Morgunblaðið - 23.03.1957, Side 3
Laugardagur 23. marz 1957
MORGUNBLAÐ1Ð
3
Starfsfræðsludagur fyrir æskufólk
á aldrinum 14-20 ára á morgun
Unga fólkinu hjálpað til að
glöggva sig á því starfi sem
hugur þess stendur til
Frá aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna
Myndir þessar eru teknar í fyrradag á aðalfundi Mjólkurbús Flóa-
manna. Efst: Grétar Símonarson flytur ræðu. Honum á vinstri hönd
situr Sigurgrímur Jónsson bóndi í Holti, en á hægri hönd Grétari
sitja Egill Thorarensen formaður mjólkurbússtjórnar og þá Þor-
steinn Sigurðsson bóndi að Vatnsleysu, sem var fundarstjóri. Neðri
myndirnar eru teknar yfir fundarsalinn og sína hinn mikla fjölda
bænda sem á fundinum mætti. Ljósm.: vig.
Amorgun, ' sunnudag, verð-
ur efnt til starfsfræðsludags
fyrir æskufólk á aldrinum 14—20
ára. Fer þessi starfsfræðsla um
allar helztu starfsgreinar hér á
landi, fram í Iðnskólanum, milli
kl. 2 og 5 á sunnudaginn. Full-
trúar starfsgreinanna munu þar
veita hinu unga fólki alhliða
fræðslu um það sem máli skiþtir,
þannig að hið unga fólk geti á
eftir betur áttað sig á því starfi
sem hugur þess helzt stendur til.
í fyrra var slíkur starfsfræðslu-
dagur haldinn hér í bænum og
komu þá yfir 1140 stúlkur og
piltar og þótti starfsfræðslan
takast vel.
Ólafur Gunnarsson, sálfræð-
ingur, hefur skipulagt þetta upp-
lýsingastarf. Skýrði hann blaða-
mönnum frá því í gær hvernig
starfsfræðsludeginum verði nú
hagað.
Skipulag starfsfræðsludagsins
24. marz næstkomandi er með
svipuðum hætti og í fyrra, þó eru
fleiri fulltrúar starfsgreina en þá
eða nærri 80 og auk þess skóla-
stjórar ýmissa sérskóla, svo sem
Stýrimannaskólans, Vélstjóra-
skólans, Iðn,skólans og Hjúkrun-
arkvennaskólans. Þá verður sér-
stakur fulltrúi fyrir Iðnfræðslu-
ráð og Heilsuverndarstöðina.
Starfsfræðsludagurinn verður
í Iðnskólanum, sem Þór.Sandholt
skólastjóri hefur góðfúslega lán-
að starfsfræðslunni án * endur-
gjalds. Allar leiðbeiningar eru
veittar ókeypis af fagmönnum.
Nokkrir ungir kennarar og nem-
endur úr fjórða bekk Kennara-
skóla íslands aðstoða.
Starfsfræðsludagurinn hefst kl.
1,45 með því að Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri ávarpar
starfsfræðslufulltrúana. Klukkan
2 verður húsið opnað almenningi.
Öllum framhaldsskólanemendum
í Reykjavík og nágrenni hefur
verið boðið, enda hafa unglingar
á aldrinum 14—20 ára langmesta
þörf fyrir starfsfræðslu, sagði
Ólafur Gunnarsson.
Menntamálaráðuneytið ákvað í
fyrra að fela Ólafi nokkra starfs-
fræðslustarfsemi í nágrenni
Reykjavíkur. Er nú von á ungl-
ingum frá Kópavogi, Hafnarfirði,
Keflavík, Hlíðardalsskólanum,
Hveragerði og ef til vill Selfossi.
Skólastjórar og kennarar hér í
Reykjavík juku í fyrra mikið
gildi starfsfræðsludagsins fyrir
nemendur sína með því að skýra
— Halló 407, halló 407, Mjólk-
Urbú kallar, skipti.
— Halló Mjólkurbú, 407 hér.
— Já, varst þú að kalla? Ég
heyrði að einhver kallaði, en það
var svo óskýrt. Ég heyrði bara
7. En það hefur kannske verið
Bóbó. Skipti.
— Nei, ég var ekki að kalla.
I>að hefur líklega verið Bóbó.
— Já, allt í lagi. Hvar ert þú
annars staddur?
— Ég er staddur hérna í Krísu-
▼ik.
— Allt i lagi. Blessaður.
— Blessaður.
Þetta stutta samtal heyrðum
▼ið farþegarnir í áætlunarbíl
Kaupfélags Árnesinga á leiðinni
til Reykjavikur í gærmorgun.
Færið var allgott. Lítils háttar
hríðarfjúk var á Selvogsheiðinni.
Þegar komið var inn fyrir bæinn
1 Krísuvík heyrðist allt í einu í
tækinu:
— Ertu búinn að vera lengi á
eftir mér?
— Nei, ég var rétt að ná þér,
•egir bílstjórinn okkar.
— Allt í lagi, farðu fram úr
mér vinstra megin, ég keyri
hérna út á melinn.
fyrir þeim hvernig þeir gætu not-
að sér hann sem allra bezt.
Ég hef orðið þess var að fjöldi
unglinga fékk mjög glöggar upp-
lýsingar um nám og störf starfs-
fræðsludaginn sl. ár.
Fulltrúar hinna ýmsu starfs-
greina hafa undantekningarlaust
brugðizt sérstaklega vel við
beiðni um að taka starfið að sér
á.ný. Létu þeir allir í ljós ánægju
sína yfir deginum í fyrra.
Hér fer á eftir skrá yfir þær
starfsgreinar, skóla og stofnanir,
sem þarna eiga fulltrúa:
Iðnnámssamningar, Brauða- og
kökugerð, bifvélavirkjun, bif-
reiðasmíði, blikksmíði, gullsmíði,
hárgreiðsla, hárskurður, húsgagna
smíði, húsasmíði, ljósmyndun,
klæðskurður, málun, múrun, pípu
lögn, prentiðn, járniðnaður, renni
| smíði, vélvirkjun, eldsmíði, prent
myndasmíði, ketil- og plötusmíði,
járn- og málmsteypa, arkitekt,
Landsgongon
hðfs! í Vík í gæi
VÍK, 22. marz. — Landsgangan
á skíðum hófst í dag hér í Vík.
Enginn snjór hefur verið hér á
láglendi undanfarið, svo að erf-
itt hefur verið um göngu hingað
til. f gærkvöldi og nott var dá-
lítil snjókoma, svo að jörð var
alhvít í morgun. Notuðu skóla-
börn þá tækifærið og ger.gu 4
kílómetrana eftir hádegið undir
stjórn skólastjóra sins, Björns
Jónssonar. Auk þeirra gengu
nokkir fullorðnir. Hafa alls 39
lokið göngunni. Gengið var á
sandinum austan þorpsins, en
færi var slæmt, því að snjór var
mjög lítill. Versnaði það líka er
á daginn leið, því að þá gerði
þíðu. Má segja að jafnt hafi ver-
ið gengið á sandi sem snjó. Nú
er komið rok og rigning og því
erfitt að segja fyrir um hvort
mikið framhald verður á göng-
unni hér í Vík. — J.
— Allt í lagi.
Á undan okkur var heljarstór
trukkur með stóran vagn í eftir-
dragi, og á honum var jarðýta.
Þessir menn munu hafa verið frá
vegagerðinni.
Það er nýstárlegt að koma upp
í venjulegan áætlunarbíl og
heyra stöðug talstöðvarköll, rétt
eins og maður væri inni í loft-
skeytaklefa á skipi á síldveiðum
fyrir Norðurlandi.
En þannig var það í gærmorg-
un í fyrrgreindum áætlunarbíl.
Hér er eitt viðkunnanlegasta* ör-
yggistæki sem um getur í illri
færð á vetrardegi. Þægileg nota-
kennd fer um farþegana. Enginn
finnur til þess þótt hann sé á
ferð í hríð og jafnvel ófærð,
þegar hægt er að hafa stöðugt
samband við byggð. Þannig hef-
ur þetta verið í vetur til ómetan-
legra þæginda fyrir þá sem hald-
ið hafa uppi hinum erfiðu
ferðum austur yfir fjall í vet-
ur.
Þegar við komum inn til Hval-
fjarðar heyrum við síðast í tæk-
inu.
— Halló, Jón forseti, halló, Jón
forseti, Reykjavík-radíó kallar.
guðfræði, hagfræði, háskólanám
í heimspekideild, lögfræði, nátt-
úrufræði, byggingaverkfræði, raf
magnsverkfræði, vélaverkfræði,
blaðamenn, listmálarar, skrif-
stofustörf, bankastörf, afgreiðslu-
störf, póstur, sími, loftskeytamenn
símritarar, símvirkjar, talsíma-
konur, flugmál, flugvirkjun, flug-
freyja, lögregluþjónar, tollgæzla,
kennarar, leikarar, fóstrur, bíl-
stjórar, rafvirkjun, skipasmíði,
skósmíði, úrsmíði, útvarpsvirkj-
un, veggfóðrun, Iðnskólinn í
Reykj avík, Stýrimannaskólinn,
Vélstjóraskólinn, skipstjórar, stýri
menn, loftskeytamenn sjómenn,
fiskimat, mótornámskeið, verk-
stjórar, landbúnaður, bændur,
garðyrkjumenn, mjólkuriðnaður,
skógrækt, heilbrigðismál, Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur, læknis-
fræði, tannlækningar, hjúkrun,
Hjúkrunarkvennaskóli íslands,
ljósmæður, slökkviliðsmenn,
verkamenn og húsmæður.
Námskeið í glugga-
skreylingum
ÞAÐ hefur nú verið afráðið að
fá hingað til lands norskan kunn-
áttumann í gluggaskreytingum,
Per Skjönberg að nafni, til þess
að halda hér námskeið og mun
það standa í 3 vikur.
Skjönberg kemur hingað á veg-
um félagsins SÖLUTÆKNI, en
fyrir skömmu var hér annar er-
lendur maður á vegum félagsins;
hélt hann námskeið í sölu-
mennsku og var það mjög fjök-
sótt.
Kennsla Per Skjönbergs verð-
ur bæði fræðileg og verkleg. —
Hann mun hafa meðferðis marg-
vísleg ný tæki, sem notuð eru
til gluggaskreytinga.
Kennt verður í húsnæði Hand-
íða- og myndlistarskólans, sem
veitir félaginu aðstoð við fram-
kvæmd þessa máls.
Þar sem þörfin fyrir umbætur
í þessum efnum er brýn má gera
ráð fyrir mikilli aðsókn að nám-
skeiði þessu.
Landsgangan
AKRANESI, 22. marz. — Lands-
gangan er í fullum gangi hér.
Fyrst var skíðaganga á hverju
lcvöldi, en á síðustu helgi var
gerð sú breyting á, að gengið
skyldi fjórum sinnum í viku. Á
áttunda hundrað hafa lokið skíða
göngunni hér. Elzti þátttakand-
inn er 60 ára, sá yngsti þriggja
ára drengur, Indriði Ólafsson.
— Oddur.
VENVER, Colorado: — Það fór
heldur en ekki um íbúana í einu
úthverfi Denver á laugardaginn,
er flugvél allt í einu steyptist
niður á mikla umferðargötu með
brauki og bramli.
Þótt undarlegt megi virðast,
sakaði engan — hvorki flugmenn
né vegfarendur.
Tildrögin voru þau, &ð Dani
nokkur og Suður-Ameríkumaður,
sem stunda nám í flugskóla í
grennd við borgina, leigðu sér
iitla flugvél til skemmtiflugs. 1
lítilli hæð yfir Denver bilaði
DALVÍK, 21. marz. — Afli er
ennþá lítill sem enginn hjá línu-
bátunum. Mun þar valda að
nokkru um að loðna er komin á
miðin. Aftur á móti er sæmilegt
útlit hvað togbátana snertir. —
Rauðmagaveiði hefur verið lítil
en á eftir að glæðast að öllum
líkindum.
Snæfell landaði hér í gær rúm-
um 50 lestum af góðum fiski, er
fór til vinnslu í frystihús KEA.
★
AKRANESI, 22. marz. — Afli i
bátanna hér í gær var tregur
eins og fyrri daginn. Hæsti bát-
urinn hafði 10 lestir. Tveir höfðu
yfir sjö lestir og hinir allt nið-
ur í 3 lestir. — Netjabáturinn
Böðvar kom og í gær eftir hálfs
annars sólarhrings róður með
3—4 lestir. Trillubáturinn Happa-
sæll reri á sunnudaginn með
handfæri og leitaði afar víða fyr-
ir sér á miðunum; komst jafnvel
hreyfill vélarinnar — og neyddust
flugmennirnir til þess að nauð-
lenda þegar í stað. Rakst flug-
vélin fyrst á rafmagnsvíra, en
hafnaði á húsþaki við fjölfarna
götu. Ekki dvaldist henni þar
nema augnablik, því að hún ramb
aði fram af húsinu — niður á
götuna. Svo sem fyrr segir urðu
flugmennirnir ekki fyrir teljandi
meiðslum — og þykir undrum
sæta, að rafmagnsvírarnir skyldu
ekki skaða þá. Hins vegar varð
stórt hverfi rafmagnslaust í
nokkra hríð vegna skemmdanna.
langleiðina suður að Garðskaga.
Fengu þeir 800 kg. Hvergi sáu
þeir fuglager og er það vottur
þess að loðnan er ekki kornin á
miðin hér inn um Faxaflóa, hvað
sem veldur. Haft hefur verið á
orði að hitastig sjávarins í Faxa-
flóa hafi verið fremur lágt í
fyrra, og í ár mun það vera enn
lægra. — Oddur.
★
HAFNARFIRÐI. — Enn er treg
veiði hjá línu- og netjabátunum.
Guðbjörg og Hafbjörg eru enn
á línu og hafa aflað lítið undan-
farið. Hinir bátarnir eru á netj-
um og hefur einnig verið tregt
hjá þeim, þótt einstaka bátur
hafi stundum aflað vel eða um
40 skipd. yfir nóttina.
í gær var landað úr Röðli um
85 tonnum af saltfiski og 20 af
ýsu eftir hálfrar annarrar viku
útivíst. — G. E.
★
PATREKSFIR3ÐI, 21. marz. —
Bátarnir hér hafa ekki róið síð-
ustu dagana. Afli var tregur síð-
ast þegar gaf. Til marks um afla-
leysið má nefna, að aflahæsti bát-
urinn frá áramótum er nú með
alls 280 lestir af óslægðum fiski.
Er það Andri. Er nú í ráði að bát-
urinn hætti með línu en byrji að
róa með þorskanet. — Karl.
„FYLKIR“, félag ungra Sjálf-
stæðismanna á ísafirði, hefir stað
ið að nokkrum spilakvöldum 1
vetur. Hafa þau verið vel sótt.
f ráði er að félagið taka upp fjöl-
breyttari starfsemi. Aðalfundw
mun verða haldinn á næstunni.
f stjórn „Fylkis" eiga nú sæti:
Guðfinnur Magnússon, formaður,
Steindór Þórisson,
Magnús Þórðarson,
Guðbjörn Charlesson,
Richard Sigurbaldason.
Halló 407. Mjólkurbú kallar. Skipti
Hlustað á talstöð i áætlunarb'il
Flugu á rafmagnsvíra,
en sluppu ómeiddir