Morgunblaðið - 08.03.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.03.1957, Qupperneq 16
Veðrið Norðan kaldi. Léttskýjað. ÍÞRÓTTIR Sjá blaðsíðu 11. 56. tbl. — Föstudagur 8. marz 1957. Systur flóttamanns hér varpað í fangabúðir FRÁ ÞVÍ var skýrt í útvarpsviðtali fyrir skömmu að einn hinna ungversku flóttamanna, sem hingað komu, hafi við orð að snúa aftur til Ungverjalands. Hann fékk nýlega bréf frá ættingjum sínum í Ungverjalandi, þar sem honum eru sögð þau harmatíðindi, að systir hans 16 ára hafi verið handtekin og varpað í fangelsi. — Flóttamað- urinn hefur sett þessa handtöku systur sinnar í samband við að hann hefur flúið land. Þegar hann fékk þetta bréf, fannst honum eigi annað koma til greina, en að hann hyrfi aftur til Ungverjalands og mætti þá einu gilda hvort hann yrði tek- inn af lífi eða settur í fanga- búðir Kadar-stjórnarinnar, því svo óbærileg þótti honum sú til- hugsun að systir hans væri órétti beitt og yrði að þola áþján hans vegna. RÁÐEÐ FRÁ ÞVÍ Landar hans hér hafa einum rómi bent honum á að það sé vægast sagt ósennilegt að hann muni nokkru sinni komast til heimkynna sinna, því hann muni verða handtekinn við landamær- in og óhugsandi að sá, sem í eitt skipti sé kominn inn fyrir fangelsismúra Kadar-stjórnar- innar, eigi þaðan afturkvæmt. Samkvæmt tilmælum landa sinna hefur maðurinn frestað að taka endanlega ákvörðun um hvað gera skuli. Ýtt úr vör að gömlum sið Alli upp i 40 fiskar í hlut VÍK í MÝRDAL, 7. marz. — Und anfarna daga hefir verið ágætt F I Ö L T E F L I Á morgun kl. 3 e.h. mun Ingi R. Jóhannsson, skákmeistari, tefla fjöltefli við Heimdellinga í Valhöll við Suðurgötu 39. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna þátttökiu sína í síma 7103. veður hér í Mýrdal, stillur, heið- ríkja og sólskin, en frost lítið á daginn. Fóru menn því að hugsa sér til hreyfings að komast á sjó. Töldu að von myndi vera góðs afla. í morgun réri einn bátur héð- an úr Vík. Afli var dágóður. Hlut ur mun vera 17 fiskar, eða rúm- ar 300 kr. að verðmæti. Frá Dyrhólaey réru tveir bát- ar í dag, en einn í gær. Afli var ágætur, 27—28 fiskar í hlut. Þá róa einnig þrír bátar frá Jökulsá. Munu þeir hafa hafið róðra fyrir þremur til fjórum dögum. Afli í dag var ágætur. Einn báturinn var með 40 fiska í hlut. Menn gera sér vonir um áframhald- andi róðra, ef þessar stillur hald- ast og fiskur virðist vera»mikill. Bátar þessir eru allir með handfæri og í sumum eingöngu árar. — J. Það er mikill munur á veðráttunni á Norður- og Suðurlandi. Þessar myndir tók fréttaritari Mbl. fyrir skömmu norður á Akur- eyri. Sú efri sýnir tvo Faxa á flugvellinum, snævi þöktum, og á hinni neðri ríða Akureyringar á gæðingum sínum fram Eyjafjarð- arbraut. —Ljósm. G. Ólafsson. Ströng rafmagnsskömmtun á Akranesi Akranesi, 7. marz. Aðfaranótt sl. miðvikudags var byrjað að skammta rafmagn hér á Akranesi og gildir það frá kl. eitt að nóttu til kl. sex að morgni. Rafmagn er þó óskammtað á bryggjunni og í fiskvinnslustöðv- unum. í gærkvöldi varð svo enn að herða skömmtunina, og var þá rafmagnið tekið af bænum kl. 9,30 og næstu nætur, þar til öðru vísi veður ákveðið, verð- ur rafmagnið tekið af frá kl. 1—6 hverja nótt. Vatnið í Skorradal þverr nú með hverjum deginum sem líð- ur, og hefir vatnsborðið lækkað um sentimetra á sólarhring síð- ustu daga. En af þéssum sök- um fær Andakílsvirkjunin afar lítið vatn, þannig að spara verð- ur rafmagnið svo mjög, eins og að ofan getur. — O. Það vildi engiíin drepa útileguketti SKIPULEGAR hernaðaraðgerðir gegn útileguköttum hér í bæn- um liggja nú niðri, að því er bezt verður séð, vegna þess að lögreglan álítur það vera í verka- hring borgarlæknisembættisins — og gagnkvæmt. Maður nokkur, sem heima á inni í Kleppsholti, ætlaði í gær að leita á náðir hins opinbera til þess að stemma stigu við ört- vaxandi fjölda útilegukatta þar í nágrenni við hann. Eru svo mikil brögð að þessu, að eftir að kyrrð er komin á á kvöldin má heyra kattarbreim langar leiðir er útilegukettir urra og veina hver í kapp við annan. Þessi maður hringdi til þriggja aðila og gat enginn tekið málið í sínar hendur. Honum var vísað til lögreglu- og borgarlæknis- embættisins, og til vörzlumanns bæjarins, er hefur eftirlit með útigangsfénaði og óskilafénaði. Manninum var að vísu gert það tilboð, að ef hann kæmi með kett- ina í poka, þá væri hægt að skjóta þá fyrir hann. Mbl. gerði í gær sams konar fyr irspurnir og maðurinn hjá lög- reglunni og borgarlæknisskrif- stofu, og varð útkoman hin sama að báðir vísuðu frá sér — og hvor til annars. Sýningum á Mennfaskóla- leiknum lýkur í kvöld í KVÖLD hafa Menntaskólanem- endur síðustu sýningu á leikriti sínu Kátlegar kvonbænir. Hefur þessi Menntaskólaleikur hlotið hinar beztu undirtektir hér í bænum og aðsókn verið góð. Metaregn á afmælisméti Á AFMÆLISSUNDMÓTI ÍR í Sundhöllinni í gærkvöldi náðist stórglæsilegur árangur í ýmsum greinum. Sett voru 4 ný ísl. met og þaff fimmta jafnaff og auk þess voru sett 3 drengjamet og 1 telpnamet jafnaff. Sem sagt: 7 ný met og 2 jöfnuff. Guffmundur Gíslason, ÍR, setti ný ísl. met í 50 m baksundi á 32,7 og 100 m baksundi á 1:11,6. Þetta eru jafnframt drengjamet. Helgi Sígurffsson setti ísl. met í 400 m skriffsundi á 4:49,5. Átti sjálfur þaff gamla sem var 4:55,3. Sveit ÍR: Guðm. Gíslason, Ólafur Guðmundsson og Gylfi Guffmundsson settu met í þrí- sundi 3:36,2. Ægir átti gamlla STELPURNAR: Viltu kaupa af okkur Rauffa kross merki, manni? Þorsteinn kaupmaður Sigurffsson í Bristol: Já, ef þiff viljiff vera kurteisar og lofa aff bengja ekki í mig öskupoka. — (Myndina tók G. Sverrisson á öskudagmn). 3:40,0 og gamla landssveitarmet- iff (Hörffur, Sig Þing. og Ari) var 3:36,6. Ágústa Þorsteinsdóttir jafnaffi met sitt í 100 m skriðsundi. Arangurslaus sáttafundur ÁRANGURSLAUS varff sátta- fundiur er stóð í alla fyrrinótt í sjómannadeilunni og í gærkvöldi kl. 9, boffaði sáttasemjari samn- inganefndirnar enn til fundar og stóff sá fundur yfir er blaðið fór í prentun. Veitt verður 2 millj. kr. til Vestmannaeyjaskips Vestmannaeyjar, 7. marz. VERULEGUR skriður er nú að koma á það mál, sem allir Vest- mannaeyingar bera mjög fyrir brjósti, en það er smiði skipa til þess að annast ferðir milli Reykjavíkur og Eyja, og til nærliggj- andi hafna hér á ströndinni. Það voru nokkrir áhugasamir menn, sem vöktu almennan áhuga á því meðal bæjarbúa, og síðan var málið lagt fyrir bæj- arstjórnina. Nefnd manna hefur unnið að framgangi málsins af dugnaði. Hefur málið nú verið tekið inn á fjárlögin, með því að af þeim verður varið til skipsins í tvö ár 2 milljónum króna. — Skipasmíðanefndin hefur aflað tilboða utanlands frá 1 smíði skipsins. Hafa nokkur tilboð bor- izt og eru þar á meðal hagstæð tilboð um verð og smíði skipsins að dómi nefndarmanna. Sennilegt er að bæjarstjórnin kjósi nú sérstaka nefnd manna til þess að fylgja málinu fram, en fyrir þeirri nefnd liggur mik- ið starf, sem í því er fólgið að láta smíða hagkvæmt skip til þessara flutninga. — Bj. Guðm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.