Morgunblaðið - 23.03.1957, Síða 8

Morgunblaðið - 23.03.1957, Síða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ T-augardagur 23. marz 1957 Frú Edda Biering DÁIN, horfin, harmafregn. Hvernig má það vera, að ung og glæsileg kona skuli falla svo skyndilega fyrir sigð dauðans, einmitt þegar starfsdagur henn- ar er að byrja fyrir alvöru? Að baki liggja ár undirbúnings og reynslu, en framundan er heim- ferðin til fósturjarðarinnar og starfsárin. Að kvöldi laugardagsins 9. febrúar s. 1. bárust okkur vin- MINNINGARORE um frú Eddu Biering þau ógn- þrungnu tíðindi, að hún hefði látizt í bifreiðaslysi í Minnea- polis í Bandaríkjunum daginn áður. Helfregnin kom sem reið- arslag, einmitt þegar undirbún- ingurinn undir heimferðina var að hefjast og framtíðirí blasti við, full glæstra vona. Þá ber dauðann að fyrirvaralaust. Á einu augabragði er eiginmaðurinn sviptur ástríkri og elskulegri eiginkonu, lítil stúlka er móður- laus, ástríkir foreldrar sviptir gáfaðri og mikilhæfri dóttur og tengdaforeldrar virtri og elskaðri tengdadóttur. Margra ára undir- búningur undir lífsstarfið kom fyrir ekki. Glæstar vonir brugð- ust óvænt. Svo hrapallega slær maðurinn með ljáinn. Edda Biering var fædd 2. maí 1930. Dóttir hjónanna Jensínu Gunnlaugsdóttur og Ólafs Tryggvasonar frá Kirkjubóli í Skutulsfirði. Hún giftist eftirlif- andi manni sínum, Gunnari Biering, cand. med., 30. sept. 1953. Áttu þau eina dóttur, Huldu, fædda 17. jan. 1956. Edda Biering var því aðeins 26 ára gömul, er hún lézt. Þrátt fyrir það hefir hún reist sér óvenju glæsilegan og óbrotgjarnan minnisvarða í vitund allra þeirra, er henni kynntust. Hún ólst upp á stórbrotnu heimili foreldra sinna á Kirkjubóli og hlaut það- an gott veganesti út í lífið. Af hverfu tryggið þér húsgögnin en ekki konuna og börnin? Vatnsslsaði Ýmis konar ÁbyrgSarts. Farangurstr. Farangurstt. Abyrgðartr. Samanburður miðaður við að lausafjármunir tryggist fyrir 100.000 krónur. 180-225 kr. kostar brunatrygging í steinhúsi, en . . . . í sams konar húsi kosta allar þessar tryggingar aðeins 325 kr. Vér höfum nú um alllangt skeið haft til athugunar að útbúa tryggingu, sem tryggði hið almenna heimili gegn sem flestum óhöppum, fyrir lágt iðgjald. Og nú höfum vér ánægjuna af að kynna yður árangurinn, heimilistryggingu vora Með henni bjóðum vér í einu og sama tryggingarskírteini fjölmargar tryggingar fyrir lágmarksiðgjald. Sumar þessara trygginga hefur verið hægt að fá hér á landi stakar, en aðrar ekki. Vér viljum sérstaklega vekja athygli yðar á, hve iðgjaldið er lágt miðað við hversu víðtæk tryggingin er. Ennfremur, að það er nýmæli, sem flestum mun Þykja þarft, að tryggingarupphæð lausaf jármuna breylist ár frá ári eftir vísitölu framfærslukostnaðar. Heimilistry gging er Keimilisnauðsy n ! Kom/ð eða hringið strax í dag. S AIMI'vn TU'TT MY(E <E n M (KiSklK, SAMBANDSHÚSINU — SÍMI 7080. Vorið 1946 lauk hún prófi frá Gagnfræðaskólanum á ísafirði, en fluttist þá til Reykjavíkur og hóf skömmu síðar starf hjá Lands síma íslands. Engan hefi ég þekkt, sem varði tíma sínum jafnmikið í þágu annarra. Hún var gædd þeim dásamlega eiginleika að geta ávallt glatt aðra, varpað birtu á veg samferðamanna sinna og líknað þeim, sem um sárt áttu að binda. Það var því engin .til- viljun, að hún hóf hjúkrunar- nám strax og hún hafði aldur til, haustið 1949. Lauk hún hjúkr- unarnámi vorið 1952 og var þá heitbundin eftirlifandi manni sínum. Haustið 1953 héldu hin ungu og hamingjusömu brúðhjón vest- ur um haf og settust að í borg- inni Minneapolis, þar sem þau reistu sitt fyrsta og einasta heimili. Starfaði hún sem hjúkr- unarkona í sjúkrahúsi þar í borg- inni, meðan eiginmaðurinn hélt áfram sérnámi. Vann hún þannig jöfnum höndum að því að byggja upp fagurt og ástúðlegt heimili þeirra hjóna og að líkna sjúkum og þjáðum. Það er mikil blessun að kynn- ast góðu fólki á lífsleiðinni. Á göngu okkar kynnumst við ýmsu fólki. Sumir skilja lítið eftir, aðr- ir verða manni ógleymanlegir. Edda Biering var ein þeirra. Hún var traustur vinur vina sinna, grandvör til orðs og æðis. Hún var ætíð létt í lund og allra kvenna skemmtilegust í glöðum hóp og þoldi ekki fortölur né þunglyndi. Kom þessi skapgerð sér vel í starfi hennar og mót- aði það umhverfi, sem hún var í. Var hún fyrir það virt og elskuð af öllum þeim fjölda, sem hún umgekkst og henni kynnt- ist. Meðan hún dvaldist hér á landi tók hún virkan þátt í störfum skátahreyfingarinnar, bæði í Svannasveit Kvenskátafélags Reykjavíkur og Kvénskátafélags- ins Valkyrjan, þegar hún dvald- ist á ísafirði. Þar, eins og alls staðar annars staðar, var hún hrókur alls fagnaðar og hinn sjálfkjörni foringi, enda lét það henni vel að stjórna. Við vinir Eddu Biering eigum erfitt með að sætta okkur við, að hún sé nú horfin sjónum. Oft áður hafa leiðir skilizt um lengri eða skemmri tíma. En þótt vík Framh. á bls. 19 Aðalfundur lleimdallar F. I). S. HEIMDALLUR félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur aðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 24. marz klukkan 2 e. h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Heimdellingar eru hvattir til þess að fjölmenna á fundinn. Stjórn Heimdallar F.U.S.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.