Morgunblaðið - 15.03.1957, Síða 12
IS
MORCUNRLAÐIB
Föstudagur 15. roarz 1957
GULA
herberefið
eftir MARY ROBERTS RINEHART
Framhaldssagan 75
leyfi til að sjá skrá spítalans.
Hann fékk allar skrár fyrir síð-
ustu tvö ár. Þar fann hann nafn
Marguerite Barbour.
Hann fór aftur til gistihúss
síns. Hitinn var gífurlegur og
hann fór í kalt bað áður en hann
ták til við dagblÖðin. Þar fann
bann, með stórum fyrirsögnum,
fregnina um sakamáishöfðunina
gegn Greg.
Hann hafði fengið fyrrverandi
heimilisfang Marguerite hjá frú
Gates, áður en þau skildu. Þang-
að fór hann nú upp á litla von en
mikla óvon, aðeins til þess að haf-
ast eitthvað að. Þetta var lítið
matsöluhús, þar sem lítil og feit-
lagin kona var til forstöðu.
— Já, húi. bjó sér, sagði konan.
— Ég hef sagt lögreglunni allt,
eem ég vissi. Og það er til einskis
að fara upp í heibergið hennar,
því að lögieglan er búin að leita
þar, og þar býr núna kennslu-
kona.
— Ég þarf ekkert að sjá her-
bergið, sagði hann. Ég vil aðeins
tala við yður um Marguerite
Baibour sjálfa.
Hún leiddi hann inn í snyrti-
lega dagstofu og settist þar and-
•pænis honum.
— Ég skal segja yður það sem
ég veit. Ég kunni aldrei vel við
hana. Þetta er heiðarlegt hús og
hún .... ja, ég hafði alltaf mínar
grunsemdir um hana. En þegar
hún kom, var hún komin langt á
leið. Það var mikil húsnæðisekla
og ég gat ekki -ekið hana út á göt-
una aftur. Að minnsta kosti borg-
aði hún húsaleiguna skilvíslega og
það gera ekki allir.
UTVARPIÐ
Föstiniagur 15. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Lesin dagskrá næstu viku.
18,00 Leggjum land undir fót: —
Börnin feta í spor frægra land-
könnuða (Leiðsögumaður: Þor-
vaiður örnólfsson kennari). 18,30
Framburðarkennsla í frönsku. —
18.50 Létt lög. — 19,10 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt
mál (Arnór Sigurjónsson ritstj.).
20,35 Kvöldvaka: a) Jónas Árna-
■on rithöfundur flytur frásögu: í
áföngum út á Tangaflak; fyrsti
hluti. b) Norðlenzkir kórar
•yngja (plötur). c) Vigdís Krist-
jánsdóttir talar um myndvefnað.
d) Raddir að vestan: Finnbogi
Guðmundsson ræðir við Vestur-
Islendinga. 22,10 Passíusálmur
(23). 22,20 Upplestur: Margrét
Jónsdóttir ská’dkona les frumort
kvæði. 22,30 „Harmonikan". —
Umsjónarmaður þáttarins: Karl
Jónatansson. 23,10 Dagskrárlok.
Lawgardagur 16. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.50 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir). 16,30 Veður-
fregnir. — Endurtekið efni. 18,00
Tómstundaþáttur barna og ungl-
inga (Jón Pálsson). 18,30 Útvarps
■aga barnanna: „Steini í Ásdal“
eftir Jón Bjömsson; IV. (Kristján
Gunnarsson yfirkennari). 18,55
Tónleikar (plötur). 20,30 Upplest-
ar: Þórunn Elfa Magnúsdóttir les
frumsaminn sögukafla. 20,55 Tón-
Veikar (plötur). 21,25 Leikrit:
„Hálsmenið"; Walter Hackett
gamdi upp úr smásögu eftir Guy
de Maupassant. — Leikstjóri og
þýðandi: Hildur Kalman. 22,10
Passíusálmur (18). 22,20 Danslög
(plötur). — 24,00 Dagskrárlok.
— Hvernig borgaði hún hana?
Konan virtist hissa. — Hinn
fyrsta hvers mánaðar.
— Hvernig? 1 peningum?
— Nei, hún borgaði í ávísun.
— Þótti yður það ekki einkenni-
legt? Ef hún hefur haft ofan af
fyrir sér eins og þér haldið, væri
trúlegra, að hún borgaði í pening-
um, finnst yður ekki?
Frúin roðnaði feimnislega. —
Hún er dauð, og ég vil ekki geta
neins ills til um hana. Að minnsta
kosti hefur hún átt einhverja pen-
inga sjálf. Sagði að það væri líf-
eyrir frá frænda hennar, en nán-
ar athugað, er það nú hálf skrítið.
Enginn fx-ændi hefur gefið sig
fram síðan.
— Ég skil. En hvernig fékk hún
peningana senda?
— Mánaðarlega í póstávísun.
Ég veit þao, vegna þess, að hún
varð að taka ökuskírteinið sitt til
þess að gera grein fyrir sér. Hún
átti bíl, skiljið þér.
— Sagði hún nokkuð nánar frá
þessum frænda?
— Nei, en ég held, að hann
hafi einu sinni komið að heimsækja
hana, fyrir hér um bil tveim ár-
um. Ég var ekki heima, en vinnu-
stúlkan mín sagði mér frá því. En
hún er bara farin héðan. Hún
sagði, að hann hefði litið út fyrir
að vera fínn maður. Ekki eins og
þeir, sem hún var mest á flandri
með. Og vitanlega leyfi ég aldrei
stúlkum, sem hér bús að taka á
móti karlmannaheimsóknum.
Dane hugsaði sig um. — Var
hann gamall eða ungur?
— 'Það sagði hún ekkert um.
— En þessir mánaðarpeningar?
Hún hefði getað kúgað þá út úr
einhverjum, sagði hann.
Það hafði frúnni aldiæi dottið
í hug, en vitanlega gæti hún vel
trúað henni til þess. Aðspurð
hvaðan peningarnir hefðu komið,
kvaðst hún eigi vita það, en síðasta
sendingin hafði komið I fyrstu
viku júnímánaðar. Hún sagðist
halda, að sú sending hefði kornið
frá Maine. Og síðan ekki meir.
Þegar Dane haltraði út í bílinn,
sem beið eftir honum, tók hann
eftir því, að veiki fóturinn var far-
inn að angra hann aftur. Hann fór
að hugsa um, hvort það gæti ekki
stafað af hugaræsingi, sem hann
varð að játa á sig, enda þótt aðr-
ir tælcju ekki eftir honum í fram-
komu hans. Upplýsingarnar, sem
hann hafði fengið, stóðu heima.
Hann vantaði nú aðeins eitt atriði
til þess að fullkomna það, sem
hann ætlaði að bera fram fyrir
réttinum og það fékk hann í lands
símasamtali þá um kvöldið. En
hann var ekki ánægður. Þegar
vagninn lagði af stað var hann
niðurdregnari en hann hélt, að
væri hugsanlegt, og vera þó far-
inn að sjá fram úr málinu, sem
hann var að rannsaka.
27.
Það var mánudagskvöld þegar
hann steig út úr flugvélinni og sá
vandlætingarfullt augað í Alex
við bjarmann af bílljósinu. Hitinn
var óskaplegur, enda þótt svona
væri framorðið. Það var eins og
að vera í tyrknesku baði. Hann
minntist á þetta við Alex, er hann
var að koma ferðatöskunni fyrir.
— Það er betra niðri við sjó-
inn, svaraði Alex þurrlegá. —
Hvað hafið þér verið að gera við
fótinn á yður?
— Það er allt i lagi með fótinn.
Ég er bara þreyttur.
— Alex leit betur á hann. Það
var rétt, að þreytan skein út úr
andliti húsbónda hans og þar voru
hrukkur, sem ekki höfðu verið þar
áður, en Alex þótti ráðlegast að
minnast ekki á þær. Hann svaraði
öllum spurningum stutt, eins og
hann var vanur. Enginn hafði
sézt í nágrenni Crestview. Sú
rauðhærða var farin heim til sín.
Frú Hilliard var enn í spítalan-
um, en hann hafði heyrt að hún
væri komin á stjá. Maður hennar
var farinn. Og Floyd var svo upp-
blásinn af monti, að hann hafði
þurft að lengja beltið sitt.
Það var orðið of seint að heim-
sækja Carol. En þetta, sem Alex
hafði sagt um hitann, reyndist
rangt vera. Dane fór ekki í rúm-
ið. Þess í stað fór hann í víðar
buxur og ermalausa peysu og
gekk út. Af einhverjum ástæðum
var hann órólegur. Hann kveikti
sér í vindlingi og labbaði áleiðis
til Crestview. Þar hitti hann Tim,
rétt við stíginn. Hann var að horfa
upp eftir veginum og þegar hann
heyrði fótatakið, hrökk hann við
og greip til skammbyssu sinnar.
Hann brosti kindarlega þegar
hann sá, hver komumaður var.
— Andskotinn sjálfur, sagði
hann. — Þessar taugar mínar
fara bráðum að segja af sér. . .
Hvað á ég að halda þessu lengi
áfram?
— Nokkuð nýtt?
— Ég held, að við höfum fund-
ið, hvar Greg Spencer var í New
York, morðnóttina, sagði hann. —-
Það er ekki alveg víst, en hér um
bil.
Dane kinkaði kolii. — Það er
mikið í varið. Að einhverju varstu
að gá, þegar ég kom hingað?
— Ég veit varla. En hvert ligg
ur þessi vegur eiginlega?
—, Hann liggur út í nxalbikaðan
veg héma fyrir ofan. Hvers vegna
spyiðu?
— Það var hér einhver á ferð-
inni fyrir skömmu. Fór upp
brekkuna. Býr nokkur þar uppi?
Dane hugsaði sig um. — Það
getur verið einhver, sem á heima
KELVINAT0R
Kæliskáparnir
— model 1957 —
8 cubikfet
eru til afgreiðslu
nú þegar.
Jfekla
Austurstræti 14.
Sími 1687.
Nauðungarupphoð
Samkvæmt ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur verða
22 tonn af pakkaðri beitusíld, eign þrotabús fiskveiða-
hlutafélagsins Viðeyjar, seld á nauðungaruppboði.
Uppboðið fer fram föstud. 22. þ.m. kl. 16 í hraðfrysti-
húsinu við Fífuhvammsveg í Kópavogi.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Ný sending
Jersey kjólar
fallegt úrval.
Gullfoss
Aðalstræti
Skó-útsalan
Rýmingasalan er í fulium gangi.
Kvenskór á kr. 20, 50, 65, 75 og 95 kr.
Sérlega mikið úrval af litlum númerum.
Kveninniskór á kr. 29 til 35.
Drengja- og telpnaskór á kr. 45, 50, 60, og 05.
Karlmannaskór með hrágúmitxisólum seljast
ódýrt.
Bamagúmmistígvél á 1—3 ára.
Verð 12—15 kr.
Kvenkuldaúlpur. Sérstakt tækifærisverð.
Verð kr. 295.00.
Barnapelsar á 1—3 ára. Mjög ódýrir.
Þér getið enn gert góð kaup hjá
Skósölunni
Framnesvegi 2
MARKIJS Eftir Ed Dodd
1) — Eg mun ekki láta Anda
af hendi fyrr en dómararnir hafa
litið á vökina í ísnum, sem Jonni
féll í.
2) — Vökin virðist eðlileg.
— Já, það hefur verið lofthola.
— Eg er hræddur um að þú haf
ir tapað hundinum, Markús.
3) —- Jæja, Láki. Dómararnir
segja, að þú hafir unnið á heiðar-
legan hátt. Eg mun þá afhenda
þér Anda eftir augnablik.
4) — Eg veit ekki, hvað ég 4
að segja við þig, Andi minn....