Morgunblaðið - 02.04.1957, Page 9
Þriðjudagur 2. aprf1 1957
MoncznvBT áðið
9
íslond undir sn jó
Myndir telknar yiir Akureyri
og nærsveitum
Akureyri.
Þar til fór að hlána nú fyrir
skömmu voru snjóalög mjög
mikil við Eyjafjörð og í nær-
sveitum. Myndirnar, sem hér
birtast voru teknar í fyrri
viku. Sýna þær.glogglega það
snjókyngi, sem yfir landinu
lá.
Fyrir ofan Akureyri sjást
míklar skíðahrekkur og þar
var rennifæri í þeim skilningi,
sem Sunnlendingar naumast
þekkja.
Næst Akureyri er vegurinn
út með firðinum allgreinileg-
ur í fyrstu, en hverfur siðan
í snjó, enda var ófærð á öU-
um vegum.
Úr Fnjóskadal.
Myndln hér að ofan er úr
hálendinu vestan Eyjafjarð-
ar, en það er einn hrikalegasti
fjallgarður landsins.
Til vinstri sést Vaglaskóg-
ur svartur upp úr snjónum.
Þingeyjarsýsla mun vera
skógauðugasta sýsla landsins
og ef flogið er yfir hana að
vetri til má sjá skógar- og
kjarrbreiður í hlíðum dal-
anna. Áin, sem sést við jaðar
Vaglskógar er Fnjóská, en
myndin er tekin yfir Vaðla-
heiði og sér til suð-austurs.
í Þingeyjarsýslu hafa verið
öllu meiri snjóalög en í Eyja-
fírði, en á norð-austnr-kjálfca
landsins hafa snjóþyngslin
verið allra mest.
Nú hefur brugðið tíl sunn-
anáttar á Norðurlandi með
mikilli hláku. Þegar sunnan-
vindurinn kemur af fjöllum
ofan er hann oft mjög heitur
og bráðnar snjórinn þá ört.
Slíkir heitir sunnanvindar
mega heita óþekktir á suð-
vestur-hluta landsins, en hin-
ir hlýju sunnanvindar norðan
lands eru svipað fyrirbæri og
hinir þekktu Alpa-vindar,
föhn-vindar, sem valda bráðri
hláku.