNIKUM er látið í uppþvottarílátið á undan vatninu —
og þér fáið blöndu, sem jafnframt því að vera sótthreins-
andi, fer vel með hendurnar. Unikum er tilvalið í upp-
þvottavélar, svo og allan „fínþvott" og hreingerningar.
Sparið — Reynið undraefnið UNIKUM.
Það fæst í næstu verzlun.
Aðalumboð fyrir UNIKUM.
Ólafur Gislason & Co. hf.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 81370.
ftfýkomið
Þurrkaðir ávextir:
Rúsínur í lausu
Sveskjur 70/80
Sveskjur 40/50
Blandaðir ávextir
Þurrkuð epli í pk.
Niðursoðnir ávextir:
Ferskjur — Perur
Aprikósur — Ananas
Jarðarber — Plómur
Kirsuber — Stikilsber
Hindber.
Erl. sultur:
Hindberjasulta
Apríkósusulta
Crape'Fruit marmelaði
Eplamauk.
MAGNÚS K.TARAN,
Umboðs- og heildverzlun.
IJTSALA
Peysufatafrakkar u sto Aí tt ■ t-
s*Toalhuoii
C aberdinekvenkápur
Lækjartorgi.