Morgunblaðið - 02.04.1957, Side 20
Veðrið
Hægviðri, víða léttskýjað
t)rgwt#íííi>iíí>
77. tbl. — Þriðjudagur 2. apríl 1957.
Bækur Sfalins
Sjá grein á bls. 10
Yorhugur um land allf
Skemmdarverk
ESSA dagana hefur ríkt vor-
hugur um land allt. Veð-
urblíða hefur verið síðan fyrir
helgi, stillt veður og bjart, svo
milt að jafnvel trén eru tekin
að lifna. Harðgerð víðiafbrigði
hér í Reykjavík eru tekin að
skjóta brumi.
••• Á sunnudaginn var mik-
ill vorblær yfir götulífinu í
bænum. Mikill fjöldi fólks naut
góðviðrisins á skemmtigöngu við
höfnina og suður með Tjörn.
••• Um miðjan dag í gær var
9 stiga hiti hér í Reykjavík og
skýjað loft, en á Akureyri, þar
sem jafnhlýtt var í veðri, var
glampandi sólskin, svo þar hafa
hlýindin verið miklu meiri,
þ.e.a.s. í sólinni.
••• Þessum sunnanþey, en
hingað norður liggur hlýr loft-
straumur sunnan úr Atlantshafi,
veldur háþrýstisvæði, sem er yfir
Bretlandseyjum og Norðurlönd-
um og svo grunn lægð, sem er
yfir vestanverðu Atlantshafi.
••• Veðurstofan sagði Mbi. í
gær að næstu daga mætti búast
við slíku vorveðri um land allt.
Ólafur Thors talar á
fundi Sjálfsfæðis-
manna í Kópavogi
LJÓSMYNDARI Mbl. brá sér
í gærdag með flugvél aust-
ur yfir Sanda með ljósmynda-
vélina og tók hann þá þessa
mynd af belgiska togaranum
Van der Weyde frá Ostende, þar
sem hann liggur þversum í flæð-
armálinu á hinum rennslétta
sandi á Skarðsfjöru á Meðal-
landssandi. Hin myndin er af
skipbrotsmönnunum 19, sem
flestir eru ungir menn og hinir
myndarlegustu. Hefur áhöfnin öll
yfirgefið skipið og komu skip-
brotsmenn hingað til Reykjavík-
ur í gærkvöldi.
Um björgunartilraunir við
hmn stóra togara virtist nokkur
óvissa ríkja í gær, enda þótt
talið sé að með skipi
mætti ná togaranum skjótt út,
þar eð veður er hagstætt á strand
stað. Landhelgisgæzlan hefur
ekki verið beðin um að senda t.
d. Þór með sinn mikla vélakraft
togaranum til hjálpar. í dag og
á morgun er þó stærstur straum-
ur þar á söndum og verði togar-
á bíl bre/ka
anum ekki náð á flot nú, getur
það dregizt. í gærdag voru fisk-
lestar skipsins opnaðar og fengu
þá Meðallendingar að flytja heim
til sín eins mikið af fiski úr tog-
aranum og hver vildi og gat.
Mátti sjá úr flugvélinni jeppa-
kerrur á leið milli skips og bæja
með fisk. Á fjöru mátti komast
þurrum fótum út í skipið í gær.
Myndin af skipbrotsmönnum
er tekin á flugvellinum við
Kirkf ubæjarklaustur. Skipstjóri
togarans er í fremri röð lengst til
vinstri í hvítum stuttjakka.
seiidilierrans
f FYRRINÓTT var framið
skemmdarverk á bifreið brezka
sendiherrans, þar sem hún stóð
við bústað sendiherrans við
Laufásveg 33 hér í bæ. Hefir ein-
hver mölvað tvær rúður bifreið-
arinnar með grjóti þá um nótt-
ina. Er hér um Landroverbíl
að ræða. Ekki hefur upplýstst
hver unnið hefir þetta skemmd-
arverk.
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa-
vogskaupstaðar efnir í kvöld til
fundar í barnaskólahúsinu. Hefst
hann kl. 8,30. Umræðtuefni er
stjórnmálaviðhorfið og er Ólafur
Thors, formaður Sjálfstæðis-
fiokksins, málshefjandi. Ennfrem
ur verður rætt um bæjarmá].
Allt Sjálfstæðisfólk í Kópa.
vogskaupstað er velkomið á
fundinn.
Ungur Færeyingur stelur
irú löndum sínum í verhúð
¥¥ÉR í Reykjavík var í gær til
yfirheyrslu, en síðan sendur
í sjúkrahús, tvítugur Færeying-
ur, sem tók peninga frá löndum
sínum tveim austur á Eyrar-
bakka.
Þessi ungi maður kom hingað
til Reykjavíkur á fimmtudaginn
var að austan. Hafði hann áður
en hann fór stolið frá tve-im fær-
eyskum sjómönnum, sem voru
sambýlismenn hans í verbúð á
Eyrarbakka 1000 kr. ísl. og 160
færeyskum krónum.
Frá Selfossi ók sjómaðurinn
hingað til Reykjavíkur í bíl og
greiddi fargjaldið með 100 kr.
færeyskum. Þennan dag fór hann
ekki á sjóinn, þar eð hann kenndi
þrauta í baki.
Þegar hann kom hingað í bæ-
inn falsaði hann nafn sitt í gesta-
bók gistihússins og þcgar spum-
um var haldið uppi um hann að
austan tók það lögregluna tvo
daga að finna hann.
Er lögreglumenn komu inn í
herþergi unga mannsins, var
hann í þungum svefni og tókst
ekki að vekja hann. Stafaði þetta
svefndá bersýnilega af ofneyzlu
á höfuðskömmtum, en tómar um-
búðir skammta voru þar í her-
ingana af félögum sínum trausta-
taki og það hefði alltaf verið
áform sitt að borga þeim féð aft-
ur. — Hið mikla magn höfuð-
skammta kvaðst hann hafa tekið
vitandi að slíkt gæti leitt til
berginu. Sjómaðurinn var fluttur dauða, og hefði þar einu mátt
í slysavarðstofuna og síðar um gilda, sagði hann.
kvöldið, er hann var vaknaður, í gærkvöldi ákvað læknir að | ||
í hegningarhúsið, þac sem hann maðurinn skyldi fluttur í sjúkra-
var hafður í haldi í gærkvöldi. hús til lækningar, en hinn ungi 8
Við yfirheyrslu játaði hann þjófn maður hefur sennilega tognað
aðinn, en taldi sig hafa tekið pen- illa í baki.
Aprílspaug útvarpsins
ÞAÐ VORU MARGIR, sem höfðu
gaman af 1. apríl-spaugi útvarps
ins í gærkvöldi þegar fréttaauk-
inn var fluttur um „fyrirtæki,
sem lítill gaumur hefir verið gef
inn hingað til“, eins og þulurinn
kynnti hann. Fréttaaukinn var
um þau furðutíðindi, að nokkrir
merkir framkvæmdamenn hefðu
tekið sig saman og hafið skips-
ferðir til Selfoss!
Höfðu þeir keypt til þess 600
lesta skip frá Bremerhaven, 7
ára gamalt á um 7 millj. kr., flat-
botna fljótaskip, sem áður gekk á
Saxelfi. Var einn fréttamanna
um borð í „Vanadís" en svo var
skipið skírt, en hinn á Selfossi
og lýsti hátíðahöldunum þar.
Þennan makalausa fréttaauka
tóku þeir saman Stefán Jónsson
og Thorolf Smith fréttamenn út-
varpsins og fluttu hann. Tilbrigða
meistari og leikstjóri var Jón
Múli þulur. Strax og fréttaauk-
inn hafði verið fluttur hringdi
fjöldi manna á fréttastofuna og
höfðu flestir haft gaman af. Ein
gömul kona var bálreið og þótti
þetta óviðeigandi með öllu.
Aðrir brugðu á glens við
fréttamenn og einn spurði hvort
það væri rétt að Jón Axel Péturs
son hefði verið fyrsti stýrimaður
á Vanadís. Annar hringdi austan
af Selfossi og flutti þær fregnir
að Vanadís hefði siglt framhjá
Lænum og væri nú strönduð uppi
í Litlu Laxá!
Og víst munu flestir hlustend-
ur sammála um að vel hafi hæft
svo alvörugefinni stofnun sem
útvarpinu, að hleypa í sig nokkr
um gáska í tilefni dagsins.
Listkynning Morgunblabsins
Þessi mynd er af einu málverka frú Kristínar Jónsdóttur listmál-
ara, sem nú eru til sýnis í sýningarglugga Morgunblaðsins.
Samið um varnarliðs-
framkvœmdir fyrir
50-60 millj. kr.
SAMKVÆMT áreiðanlegum upplýsingum, sem Mbl. hefur
fengið mun nýlega hafa verið samið um áframhaldandi
framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli á vegum varnarliðsina
fyrir um 50—60 millj. kr.
Þegar blaðið leitaði staðfestingar á þessarl frétt hjá
Varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins í gær taldi hlutað-
eigandi embættismaður sig ekki hafa aðstöðu til þess að
staðfesta hana.
Hins vegar upplýsti blaðið Tíminn fyrir skömmu, að
vænta mætti aukinna framkvæmda á næstunni þar syðra.