Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 3

Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 3
Þriðjudagur 19. marz 1957 MORGVNBLAÐIÐ 3 Egyptar hefðu líklega rábizt á okkur segir sendiherra Þegar tíðindamaður Morgun- blaðsins kom að máli við sendi- herrann í gær, barst talið þegar að atburðunum við austanvert Miðjarðarhaf síðustu vikurnar. Kvað hann ísraelsmenn vera áhyggjufulla vegna þeirrar þró- unar, sem orðið hefði undanfarið. Þeir hefðu búizt við friðvænlegri þróun, þegar þeir ákváðu að draga heri sína burt frá Gaza- skikanum og Akaba-flóanum, enda hefðu stórveldin gefið í skyn, að óskir ísraelsmanna um frið á landamærum sínum yrðu virtar. FRIÐURINN FÉKKST ALDREI Chaim Yahil sagði, að megin- orsökin til ástandsins væri yfir- lýstur fjandskapur Arabaríkj- anna við tilveru ísraels. Arabar gerðu sér enn vonir um að þurrka ísrael út af landabréfinu, og væru Egyptar þar fremstir í flokki. Vopnahléssáttmálinn, sem gerður var við Egyptaland, Sýr- land, Eíbanon og Jórdaníu árið 1949, eftir að þessi ríki höfðu ráðizt á ísrael, átti að vera fyrsta skrefið til að koma á friði milli allra fimm ríkjanna, en sá friður hefur aldrei fengizt. Haldið hef- ur verið uppi hafnbanni á ísrael æ síðan. Á landamærunum hafa verið stöðugar skærur og inn- rásir. Egyptar skipulögðu jafnvel sérstakar hryðjuverkasveitir inn- an hersins, hinar svo nefndu Fedayeen-sveitir, sem héldu uppi látlausum árásum á landsvæði ísraels. f september 1955 varð ástandið sérstaklega hættulegt, þegar Egyptar gerðu samninga um stórfelld vopnakaup frá Tékkóslóvakíu og öðrum komm- únistaríkjum. YFIRVOFANDI ÁRÁS / janúar ísraels á Islandi sveitanna voru stórauknar; þær létu sér ekki nægja landamæra- héruðin, heldur gerðu árásir langt inn í landið. Leiðtogar Arabaríkjanna fóru ekki í laun- kofa með fyrirætlanir sínar, en töluðu digurbarkalega um að hrekja ísraelsmenn í hafið. Og loks hafði leyniþjónusta ísraels áreiðanlegar heimildir fyrir því, að nágrannaríkin voru að undir- búa árás. EKKI VENJULEGT STRÍÐ Hernaðaraðgerðir ísraelsmanna voru ekki styrjöld í venjulegri merkingu þess orðs, sagði Chaim Yahil, heldur sjálfsvörn. í styrj- öld er leitazt við að eyða helztu hernaðarstöðvum andstæðingsins. ísraelsmenn gerðu ekki loftárás- ir á egypzkar borgir, reyndu ekki að eyða hernaðar- eða samgöngu- miðstöðvum Egyptalands, held- ur aðeins að eyðileggja þær her- stöðvar, sem Egyptar gætu notað til árása á ísrael. ULLARNÆRFÖT Þær sannanir, sem fsraelsmenn fengu fyrir styrjaldaráformum Egypta, voru miklu meiri og víð- tækari en þá hafði nokkurn tíma rennt grun í. Þeir fundu fjöldann allan af alveg nýjum flugvöll- um, gífurlegar birgðir af vopn- um, klæðnaði og alls konar út- búnaði. fsraelsmenn tóku sjálfir hvorki meira né minna en 100 skriðdreka af nýjustu rússneskri gerð, um 1000 herflutningatæki, eina milljón teppa, tvær milljón- ir laka, feiknin öll af hjúkrun- argögnum, varahlutum og ýmiss konar vopnum. Þess má geta hér til gamans, sagði sendiherrann, að meðal herfangsins voru geysi- miklar birgðir af ullarnærfötum, sem eru ekki notuð á þessum Chaim Yahil. slóðum nema helzt í janúar og febrúar, og gæti það verið vís- bending um það, hvenær gera átti árásina. Allt virtist benda til þess, að árásin yrði ekki einskorðúð við ísrael, og að það yrðu ekki aðeins Araba-herir, sem tækju þátt í henni. ÞRJÚ MARKMIÐ — Ilvaða ávinning teljið þér að hernaðaraðgerðum fsraels? í fyrsta lagi var árás Araba- ríkjanna stöðvuð, segir sendi- herrann, eða a. m. k. henni var frestað um eitt til tvö ár. Það var mikilvægt. En við höfðum líka tvö önnur markmið. Við vildum aflétta hafnbanninu og koma á frjálsum siglingum, og við vildum hrekja Egypta frá Gaza-skikanum, sem þeir tóku með því að rjúfa vopnahlés- sáttmálann. Við höfum opnað augu heimsins fyrir því, hve mikilvægar frjálsar siglingar til fsraels eru bæði Vestur- löndum og Austurlöndum. Þegar olíuleiðslurnar og járn- brautin frá Elath við Akaba- flóann til Miðjarðarhafsins eru fullgerðar, hefur skapazt ný og öruggari samgönguleið milli austur og vesturs, sem SENDIHERRA ísraels á íslandi, Chaim Yahil, er staddur hér þessa dagana. Hann er jafnframt sendiherra lands síns í Noregi «>g Svíþjóð með aðsetur í Stokkhólmi. Hefur hann verið sendiherra hér á landi í eitt ár og lagði fram skili'íki sín í júlí í fyrra, en þá kom hann til íslands í fyrsta sinn. Með hverjum mánuði, sem leið, varð misvægið milli herstyrks fsraels annars vegar og herstyrks Arabaríkjanna hins vegar ískyggi legra. í október 1956 tókst Egypt- um að koma á sameiginlegri herstjórn Egyptalands, Sýrlands og Jórdaníu, og þannig höfðu þeir umkringt fsrael á þrjár hliðar. ísraelsmenn höfðu ástæðu til að ætla, að fyrir dyrum stærði meiri háttar árás. Aðgerðir Fedayeen- Vefurinn hefur verið fóðurþungur í Húnaþingi SNJÓR er orðinn allmikill í Húnaþingi, svo að þjóðvegir og flutningsleiðir hafa teppzt að nokkru. Síðustu daga hafa verið ctillur og hefur verið unnið við ao ýta snjó af vegum svo flutningar geti haldið ófram óhindraðir. IJflerscliíigar taki sér íslenzkf fornafn Umræbur um rikisborgararétt á Alþingi IGÆR var framhald 3. umræðu um ríkisborgararétt. Var fram komin br.till. frá Gylfa Þ. Gíslasyni, Ólafi Björnssyni, Svein- bimi Högnasyni og Karli Guðiónssyni svohljóðandi: 2. gr. orðist svo: Þeir, sem heita erlendum nöfn um, skulu þó ekki öðlast íslenzk- an ríkisborgararétt með lögum þessum fyrr en þeir hafa fengið íslenzkt fornafn. Sama skal gilda um barn, sem fær ríkisfang sam- kvæmt lögum þessum með for- eldri sínu, en kenna skal það sig við föður, móður eða kjörföður samkvæmt lögum um manna- nöfn. Þeir niðjar þessara nýju ríkisborgam, sem fæðest eftir gildistöku laga þessara, skulu á sama hátt kenna sig við föður, móður eða kjörföður. Vegna þessarar tillögu kvaðst Ólafur Björnsson taka sína till. til baka, en hún fól í sér að fella algerlega niður þau ákvæði að útlendingar skyldu breyta nafni sínu við það að fá íslenzkt ríkis- fang. Allmiklar umræður urðu um þetta mál. Töluðu á móti tillög- unni: Áki Jakobsson, Björn Ólafs son, Einar Olgeirsson og Gísli Guðmundsson og töldu fráleitt að hverfa frá þeirri stefnu, sem ríkjandi hefði verið í þessu efni í sl. 5 ár, sem sé að þeir sem ís- lenzkan ríkisborgararétt fá skuli taka sér- íslenzkt nafn. Meðmæltir tillögunni voru aft- ur á móti Gylfi Gíslason, sem talaði fyrir henni, Ólafur Björns- son, Magnús Jónsson og Svein- björn Högnason. Af skiljanlegum ástæðum hafa mjólkurflutningar gengið erfið- lega til Blönduóss. Vatnsdæling- ar hafa flutt mjólk og vörur á dráttarvélum og jeppabílum eft- ir Vatnsdalsá á aðalþjóðveginn í sýslunni. Gott færi er nú á ísum, enda er snjór minni í Vatnsdal en í öðrum sveitum. FÓÐURÞUNGUR VETUR Sauðfé er almennt á gjöf í sýslunni og hefir verið langan tíma. Hrossahagar hafa víðast verið sæmilegir í lágsveitum, svo að lítið af hrossum er ennþá á gjöf. Enda þótt tíð væri hlý lengi framan af vetri eða þar til um miðjan janúar, hefur mikið fóður farið í sauðfé, sök- um þess að miklir stormar- og krepjuveður gengu oft yfir í des- ember og janúar, svo fénaður hraktisc og hagar spilltust. Fóð- urbirgðir eru sæmilega góðar, þó að því miður sé of lítið víða til langvarandi gjafar. Heilsufar hefur verið gott ; sýslunni í vetur. Veturinn stytt- ist nú óðum og vorhugurinn er farinn að gera vart við sig. — Lengri sólargangur, sem er fyrir- heit um bjartari nætur og nýjan gróður, léttir störfin. — Ágúst. getur orðið jafnmikilvæg og Sv*ez-skurðurinn. Þetta hafa jafnvel Líbanonsbúar og Jór- daníumenn komið auga á. Verði tekið fyrir frjálsar sigl- ingar um Akaba-flóann, munu fsraelsmenn líta á það sem beina árás og gera sínar ráðstafanir, jafnvel þótt það kosti vopnaviðskipti. BROSTNAR VONIR Á Gaza-skikanum hefur lítið unnizt, að því er virðist. Egypt- ar hafa sett einn af hershöfðingj- um sínum sem landstjóra þar, og þær yfirlýsingar sem Bandaríkin og S. Þ. gáfu, virðast gagnslaus- ar. fsraelsmenn höfðu hafið ýms- ar framkvæmdir á skikanum, en tveir þriðju hlutar af 100.000 íbúum hans lifðu á sultarbarmi, auk þeirra 200.000 flóttamanna, sem eru þar á vegum S. Þ. Eins og kunnugt er, eru um 500 km. frá Gaza-skikanum tii hins eig- inlega Egyptalands, en á milli er Sínaí-eyðimörkin svo til óbyggð. ísraelsmenn vildu, að S. Þ. tækju að sér stjórn skikans í samráði við þá og buðust jafn- vel til að taka við álitiegum hluta flóttamannanna, enda þótt það væri gagnstætt yfirlýstri stefnu þeirra. Þess vegna erum við áhyggjufullir út af þróun- inni síðustu daga, sagði sendi- herrann. Vonir okkar um við- unanlega lausn hafa brugðizt, og Egyptar eru aftur teknir að tala digurbarkalega um eyðingu Isra- els. Af þessum sökum var frú Golda Meir, utanríkisráðherra, send vestur um haf, ef hún kynni að geta afstýrt vandræðum. 100.000 INNFLYTJENDUR Á ÁRI ísraelsmenn hugðu aldrei á landvinninga. Þeir vildu aðeins fá frið til að rækta land sitt ©g búa í haginn fyrir þá 100.000 inn- flytjendur, sem koma til lands- ins á þessu ári. Sendiherrann kvað Nasser enn vera sterkan heima fyrir, þótt gengi hans hefSi kannski eitthvað minnkað. Hins vegar biðu mörg hinna Araba- ríkjanna með óþreyju eftir falli hans, en þyrðu ekki að hafast að, meðan gengi hans héldist. Eng- inn Araba-leiðtogi mun nokkru sinni áræða að mæla gegn hon- um, fyrr en hann er fallinn. VIÐSKIPTIN VIÐ ÍSLAND Sendiherrann lét að lokum í ljós sérstaka ánægju yfir vax- andi stjórnmálalegum viðskipt- um íslands og ísraels. Kvað hann ísraelsmenn minnast þess með þakklæti, að íslendingar áttu sinn þátt í því að Ísraelsríki var stofnað. Enn sem komið væri hefðu menningartengslin milli landanna verið óveruleg, en von- andi mundu þau aukast með ár- unum. Chaim Yahil mun dvelj- ast hér fram á laugardag, en heldur þá aftur til Stokkliólms. Skákeinvígið : Fribrik vann 4. skákina í 2.4. leik FJÓRÐA einvígisskák þeirra Pilniks og Friðriks Ólafssonar var tefld í Sjómannaskólanum á sunnudaginn. Sú skák varð stutt, í’ðeins 24 leikir, en þá gaf Pilnik skákina, enda voru þá aðeins 2 leikir í mát. Eftir 4 skákir eru þeir meistararnir jafnir að vinning- um með 2 hvor, en 2 skákir eru eftir. Þeir fengu á sunnudaginn jafnt tafl út úr fyrstu byrjun- arleikjunum, en fljótlega varð staða Friðriks, sem hafði hvitt, miklu rýmri. Hann undirbjó sókn á kóngsvæng með fram- rás peða á e og f línu ©g þegar svo drottning hans, hrókur og biskupar hafði verið flutt til sóknar á þann væng, varð ekki vörnum við komið fyrir svart an. Skákin fer hér á eftir: Hvítt: Friðrik Ólafsson. Svart: Pilnik. 1. e4 c5 9. RxR dxRc6 2. Rf3 c6 10. f4 0Ú0 3. d4 cxd 11. e5 Hd8 4. Rxd4 a6 12. Dh3 BxR 5. Be2 Rf6 13. bxB Rd7 6. Rc3 Dc7 14. Be3 c5 7. 0-0 Bb4 15. Hf3 Rf8 8. Dd3 Rc6 16. Bd3 b6 17. Dh5 Bb7 21. f5 exf 18. Hh3 g6 22. Bg5 Re6 19. Dh6 Dc6 23. Bf6 f4 20. Hg3 Hd7 24. Dxh7 t gefið VERKST J ÓR AFÉL AGIÐ „Þór“, sem er félag verkstjóra í stærstu vélsmiðjunum, skipasmíðastöðv- unum og blikksmiðjunum í Reykjavík hélt aðalfund sinn þriðjudaginn 12. marz sl. Fráfarandi formaður Bjarni Jónsson, verkstjóri h.f. Hámri, sem verið hefir form. undanfarin ár, baðst undan endurkosningu. Hinn nýkjörni formaður er Har- aldur Guðmundsson verkstjóri í Landsmiðjunni, en aðrir í stjórn eru Gísli Guðlaugsson, Jóhaim Þorláksson, Marel Halldórsson og Hlöðver Einarsson. Stœrra pláss fyrir flug þjónustuna í Keflavík KEFLAVÍ KURFLU G VELLI, 8. marz. — í dag fékk flugmála- stjórnin til fullra umráða norður- álmu flugstöðvarbyggingarinnar hér á flugvellinum. Sem kunnugt er, þá er fljgþjónustan undir sama þaki og hótelið hér. Er að því mikill fengur að fá þetta húsnæði allt til afnota við flug- þjónustuna. Flugher varnarliðs- ins var í þessum hluta bygging- arinnar áður. Hann hefur fyrir nokkru flutt sína flugþjónustu í nýja flugstöðvarbyggihgu, sem stendur hér fast við hótelið. Nokkrir gestir voru viðstaddir athöfn, sem fram fór af þessu tilefni. Gagnger breyting hefur verið gerð á þessari álmu og höfðu Sameinaðir verktakar það með höndum. Smíðaðar hafa verið skrifstofur fyrir flugmála- stjórnina og ýmsa þætti flugþjón- ustunnar, flugfélögin sem hér hafa fasta bækistöð svo sem Flugfélag íslands, Loftleiðir, T.W.A. BOAC og PAA. Þá verð- ur þar herbergi fyrir siglinga- fræðinga fíugvélanna, er þeir þurfa að athuga flugáætlamr, þarna verður og skrifstofa Veð- urstofunnar og fleira. Flugmálastjóri Agnar Kofoed Hansen tók formlega við þessu húsnæði með stuttri ræðu, en yfirmaður flughers varnarliðsins Manzo höfuðsmaður. afhenti „lyklavöldin“. Fleiri tóku til máls, en að lokum skoðuðu gest- ir skrifstofur og annað. Er það veigamikið fyrir flugmálastjórn- ina að hafa fengið þetta aukna húsrými til viðbótar við það sem hún hafði áður, en það var orð- ið mjög ófullnægjandi, sakir þrengsla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.