Morgunblaðið - 23.03.1957, Blaðsíða 20
Fréttamaður CBC
Sjá blaðsíðu 11.
Finna þœr á sér batnandi veður?
Það er engu líkara en þessar litlu stúlkur finni á sér batnand tíðarfar, þvi þær eru þegar farnar að
leika sér í „parís“. Þessa mynd tók ljósm. Mbl. af nokkrum skólatelpum þar sem þær voru að hoppa
í þessum vorleik.
Tvö slys á göfum bæjarins
Vorðar-kaiíi í Valhöll
kl. 3—5 e.h. í dog
Nýjung 'i félagsllfi Varbar
LANDSMÁI.AFÉLAGIÐ VÖRÐUR hefir ákveðið að gera ráðstaf-
anir til þess að Varðar-féiagar geti hitzt og stofnað til frekari
kynna sín á milli en mögulegt er á félagsfundum. Verður þetta gert
með þeim hætti að félagsheimili Sjálfstæðismanna, Valhöll, verður
opið Varðar-félögum kl. 3—5 á laugardögum og verða þar kaffi-
veitingar á þeim tima.
Þess er vænzt að Varðar-félagar eftir því sem þeir geta við komið
líti inn í Valhöll á þessum tíma til skrafs og ráðagerða um leið og
þeir fá sér síðdegiskaffið. Gert er ráð fyrir, að jafnan verði ein-
hverjir af forystumönnum flokksins viðstaddir.
Þessi nýjung í félagslífi Varðar hefst í dag og verður Varðar-
kaffið í Valhöll kl. 3—5 e. h.
M klukkan 2 í gærdag urðu
tvö umferðarslys hér á göt-
um Reykjavíkur. í báðum tilfell-
unum var um böm að ræða. —
Slapp annað þeirra lítið meitt,
en hitt, 10 ára drengur, er tals-
vert slasað. Síðan um áramót
hafa umferðarslys verið óvenju-
fétíð hér í Reykjavík.
Aðalfundur
Heimdallar
HEIMDALLUR, F.U.S. heldur að
alfund sinn í Sjálfstæðishúsinu
á morgun kl. 2 e.h. Á fundinum
fara fram venjuleg aðalfundar-
störf. Eru Heimdellingar eindreg
ið hvattir til þess að fjölmenna
á fundinn.
Um kvöldið verður svo
Kvöldvaka
I Sjálfstæðishúsinu og hefst hún
kl. 8,30. Verði aðgöngumiða er
mjög stillt í hóf og kostar mið-
inn aðeins kr. 15.00. — Aðgöngu-
miðar verða seldir í Sjálfstæðis-
húsinu frá kl. 2 e.h. á sunnudag.
Á þessari kvöldvöku verður eins
og venjulega vandað mjög til
skemmtiatriða. Dansað verður til
kl. 1.
Drengurinn var á reiðhjóli
ásamt vini sínum. Hann heitir
Leifur Jónsson Rauðarárstíg 7.
Skammt frá gatnamótum Flóka-
götu og Rauðarárstígs fór fram
úr þeim stór vörubíll og dró
hann á eftir sér stórt símastrengs
kefli. — Varð Leifur fyrir kefl-
inu er bíllinn beygði skyndilega
inn á Flókagötuna. Var dreng-
urinn fluttur meðvitundarlaus í
sjúkrahús.
Bílstjórinn vissi ekki um slysið
og hélt bíllinn fcrðinni áfram.
Frétti bílstjórinn ekki um slysið
fyrr en lögreglan var komin í
málið og tekin að leita bílsins. —
Sagðist bílstjórinn ekki hafa séð
neitt til ferða Leifs og vinar hans
á reiðhjólunum. Aftur bar mað-
ur, sem í bílnum var, er slysið
varð, að hann hefði séð drcngina
báða fyrir framan bílinn.
HÖFUÐKÚPUBROTINN
í gærkvöldi var Leifur enn
ekki kominn til fullrar meðvit-
undar og mun það standa í sam-
bandi við höfuðkúpubrot sem
hann hlaut í þessu slysi.
•
Einnig um klukkan 2 varð 9
ára telpa fyrir bíl á gatnamótum
Hverfisgötu og Rauðarárstígs, en
hún meiddist ekki mikið. Heitir
hún Ásta S. Lárusdóttir, Skúla-
götu 72.
Ársþing iðnrekenda
hefsl í dag
ÁRSÞING iðnreketida verður
sett í Þjóðleikhúskjallaranum
kl. 2 í dag. Þingið hefst með
aðalfundarstörfum í Féiagi
íslenzkra iðnrekenda og mun
form. féiagsstjórnar Sveinn
B. Valfells flytja yfirlits-
skýrslu stjórnar félagsins á s.l.
ári.
„Fjolnir” í
Rangárvalla-
sýslu
EINS og gefur að skilja er starf-
semi félaga í sveitum lands-
ins miklum erfiðleikum bundin
yfir vetrarmánuðina. „Fjölnir",
félag ungra Sjálfstæðismanna í
Rangárvallasýslu hyggst strax og
vorar gangast fyrir samkomu á
Hellu. S.l. haust hélt Samband
ungra Sjálfstæðismanna glæsilegt
héraðsmót að Hellu.
Stjórn „Fjölnis" skipa:
Jón Þorgilsson, Hellu, formaður,
Hermann Sigurjónsson, Raftholti,
Eggert Haukdal, Bergþórshvoli,
Leifur Einarsson, Nýjabæ,
Arnþór Ágústsson, Bjólu.
Fólk mun undrast mjög að lesa
um slíkt tómlæti, en þetta er
eigi að síður staðreynd. — Fyrir
nokkru var hafin mænu-sóttar-
bólusetning fólks, 16—20 ára.
Miðað við bólusetninguna fyrir
jólin, töldu læknar ástæðu til
þess að búast við mikilli aðsókn,
og hægt yrði að ljúka þessum
aldursflokkum á tilsettum tíma.
En sem fyrr greinir hefur þetta
nú farið á annan veg.
20—40 ÁRA
Þrátt fyrir það munu heil-
brigðisyfirvöldin hér í Reykja-
vík hafa ákveðið, að því er Mbl.
hefur fregnað, að halda áfram
Fyrlrlestur um nyl-
semi skeldýra
HIÐ íslenzka náttúrufræðifélag
heldur fræðslufund mánudaginn
25. marz kl. 8,30 í fyrstu kennslu-
stofu Háskólans. Flytur þá Ingi-
mar Óskarsson, grasafræðingur,
fyrirlestur um nytsemi skeldýra.
Árlega eru haldnir margir
fræðandi fyrirlestrar um náótúru-
fræðilegt efni á vegum félagsins.
Eru þeir fluttir í Háskólanum
síðasta mánudag hvers vetrar-
mánaðar og eru ævinlega mjög
vel sóttir.
Síðasta erindi, sem flutt var á
vegum félagsins var um jurta-
leifar frá Bergþórshvoli á sögu-
öld.
Marga mun fýsa að heyra Ingi-
mar Óskarsson tala um hin ýmsu
not, sem hafa má af skeldýrum,
til skrauts og gagns. Er öllum
unnendum náttúrufræða heimilt
að koma og gerast meðlimir í fé-
laginu.
Félag bifvélavirkja
í FYRRAKVÖLD var haldinn
aðalfundur í Félagi bifvélavirkja.
í stjórn félagsins voru kjörnir:
Lárus Guðmundsson, form. Pétur
Guðjónsson, varaform., Sigur-
gestur Guðjónsson, ritari. Guð-
mundur Þorsteinsson, féhirðir og
Guðmundur Óskarsson, með-
stjómandi.
Fylgi kommúnista hefur stöð-
ugt farið minnkandi hjá bifvéla-
virkjum og nú eru þeir mjög á-
hrifalitlir í stjórn félagsins. Hafa
því kommúnistar misst enn eitt
verkalýðsfélagið úr höndum sér.
mænusóttar-bólusetningunni í
hærri aldursflokkum. — Mun í
næstu viku verða byrjað að bólu-
setja fólk eldra en tvítugt, en
bólusetningaraldurinn er fram að
fertugu. Mun hugmyndin að
halda bólusetningunni sleitulaust
áfram unz þessum aldursflokk-
um, 20—40 ára, er lokið.
ALVARLEGT
Læknir einn, sem blaðið ræddi
við í gær, um þetta, sagði að svo
virtist sem dómgreind fólks
sljóvgaðist íurðufijótt hér er
mesta hættan virtist hjá liðin.
— Væri þetta andvaraleysi unga
fólksins alvarlegt mál.
Friðrik gaist
eitir 63 leibi
Fimmta einvígisskák þeirra Piln-
iks og Friðriks var tefld til úr-
slita í Sjómannaskólanum í gær-
kvöldi. Úrslit urðu þar að Friðrik
gafst upp eftir 63 leiki.
Framhaldið ■ varð:
14. Hdl Hc5 54. g5 Hg8
45. a4 a5 55. Kg4 Kf8
46. Kg 2 Hc8 56. Hh6 Kf7
47. Kf3 Hc7 57. f6 exf6
48. Heel h3 58. Hxf6f Ke7
49. Hhl h2 59. He6f Kd7
50. Hd2 Kh6 60. g6 Hb8
51. He2 Kg7 61. Kg5 Hxb2
52. Hxe5 fxe5 62. g7 Hg2f
53. Hxh2 Hc8 63. Kh6 Gefið
Mótinælti heims-
endafrétt blaðsins
KONA nokkur hringdi í ritstjórn
Mbl. í gær og kvaðst vilja mót-
mæla frétt þeirri af yfir-
vofandi heimsendi, er blaðið
flutti í gærdag, samkv. fregnum
sunnan frá Mexico. — Konan
kvaðst þegar er hún sá fregnina,
hafa tekið blaðið, til þess að fela
það fyrir börnum sínum. Þegar
þau komu í hádegismatinn úr
skólanum hafi þau verið öll í
uppnámi út af frétt þessari. —
Sögðu þau að fréttin hefði verið
helzta umræðuefnið í frímínút-
unum í skólanum. Kvaðst konan
vilja biðja blaðið að fara varlega
í birtingu slíkra fregna, þar eð
þær gætu auðveldlega valdið
tjóni.
Útgerðarmemi
og skipstjórar
hafa tekið undir
samtalið
SAMTAL það sem birtist hér í
Mbl. á miðvikudaginn við Stur-
laug Böðvarsson útgerðarmann á
Akranesi um fyrirsjáanlegan
skort á sjómönnum, hefur vakið
mikla athygli í sjávarþorpunum
hér við Faxaflóa og einnig á
Vestfjörðum og í Vestmannaeyj-
um. Hafa útgerðarmenn og sjó-
menn á þessum stöðum tekið und-
ir orð Sturlaugs um hið alvar-
lega ástand og telja hann þar
hvergi hafa ofmælt, nema síður
sé. Ástandið sé raunverulega
miklu alvarlegra, því einnig
muni brátt verða hörgull á skip-
stjórum og vélamönnum. Þá
hafa þessir menn einnig bent á
að jafnaðkallandi sé stækkun
fiskfriðunarsvæðisins.
Fólk sýnir mænusóttar-
bólusetningunni tómlæti
UNGT fólk á aldrinum 16—20 ára hér í Reykjavík og nærsveitum,
svo og kaupstöðunum Kópavogi og Hafnarfirði, sem boðað hefir
verið til mænusóttarbólusetningar, hefur sýnt slíkt tómlæti, að að-
eins 20—30% af þeim sem bólusetja átti hafa mætt.