Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 6

Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 6
 MORCVNfílAÐlÐ Þriðjuctagur 19. marz 1957 Rossellini og Nedrealisminn ROBERTO ROSSELLINI er ít- ali, sem á tvíbura-bambini með Ingrid Bergman. Roberto Rossellini „stal“ henni frá tann- lækninum Aron-Petter Lind- ström og gerði aumingja Piu dóttur þeirra óhamingjusama. Roberto kallaði yfir sig og sína húsfrú Ingiríði bann og bölvan ★ ★★★★★★★★ BRENNIPUNKTAR Munið þið eftir myndinni „Rauða Myllan“ (Moulin Rouge) með José Ferrer og Colette Marchand? Minnis- stæð mynd, sem gekk lengi .... Vitið þið hvað er orðið af henni? . . . . Á dögunum var henni ekið inn að Elliða- ám og henni brennt til ösku. (Skv. ósk kvikmyndafélags- ins) .... Það ku vera búið að semja kvikmyndahandrit af sögu Indriða G. Þorsteins- sonar 79 af stöðinni .... Enn mun líða nokkur tími, þangað til „Baby Doll“ verð- ur sýnd hér, en það verður í Austurbæjarbíó .... Það þykir ágæt aðsókn ef 10 þús- und manns sækir sömu mynd ina .... Nokkrar myndir hafa yfir 30 þúsund manns sótt í Reykjavík einni .... „Anna“ í Bæjarbíó í Hafn- arfirði sló þó öll met .... Fjölsóttasta mynd Austur- bæjbíós í fyrra var „So Big“ með Jane Wyman. Svo kom „3 menn í snjónum“ og „Lucrezia Borgia“ (eða ölíu heldur Martine Carol) , Á næstunni sýnir Austur- bæjarbíó bandarísku mynd- ina „A star is born“, mjög umrædd mynd með Judy Garland og Mason . . . . ís- lenzku myndirnar „Borgar- ættin“ og „Giiitrutt" virðast ætla að ganga vel .... Vm 7 þúsund manns hafa séð Gilitrutt .... Kvikmynda- húsmenn segja mér, að sæl- gætissalan hafi síður en svo minnkað í þeim kvikmynda- húsum, þar sem hléin hafa verið afnumin .... Þeir segja mér ennfremur, að á- hugi almennings fyrir evr- ópskum myndum sé mjög að dofna, og nú vilji menn helzt sjá amerískar myndir aftur. Bandalags Siðsamra Bandarískra Kvenna. Senior Rossellini er ít- ali, sem býr annan hvern mánuð í Róm — hinn í París og ekur Ferrari-bíl og fer á grímuböll . . . Þannig þekkja margir hverjir helzt ítalska leikstjórann R.R. anno 1957. Fyrir 10 árum var hann kunnur fyrir allt aðra og stórum merkari hluti: Hann er einn af höfundum neórealismans og gerði í styrjaldarlok tvær kvikmyndir, sem munu halda nafni hans á lofti um ókomin ár, — myndirnar „Roma citta aperta" (Róm, óvarin borg) og „Paisa“. Báðar myndirnar *eru ósviknar raunsæismyndir, og með þeim flaug nafnið „neóreal- ismi“ um víða veröld. „Roma citta aperta“ var sýnd hér á landi skömmu eftir styrjladar- lok og vakti verðskuldaða at- hygli og aðdáun. Hinu furða menn sig á, að „Paisa“ skuli ekki hafa verið sýnd hér fyrr en nú — 11 árum eftir að hún var gerð, en mjög bráðlega mun Austur- Alfonsino. Drengurinn í „Paisa“. Aðalsmerki neórealismans. bæjarbíó sýna myndina, og er þess að vænta, að menn fjöl- menni á sýningarnar til þess að njóta listaverksins. ★ INNTAK NEÓREALISMANS Á styrjaldarárunum og reynd- ar á öllum ríkisstjórnarárum Mussólínis ríkti fullkomin niður- læging í ítalskri kvikmyndagerð, sem ekki skal nánar rakin hér. Grunnt var þó á endurreisninni, og um leið og ríki fasismans hrundi til grunna, skaut ný stefna rótum í rústunum og varð mikill meiður. I*að var eins og *JVromEérg m rafMÓTORAR Vs ha kr. 664.00 3 fasa Vi — — 728.00 - — % — — 779.00 - — 1 — — 893.0Ö - — m — — 1.059.00 - — 2 — — 1.330.00 - — 3 — — 1.766.00 - — 4 — — 2.115.00 - — 1 fasa: Va ha kr. 1.149.00 Vt--------1.321.00 % — — 1.819.00 5Vz-------- 2.565.00 7 V2 — — 2.676.00 10 3.462.00 15 -------- 4.935.00 Allir mótorarnir Iokaðir (Geymið auglýsinguna). Hannes Þorsteinsson & (o. Yvonne Sanson. Næla. Hrörnun armerki neórealismans. vorleysing væri í öllu andlegu lifi ítaliu eftir áratuga andlega áþján og kerfisbundna lífslygi. Er nú kvikmyndagerðarmenn fengu frelsið, breyttu þeir ger- samlega um stíl og efni. Þeir leit- uðu til hins götugráa hversdags- leika eftirstríðsáranna. Sannleik- urinn, raunveruleikinn, ósmink- aður og strípaður, sem kalkað hafði verið yfir undanfarin þrjá- tíu ár, varð trúarjátning hinna nýju manna, sem kenndu sig við raunsæisstefnu. Á ytra borðinu mátti einkum þekkja neórealism- ann á breyttum starfsaðferðum við myndatökuna: Burt með leik tjöldin! Burt með atvinnuleikar- ana! Ut á götur og torg og inn í verksmiðjur og fátækra hreysi! Myndum lífið eins og það ER! Af innri þörf leituðu kvikmynda- skáldin til jarðarinnar, raunveru leikans. Það, sem einkennir boð- skap neórealismans framar öðru, er hin afdráttarlausa samúð með einstaklingnum, sem „örlögin" (þjóðfélagið) hafa að leiksoppi í heildarleik lífsins. Lífsskoðun neórealistanna er því mannræn: Velferð einstaklingsins skal aldrei frónað á altari þjóðfélags- ins. í því felst grundvallarmun- urinn á ítölskum neó-myndum og rússneskum sócialrealisma, að ítalarnir sýna raunveruleikann eins og hann er en Rússarnir eins og hann ætti að vera. Yrkisefnið var í upphafi böl styrjaldarinnar og um það fjalla m.a. myndir Rosselllini, „Róm. óvarin borg“ og „Paisa“, enda gerðar í stríðslokin. Síðar leituðu menn yrkisefnis í harmsögu ít- alskrar alþýðu, hinni ægiströngu lífsbaráttu daglaunamannsins, þar sem einn hjólhestur gat ráð- ið úrslitum. Margt þjóðfélags- meinið fékk ástungu, atvinnu- leysi, húsnæðisleysi, foreldra- leysi og hvers kyns umkomu- leysi. Margir lögðu hönd á plóg- inn auk Rossellinis, De SLca („Sciuscia", Ladri di biciclette", „Miacolo a Milano"), Visconti (í mynd hans „Ossessione" er að finna fyrstu merki neórealism- ans), Luigi Zampa („Vivere in pace“) De Santis ((„Roma ora 11“) Lattuada („Senza pieta“), Camerini („Molti Sogni per la stadi") o. fl. Snemma tók að kræla á úr- kynjunarmerkjum neórealism- ans, eða öllu heldur: Neóralism- inn var gott vörumerki, og í skjóli þess var mikið syndgað („Anna“, „Mambo“, „Riso Am- aro“). Þótt hinn sóciali raunveru leiki sé að miklu leyti úr sög- unni í ítölskum myndum (marg- ir vilja halda því fram, að neó- realisminn sé dauður), hafa hinir beztu meðal leikstjóra aðeins fært sig um set. Annar og nýr raunveruleiki hefur komið í stað hins, þ. e. a. s. hinn innri raunveruleiki, sálræni veruleiki (t.d. í „Umberto D“, eftir De Sica). ★ PAISA — VIA DOLAROSA Myndin var gerð árið 1946, og í heni er lýst sigurgöngu bandamanna norður Italíu og við brögðum íbúanna í ólgu herset- unnar. „Paisa“ er ekki spunnin eins og flestar myridir um eitt ÁRIÐ 1956 fluttu Bretar út 317, 988 bifreiðir, sem voru að verð- mæti samtals 113,358.798 sterlings pund. Eru þetta um 50.000 færri bifreiðir en meðaltala af bifreiða- útflutningi næstu tveggja ára á undan. Ástæðan er sögð sú, að Ástralíumenn hafa nú sett á háa innflutningstolla á allar bifreið- ir, en þangað hafa Bretar selt mikið magn. Hins vegar jókst sala þeirra til Norður-Ameríku. Til Banda- ríkjanna seldu þeir nú 35.296 bif- reiðir, eða 16.000 fleiri en árið samhangandi efni, heldur er hún nánast svipmyndir úr ítölsku al- þýðulífi í fimm þáttum. í hverj- um þeirra varpar Rossellini sam- úðarþrungnu ljósi á meðbræður sína: dóttir fiskimannsins á Sikil ey, sem vísar bandamönnum veg- inn, munaðarlausa drenginn Paisa, sem stelur skó frá sofandi negra, enska stúlkan, sem leitar dauðaleit að unnusta sínum, unga stúlkan í Róm, sem hernámið gerði að gleðikonu, bændur í Pó- dalnum, sem verjast leyniskytt- um fasista til síðasta manns.... Frá fyrsta til síðasta þáttar er myndin varíasjón á sama tema: hinn stálgrái ömurleiki stríðsins, tragidían, sem einstaklingurinn á enga sök á, en verður samt að taka þátt í, hinn grnnmi fórnar- dauði. ★ RÓBERT ROSSELLINÍ Rossellini er nú fimmtugur að aldri. Fyrstu mynd sína gerði hann árið 1941 („La nave bianca"). Þá síðustu á hann á- reiðanlega ógerða. Þegar liggja eftir hann um 20 myndir. Menn búast vart við mikilli nýsköpun frá honum úr þessu, en með myndunum „Roma citta aperta“ og „Paisa“ reisti hann sér og neó- realismanum óbrjótandi minnis- varða. Hann handsamaði augna- blikið og skeinkti það milljónum manna um víða veröld. Hann veitti okkur nýja trú á veruleik- ann og fólkið í kringum okkur, og með botnlausri samúð sinni sýndi hann okkur að homo er ekki alltaf homini lupus — mað- urinn er alltaf manninum verst- ur. Að svo búnu má hann aka í Ferrari-bíl. áður — og til Kanada seldu Bret- ar 19.538 bifreiðir á árinu. Þá má nefna, að heildarfram- leiðsla fólksbifreiða í Bretlandi varð á árinu 1956 707.594, eða nær 200.000 færri en árið áður. Að viðbættum vöruflutningabif- reiðum nam heildarframleiðslan 1,004.544 bifreiðum, en á sama tíma framleiddu Vestur-Þjóðverj ar 1,073.036 bifreiðir og Frakkar 830.000. Enska blaðið, sem birtir þessar tölur, bætir því við, að Þjóðverjar telji þríhjóla ökutæki til bifreiða, en slíkt vilja Eng- lendingarnir ekki fallast á. — AITER EGO Útflutningur Bretn dróst snmnn shrifar úr daglega lifinu Asnaspark Hannesar E' G HEFI verið að velta þvi fyrir mér hvernig fólki, sem ’ sveitum landsins býr hafi þóít vinarkveðjan, sem því b. rst á föstudaginn frá Hannesi á Horn- inu. Hann er að ræða um símann ag í því tilefni segir hann. um jveitafólkið: „Þetta var heldur uppbyggilegt samtal. Það er Ijótt að hlusta á aðra menn tala sam- an í síma, en það stunda sveita- menn af kappi--------“. Það er ekki á h.ve-rjum degi, sem íslenzkt sveitafólk er sakað um símahleranir, en hér hefir „vinur alþýðunnar", Hannes, tekið sér refsivöndinn í hönd. Verði honum að góðu. Óhæft gjald SÍMNOTANDI skrifar: Undanfarnar vikur hefir mikið verið rætt um símann manna á meðal. Ólagið á þessu ómissandi tæki hefir oft valdið óþægindum og tímatöf. Biðin eftir sóninum tekið margar mín- útur, og svo loks þegar samband fékkst var svarað í öðru núm- eri en valið var. Þetta endur- tók sig stundum 3—4 sinnum í senn. Fyrir gjald það sem símanot- endur greiða fá þeir 7 símtöl daglega. Það sem umfram er hringt verður að greiða auka- lega. En hvað liyggst síminn nú gera við næsta greiðslutímabil? Ekki getur hann ætlazt til, að símanotendur greiði fyrir öll „skökku" númerin, sem ekki er hægt að kenna notendunum um, heldur ólaginu á símakerfinu. Það verður að setlast til þess, að þetta ríkisfyriríæki sýni hér fullkomna sanngirni, þegar svo er ástatt sem nú hefir verið lýst, og virði hinn sjálfsagða rétt notandans, að hann greiða ekki meira en honum ber, því rð oft er um pað talað, sem engu fyr- irtæki er til sóma, að viðskipta- vinurinn sé réttlaus gagnvart þvi. Slíkt má ekki henda sím- ann. Húsrými læknadeildarinnar G SÁ í blaðinu, að þing-. maður hefði sagí það alger- an óþarfa að segja Húsmæðra- kennaraskóla íslands upp hús- næði því, sem hann hafði í kjall- ara Háskólans. Sem læknanemi mótmæli ég þessu harðlega og bæti því við, að Húsmæðrakenn- araskólinn hefði aldrei átt að fá inni í háskólanum. Læknadeild- in er í vandræðum vegna hús- næðisskorts og vegna þess er kennslunni í ýmsu ábótavant. Má t. d. nefna líkskurði, sem voru framkvæmdir í kjallara skólans. Annað mál er svo kenn- araskortur og allur aðbúnaður. Þingmaðurinn ætlar að kenna læknadeildinni um vanhöld á Hmksk. og segir hann vera á göt- unni! Iivers vegna er stórhýsið á Akureyri ekki notað? Fram- gangur þessa skólamáls á Alþingi er stórfurðulegur, og andstaða gegn Hmksk. á Akureyri öll hin dularfyllsta. Eg vildi óska, að þingmönnum gæti skilizt, að læknadeildin þarf á öllu því hús- rými að halda, sem býðst. Ef undirbúningur til notkunar um- rædds kjallara hefur dregizt (og það er raunar rétt), er það ef- laust vegna fjárskorts. Ég ræði þetta ekki meira, en þakka fyrir birtinguna. Virðingarfyllst. Arngrímur Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.