Morgunblaðið - 15.03.1957, Side 1
44. árgangur
62. tbl. — Föstudagur 15. marz 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hammarskjöld til
Kairo á morgun
New York og Kairo, 14. marz. — Frá NTB.
ITAMMARSKJÖLD framkvæmdastjóri S. Þ. hefur
4* ákveðið að fara flugleiðis til Kairo á laugardag
og mun þá brátt fara að draga til úrslita í deilunni
▼ið Nasser um yfirráð yfir Gaza-ræmunni og siglingar
um Súez-skurðinn.
Abdel Latif hershöfðingi, sem egypzka stjórnin hef-
ur skipað landsstjóra á hinu umdeilda svæði kom í
dag til borgarinnar Gaza og þykir koma hans þangað
ekki vænleg til sátta.
I dag var að öðru leyti fremur rólegt á Gaza-ræm-
unni. Ekki urðu þar neinar róstur, en s.l. nótt voru
unnin skemmdarverk á vélum norskra hersveita.
20 manns fórust í flug-
slysi við Manchester
London, 14. marz. — Einkaskeyti frá Reuter:
TUTTUGU MANNS fórust í flugslysi nálægt Manchester í Mið-
Englandi, þegar Viscount farþegaflugvél frá BEA-félaginu
rakst í lendingu á hús og gerónýttist. Er þetta fyrsta flugslysið,
•em verður á Viscount-flugvél, síðan þaar voru teknar í notkun
tyrir þremur árum.
MISSTI VAI.D Á VÉLINNI
Flugvél þessi var í áætlun-
arflugi milli Amsterdam og
Manchester. Var hún að lenda
á Ringway fiugvellinum við
hina síðarnefndu borg. Virð-
ist sem einhver mistök hafi
orðið hjá flugmanninum, því
að hann hitti á brautina,
missti sidan vald á fiugvél-
Efnilegt skáld fórsf
voveiflega
inni, sem rakst á nærstæð
hús. Talið er að flugmannin-
um hafi tekizt á siðustu
stundu að forðast árekstur á
skólahús sem þarna stendur
og fjöldi skólabarna hafðist
við í.
HÚS JÖFNUB VIB JÖRÐU
Þegar flugvélin rakst á hús-
ið varð þegar sprenging í henni.
Fórust allir sem með henni voru
15 farþegar og 5 manna áhöfn.
Óttazt er einnig um líf þriggja
manna sem í húsinu voru, en
byggingin jafnaðist næstum við
jörðu.
í brezkum frásögnum af slysinu
er tekið fram, að þetta sé fyrsta
meiri háttar slys sem verður á
Viscount flugvél. Það muni ekki
breyta því áliti manna, að þær
séu einhverjar beztu og örugg-
ustu flugvélar, sem til eru.
Verður kosningum
flýtt?
BONN, 14. marz. — Líkur benda
nú til að vestur-þýzka stjórnin
hafi í hyggju að flýta þingkosn-
ingunum. Að öllu óbreyttu ættu
þær að fara fram 15. september,
en háværar raddir hafa heyrzt
um það í Kristilega flokknum,
að hagkvæmara væri að hafa
kosningarnar 15. júlí. Mun stjórn
in taka ákvörðun um þetta á
næstunni. — NTB.
Danskir hermenn standa / ströngu
Þcgar hersveitir S.Þ. hófu innrcið sína í Gaza-ræmuna fyrir nokkrum dögum var þeim i fyrsta
ákaflega fagnað af hinum arabísku ibúum þessa svæðis. En ekki leið á löngu þar til öfgamenn ár
flokki Araba, studdir af Egyptum tóku að krefjast tafarlau.rar brottfarar herliðs S. Þ. Kom þá
brátt til óeirða á svæðinu. Var mynd þessi tekin í byrjun vikunnar, og sýnir danska hermenn m
gæzluliði S. Þ. reyna að stilla til friðar.
Glæsilegur sigur
/ýðræð/s-
sinna i Hreyfli
Atkvœðamunurinn í fyrra 31 atkv, en
102. Kommúnistar tapa fylgi
legan sigur í Hreyfli, sem lam
ber vitni.
Hina nýkjörnu stjórn Hreyfils
skipa: Bergsteinn Guðjónsson
form. Andrés Sverrisson vara-
nií form. Bergur Magnússon ritari.
Meðstjórnendur: Bjarni Bærings
son og Ármann Magnússon.
Bergsteinn
IGÆR voru kunn úrslit í atkvæðagreiðslu
til stjórnarkjörs í Bifreiðastjórafélaginu
Hreyfli. — Lýðræðissinnar í félaginu unnu
glæsilegan sigur, hlutu 279 atkvæði og hættu
við sig 71 atkv. frá því í fyrra. Kommúnistar
töpuðu hins vegar fylgi, hlutu 177 atkvæði.
Auðir seðlar voru 7 og 3 ógildir. Á kjörskrá
voru 516 og kusu 470.
1 fyrra munaði 31 atkvæði á
fylgi lýðræðissinna og kommún-
ista en nú munar 102 atkvæðum.
Við kosningu fulltrúa á Al-
þýðusambandsþing í haust fengu
vinstri menn alla fulltrúana
kjörna. Atkvæðatölur þá voru:
lýðræðissinnar 236 atkv. Yinstri
menn 258.
Þessi úrslit kosninganna í
Hreyfli eru mikið áfall fyrir
komúnista og sýna að gengi
þeirra í verkalýðshreyfingunni
hrakar nú með hverjum degin-
um. Sanna það gleggst ófarir
þeirra í Iðju og Trésmiðafélag-
inu nýlega og við það bætist að
lýðræðissinnar vinna svo glæsi-
Hernnðaréstond
í nllri Indónesín
DJAKARTA, 14. marz: —
Sokarno forseti Indónesíu
flutti ræðu í útvarp í dag,
þar sem hann lýsti yfir hern-
aðarástandi í öllu ríkinu. Yf-
irlýsing forsetans kemur i
kjölfar afsagnar Sastrokidjo-
jo.
Sokarno sagði að ákvörðun
um hernaðarástand hefði ver-
ið tekin, þar sem nú væri
um lif eða dauða lýðveldisins
að tefla. Stórfelld hætta væri
á að ríkið liðaðist í sundur.
— Reuter.
Kadar-stjórnin heilsar þjóðhó-
tiðinni með fjóldahandtökum
AMORGUN þann 15. marz er hinn forni þjóðhátíðardagur
Ungverja. Kadar-stjórnin hefur hannað öll fundahöld
og tilkynnt að lögreglan muni tafarlaust beita vopnum, ef
mannfjöldi safnast nokkurs staðar saman.
HINN ui.gi cinilegi úanski
rithöfundur Iljitsch Johannsen
lézt fyrlr nokkru með voveifleg-
um hætti, er hann var á ferðalagi
í Suður-Frakkalandi. Hann hafði
um nokkurt skeið dvalizt í borg
kmi Aix í Provence. Nýlega var
hann á ferð um þjóðveg skammt
irá borginni, á reiðhjóli. Vildi
það óhapp þá til, að hjól hans
valt um koll og hann féll niður
1 skurð, sem lá meðfram vegin-
ihh. Drukknaði hann í skurðin-
w.
Johannsen var aðeins 32 ára að
•ldri. Hann hafði gefið út fjórar
ljóðabækur og þótti eitt efnileg-
•sta ungt skáld Dana. Þá hafði
hann þýtt ljóðaflokka eftir
•pænska skáldið Garcia Lorca,
•g hlaut mikið lof fyrir.
Undanfari þjóðhátíðardagsins
er það, að þúsundir og jafnvel
tugþúsundir manna hafa verið
fangelsaðar og öruggar fregnir
herma, að Kistarcsa-fangabúðirn
ar séu orðnar yfirfullar. Fanga-
búðir þessar voru fyrst settar á
fót af Gestapo-mönnum á striðs
árunum. Síðan tóku kommúnist-
ar við rekstri þeirra en á sl. ári
voru þær lagðar niður. Kadar-
stjórnin tók þær þó enn í notkun
eftir uppreisnina.
í ölium borgum Ungverja-
lands hafa lögreglusveitir
Avóa farið æðandi um og
handtekið mikinn fjölda
fólks. Rússneskt herlið hefur
enn sézt i Búdapest og virðist
vera við öllu búið. En megin-
lið Rússa er í borginni Deb-
reehen í Austur-Ungverjal.
Sfeinkeri sökkf á
Ákranesi
AKRANESI, 14. marz: — í dag
var sökkt hér einu steinkeri
framan við bryggju sements-
verksmiðjunnar. Þrjú önunr
steinker biða fullgerð sem á að
sökkva framan við þessa sömu
bryggju. Búið var að byggja und-
irstöður undir þessi ker á síðasta
ári en þær hafa raskazt í vet-
ur, og undanfarinn hálfan mán-
uð hafa menn unnið ásamt Ein-
ari Eggertssyni kafara að þvi að
koma undirstöðum steinkeranna
í lag aftur. Þjóðverjamir munu
koma hingað til Akraness ein-
hvern tíma í næstu viku.