Morgunblaðið - 15.03.1957, Qupperneq 3
Fðstudagur 15. marz 1957
MORGUNBLAÐ1Ð
S
Liður í baráttu kommúnista fyrir
auknum áhrifum á útflutningsverzlun
þjóðarinnar
Úr ræðu Sigurðar Biarnasonar
# Efri deild i gær
ÞAÐ FRUMVARP sem hér ligg-ur fyrir nm sölu og útflutmlng
sjávarafurða er ekki fram borið til þess að bæta aðstöðu
framleiðenda sjávarafurða. Það er þvert á móti liður í baráttu
kommúnista fyrir auknum áhrifum á útflutningsverzlun þjóðar-
innar.
Þannig komst Sigurður Bjarnason þingmaður Norður-ísfirðinga
m. a. að orði í Efri deild Alþingis í gær er fyrrgreint frv. sjávar-
útvegsmálaráðherra kommúnista var þar til 1. umræðu.
Milli 60 og 70 kátir krakkar ofan
af Akranesi, komu í gærdag
hingað til Reykjavíkur með Akra
borg. Hér var um snögga ferð
til höfuðborgarinnar að ræða," í
fylgd með kennurum og skóla-
stjóra bamaskólans á Akranesi,
Njáli Guðmundssyni, sem var
fararstjóri. I gærdag skoðuðu
barnin söfn hér í bænum. Að
því loknu fóru þau vestur í Naust
og borðuðu þar góðan kvöldmat
með ís í ábæti. í gærkvöldi voru
þau í Þjóðleikhúsinu á sýningu
á Tehúsi ágústmánans. Þó dagur-
inn væri ánægjulegur þá var nú
samt ekki til setunnar boðið í
borginsii og þegar að lokinni leik-
sýningu hélt hinn káti hópur nið-
ur að höfn þar sem Akraborg
beið ferðbúin við bryggju. Heim-
ferðin átti að verða spennandi
líka, því það er ævintýralegt
að sigla út af Reykjavíkurhöfu
í góðu veðri, eftir að dimmt «r
orðið og borgin öll eitt ljóshaf.
Myndin er tekin þegar Akraborg
var að leggjast að hafnarbakkan-
um. — Ljósm. Mbl.
Hvernig á að úthluta fé
til atvinnujöfnunar ?
Nauðsynlegt að koma þeim
málum í fastara form
SJÁLFSTÆÐISMENN telja nauðsyn að málefnum þcim, sem varða
eflingu jafnvægis í byggð landsins, sé skipað í fastara form
en nú er, með sérstökum lögum. Þess vegna hafa þeir nú flutt
frumvarp um þetta efni og er það efnislega svipað frumvörpum,
sem hafa verið flutt um' sama efni á undanförnum tveira þing-
um, en ekki náð fram að ganga.
ÖLL SAMTÖK FRAMLEIÐ-
ENDA HAFA MÓTMÆLT FRV.
Sigurður Bjarnason kvað það
gleggsta prófsteinninn á eðli og
tilgang þessa frv., að öll samtök
framleiðenda sjávarafurða hefðu
mótmælt því og talið það tilræði
við hagsmuni sína.
Hann kvað þróunina hafa orð-
ið þá á undanförnum árum að
framleiðendur sjávarafurða
hefðu sjálfir af frjálsum vilja og
stundum með hvatningu frá rík-
isvaldinu myndað með sér sam-
tök til þess að annast útflutning
«g sölu afurða sinna.
Framleiðendur hefðu þvi
sjálfir ráðið langsamlega
mestu um skipulag útflutn-
ingsins. Þeir hefðu talið það
henta betur hagsmunum sín-
um að afurðasalan væri á
hendi fárra eða jafnvel eins
aðila heldur en að margir
kepptust um að bjóða fram
afurðir þeirra. Reynslan hefði
sýnt að þetta fyrirkomulag
hefði gefizt bezt.
8TEFNA SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA
Stefna Sjálfstæðismanna væri
•g þar til biðleikur var leikinn
41. a4 b6
42. b3 De3
43. Dc4
Friðrik lék biðleik.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Ákveðið var að þeir settust að
■kákinni í gærkvöldi (fimmtud.).
★ LÉK ÓNÁKVÆMT
Blaðið náði í Friðrik Ólafsson
•g spurði hann um álit hans á
akákinni og hann sagði m.a.:
„Ég held að byrjunin hafi
verið góð. Ég stóð ekki sem
verst að vigi, en þegar úr
greiddist eftir byrjunarleik-
sú, sagði Sigurður Bjarnason að
framleiðendurnir ættu sjálfir að
ráða sem mestu um skipulag af-
urðasölu sinnar. Þeir vissu bezt
sjálfir, hvað þeim hentaði og all-
ar tilraunir til þess að svipta sam
tök þeirra eðlilegum áhrifum í
afurðasölumálunum og fá þau
pólitískum ráðum og nefndum í
hendur væru stórhættulegar. En
einmitt að því væri stefnt með
frv. því, sem kommúnistar beittu
sér nú fyrir gegn mótmælum út-
vegsmanna og fiskútflytjenda um
land allt.
LÚÐVÍK DREGUR í LAND
Lúðvík Jósefsson sjávarútvegs-
málaráðherra, lagði frv. fyrir
Efri deild með allýtarlegri ræðu.
Hann kvað það ekki rétt að með
frv. þessu væri ætlunin að taka
öll völd af samtökum framleið-
enda. Að því væri hins vegar
stefnt að skapa meiri festu í
framkvæmd afurðasölumálanna
með auknum áhrifum ríkisvalds-
ins á stjórn þeirra.
Umræðunni um málið varð
ekki lokið og var það tekið út
af dagskrá.
var á þennan veg:
ina lék ég heldur ónákvæmt
og taflstaða Pilniks rýmkaðist
og varð rýmri en mín. Þetta
olli er leið undir biðleikinn
óþægindum fyrir mig á
kóngsvæng. En hann fór ekki
rétt i sakirnar. Hann sleppti
mér auðveldlega úr miklum
erfiðleikum sem yfir mér
vofðu. Ég er ekki frá þvi að
hann hefði þegar í gærkvöldi
getað unnið mig, ef hann
hefði leikið rétt.
En nú þegar biðleikurinn
hefur verið leikinn, þá á hann
að vísu einhverja vinnings-
möguleika, en ég held að það
geti orðið erfitt fyrir hann
að ná þeim vinningi.
★ GETUR ORÐIÐ LÖNG
— Ert þú orðinn þreyttur?
— Ég veit ekki hvað skal
segja. Þetta er nokkurt stapp
þegar teflt er á hverjum
degi og skákir verða svona lang-
ar eins og 2. skákin.
— Heldurðu að þessi verði
löng?
— Það er ekki gott að segja,
en svo getur farið að hún verði
ekki styttri
Á þessa leið komst framsögu-
maður minnihluta fjárhagsnefnd
ar Neðri deildar, Jóhann Haf-
stein, að orði við aðra umræðu
málsins á Alþingi í gær.
Pétur Pétursson hafði fram-
sögu meirihluta nefndarinnar, en
hann leggur til að frumvarpinu
verði vísað til ríkisstjórnarinnar
og byggir hann rök sín fyrir því
á að ríkisstjórnin vinni nú að
þessum málum, hafi skipað at-
vinnutækjanefnd, sem vinni að
skýrslusöfnum um þörf einstakra
byggðarlaga, einkum á Vqgtur-,
Austur- og Norðurlandi og vinni
að tillögum því til úrbóta, einn-
ig hafi verið samþykkt heimild
til handa ríkisstjórninni til
kaupa á 15 togurum og 6 minni
skipum í sama skyni.
Jóhann Hafstein kvað fram
hafa komið að ekki væri mikill
ágreiningur um efnishlið máls-
ins milli Sjálfstæðismanna og
málssvara stjórnarinnar, hins
vegar væri það framkvæmdin,
sem um væri deilt. Sagði hann
að ef Alþingi ætti að skipa mál-
um er varða efnahag landsmanna
með lögum, þá ætti það ekki
hvað sízt við um þennan þátt
þeirra mála. Jóhann benti á að á
undanförnum árum hefði Alþingi
veitt 5 milljónir kr. til atvinnu-
jöfnunar. Nú væri þetta hækk-
að með ákvæði núgildandi fjár-
laga upp í 15 millj. kr. og væri
það út af fyrir sig vel. Fyrrv.
ríkisstjórn hefði haft þann hátt
á um framkvæmd úthlutunar
þessa fjár að fela tillögugerð um
úthlutunina þremur ráðuneytis-
stjórum er siðan legðu þær fyrir
ríkisstjórnina. Hefðu þeir því
ráðið mestu um þetta mál.
Gerði hann nú fyrirspurn til
málssvara ríkisstjórnarinnar
hvernig fyrirhugað væri að
framkvæma úthlutun þess
f jár er ætlað væri til atvinnu-
jöfnunar á þessu ári.
Þá kvað Jóhann atvinnutækja-
nefnd hafa verið skipaða með
einhliða ákvörðun ríkisstjórnar-
innar. Og væri þetta stórbreyt-
ing frá því sem tíðkazt hefði. Gat
hann í þessu sambandi sambæri-
legra nefnda, sem hefðu verið
nýbyggingarráð og síðar fjár-
hagsráð, er bæði hefðu verið skip
uð eftir lögum frá Alþingi. í
þessu sambandi kvaðst hann
vilja fara þess á leit að stjórnin
1.
Búnaðarsamband Kr.
Kjalarnesþings ........ 17.300
— Borgarfjarðar ........ 17.100
— Snæf. og Hnappadalss. 13.000
— Dalamanna ............ 11.500
— Vestfjarða ........... 35.200
— Strandamanna ......... 11.000
— V.-Hún. ............... 9.500
— A.-Hún................ 10.200
— Skagafjarðarsýslu . .. 17.400
— Eyjafjarðar .......... 21.400
— S.-Þing............... 16.700
— N.-Þing............... 14.200
— Austurlands .......... 45.400
— A.-Skaftafellss. ...... 9.800
— Suðurlands ........... 50.300
kr. 300.000
2. Erindi Baldurs Baldvinsson-
ar varðandi fjallslcil.
Búnaðarþing telur nauðsynlegt,
að sett yerði ný löggjöf um notk-
um afrétta og fjalllenda, um upp
rekstrarrétt, fjallskil, ágang bú-
fjár og fleira. Leggur búnaðar-
þing til að landbúnaðarráðherra
skipi þriggja manna nefnd og
séu tveir þeirra tilnefndir af Bún
aðarfélagi fslands og einn án til-
nefningar, er semji frumvarp til
laga um þetta efni, er síðar verði
lagt fyrir búnaðarþing.
3. Erindi stjórnar Búnaðarfé-
lags íslands um iöggjöf varðandi
eyðibýli.
Búnaðarfélagið ályktar, að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands að
athuga hvort ekki sé ástæða til
að breyta ákvæðum ábúðarlaga
gæfi þinginu um það skýrslu hv«
margar nefndir hún hefði skipað,
eftir hvaða lögum og hvert væri
starfssvið þeirra og hver laun.
Kvaðst hann vita um milli 20 og
30 nefndir, sem stjórnin hefði
skipað frá því hún tók til starfa
í júlí og fram til áramóta.
Jóhann Hafstein kvað það ó-
eðlilegt að skipaðar væru nefnd
ir í þýðingarmestu málum þjóð-
félagsins pólitískt einhliða af
ríkisstjórninni, án allrar íhlutun-
ar Alþingis.
Magnús Jónsson kvað afstöðu
meirihluta nefndarinnar hafa
Framh. á bls. 15
varðandi skyldur eigenda eyði-
býla og greiða skatra vegna eigna
sinna til sveitasjóða, sýslusjóða,
fjallskilasjóða o. s. frv. Niður-
stöður þessara athugana verði
lagðar fyrir næsta Búnaðarþing.
4. Erindi Búnaðarsamband*
S.-Þingeyinga varðandi fram-
leiðslukostnað kjarnaáburðar.
Búnaðarþing fagnar þvi hver
skriður er kominn á vinnslu til-
búins áburðar innanlands, en þar
sem vinnslan tekur enn sem kom-
ið er eingöngu til framleiðslu
köfnunarefnisáburðar beinir Bún
aðarþing því til stjórnar B.f. að
vinna að þvi við ríkisstjórn og
Alþingi að hafizt verði sem fyrst
handa um aukningu á áburðar-
framleiðslunni, þannig að reist
verði fosfatverksmiðja. Þá verði
og kostað kapps um það að til
verksmiðjurekstrarins verði jafn
framt tiltækt rafmagn er nægi
til hagkvæms rekstrar Áburðar-
verksmiðj unnar.
5. Tillaga til þingsályktunar
varðandi frumvarp til búfjár-
ræktarlaga.
Búnaðarþing ályktar að skora
á Alþingi það, er nú situr, aS
samþyklrja frumvarp til laga um
búfjárrækt, sem nú liggur fyrir
Alþingi og samþykkt var á síð-
asta búnaðarþingi.
6. Ályktun viðvíkjandi tekju-
lið 5.
Búnaðarþing ákveður að hækka
ævifélagagjald Búnaðarfélags í»-
lands úr 120.00 kr. í 200.00 kr.
frá 1. apríl 1957.
Friðrik segir um 3. skákina:
Ég lék ónákvæmt
— en vinnings/eiðin
hjá Pilnik verður
torsóff
T BLAÐINU I gær birtust 40 leikir í 3. skák þeirra Pilniks og
■l Friðriks Ólafssonar, sem hófst í Sjómannaskólanum á mið-
▼ikudagskvöld. 40 leikum var lokið um kl. hálf eitt um nóttina,
•n þeir telfdu til kl. 1. Framhaldið frá því er blaðið fór í prentun
Ályktanir Búnaðarþings:
Fosfafverksmiðja verði sfofnuð
EFTIRFARANDI tillögur voru samþykktar á Búnaðarþingi. Til-
laga til skiptingar á styrk til búnaðarsambandanna samkv.
12. gjaldalið fjárhagsáætlunarinnar: