Morgunblaðið - 19.03.1957, Side 13

Morgunblaðið - 19.03.1957, Side 13
Laugardagur 16. marz 1957 MORGVNBL'At»lÐ 13 ar írá Kalkofnsvegi, en frá Sölfhólsgötu eða Ingólfsstræti á tvær efri hæðirnar og þakið, sem að sjálfsögðu ætti að vera fiatt. Jafnhliða byggingu bíla- geymslu ætti svo að banna með öllu bílastöður á mestu umferðargötunum. Því að fæstum ætti að vera það of- raun að ganga frá bílageymsl- unni í skrifstofur eða verzlanir í Miðbænum. BÖRN OG GANGANDI FÓLK Eitt vakti nokkra athygli mína í stórborgunum, sem við heim- sóttum, hvort heldur var á aust- ur- eða vesturströndinni. — Það kom ekki fyrir að ég sæi börn að leik á gangstéttum eða götum stórborganna. Það var engu lík- ara en að börnin væru ekki til í þessum milljónaborgum. Ég spurðist fyrir um það, hvar börnin héldu sig og fékk oftast sama svarið, að lítil börn fá ekki að fara út af heimili sínu og þau stærri verða að halda sig í húsa- görðum eða á leikvöllum. Vegna þessa dregur strax talsvert úr slysahættu og varð mér hugsað heim, til þess, hvernig strætin eru alltof oft leikvangur barn- anna. Þá vakti það einnig athygli mína, hve allir, jafnt ökumenn og gangandi fólk, fóru nákvæm- lega eftir settum umferðarregl- um. Það kom ekki fyrir, að ég sæi vegfarendur ganga yfir götu nema við rétt ljósmerki. Hvernig er þessu háttað hjá okkur? Hve- nær ætlar lögreglan hér að gera gangskör að því að venja fólk af því að ganga t.d. yfir Lækjar- götuna við rangt ljósmerki, tefja þannig og stöðva umferðina og valda slysahættu. MISJAFNAR REFSIREGLUR Síðan ég kom heim, hafa marg- ir spurt mig um, hvernig refsing- um í sambandi við umferðarbrot væri hagað í Ameríku. Þessu er ómögulegt að svara í stuttu málí, því að segja má að um þetta séu nær eins margar reglur og ríkin eru mörg. Þó virtist mér, að yfirleitt væri tekið hart á því ef menn reyndust drukknir við akstur, t.d. þriggja mánaða ökuleyfissvipting og 100 dollara sekt við fyrsta brot, ef ekki er valdið tjóni. Ef drukk- inn bílstjóri veldur hins vegar tjóni, þá fær hann oft 3—5 ára leyfissviptingu og 90—120 daga fangelsi. Og sums staðar er litið á það sem morð, er drukkinn bíl- stjóri veldur dauðaslysi. ATHYGLISVERÐAR TRYGGINGARREGLUR Þá vil ég ekki sleppa að minnast á athyglisverða sam- vinnu tryggingarfélaga til að hafa hemil á ökuníðingum. Ef bílstjóri veldur slórtjóni fyrir gáleysi eða vissri tölu smærri tjóna, þá segja tryggingarfé- lögin honum upp tryggingum í alit að 5 ár. Hmn getur þó fengið bifreið sína tryggða, en þó aðeins gegn margföldu ið- gjaldi, oft íimmföldu. í New York og víðar hefur verið tekin upp ný aðferð í þessum málum, svokallað púnktakerfi. Það er í því fólg- ið, að fyrir hvert umferðar- brot eða tjón, sem bílstjóri veldur fær hann vissa tölu punkta. Þegar hann er kominn upp fyrir vissan fjölda púnkta tekur lögreglan og fulltrúar tryggingarfélaga mál hans til meðferðar og er ökuníðingur. inn þá oft sviptur ökuleyfi, þótt ekkert einstakt brota hans hefði ella valdið því. TRYGGINGARNAR BORGA — EN ÞAÐ ERUM VIÖ Vildi ég mjög eindregið benda á hvort ekki væri hægt að taka eitthvert slíkt púnktakerfi í notkun hér. Slys geta að sjálf- sögðu komið fyrir, sem erfitt er að saka nokkurn um. En því mið- ur er það rétt að hægt hefði oft verið að -forðast f lest slysin með nægilegri aðgæzlu. Og það er staðreynd, að þrátt fyrir alla örð- ugleika í umferðinni eru til bíl- 10 þús. manna hafa gengið 4 km gönguna á 43 stöðum é londinu Fólk, sem oldrei heiur snert skíði, iær þou lúnuð og gengur ÞAÐ mun ekki ofætlað að 10 þúsundir manna hafi gengið „lands- j gönguna" — 4 ltm. skíðagönguna. Fyrir helgina var talan | komin upp yfir 9000 og göngustaðirnir á landinu eru nú orðnir 43 talsins, áhugi fer dagvaxandi_ og víða virðist gangan ætla að ná íullum tilgangi, það er ao fá fólk til að taka skíði sín úr komp- unni, ganga 4 km og halda svo áfram skíðaferðum, þó lokið sé við þá þraut. GEYSILEG ÞATTTAKA íþróttafulltrúi ríkisins, Þor- steinn Einarsson, skýrði blaðinu svo frá, að fyrir helgina hefðu um 2500 mánns lokið göngunni í Reykjavik. Hætt er nú að ganga á Laugardalsvellinum vegna snjó leysis en þar gengu um 500 manns. Við skíðaskálana er mik- ið gengið og við Lögberg í gær gengu margir, en þar mældu flug vallastarfsmenn út braut, sem síð an var gengin af miklu fleiri en þeim einum. í Hafnarfirði hófst gangan um helgina og gengu fyrsta daginn 240, og er það há tala. Víða úti um land er þátttaka gífurleg. í Stykkishólmi t. d. hafa 220 af rúmlega 400 íbúum gengið. Á Akureyri 2350, 80 í Hveragerði og í ýmsum sýslum er ganga hafin í hverjum hreppi. Hér fara á eftir frásagnir 3 fréttaritara Mbl. KEFLAVÍK Keflavík, 17. marz. Þrátt fyrir lítinn snjó hér syðra hófst „Landsgangan“ síðastl. föstudag. Þann dag gengu 87 manns. Voru það flestir nemend- ur úr Gagnfræðaskólanum. Veð- ur var hið bezta og gekk gang- an greiðlega. SKÍÐAÍÞRÓTT LÍTIÐ IÐKUÐ Skíðaíþróttin hefur verið lítið iðkuð hér í Keflavík enda eru hér engar skíðabrekkur og langt að sækja til þeirra upp til fjalla. Mun það því vera svo hjá flest- um hér, sem taka þátt í skíða- göngunni að það er í fyrsta sinn sem þeir stíga á skíði. 15 SKÍÐI — 4000 ÍBÚAR Samt sem áður er mikill áhugi hjá Keflvíkingum á því að sem flestir taki þátt í skíðagöngunni. En sá ljóður er á, að ákaflega fá- ir eiga skíði hér. Höskuldur Goði Karlsson, íþróttakennari, sem stjórnar göngunni hóf skíðasöfn- un fyrir nokkru í öllum kaup- staðnum og varð árangurinn 15 pör af skíðum og nokkur pör af tunnustöfum. Verða svo hinir 4000 íbúar Keflavíkur að láta sér semja um þessi skíði og tunnu- stafi og skiptast á um þau. Eru stjórar og þeir margir, sem ekið hafa í áratugi án þess að valda slysum eða tjóni. En svo eru aðr- ir, sem oftsinnis valda á hverju ári smærri og stærri tjónum. Þessir menn segja oft: — Allt í lagi. Tryggingarnar borga. — En tryggingarnar -eru í raun og veru ekki annað en við hinir. Við verðum að borga brúsann fyrir ökuníðingana. Og á okkur hækka álögurnar ár frá ári, vegna þeirra aðgerða. Og nú spyr ég: — Er ekki orðið tímabært, að vátryggingarfélög- in taki upp samvinnu um að neita þeim mönnum um trygg- ingu í lengri eða skemmri tíma, sem „skara fram úr“ sem tjón- valdar? þarna meðtalin öll barnaskíði sem til voru. HÆGT AÐ FÁ LÁNUÐ SKÍÖI Fram að þessu hefur gangan þó gengið ágætlega, þótt fáir geti gengið í einu. Gerir fólk sér að góðu það sem til er. Fólk sem ætlar sér að þreyta Lands- gönguna hér getur því snúið sér til Höskuldar og fengið lánuð skíði eða tunnustafi hjá honum. —Ingvar. ÍSAFJÖRDUR Á ísafirði er mjög mikil áhugi á göngunni. Hún hófst þar sunnudaginn 10. marz með því að Bjarni Guðbjörnsson varafor- seti bæjarstjórnar, hélt ræðu og gekk síðan vegalengdina ásamt með Olafi Guðmundssyni, manni um sextugt, sem um árabil hefur gefið ísfirðingum gott fordæmi um skíðaiðkun-, því daglega þeg ar snjór er gengur hann 10—15 km vegalengd, og er þá sama hvernig viðrar. Síðan hóf almenningur göng- una og nú viku seinna hafa um 700 manns gengið og er það meira en 4. hver maður í bæn- um. Öll börn í barna- og gagn- fræðaskólanum hafa gengið. Fréttaritari Mbl. á ísafirði seg- ir að ljóst sé að gangan ætli þar að bera tilætlaðan árangur. Það er að vekja áhuga fólks á skíðaíþróttum. Hér hafa margir, segir fréttaritarinn, tekið fiam skíði sín sem þeir ekki hafa snert árum saman, og þreytt gönguna. En þeir hætta ekki við svo búið. Þeir halda áfram að fara á skíði, ganga sér til hressingar og holl- ustu. Aldrei hafa skíðaferðir verið hér svo almennar. Það er mikill hugur í ísfirðingum að bæjarfélag þeirra standi framar- lega í þessari héraðakeppni. Víst má telja að minnsta kosti þrír drengir, sem ^ðeins eru á 3. ald- ursári þreyti gönguna. Feður þeirra eru nú að búa þá undir hana, en veður hefur ekki ver- ið sem hagstæðast, kuldi og stund um mikil hríð. EGILSSTADIR Á Egilsstöðum er þátttakan mjög mikil. Þar eru búsettir um 190 manns, en 80 hafa lokið göng unni, eða nál. 50%. Þar er mik- ill áhugi og hugur í mönnum tál sigurs fyrir hérað sitt. ESKIFJÖRDUR Landsgangan hófst hér í gær (sunnudag) og gengu hér 170 manns, fólk á öllum aldri, frá 4—76 ára. Verður göngunni hald- ið áfram þessa viku. — Gunnar. Erlendir nrvolsþjólíarar kenna handknattleik hjó öllum lélögum EINS og skýrt var frá í sunnu- dagsblaðinu voru væntanleg þá um kvöldið dönsk hjón, Aksel Koldste og kona hans, sem hér munu fást við þjálfun handknattleiðsliða á vegum Handknattleiðsráðs Reykja- víkur. Þjálfun hófu þau þegar í gærkvöldi og var kvenna- flokkur Vals fyrsti flokkur- inn sem tilsagnar þessara færu dönsku hjóna naut í hand- knattleik. Voldimar Örnólfsson tvíkeppnis- raeistari stúdenta í Frakklandi Fœr víða lcf fyrir hœfileika sína MEISTARAMÓT franskra háskólastúdenta í skíðaíþróttum fór fram við Méribel-les Ailues 5. og 6. marz s.L Meðal þátttak- enda var einn íslendingur, Valdimar ÖrnólfSson, sem getið hefur sér og landi sínu frægðarorð á ýmsum skíðamótum stúdenta það sem af er vetrinum. Valdimar vann á þessu móti enn einn stór- sigur, þar sem hann sigraði í tvíkeppni: bruni og sviði. * SVIGIÐ Valdemar segir í bréfi hing- að heim frá mótinu. Svig fór fram á undan. I fyrri ferð datt Valdemar og varð að hlaupa til baka nokkra metra. í síðari um- ferð náði hann beztum brautar- tíma og náði þrátt fyrir fallið 8. sæti í svigkeppninni. ýý BRUNIÐ í bruninu sigraði Valdemar með nokkrum yfirburðum, var 2,9 sek. á undan næsta manni. „Og þar sem brun gefur hag- stæðari stigatölu þegar keppt er í tvíkeppni en svigið, þá vann ég tvíkeppnina. f henni er keppt um bikar sem gefinn var til minning ar um stúdent sem í brunkeppni þessa móts fyrir nokkrum árum slasaðist til ólífis. Þann bikar má aðeins veita Frakka og gekk hann því til annars manns, Berthet fró París“.. * EYSTEINN í bréfi sínu segir Valdemar, að frammistaða Eysteins Þórðar- sonar hafi vakið mikla athygli. Meðal annars segir Valdemar að Eysteinn sé frægur orðinn í röð- um austurrísku skíðagarpanna sem eru þeir beztu í álfunni. Einn þeirra, Toni Mark, sagðist hafa veitt Eysteini sérstaka athygli vegna glæsilegs stíls. * BLAÐAUMMÆLI í blaðaúrklippum, sem blað- inu hafa borizt um stúdentamót- i ið franska er fögrum orðum far- ið um Valdemar. Segir eitt blað- ið t. d. að Valdemar hafi alla góða kosti skíðamanns, hörku, hugrekki og öryggi. Svo hagar til að æfingar félag- anna sem handknattleik stunda, en fulltrúar þeirra mynda hand- knattleiðsráðið, eru frá 6—11 dag hvern að Hálogalandi. Þenn- an tíma verða hin dönsku hjón þar innfrá. Einnig munu þau fara til annarra félaga sem annars staðar æfa s. s. KR. Jafnframt því sem þau kenna á æfingum eru ráðgerðir fundir með dómurum og þjálfurum vikulega og verða þeir til skiptis í félagsheimilum félaganna. Sá fyrsti verður í Vals-heimilinu á miðvikudagskvöld kl. 8,30. Þau hjón láta vel yfir ,sér. Þeim lízt vel á handknattleikinn hér. Þau sáu leiki á sunnudagskvöldið og fannst þar margt gott að sjá. Kvenfólkið þekkja þau síðan í sumar í Finnlandi, en þá voru þau viðstödd og frúin keppandi í Norðurlandamóti kvenna. Aðspurð um húsið að Háloga- landi, sagðist þeim svo frá, að það „virtist betra en ekki neitt“. I þessum orðum, sögðum í gamni felst mikil alvara. Þau hafa frá mörgu að segja um vinsældir handknattleiks í Danmörku þar sem aðstaða er góð og það er lærdómsrík saga, sem vikið verð- ur ef til vill að síðar. Aðstöðuna hér verður að bæta og það sem fyrst. Vil kaupa veðskuldabréf eða 3ja-—6 mánaða vel tryggða víxla. Éinnig kemur til greina veðskuldabréf í nýleguM bílum. Uppl. í síma 4433, aðeins milli kl. 7 og 9. Fundur Knailspyrnusamband íslands boðar til fundar á morgun, miðvikudag 20. marz, kl. 8,30 e.h. í Ungmennafél.-húsinu í KeflaVík, fyrir stjórnir íþróltabandalaga, knattspyrnufél., knatt- spyrnumenn, þjálfara, nefndir og aðra, sem að knattspyrnumálum starfa á Suðurnesjum. Fundarefni: . Ávarp. Erindi. Kvikmynd. Frjálsar umræður. Þess vænst að ofangreindir aðilar fjölmenni stundvíslega. Knattspyrnusamband íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.