Morgunblaðið - 15.03.1957, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 15.03.1957, Qupperneq 9
Fðstudagur tff. marz 1957 MORCUNBLAfíin J Vestur-þýzkur ráðherra varar við byltingu BONK. — Jakob Kaiser, ráðherra sá sem fer með málefni alls Þýzkalands í stjórn Adenauers, hefur í útvarpsræðu til Austur- Þýzkalands skorað á landa sína þar að gera ekki sams konar byltingu og Ungverjar í nóvem- ber síðastliðnum. Ráðherrann sagði, að menn ættu eklci að leysa vandamál líð- a»di stundar með valdi — það getur leitt til nýrrar styrjaldar, sagði Kaiser. Þess vegna skora vestur-þýzkir stjórnmálamenn á landa sína í Austur-Þýzkalandi að forðast uppreisnir, bætti hann við. VÍN. — Frétiamenn segja, að [mre Nagy, forsætisráðherra Ungverjalands, og nánustu samstarfsmenn hans hafi ver- ið fluttir til bæjarins Sínaia, sem er um 110 km. fyrir suð- austan Búkarest í Rúmeníu. — I bæ þessum átíu fyrrum kon- ungar Rúmeníu sumarhallir sínar. Olia aftur til Miðjarðarhafsstrandar Þær ellefu milljónir smálesta Á MÁNUDAGINN var um kl. 21 byrjaði olían að renna í gegnum Írak-olíuleiðsluna við Kirkuk á leið til sýrlenzku hafnarinnar Banias við Miðjarðarhaf. Olíu- unni er dælt í gegnum leiðsluria og fer hún álíka hratt eins og fótgangandi maður, þannig að það var fyrst daginn eftir, sem hún var komin til Miðjarðarhafs strandarinnar eða á þriðjudag. — Fjarri góðu gamni DÖNSK blöð skýra frá því, að Sovétleiðtogarnir hafi ekki kom- ið I veizlu nokltra sem danska sendiráðið í Moskvu hélt nú fyrir skömmu. Vakti það talsverða at- hygli, enda hefur það ekki gerzt s.l. tvö ár, að Krúsjeff, Búlganin og Molotov hafi verið fjarri góðu gamni, þegar danskir hafa boðið þeim. — Segja blöðin, að þeir félagar vilji með fjarveru sinni sýna svart á hvítu andúð sína á Dönum og afstöðu þeirra til Sov- étríkjanna eftir blóðbaðið í Ung- verjalandi. Þar með er fyrsta af þremur oliu[ leiðslum milli Banias og Trípólí í Líbanon komin í notkun. Það var byrjað að gera við olíuleiðslurnar fyrir fáum dög- um síðan, eftir að landsstjórnin í Sýrlandi hafði leyft viðgerðir. Leiðslumar voru skemmdar þann 4. nóvember sl., en dælustöðin sem stóð í írak var ein eftir óskemmd. Ellefu milljónum smá- lesta af olíu er hægt að dæla í gegnum þessa einu leiðslu á ári með þeim krafti, sem nú er fyrir hendi, en það er um 44% af því, sem venjulega er hægt að dæla. Þegar Bretar og Frakkar hófu árásina á Egyptaland, voru dælustöðvarnar í Sýrlandi eyði- lagðar gagngert. Aðeins ein dælu stöð í írak var ósködduð, eins og áður er sagt og það er sú, sem nú hefir verið tekin í notkun. Þeir, sem fyrirskipuðu spreng- una á stöðvunum í Sýrlandi var egypzka herstjórnin í Kairó, sem um leið er yfirstjórn sameigin- legra herja Egyptalands, Sýr lands og Jórdaníu. Sprengingarnar voru svo gagn gerar að meira að segja grunnur stöðvanna var sprengdur í loft upp. Stöðvarnar verða svo byggð ar upp smátt og smátt og búizt er við að það taki 8—12 mánuði að koma þeim öllum í lag. Eins og nú stendur er olíunni dælt í leiðslum, sem liggja í kringum hinar skemmdu olíudælustöðvar. Leiðslan til Banias getur flutt um 17 milljónir smálesta af olíu á ári þegar allt er í lagi, en hinar tvær leiðslurnar sem liggja til Trípólí, geta flutt 8 milljónir smá lesta af olíu á ári. Þessar leiðslur er þá fyrst hægt að nota að fullu, þegar allar dælustöðvarnar eru aftur komnar í samt lag. Frá Haditha í írak liggur olíu- leiðsla til Haifa í ísrael. Eftir þessari leiðslu ætti einnig að vera hægt að dæla olíu frá Kirkuk til Miðjarðarhafsins, en hún ligg ur yfir land Jórdaníu og hefur aldrei verið notuð að fullu. — Leiðslan var fyrir mörgum mán- uðum sprengd í sundur í Jór- daníu. af olíu á ári, sem nú er hægt að dæla, svarar til 220 þúsund olíu- tunna á dag, en það ar einmitt það magn, sem Evrópu hefur skort á í olíu síðan Súezskurð- inum var lokað. Ásamt með amer ískum olíuflutningum frá Vene zúela og öðrum höfnum þar vestra, geta evrópískar olíustöðv ar nú komizt í fullan gang eins og áður en Súezdeilan kom til. Sýrlendingar settu sömu skil- yrði fyrir því, að leiðslurnar væru teknar í notkun eins og Eg- yptar settu fyrir því, að opnaður yrði Súezskurðurinn og samkomu lag var gert milli sýrlenzku stjórnarinnar og Brezk-íranska- olíufélagsins á þeirri stundu, sem ísrael lofaði að flytja herlið sitt burt frá Gazaræmunni og frá Akabaflóa. STAKSTEIMAR Hver heimtar ' nú hermang“? Orðaskiptin milii stjórnarblaff- anna, „Tímans1* og „Þjóðviljans" harðna nú með degi hverjum. — Tíminn telur „eðlilegt og sjálf- sagt“ að varnarliðið haldi uppi framkvæmdum, er „miði að við- haldi vallarins og aðstöðunnar“. Minnist málgagn hins mikla veiðimanns nú aldrei á það, aff „hetra sé að vanta hrauð“, en að lialdið sé uppi hernaðarfram- kvæmdum í landinu. En ástæða væri til þess aff spyrja Framsókn: Hver er það nú, sem krefst „hermangs"? Er það e. t. v. SÍS og gróðafyrirtæki þess, sem heimta hernaðarfram- kvæmdir að nýju? „Þjóðviljinn" skammar Fram- sókn ákaflega fyrir að hún „hygg ist tryggja hernámið með efna- hagsfjötrum“. Kemst blaðið enn fremur að orði á þessa leið: Stofnað verður næsta sumar lands- samband húsa- og íbúðaeigenda Fasfeignaeigendafél. Reykjavíkur vill fá húsatryggingar í sínar hendur Athugun á sameiginlegu vinnuhæli fyrir öryrkja Styrkfarfélag lamaSra kýs frekar að gera menn færa til að sjá sjálfum sér farborSa ÞRÁTT FYRIR mótmæli Styrktarfélags lamaðra ©g fatlaðra samþykkti Sameinað Alþingi í gær þingsályktunartillögu frá Pétri Péturssyni uppbótarþingmanni um athugun á að koma á fót og reka vinnuhæli. Tillagan var upphaflega á þessa leið: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjómina að beita sér fyr- ir því, aff SÍBS, styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Blindra- félagið og Blindravinafélagið taki höndum saman um að koma á fót og reka vinnuliæli og bæta á annan hátt aðstöðu öryrkja þeirra, sem þessi félög vinna fyrir. Tillaga þessi var send umrædd «m félögum til umsagnar og ▼oru SÍBS og Blindrafélagið með mælt henni, enda virðist sem SÍ BS hafi beitt sér fyrir slíku fyrir nokkrum árum. EITT FÉLAGIÐ MÓTFALLIÐ Stjórn Styrktarfélags lamaðra eg fatlaðra var hinsvegar mót- fallin tillögunni og segir í um- aögn hennar: „Að s-vo komnu máli viljum ▼ér ekki taka neina afstöðu til þeirrar tillögu að stofnsetja og •tarfrækja vinnuhæli fyrir ör- yrkja. Markmið félags vors er endurhæfing (rehabitilation) hinna fötluðu, þ. e. að gera þá aftur hæfa til þess sjálfa, að sjá sér farborða í lífinu og lifa óháðu, hamingjusömu lífi. VILJA EKKI HÆLI Ennfremur segir í umsögn Styrktarfélagsins: „Hugmyndin um að taka ör- yrkjana, safna þeim saman á hæli til geymslu, er jafn heimskuleg og hún er ómann- úðleg. Meðan ekki er allt gert, sem hægt er tii þess að endur- hæfa hina lömuðu og fötluðu og mörg vandamál í því sam- bandi óleyst, er ekki rétt að hyrja á stofnun vinnuhælis". TILLAGAN SAMÞYKKT Þrátt fyrir þetta var allsherj- arnefnd Sam. þings sammála um að mæla með samþykkt til- lögunnar, þó með þeirri megin breytingu að í stað þess að ríkis- stjórnin skuli beita sér fyrir þess um samtökum, þá skuli hún „at- huga möguleika" á þeim. FASTEIGNAEIGENDAFELAG Reykjavíkur hefur hafið mikla sókn í þá átt að sameina húsa- og íbúðaeigendur innan vébanda landssambands, sem stjórn félagsins hyggst hafa for- göngu um að stofnað verði næsta sumar. Fasteignaeigendafél. Reykja- víkur hefur á prjónunum áform um að gera félagið áhrifaríkt sem hagsmunasamtök með því að fá sem flesta íbúða- og húseig- endur til að taka þátt í félags- starfinu og einn liðurinn í þessu er að félagið taki í sínar hendur húsatryggingar í bænum. Hér í Reykjavík eru nú alls skráðar 11000 húseignir. KYNDIN G ARKOSTNAÐUR Stjórn Fasteignaeigendafélags- ins og framkvæmdastjóri þess, Páll S. Pálsson boðuðu blaðam. á fund sinn í fyrradag til þess að skýra þar frá því, að félagið hafi nú þegar fengið miklu áorkað varðandi upplýsingar um kynd- ingarkostnað húsa. Upplýsa olíu- félögin öll að miðað við olíuverð í byrjun þessa mánaðar, sé kynd- ingarkostnaður 100 ferm. íbúðar 290—360 kr. á mánuði. Þá segjast olíufélögin munu láta tæknilega aðstoð í sambandi við olíukynd ingartæki ókeypis í té. Varðandi brunatryggingar húsa hér í bæn- um upplýsti stjórn Fasteignaeig- endafélagsins eftirfarandi. BRUNATRYGGINGAR Með lögum frá 1954 um bruna tryggingar húsa í Reykjavík var F. R. veitt nokkur aðild í sam- bandi við tryggingarnar. Þannig má eigi taka tryggingartiiboði, nema að fengnu áliti félagsins. Tekjuafgangi tirygginganna skal m.a. varið til þess að lækka iðgjaldagreiðslur, og stjórn F. R. er heimilað að tilnefna fulltrúa til þess að fylgjast með ráðstöf- un þessa fjár. Fyrir nokkru til- kynnti stjórn F. R. bæjarstjórn Reykjavíkur, að hún hefði faiið framkvæmdastjóra félagsins, Páli S. Pálssyni, hrl., að hafa þetta eftirlit með höndum. Hefur Páll þegar snúið sér bréflega til Brunatrygginga Reykjavíkur- bæjar með fyrirspurn um sjóð- myndun af tekjuafgangi, hverju sjóðeignir nemi, hverjar árlegar tekjur sjóðsins hafi verið, hve miklu hafi verið varið úr sjóðn- um og hvernig fé sjóðsins sé á- vaxtað. Fasteignaeigendafélag Reykja- víkur, sagði formaður félagsins Jón Sigtryggsson, heldur fast við það baráttúmál sitt og ótvíræða réttlætismál, að húsatryggingam ar í Reykjavík komist undir yfir- stjórn félagsins, þ.e.a.s. að félag- ið mun þegar aðstæður leyfa stofna sjálft til húsatrygginga. FLEIRI FÉLÖG Þá uppl. Páll S. Pálsson, fram- kvæmdastjóri, að borizt hefðu til mæli um það frá kauptúnum og kaupstöðum úti á landi, að Fast- eignaeigendafél. veitti aðstoð við félagsstofnun og í ráði væri að næsta sumar væri hægt að sam- eina þessi félög öll í landssam- band húseigenda, en slík sam- bönd eru starfandi á hinum Norð urlöndunum og vinna þár merki legt starf í margháttuðum hagsmunamálum húseigenda. Kvað Páll nú mikla sókn vera hafna í þá átt að fá sem allra flesta húsa- og íbúðaeigendur hér í bænum til þess að ganga í þetta hagsmunafélag þeirra og efla það. í stjórn félagsins eiga sæti auk Jóns Sigtryggssonar Alfreð Guð- mundsson, Jón Guðmundsson, Ó1 afur Jóhannesson og Jón G. Jóns son. Skrifstofa félagsins er í Þingholtsstræti 27 og er opin frá kL 1—4. Stjórnarsáttmálinn þverbrotinn“ „Ef Bandaríkjunum verffa heimilaðar stórframkvæmdir á Suðurnesjium, er verið að svíkja samþykkt Alþingis frá 28. marz í fyrra.......Það er verið aff þverbrjóta stjórnarsáttmálann. Þá er ekki verið að fresta óbreyttu ástandi, heldur er stigið stórt skref aftur á bak og her- námið endurlífgaff í sinni verstu og víðtækustu mynd, er íhald, Framsókn og hægrikratar flat- möguðu fyrir hinu erlenda valdi". Hótanir sem ekkert Iiggur á bak við Komrmúnistablaðið lýsti því yf- ir fyrir nokkrum dögum, að ef fyrirheit stjórnarsamningsins um brottför hersins verði svikið, eins og Framsókn og kratar hafi vafa laust í hyggju, þá muni þaff „hafa víðtækar og örlagaríkar afleið- ingar“. Þarna er greinilega veriff aff liefja svipuna á loft yfir sam- starfsflokkunum. En liggur nokk ur alvara á bak viff þessar hótan- ir kommúnista? Fátt bendir til þess. Kommún- istar bera fulla ábyrgff á því, aff samiff var um áframhaldandi dvöl varnarliðsins á sl. hausti.Ráff herrar þeirra sátu í stólum sínura eftir þaff eins og ekkert hefðl í skorizt. Og auffvitað munu þeir sitja áfram eftir að þær hernaff- arframkvæmdir hefjast, sem Tim inn hefur verið að boffa með vor- inu. Felldu skattfríðindi sjómanna Einn af þingmönnum Sjálfstæff isflokksins, Björn Ólafsson, fluttí á Alþingi fyrir skömmu tillögu um að skattfrádráttur sjómanna skyldi nema 30% at álögðunt tekjuskatti af tekjum fyrir störf á fiskiskipum, þegar menn hafa verið lögskráðir í fjóra mánuffi eða lengur. Þessa tillögu felldi vinstra liðið og sýndi þar meff hug sinn til sjómannastéttarinu- ar. Verkfall á fiórðu viku Farmannaverkfallið hefur ná staðið á fjórðu viku. Margvía- legir crfiðleikar hafa skapazt af. því út um land. Víffa er tekiff að skorta nauðsynlegustu vörur. Þannig er „vinnufriðMrinn", sem vinstri stjórnin tryggir ís- lendingum. Samt halda leiðtog- ar hennar áfram að hæla sér af honum. Þjóðin sér hinsvegar ekki þennan „friff“. Hvert verkfallið hefur rekið annað, i lofti, á sjó og í landi. Skárri er þaff nú „Fróffafriffur- inn“, sem vinstri stjórnin skapaa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.