Morgunblaðið - 02.04.1957, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLIMn
l>ri3judagur 2. aprfl 1957
ttttMftfrifr
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjami Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Ami Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstrseti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstraeti 6. Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Hótunarbréf Bulganins
Krúsjeff hefur upp raust sína — og bækur Stalins eru boðnar með niðursettu verði.
Bækur Stalins á 1 kr. í Höfn
ALKUNNUG er dæmisagan um
veðmál vindsins og sólarinnar.
Þau veðjuðu um hvoru þeirra
tækist að fá gangandi mann til
að fara úr yfirhöfn sinni. Vind-
urinn blés allt hvað af lók en
það varð aðeins til þess, að mað
urinn vafði skjólflíkinni þéttar
að sér. En þá kom sólin og skein
sem glaðast svo göngumaðurmn
varð feginn að fara úr yfirhöfn-
inni, hann þurfti hennar þá ekki
lengur með.
í samskiptum sinum við aðr-
ar þjóðir hafa Rússar reynt báð-
ar þessar aðferðir. Á dögum
Stalins var skrápnum snúið út,
lönd undirokuð og styrjaldir háð-
ar. Þetta varð til þess að aðrar
þjóðir sáu sitt óvænna og tóku
að búast til varna. Þessar varnir
voru með tvennu móti. í fyrsta
lagi bundust frjálsar þjóðir sam-
tökum um að snúa bökum sam-
an gegn' ágengni Rússa. Þær
gengust undir þær skuldbinding-
ar að grípa allar til vopna ef
ráðizt yrði á eina þeirra. Ein af
þessum samtökum frjálsra þjóða
er Norður-Atlantshafsbandalag-
ið. Það er stofnað til öryggis öll-
um frjálsum þjóðum við norðan-
vert Atlantshaf, og hafa þær
bundizt heitum um það að
eitt skuli yfir þær allar ganga,
ef nokkur fari með ófrið á hend-
ur einni þeirra eða fleirum.
I öðru lagi hafa svo hinar
frjálsu þjóðir vígbúizt af kappi.
Eftir styrjöldina lögðu þær nið-
ur vopn sín og herbúnað en þeg-
ar sýnt var að hverju Rússar
stefndu í hinu nýja stríði Stalins,
tóku þær aftur að vígbúast og
munu halda þeirri stefnu áfram,
meðan ófriðarhættan að austan
vofir yfir.
Þannig hafði hið kalda stríð og
árásir Stalins þær afleiðingar að
andspyrnan gegn yfirráðastefnu
Rússa magnaðist með hverjum
degi og þjappaði vestrænum þjóð
um saman í sterk varnarsamtök.
Tími brosa og blíðu
Eftir dauða Stalins sáu Rúss-
ar að við svo búið mátti ekki
standa. Nú skyldi reyna aðferð
sólarinnar og tími brosanna og
hinna miklu veizluhalda og skála-
glaums hófst. Það, sem ekki tókst
með hörku, skyldi nú vinnast
með brosi. í bili virtist Rússum
verða nokkuð ágengt og megum
við íslendingar minnast þess,
hvernig skammsýnir stjórnmála-
menn hér á landi létu ánetjast
áróðri Rússa, eins og kom fram
í hinni frægu ályktun Alþingis,
sem átti ársafmæli fyrir fáum
dögum.
Kúgaðar þjóðir héldu að nú
væri stund frelsisins runnin upp.
Það, sem þær höfðu þolað í full
komnu vonleysi, varð nú óbæri-
legt og menn, heimtuðu frelsi
sitt og risu upp. En hið rússneska
bros stirðnaði í blóðbaðinu í
Berlín, Poznan og Búdapest og
vita Rússar nú að vestrænar þjóð-
ir hafa séð í gegnum grímu bros-
anna og blekkjast ekki framar
af henni.
Hótanir á ný
Eftir að ár veiziuhalda og
blíðmála liðu er nú aftur runn-
inn upp tími hótana og hörku.
Bréf Rússa til Norðmanna og
Dana eru glöggt vitni þess. Rúss-
ar leita uppi hvern snöggan
blett á vörnum Vestur-Evrópu.
Þeir freista þess nú að reyna að
hræða hinar fámennu þjóðir
Norðurlanda til að ganga úr varn
arsamtökum Vesturlanda eða
takmarka þátttöku sína í þeim,
að viðlagðri eyðingu með kjarn-
orkusprengjum. Hér hafa Rússar
aftur tekið upp aðferð vindsins.
En afleiðingin mun verða hin
sama og áður. JSTorðurlandaþjóð-
irnar munu knýta böndin enn
fastar við samtök annarra frjálsra
þjóða en fyrr. Handan Eystra-
salts er keðja af kjarnorkustöðv-
um Rússa, sem beinast að Norð-
urlöndum. Hvenær sem er geta
Rússar látið höggið ríða. Hið
eina, sem getur haldið aftur af
böðlum Baltnesku landanna,
Póllands, Austur-Þýzkalands og
Ungverja er óttinn við þá stað-
reynd að meðan Norðurlöndin
eiga vestræn stórveldi að bak-
hjarli, muni árás á Norðurlönd
verða og dýr og ef til vill Rúss-
um sjálfum til hruns og falls.
Við íslendingar stóðumst illa
blíðmál Rússa, eins og 28. marz
1956 ber vitni um. Þeirri spurn-
ingu má varpa fram hvernig við
stæðumst hótanir eins og þær,
sem Danir og Norðmenn hafa
orðið fyrir. Á þvi er enginn vafi
að íslenzka þjóðin mundi vilja
svara þeim á viðeigandi hátt.
Stórkostlegur meirihluti hennar
mundi ekki vilja hvika frá aðild
sinni að vestrænum samtökum.
Og þeim vilja yrði íslenzka ríkis-
stjórnin að fylgja, alveg á sama
hátt og þegar hún — eða meiri
hluti hennar — hvarf frá þeirri
glapræðisstefnu, sem flokkar
hennar tóku með þingsályktun-
inni, sem nú er fallin og sem lang
flestir íslendingar fordæmdu.
Ai hverju?
STJÓRNARFLOKKARNIR gera
nú harða hríð að bönkunum fyr-
ir að treystast ekki, vegna minnk-
andi fjársöfnunar, til að leggja
nú þegar miklar fjárhæðir til
húsbygginga. Ríkisstjórninni
mátti vera ljóst að innlög í banka
hafa stórminnkað fyrir rýrnandi
traust manna á íslenzku krón-
unni, eftir að núv. stjórn kom
til valda. En til eru í landinu
fjársöfn á öðrum stöðum og þar
hefur ríkisstjórnin tekið lán nú.
En þá má spyrja: Af hverju hef-
ur ríkisstjórnin dregið í marga
mánuði og til stórtjóns fyrir
marga, að fá fé hjá Tryggingar-
stofnuninni og Atvinnuleysis-
tryggingasjóði, þar sem hún vissi
að það var fyrir hendi? Er þetta
gert í þeim eina tilgangi að koma
„sök“ yfir á bankana til afsök-
unar fyrir nýrri ofbeldislöggjöf?
Ef ríkisstjórnin hefði raunveru-
lega haft áhuga á þessum mál-
um, hefði hún löngu fyrr leitað
eftir fé, þar sem það var fyrir,
í stað þess að draga húsbyggjend-
ur á lánveitingum svo mánuðum
skiptir.
U tgefandi einn banda-
rískur gaf eitt sinn út bók ó-
þekkts rithöfundar, „Tveir á
þjóðveginum" hét hún — en bók-
in seldist ekki. Þetta er ósköp
algengt — og venjulega sitja út-
gefendurnir uppi með bókastafl-
ann, þegar svo fer. Ef rithöfund-
urinn verður einhvern tíma fræg
ur, ef hann skrifar einhvern tíma
sæmilega sögu — þá losnar út-
gefandinn sennilega við staflann.
En bandaríski útgefandinn var
ekki á því að sitja uppi með sín-
ar bækur. Hann gaf ekki út bæk
ur til þess að fylla geymslur sín-
ar. Þess vegna hóf hann mikla
auglýsingaherferð um öll Banda-
ríkin og auglýsti: Þrítugur millj-
ónamæringur, frekar laglegur og
viðfelldinn, óskar að kynnast
ungri stúlku, sem líkist sögu-
hetjunni í „Tveir á þjóðvegin-
um“ — líkist henni eins mikið
og hugsanlegt er.
Ekki þarf að orðlengja
það, að allt upplag bókarinnar
seldist á hálfum mánuði — og
bókaútgefandinn varð að láta
prenta annað upplag til þess að
fullnægja eftirspurninni.
Það er ef til vill ekki fallega
gert að pretta ungu stúlkurnar
svona, en er þeim það þá ekki
mátulegt — úr því að þær vilja
giftast til fjár?
En við skulum bregða
okkur austur yfir hafið — til
Kaupmannahafnar. Þar lauk
bókaútgáfa ein við að gefa út
verk Stalins skömmu eftir ára-
mót í fyrra. Ekki voru bækur
Stalíns fyrr komnar út í glugga
bókaverzlana — og „Land og
Folk“ byrjaði að hvetja menn til
þess að kaupa og lesa bækur for-
ingjans — en Krúsjeff hóf upp
raust sina austur í Kreml — og
sagði að Stalín sálugi, þessi fyrr-
um fyrirtaks náungi, sem sagður
var barngóður fram úr hófi, hefði
verið hinn mesti skúrkur — já,
meira en það: Hann hefði verið
ótíndur glæpamaður — alls ekk-
ert barngóður, nema á myndum.
Sagt er, að þeir, sem hlustuðu
á þennan reiðilestur félaga Krús-
jeffs — og ekki vissu, að Stalín
hafði verið svo slæmur — hefðu
misst meðvitund um stund. Svo
mikið varð þeim um. Aðrir, sem
vissu sannleikann, þurrkuðu að-
eins svitann af skallanum — og
þeir, sem ekki voru sköllóttir,
voru þöglir og horfðu í gaupnir
sér.
Og fiskisagan flaug.
Þeir, sem klippt höfðu myndir
af Stalín út úr dagblöðum og
límt upp á vegg, rifu þær niður
í bræði og brenndu. Sama var
að segja um þá, sem keypt höfðu
bækur Stalíns. Ýmist var þeim
brennt eða ekið út á öskuhauga.
Þeir, sem enn vildu halda tryggð
við gamla „barnavininn" og illsk-
uðust við Krúsjeff vegna upp-
ljóstrana hans, drógu bækur sin-
ar út úr bókaskápnum, röðuðu
þeim niður í kassa og báru upp
á háaloft eða niður í kjallara.
Þar var gott að grípa til þeirra,
ef sönnum vinum Stalíns tækist
einhvern tíma að koma þessum
Krúsjeff fyrir kattarnef — og
hefja „barnavininn“ látna aft-
ur í hinn forna sess — guðum
ofar.
En það er ekki þar með
sagt, að stór bókaútgáfa geti elc-
ið heilu upplagi vel innbundins
bókaflokks út á öskuhauga,
vegna þess að einhver Krúsjeff
leysir frá skjóðunni austur í
Kreml. Ekki var heldur hægt að
flytja staflana niður í kjallara og
bíða þess, að Stalín yrði á ný
tekinn í tölu dýrlinga. Hvort-
Happdr. Byggða-
safns Húnv.féfagsins
D R E G IÐ var í Happdrætti
Byggðasafnsnefndar Húnvetn-
inga sl. föstudag. Vinninga má
vitja í Edduhúsið við Lindar-
götu 9, efstu hæð, frá kl. 14.30
—19 í dag (þriðjudag). Eftir-
talin númer hlutu vinninga í
happdrættinu:
1688, 1962, 1741, 1856, 1950, 110,
413, 1734, 1889, 1990, 1879, 1655,
1778, 1536, 2000, 1092, 1922, 1782,
1767, 1614, 1952, 813, 1977, 127,
70, 1975, 1903, 1841, 1909 1788,
1839, 1757, 1749, 1740, 1998, 1958,
tveggja var, áð ógerningur var
að segja fyrir um það, hve Krús-
jeff yrði langlífur — og bókaút-
gáfan hafði einnig gefið út fleiri
kommúnistarit — og hafði pess
vegna þegar full not fyrir kjallar
ann til geymslu lítt seljanlegra
bóka.
K virtust öll sund lok
uð. Enginn keypti bækurnar.
Mikið fjárhagslegt tap. Ekki gátu
þessir dönsku bókaútgefendur far
ið að dæmi Bandaríkjamannsins
— auglýst: „Ung, lagleg og flug-
rík stúlka vill kynnast manni,
sem líkist félaga Stalín“. Nei,
Krúsjeff hafði séð fyrir því, að
ekki var hægt að selja bækurnar.
Samkvæmt fréttum
Kaupmannahafnarblaðanna er
nú farið að auglýsa bækur Stalíns
— „með miklum afslætti". Veg-
ur Krúsjeffs þótti hafa minnkað
það mikið að undanförnu, að
bókaútgáfan eygði einhverja von
um sölu. En ekki þýddi að bjóða
þær á kostnaðarverði. Eintakið
kostar nú eina krónu, en upphaf-
lega átti það að kosta 30—40 kr.
En þrátt fyrir „gjafverð“ hefur
lítið sem ekkert selzt — og hinir
dönsku bókaútgefendur munu
vera farnir að hugsa alvarlega
um það að fara að dæmi trúar-
bræðra sinna við Tjarnargötu í
Reykjavík — og flytja allt rusl-
ið á öskuhaugana.
1451, 497, 1062, 1927, 1768, 1048,
1815, 1184, 791, 1844, 1410 1696,
1217 1820, 168, 1917, 1755, 1957,
1693, 1813, 1987, 1602, 1618, 1670,
1658, 1639, 1673, 1615, 171, 1727,
1661, 1622, 1861, 1690, 1050, 1697,
1946, 923, 1826, 1038, 1652, 122,
1795, 1511, 193, 1834, 1914, 114,
1666, 1541, 1957, 1871, 1752, 1698,
271, 192, 248, 1364, 1796, 1869,
1842, 1933, 154, 544, 1847 1862,
1515, 1037, 1959, 1865, 482, 1791,
1810, 1989, 1582, 126, 725, 1668,
252, 198, 1548, 1811, 980, 1150,
1884, 1039, 515, 1691, 1589, 285,
1805, 301, 1095, 394, 1779, 211,
1984, 1807, 1175, 1239, 1970, 160,
1902, 1840, 1910, 181, 1246, 878,
103, 1874, 234, 1523, 512, 429,
1783, 1385, 1222, 1929, 277, 229,
1907, 1012, 284, 1762, 1620, 1524,
1610, 1081, 180, 1754, 1932, 143,
1562, 1547, 1803, 383.
(Birt án ábyrgðar).