Morgunblaðið - 23.03.1957, Page 10

Morgunblaðið - 23.03.1957, Page 10
10 MORGVNBLAtoia £,augardagur 23. marz 1957 JMttpifjMaM Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun. UTAN ÚR HEIMI [ Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Ami Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritsíjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Hver er stefna ríkíssfiórnnrmnar? RUGLINGURINN er á mörgum sviðum hjá núverandi stjórnar- flokkum. Nú er svo komið að há- værar deilur eru um það innan. stjórnarflokkanna, hvort þings- ályktunin frá 28. marz í fyrra um uppsögn varnarsamningsins og brottför varnarliðsins sé í gildi ennþá eða ekki. Af hálfu komm- únista er staðið fast á því að framkvæmd ályktunarinnar hafi aðeins verið frestað, en sjálf sé hún enn í fullu gildi. fslendingar þurfi ekki annað en að árétta þessa þingsályktun gagnvart Bandaríkjamönnum og séu þeir þá skyldugir til að flytja varnar- liðið burt. Þess vegna sé varnar- liðinu líka algerlega óheimilt að hafa hér nokkrar framkvæmdir með höndum. Þá saka kommún- istar utanríkisráðherra Alþýðu- flokksins um að hafa gert ein- hverja leynisamninga við Banda- ríkjamenn um frekari varnar- liðsframkvæmdir hér og rétt til þeirra. Þjóðviljinn veittist sér- staklega að Áka Jakobssyni fyr- ir að viðhafa þau umæli í Al- þýðubiaðinu, að Bandaríkjamenn hafi bæði „rétt og skyldú' til að hafa hér með höndum fram- kvæmdir í varnarskyni og telur þau ummæli béra vott um, að Áki Jakobsson sé „hermangari", eins og blaðið orðar það. Hér varar Þjóðviljinn sig sýnilega ekki á því, að það var Tíminn, sem í forystugrein hinn 13. þ.m. kvað upp úr um það fyrstur af stjórnarblöðunum að varnarliðið hefði bæði „rétt og skyldu" til framkvæmda hér á landi. Þannig er þá hljóðið í stærsta stuðningsflokki stjórnarinnar. Meira en lítið undar- legt — Allt annað sjónarmið hefur komið fram innan Alþýðuflokks- ins. Einn af þingmönnum þess flokks hefur nýlega haldið því fram, að þingsályktunin frá 28. marz væri að fullu afgreidd og endanlega úr gildi feld. Ef ís- lendingar vilji binda endi á dvöl varnarliðsins, verði að fitja upp á nýtt með því samningurinn við Bandaríkin um áframhaldandi veru varnarliðsins, sem öll ríkis- stjórnin hafði með höndum, og kommúnistar þá einnig líka, hafi komið í stað þess ástands, sem skapaðist eftir að þingsályktunin frá 28. marz var samþykkt. Varn arliðinu sé því bæði „rétt og skylt" að hefja hér framkvæmdir að nýju. Tíminn, blað forsætis- ráðherrans, hefur tekið undir síðasta atriðið en að öðru leyti ekki beinlínis rætt um það, hvort þingsályktun frá 28. marz í fyrra sé enn í gildi eða ekki. Þannig er þá ágreiningurinn milli stjórnarflokkanna, út af þingsályktuninni frá í fyrra. Það má segja að meira en lítið sé undarlegt að deilur um annað eins og það hvort þingsályktun- in sé í gildi eða ekki skuli geta átt sér stað. Þessi þingsályktun varðaði stórmál, hún var örlaga- rík fyrir Islendinga og eftir henni var tekið um allan heim, enda varðaði hún hagsmuni miklu fleiri landa en fslands eins. En nú er svo komið að stjórnar- flokkarnir virðast alls ekki koma sér saman um, hvort þingsálykt- unin sé í gildi eða ekki og hvern- ig aðstaða bandaríska varnarliðs ins raunverulega sé hér á landi þótt ekki séu nema fáir mánuðir síðan setið var við samningaborð með Bandaríkjamönnum! Eins og Þjóðviljinn lýsti yfir hafði öll ríkisstjórnin samn- ingana við Bandaríkjamenn með höndum og ber hún því í heild ábyrgð á þeim. Allar ásakanir um brigðmælgi hljóta því að hitta alla stjórnarflokkana og þá kommúnista auðvitað líka, en slíkar ásakanir má daglega lesa í Þjóðviljanum. Tímabær smirnin" Þegar litið er á hinar miklu deilur meðal stjórnarflokkanna og ágreining í viðkvæmustu og þýðingarmestu málum þjóðarinn ar, þá er sízt vanþörf á að spyrja, hver sé hin raunverulega stefna ríkisstjórnarinnar í þessum mál- um. Hér er ekki spurt um álit eða vilja einhvers einstaks þing- manns, flokks eða flokksbrots, heldur er hér spurt um það hver sé hin sameiginlega stefna ríkis- stjórnarinnar allrar ef slík stefna er á annað borð fyrir hendi. Þjóðin á heimtingu á að fá skýrt og afdráttarlaust svar við þessari spurningu, sem varðar hana svo mjög. Sjólísögð byggingalú „TÍMINN" hefur ekki haft fyr- ir því að fræða lesendur sína á óreiðu kommúnista í „Iðju", sem er stórhneyksli. Blaðið skýrir ekki frá aðferðum kommúnista þar, svo sem eyðileggingu skjala félagsins og öðru svipuðu. Tím- inn er nú í nánu bandalagi við kommúnista og það er þá líka í samræmi við það að blaðið lepur upp úr Þjóðviljanum rógskendar árásir á Sparisjóð Reykjavíkur út af lánum til húsbygginga við Bogahlíð, en sleppir fréttum frá „Iðju“. Hér er um algerlega til- efnislausa árás að ræða af hálfu Tímans og kommúnista. Lán Sparisjóðs Reykjavíkur til Bogahlíðarhúsanna eru ekki að- eins veitt samkvæmt gildandi reglum veðlánakerfisins heldur í fullu samræmi við þær reglur, sem Þjóðviljinn hefur talið að gilda ætti. Með lánveitingum til þessara húsa var greitt fyrir byggingu íbúða, sem óvenju skamman tíma tók að koma upp. Þær eru leigðar fyrir lægra verð en tíðkast um nýjar íbúðir og koma því einkum þeim að gagni, sem ella væru allar bjargir bann- aðar. Það var því sjálfsagður hlutur að veita lán til einmitt þessara bygginga. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem kommúnistarógur er endurtek- inn í Tímanum. Innrætið við Þórsgötu og Skuggasund sýnist vera eitthvað svipað. c ki/alvador Dali er kúnst- ugur Spánverji, sem m.a. er frægur fyrir súrrealistísk mál- Prúðmenni ræða aldrei um tölur. verk, er fáa eiga sína líka í nú- tímamálaralist sökum afkára- legrar myndgerðar, Þau minna einna helzt á litaðar ljósmyndir af tunglinu. Aðalfrægð sína hef- ur Daii hins vegar hlotið fyrir alls konar fáránleg asnastrik og skrípalæti. Sagt er, að hann lifi á „einka-brjálæði sínu“. Nýlega var hann ráðinn til að skreyta næturklúbb I Apaculco í Mexíkó. Fær hann rúmar 20 milljónir króna fyrir verkið, enda á skreyt ingin að verða einstæð. Kataloníu, rétt við frönsku landa mærin. Ungur kom hann til lista háskólans í Madrid, en var þar aðeins eitt ár. Hann. var rekinn úr skólanum, þegar hann hafði gefið til kynna stjórnleysis-til- hneigingar sínar með því að dýfa peningaseðlum í whisky og kveikja síðan í þeim. Síðar varð þessi frægi stjórnleysingi kon- ungssinni, þessi frægi uppreisn- armaður góður katóliki. í mál- aralist hefur hann verið öfga- samur súrrealisti, en hann hef- ur jafnframt fengizt við fjöld- ann allan af öðrum hlutum: búða- og næturklúbbaskreyting- ar, tízkuteikningar, útgáfu skrípamynda af sjálfum sér o. s. frv. Allt hefur þetta fært hon- um morð fjár og mikla frægð, og er varla ofsagt, að enginn sam tíðarmaður hafi gert sér jafn- mikinn mat úr vitleysunni. F rægðarferill Dalis hófst í París, þegar hann gerði umtal. Helztu hjálpargögnin við gerð þeirrar myndar voru af- höggvin hönd, kýrauga, nakin kona með bjarnarskinn undir handleggnum, þrjú býflugnabú, munnlaus maður og fjórir dauðir asnar á hljómleikaflygli. Eftir fá- dæma gengi þessarar kvikmynd- ar gerði hann kvikmyndina „L’Age d’or", en fór síðan til Bandar., þar sem hann hóf „stór- iðnað" í málverkagerð og varð stórfrægur fyrir að ganga fram af mönnum. Ekki verður það dregið í efa, að Dali er leikinn málari og oft frumlegur, en aðal- gengi sitt á hann að þakka þeim ummælum, sem hann lætur fylgja hverju málverki. Hann er einn mesti auglýsingamaður, sem nú er uppi. Heitin á málverkum hans eru jafnfjarstæð og allt annað, sem hann gerir. Eitt kall- ar hann t.d. „Símarnir steikja sardínur í lok september", ann- að „Einni sekúndu fyrir lok draums, sem orsakaðist af bý- fiugu, er flaug í kringum kjarn- II f.lann segír sjálfur: „Hún á að hafa hreyfingu, anda og líffræðilega starfsemi — og gefa gestunum svo dásamlega til finningu af vellíðan, að þeir þurfi alls ekki að drekka . . .“ Maður hefði haldið, að frá sjónarmiði eigendanna væri slík hugmynd ekki beinlínis aðlaðandi. Og Dali heldur áfram: „Tilgangur skreyt ingarinnar á að vera að veita gestunum ákveðna brjálæðis- kennd, án þess þó að þeir séu sjálfir brjálaðir". Hann hefur ekki látið uppi, hvernig hann hefur hugsað sér að ná slíkum áhrifum. D. ’ali er líka frægur fyr- ir sitt langa og merkilega yfir- vararskegg, sem hann kallar sjálf ur „loftnet innblástursins". Hann fæddist árið 1904 í Figueras í Hvað finnst þér um vöxt kommúnismans? vaxtar á andlitinu fer honum síhrakandi. Frá sjónarmiði hár- kvikmyndina „Hundurinn frá Andalúsíu", sem vakti alheims- epli", og þannig mætti lengi telja. En mesta eftirtekt og um- tal vekur hann samt meðal Bandaríkjamanna með fram- komu sinni, sem er vægast sagt frumleg. Síðasta uppátæki Dalis er málverk af gríska skipakóng- inum Stavros Niarkosi. Það sem að þessu sinni vekur umtal er sú staðreynd, að Dali hefur mál- að Niarkos allsnakinn þar sem hann stígur upp úr Miðjarðar- hafinu . . . og að Niarkos hefur enga hugmynd um, að Dali er að mála hann, sízt af öllu alls- nakinn. „Dali gerði nokkrar upp kastsmyndir af mér í fyrra" segir Niarkos, „meira veit ég ekki'*. „Þessi mynd verður merkilegasta málverk mitt hingað til“, segir Dali, en það hefur hann raunar sagt um hverja einustu mynd, sem hann hefur gert. Hvað er súrrealisminn? — Súrrealisminn, það er ég. IVIeðfylgjandi myndir eru teknar úr bók, sem Dali gaf út í samvinnu við ljósmyndar- ann Phillippe Halsman og nefn- ist „Yfirskegg Dalis". Gefa þær nokkurn veginn rétta mynd af manninum! Dali vitle ysesn ffullnáma hans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.