Morgunblaðið - 21.03.1957, Side 2
2
Blóögjafasveit Isafjarðar-
spítala verður komið upp
Stutt samtal við Úlf Gunnarsson
s j úkrahúslækni
VESTUR á ísafirði erum við að
ljúka undirbúningi að stofn-
un blóðgjafasveitar fyrir sjúkra-
húsið, sagði Úlfur Gunnarsson,
sjúkrahúslæknir á ísafirði, er tíð-
indamaður Mbl. hitti hann sem
snöggvast að máli í gær, en lækn_
irinn hefur verið hér í bænum í
nokkra daga. Ætlaði hann að
fljúga vestur á þriðjudaginn, en
ekkert flugveður var þá. — Og
ekki kemst ég í dag, því enn tef-
ur flugveðrið heimför mína,
sagði hann.
Vestur á ísafirði hafa nokkrir
skátar verið í blóðgjafasveit
undanfarin ár. Hefur það verið ó-
metanlegur stuðningur, sagði
Úlfur. En þegar á það er litið að
framkvæmdar eru í sjúkrahúsinu
um og yfir 500 skurðaðgerðir á
ári hverju, þá verður ekki hjá
því komizt að stofna öfluga blóð-
gjafasveit þar, svo jafnan séu til
taks nægilegar birgðir af blóði
við skurðaðgerðir. Algjört lág-
mark slíkrar sveitar tel ég 100
manns.
ísfirðingar hafa alla tíð sýnt
í verki mikinn áhuga á sjúkra-
húsi sínu. Er nú svo komið, að við
getum framkvæmt allar helztu
læknisaðgerðir og rannsóknir.
Síðasta framlag ísfirðinga til
sjúkrahússins var t.d. er Kven-
félagið Ósk þar í bænum gaf
stóran skurðstofulampa, og auk
þess leslampa við hvert sjúkra-
rúm.
— Sjúkrahúsmálunum er þá
vel í höfn komið?
Á sumum sviðum má segja að
svo sé. Sjúkrahúsið sjálft ér nú
orðið of lítið og mjög farið að
láta á sjá og þarf miklu til við-
halds þess að kosta, sagði Úlfur.
Persónulega er ég þeirrar skoð
unar að hentugast sé að byggja
nýtt sjúkrahús er fullnægi betur
nútíma kröfum. En slíkt kostar
að sjálfsögðu mikið fé. Er nú í
ráði að byggja elli- og hjúkrun-
arheimili í bænum. Myndi ég
telja vænlegra að láta allt það
fé ganga til þess að byggja nýtt
fullkomið sjúkrahús, en flytja
síðan í gamla spítalan elli og
hjúkrunarheimilið. Þar mætti vel
hafa slíka starfsemi þó húsið ekki
henti lengur til spítalahalds. í
gamla spítalanum er t.d. engin
lyfta, en allir sem einhvern tíma
VEGNA m&S að. hinir
v*su -ménit vtð Þ jtHiviSjamt
svo hátt upp hafnir ytr a)!t venjútégt .fúik á Is-
landi. hefur vwnjnlegt isk-nzkt msi «*kki dugað þíim tr!’
þess aU tjá slnar' háleitu hit|*3.jór,ir, Menn .hjfa kvartað,
u.rdsn bvi, «8 þei’- srttu erfitt m«8 «ð skiha l»ít(8vilj«a«.
og þýi vill Alþýðub'oðió fóiki til skiíningsauka, gefaj
handhægar nrðaskýHngar á algtngusíu hugtókunum.
s«m k<ima fyrtr í þv; agæia blaði. ,
Hægri krati A’.þvðufíokksmaður.
Óður hægrl krali foryslumaður i Aiþýr’-uíJokknutö í
ð instri Alþj ðufíokksmnður — Uannibai Vaidimars-<
Son.ug nánustu fy’gisnutnn hans, scto yfirgáíu Aiþýðu-
fiokkínn. . ’. j
Óíu-íH vinstii Alji'ðufiokksmaður — fylgismagi-u,
Ranníha’s, Sem ekk; viil gerast þjónn komroúnista.
. Ewiagarmaður —. Sjuifstæðisíaaður,. sem Stvður:
kotjtTOúíMsta til valria í verkalýáafélögunum.
Vlftstri PrwRisóknarmaður *— hiatr „barjarradikölu"
díitdls;- kommúnisla innan Fiantsóknarílnkkst08.
Vinstri mena -— allir íem starfa meö kommúnistum.
Vinstrl stjórnarstcfna — stefna Kad.trs j Ungver.ja-
lamii.
Braskari —’iðnaðarmenn, sc-m hafa sjáifstæöan rckst-
ur, einkunt i bygginganðnaði.
Ókrarar —- ltefur viBtæka merktngu. pé.n*ngalán.ar-.-
•ar. allir kaupmenn, bæöi þeir, scm annast snaásöiu og*
h.eildsoiu og allir sam lei«ía út húswæði. en þetta ar setu
kunaujft.er úkommumí-tiskar stétlir. , *•,
lltrildsalahiók — Björn ÓÍafáson fiiþingismaöur.
‘£>vkir fint orð. enda rná enytnn nota það í biaðinu
ritstjórSno, Magnús Kiartansson, o» Iselzt i forystugreiu-;
um..
Priitarsinni
ríkiamta.
; Stríósarsingíimaóur — ailir stjórnrná.lamenn hinnaj
vestrænu ríkia aðvir en kommúnistar ktunrium notaði
aai' ..friðarsinna", sem ekkí hafa. veriö nógu íUótúr a£L
átta sig á baygiunum í utanrikisoóHtik Sovetrikjanna --
nokkurrar ieimni hefur gætt við að nota þetta »»‘ð um
isletrzka stjómmálamenn.
Alþýóulýðríeði — það stiórrtörfyrírkomulag þar sem 1
maður eöa nokkrtr stjóma með aðstoð hers og lögieglu
og skiou bmgmenn oe ráöherra. en taka tíJ geymsiu eða
koma fyrir á annan hátt þeim. sem okki skilia stjórnar-
kerítö
Sainvirk forysta — forystumenn t „alþýðulýðrieði"
«111 kotrtið hafa sér saman um að drepa ekki hver annan.
timikimaratiðvald — bartkasfjórar Landsbarikans.
SÍE, SÍS, þegar Stwíalistaflokkurínn er ekki I stiórn ntéð
Framsókn — slundum er þetta orð notað usn ólaf Tbot;s
cg fjölskvJdu haiis.
Milliiilnr — aJlar þær stóttir, sem Sósúíiúltafíí’kk-
urinn hefur var.þóknun á, svo w»m kaupaýslutnofln hvers-
kwnar. allir, sem reka siálfstæóan, rekstwr, neimt útgérð-
armenn é tneðan þeim er vjeíttur rikisstyrkur.
. jptawafrikin stjórnarstefna •— stjór«a«úéíaa acro
áýjfast vi| að k’ggja a sem nsesta skatla.
fylgismaður utaaríkissteínu Sovét-J*
Þesai orðalisíi birtist í Alþýðublaðinu sunnudaginn 17, marz s.L
i)j/ii*rrvi»r i i* ip
21. íriciT’u 1057
Öll skip Eimskip sigla
fullhlaðin til útlanda
NÚ þegar sjómannaverkfallinu er lokið munu öll skip Eimskipa-
félagsins, sem stöðvuðust í því, fara fullhlaðin íslenzkum
framleiðsluvörum til útlanda. Var strax að verkfalli loknu tekið
til við að lesta skipin, bæði hér í Reykjavik og á ýmsum höfnum
úti á landL Tekur lestunin nokkra daga, því að ekkert skipa Eim-
bkipafélagsins mun sigla tómt til útlanda.
Slíkt verkfall á skipaflotanum hefur ætíð í för með sér mikla
röskun á öllum viðskiptum. Hafa vörur hrúgazt upp í höfnuru
erlendis og getur liðið mánuður þar til þær koma heim.
Úlfur Gunnarsson, læknir.
hafa komið í sjúkrahúsið vita að
lyfta er nærri því eins sjálfsagð-
ur og ómissandi hlutur í sjúkra-
húsi og hurðir í dyrum.
Um sjúkrahúsmálin er mikill
áhugi meðal ísfirðinga, þó að
þeir séu skiptir mjög um skoðan-
ir í landsmálum, þá hefur það
aldrei spillt fyrir góðum mál-
efnum viðkomandi sjúkrahúsinu,
sagði Úlfur Gunnarsson læknir
að lokum.
Eimslcipafélagið hefur skýrt
Mbl. frá því hvað skip félagsins
eru að gera um þessar mundir.
Brúarfoss var eins og kunnugt
er í slipp. Viðgerðinni lauk eftir
helgina og hófst lestun í Reykja-
vík í gær. Skipið mun einnig
ferma á Akranesi, Keflavík og í
Vestmannaeyjum og siglir síðan
með 270 tonn af frystu hvalkjöti
til Newcastle, 500—600 t. af fryst-
um fiski til Grimsby og 150 tonn
af frystum fiski til Boulogne í
Fralcklandi.
Goðafoss. Lokið var að afferma
hann í gær og fór skiptð þá
til Vestur- og Norðuriandshafna,
síðan til Faxaflóahafna og Vest-
mannaeyja. Farmurinn verður
1500 tonn af frystum fiski og
5—600 tonn af öðrum vörum til
New York.
Dettifoss byrjaði að ferma í
Reykjavík og Hafnarfirði strax
og verkfalli lauk. í nótt fór hann
frá Hafnarfirði til Keflavíkur.
Síðar í þessari viku siglir hann
Hltökufrestur kom
iveim mín. of seint
FYRIR NOKKRU var tekinn af lífi í St. Quentin fangelsinu í
San Francisco maður að nafni Burton W. Abbott. Hafði hann
verið dæmdur til dauða fyrir barnsrán. Aftakan fór fram með
blásýrugasi.
Tveimur mínútum eftir að blásýrunni hafði verið hleypt á
aftökuklefann, bárust boð frá Goodwin J. Knight ríkissjóra Kali-
forníu, þar sem hann fyrirskipaði að fresta aftökunni, þar sem
málið yrði tekið upp aftur. Ný gögn hefðu komið fram sem gætu
e. t. v. valdið sýkmm fangans.
En símtalið kom of seint. Fanganum varð ekki bjargað.
KVAÐST SAKLAUS
New York Times skýrir nýlega
frá þessum hörmulega atburði.
Fanginn Abbott hafði verið
dæmdur til dauða fyrir að ræna
14 ára skólastúlku að nafni
Stephanie Bryan. Gerðist þetta
fyrir tveimur árum. Abbott neit-
aði því við réttarhöldin að vera
hinn seki og hélt stöðugt fast við
þann framburð. Þrátt fyrir það
þótti kviðdómi sök hans sönnuð.
RÍKISSTJÓRINN EKKI VIÐ
Rétt áður en aftakan skyldi
fara fram fundu lögfræðingar
hans nýtt atriði í málinu, sem
benti til sýknu hans. Reyndu
þeir þegar að setja sig í sam-
band við ríkisstjóra Kaliforniu
til að fá dauðadóminum frestað.
En ríkisstjórinn var ekki við á
skrifstofu sinni. Honum hafði ver
ið boðið í heimsókn í flugvéla-
móðurskip Bandaríkjaflota.
AHRIFAMIKILL
SJÓNVARPSÞÁTTUR
Nú vildi svo til að einn lög-
fræðinga Abbotts átti að koma
fram í sjónvarpsþætti þennan
morgun. Iæt hann koma þeim
skilaboðum til sjóliðsforingja á
flugvélamóðurskipinu, að ríkis-
stjórinn væri béðinn að horfa á
sjónvarpsþáttinn. Þar kæmi fram
áríðandi skilaboð til hans. Ríkis-
stjórinn var við sjónvarpstækið,
þegar þátturinn byrjaði og lýsti
lögfræðingurinn öllum málavöxt
um fyrir honum á áhrifamikinn
hátt. Varð þetta til þess að rík-
isstjórinn bað þegar um radíó-
síma-samband við fangelsið, en
það var orðið of seint. Tveimur
mínútum áður hafði blásýrugas-
inu verið hleypt á.
Eftir þennan atburð kröfðu
blaðamenn fangaverði svars um
það, hvort ekki hefði verið hægt
að bjarga manninum með því að
einhver hefði farið með gasgrímu
inn í klefann. Þeir svöruðu því
að slíkt væri útilokað. Að vísu
myndi gasgríma verja gegn eitr-
un, en ef klefadyrnar væru opn-
aðar, kæmist eiturloftið út í
næstu herbergi og hefði fylgt
því bráð lifshætta fyrir marga
menn. Eina leiðin hefði verið að
dæla eiturloftinu út með sterk-
um loftdælum sem til þess eru
ætlaðar, en það hefði tekið klst.
frá Reykjavík til Lettlands.
Farmurinn er 1500 tonn af hrað-
frystum fiski og 1800 tunnur £if
saltsíld.
Fjallfoss. Affermingu hans mun
ljúka í Rvík á föstudag. Eftir að
hann hefur losað 200 t. af sementi
á Akranesi mun hann taka 950
tonn af skreið til Lundúna og
500 tonn af fiskimjöli til Ham-
borgar. Lestunarhafnir eru við
Faxaflóa, á Vestfjörðum og Vest-
mannaeyjar.
Tunguíoss hafði lestað 800
tonn af brotajárni þegar verk-
falli lauk. Brottför hans tafðist
vegna þess, að veðurskilyrði
leyfðu ekki lestun hans í Kefla-
vik. Hann fór til Keflavíkur í
fyrradag og lestar þar fiskimjöl,
kemur síðan við í Vestmanna-
eyjum á leið sinni til Hoilands
og Belgíu.
Reykjafoss hóf lestun á vörum
út á land strax eftir að verkfalli
lauk. Mun skipið losa 900 tonn
af ýmsum varningi á ísafirði,
Siglufirði, Akureyri og Húsavik.
Síðan kemur hann til Faxaflóa
og fermir hrogn og fiskimjöl til
Svíþjóðar. Lestar síðan í Kaup-
mannahöfn vélar og ýmsar vörur
til Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi og rafmagnsstaura og
aðrar vörur í Gautaborg.
Lagarfoss og Tröllafoss lentu
ekki í verkfallinu. Voru þeir
báðir í New York. Lagarfoss er
væntanlegur til Reykjavíkur
seint í þessari viku með fullfermi
af matvörum, fóðurvörum og
stykkjaflutningi. Tröllafoss fór
19. marz frá New York áleiðis
til Reykj.avíkur einnig með mat-
vörur, fóðurflutning og stykkja-
flutning.
Lagarfoss mun eftir losun f
Reykjavík férma um 900 tonn
af frystum fiski til Austur-Þýzka-
lands, 150 tonn af frystum fiski
til Rotterdam og 500 tonn af
fiskimjöli til Hamborgar. Trölla-
foss siglir aftur til New York
eftir losun í Reykjavík.
Gullfoss siglir eins og allir vita
eftir fastri áætlun og er ekki
hægt að breyta henni verulega.
Hjá honum fellur ein áætlunar-
ferð niður. Átti hann skv. áætlun
að sigla frá Reykjavík ri.k. þriðjn
dag, «i fer væntanlega á föstu-
dags- eða laugardagskvöld til
Leith, Hamborgar og Kaup-
mannahafnar.
AKRANESI, 20. marz: — í gær
var 21 bátur á sjó héðan. Reru
bátar vestur á Jökultungur eins
og undanfarið. Komu sumir ekki
að fyrr en í morgun. Samanlagð-
ur afli var 113 tonn og aflahæst-
ir Höfrungur með 11 tonn,
Bjarni Jóhannsson 10 og Skipa-
skagi einnig með 10 tonn. Síðan
loðnan kom vestur um Reykja-
nes hafa tveir bátar Skóganes
og Freyja verið á loðnuveiðum
fyrir flotann. Veiddu bátarnir
Haglaust í Eskifirði
ESKIFIRÐI, 17. marz. — Ágætis
veður hefur verið hér undan-
farið. Snjór er ekki mikill en
haglaust með öllu. Samgöngur
eru engar héðan nema við Reyð-
arfjörð. Póstur allur er fluttur
með snjóbílum frá Egilsstöðum,
en þangað hafa verið stopular
flugsamgöngur. — Gunnar.
lengi vel út af Stafnnesi, en hafa
síðan verið að færa sig norður
á bóginn. Þeir komust ekki á
miðin vegna norðanstorms á
þriðjudag. Af þessum sökum var
landlega hér á Akranesi í dag.
í kvöld komu bátarnir með
nokkurn afla og beittu 12 bátar
í snatri og héldu á veiðar.
Sundmót skólanna
í kvöld
í KVÖLD fer fram í Sundhöll
Reykjavíkur síðara sundmót
skólanna. Þátttakendur verða m.
a. frá Menntaskólanum á Laug_
arvatni og Héraðsskólanum þar.
Þá fjölmenna og nemendur úr
Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
Einnig eru þátttakendur frá
flestum framhaldsskólum í
Reykjavík.