Morgunblaðið - 06.06.1957, Page 11

Morgunblaðið - 06.06.1957, Page 11
Fimmtudagur 6. júnf 19F>' M O R C V N B L Á Ð 1Ð II 75 ára i dag: Bdrður þorsteinsson oddviti frá Gröf SJÖTÍU OG FIMM ÁRA er í dag Bárður Þorsteinsson hrepps- nefndaroddviti í Gröf í Eyrar- sveit á Snæfellsnesi. Fyrir nokkru síðan vakti undirritaður máls á því við hann, að merkis- tímamót væru skammt undan í ævi hans og ærin ástæða væri til þess, að þeirra yrði að nokkru minnzt. Ekki vildi gamli maður- inn heyra á það minnzt og sagði nægan tíma til þess, þegar hann yrði áttræður og þá yrði hann trúlega genginn á fund feðra sinna og þá þyrfti enginn að hafa áhyggjur af slíku. Maðurinn er sem sagt í eðli sínu mjög hlé- drægur og vill í engu láta á sér bera meira en góðu hófi gegnir. Hann er þó fyrir margra hluta sakir hinn merkasti maður, enda verið falin forsjá sveitar sinn- ar um áratuga skeið. — Bárður er fæddur að Kirkjufelli í Eyr- arsveit, en þar bjuggu foreldrar hans Guðbjörg Bergsdóttir og Þorsteinn Bárðarson oddviti. Þeg- ar Bárður var fárra ára gamall, lézt afi hans og alnafni í Gröf hér í sveit og fluttu þá foreldrar hans þangað. Seytján ára missir hann föður sinn frá mörgum börnum, þar af fjórum innan við fermingu. Verður hann þá helzta forsjá heimilisins með móður sinni og fer ungur til sjóróðra undir Jökli eða á skakskútur þeirra tíma. Varð Bárður snemma mikill að vallarsýn og afrendur að afli og þótti rúm hans jafnan vel skipað. Bárður giftist árið 1911 Jóhönnu Magnúsdóttur, ættaðri úr Saurbæ í Dalasýslu, en missti hana 1931. Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú á lífi. Síðari kona Bárðar er Kristbjörg Rögnvaldsdóttir, þeim hefur ekki orðið barna auðið, en alið upp þrjú dótturbörn Bárðar frá fyrra hjónabandi. Af systkinum Bárð- ar eru nú aðeins eftir á lífi Odd- fríður ekkja í Reykjavík og Steinunn húsfrú á Kverná í Eyr- arsveit. Bárður hefur nú um aldarþriðjungsskeið verið í sveit- arstjórn Eyrarsveitar og lengst af oddviti hennar. Er það á vit- orði allra, sem til þeirra starfa þekkja, að þau eru ekki alltaf rétt metin í hlutfalli við þá fyr- irhöfn, sem þau krefjast, þó hygg ég, að Bárður njóti hvers manns trausts, sem til hans hefur eitt- hvað þurft að sækja. Þessi er þá hin ytri saga Bárð- ar vinar míns í Gröf. Við höfum átt saman ýmislegt að sælda undanfarin ár og af þeirri við- kynningu er mér ljóst, að dreng- skapur og göfugmennska er slík í fari hans, að á betra verður ekki kosið. Enginn flysjungur er Bárður í tali og hefur sem fæst orð um hlutina, en er þeim mun gagn- orðari. Enda þótt hann sé alda- mótamaður að aldri, verður ekki annað sagt, en hann hafi tileink- að sér tækni nútímans og fylgzt vel með öllum framförum og aldrei verið Þrándur í Götu þeirra, sem athafnir og fram- kvæmdir vilja hafa á sem flestum sviðum. Það er sterkur þáttur í skapgerð Bárðar, að taka alltaf málstað þess sem minni máttar er. Hvort sem það er á hrepps- nefndarfundum eða utan þeirra, er hann fyrstur manna til þess að tala málstað þeirra, sem miður eru staddir í lífsbaráttunni. Hygg ég að þessa lífsskoðun hafi Bárð- ur tileinkað sér strax á unga aldri og kemur það heim við það sem systir hans hefur sagt mér, að yngri systkinum hans hafi öll- um þótt mjög vænt um hann og mundi Bárður oft hafa miðlað þeim á æskuárunum meiru en efni hans raunar leyfðu. Enda þótt Bárður sé manna líklegastur til þess að miðla mál- um og gerast mannasættir, þegar í odda hefur skorizt, er hann þó fastur fyrir og hvikar ógjarnan frá þeim málstað, sem samvizka hans býður honum að halda fram. Stígur hann þá gjarnan fast í fætur, líkt og hann stæði við færi á skakskútu og hitta athuga- semdir hans oftast beint í mark, enda sumar í minnum hafðar þótt ekki séu þær margorðar. — Svo sem að líkum lætur um mann með skapferli Bárðar í Gröf, hef- ur honum ekki orðið tíðförult á milli stjórnmálaflokka í landinu. Hefur hann alltaf verið mikill og góður Sjálfstæðismaður og unnið þeirri stefnu allt það gagn, sem hann hefur mátt. Þess hefur áður verið getið opinberlega hvílíkt hraustmenni Bárður var á sínum yngri árum og ekki mun hann hafa vílað það fyrir sér í þann tíð, að etja kappi við hvern sem var, jafnvel þótt ofurefli sýndist vera. Er það næsta auðsætt, virði maður hann fyrir sér hálfáttræðan, að hann hefur haft krafta í kögglum á meðan hann var og hét. Er hann jafnan fámáll um þessa hluti og vill ógjarnan halda afrekum sín- um á lofti. Innan skamms tíma mun Bárð- ur láta af oddvitastörfum og hætta afskiptum af sveitarstjórn- armálum. Hefur hann sem odd- viti upplifað það „ævintýri“, að sjá myndast á örfáum árum myndarlegt kauptún í sveit sinni, sem nú telur nálega þrjú hundruð íbúa. Hann hefur á efri árum sín- um séð og verið þátttakandi í þeirri þróun, sem hér hefur orð- ið í atvinnu- og efnahagsmálum, enda átt drjúgan hlut að máli. Frá þeim tíma sem Bárður hélt um árina undir Jökli, síðar skak- skúturnar og til þeirra tækja, sem nútíminn notar, hefur gerzt mikil breyting og góð. Fer þeim nú óðum fækkandi gömlu mönn- unum, sem lifað hafa þessi tvennu tímamót. Bárður hefur sagt mér, að sér sé það mikil gleði nú, á gamals aldri, að geta borið saman í huganum afkomu manna nú og þá. Hér sé um svo mikinn mismun að ræða, að þeir einir munu trúa, sem hvort tveggja hafa reynt. Þeim mun meiri- gleði getur þetta verið Bárði þar sem hann hefur svo lengi staðið við stjórnvölinn í sinni sveit og séð allt þetta ger- ast. Enda þótt Bárður í Gröf geti verið glaður á góðri stund og gamansamur í hópi góðvina, er hann þó fyrst og fremst alvör- unnar og trúarinnar maður. Hann trúir á æðri handleiðslu og telur að ein hönd stjórni öllu og öll- um. Ef hann getur orðið litlum fugli að liði, leyst fjötur af fæti hans eða krækt króki úr nefi hans finnst honum hann hafa gert góð- verk, sem er Guði þóknanlegt. Slík er trú hans, göfugmannleg og barnsleg í sevm. Engan mann þekki ég, sem minnir mig meira á hetjur og göfugmenni sögualdarinnar, held ur en Bárð í Gröf. Málfar, útlit, framkoma og viðkynning, allt hjálpast þetta að. Helzt gæti ég hugsað mér, að honum mundi svipa til Kolskeggs á Hlíðárenda, að minnsta kosti er þeim eitt sam eiginlegt. Aldrei mundu þeir hafa níðst á neinu því, sem þeim var til trúað. Emil Magnússon. Frú Aitna Bendfisen i Arósum sjötug Frú Anna Bendtsen hefur allt- sett hefur verið í Árósum í fjörutíu og tvö ár, er sjötug í dag, 6. júní. Eins og allir vita, sem til þekkja, er frú Anna fædd og uppalin hér í Reykjavík. For- eldrar hennar voru Guðmundur Jakobsson trésmíðameistari og frú Þuríður Þórarinsdóttir, systir séra Árna Þórarinssonar frá Stórahrauni, og eins og kunnugt er standa að henni mjög merkar ættir. Ung lærði hún píanóleik hjá frú Pedersen og spilaði á píanó við opinberar skemmtanir hér í bæ; var í söngfélögum, m.a. í söngkór þeim, er söng við komu Friðriks konungs VIII., 1907, í Alþingishúsinu í Reykjavík. — Munu margir þeirra tíma Reyk- víkingar muna eftir henni, svo glæsileg og gáfuð sem hún var. Vorið 1908 sigldi hún til Dan- merkur og gekk á Askov-háskól- ann á Jótlandi. Þar var þá skóla- stjóri hinn frægi skólamaður Dana, Jakob Appel. Um þær mundir voru þar til náms m. a. Jónas Jónsson frá Hriflu, fyrrv. dómsmálaráðherra, Björn Jakobs son leikfimikennari og Björn Guðmundsson, sem lengi mun hafa verið skólastjóri við Núps- skóla í Dýrafiðri. — Árið 1912 giftist hún F. M. Bendtsen, ætt- uðum frá Jótlandi, sem hafði þá nýlega tekið próf í frönsku og latínu, auk dönsku, við Kaup- mannahafnarháskóla. Varð hann fyrst latínuskólakennari, en síðar bókavörður við bókasafnið 1 Árósum, og hafa þau hjón verið búsett þar í borg s. 1. 43 ár. Hann er riddari af Dannebrogs-orð- unni. Um þessar mundir eru þau að flytjast til Kaupmannahafn- ar, og mun ætlun þeirra að setj- ast þar að. Meðan þau hjón bjuggu í Ár- ósum, voru þau annáluð fyrir gestrisni. Námsfólk sem dvald- ist þar í borg naut vináttu þeirra og alúðar á heimilinu, og var frú Önnu einkar sýnt um að laða að heimili sínu menntafólk, einkum íslenzkt, sem oft hafði ekki mikla fjármuni milli handa. Kom það ekki hvað sízt fram í síðari heims styrjöldinni ,enda munu margir kveðja þau hjón með þakklæti og hlýjum huga er þau nú flytj- ast frá Árósum. Frú Anna Bendtsen hefui allt af hugsað hlýtt til íslands, verið mikill fslendingur, og talað móð- urmál sitt eins vel og þótt hún hefði aldrei erlendis verið. Hefur hún alla tíð haft bréfaviðskipti m. a. við æskuvinkonu sína, frú Guðlaugu Magnúsdóttur, konu hins þekkta stjórnmálamanns Bjarna Jónssonar frá Vogi. Sein- ast kom frú Anna í heimsókn til íslands árið 1948 ásamt manni Eg, sem þessar línur rita er fermingarsystir frú Önnu, og höf- um við þekkzt frá því við vorum smátelpur. Hef ég notið þess að heimsækja hana ytra og frú Magneu Sæmundsson, systur hennar í Kaupmannahöfn.. Og ég þakka henni, og þeim hjónum báðum, fyrir trygga vináttu og velvild, sem þau hafa ætíð sýnt mér, bæði fyrr og síðar. Svo óska ég henni, þeim hjónum báðum Framh. á bls. 15 Uppreimaðir strigaskór allar stærðir! Ldrus G. Lúðvígsson SKOVERZLUN PlÖntusala - blómasala Mikið úrval af afskornum blómum fyrir hvítasunnu — rósum, ljónsmunna, tvöföldum levkojum o. fl. Pottablóm, rósir, kólusar, hengiplöntur o. m. fl. Blómapottar, fjórar stærðir, steyptir og úr plasti. Blómaáburður í pökkum og glösum, mjög góður. Garðáburður í plastpokum. Aburðarkalk og alls konar varnarlyf, Mikið úrval af fjölærum plöntum, tvíærum plönt- um, stjúpum, bellisum á kr. 2.00 stk. og vorsánum stjúpum á kr. 1,50. Sumarblómaplönturnar koma eftir hvítasunnuna. Athugið að þetta er Blóma, og grœnmefismarkaSurinn Laugavegi 63 — Sími 6990. Reynið viðskiptin. — Geymið auglýsinguna. Fljót og góð afgreiðsla. Blóma- og grœnmetismarkaðurinn Laugaveg 63 . Dregið verður á þriðjudag munið að endurnýja fyrir hvítasunnu HAPPDRÆTTI HÁSKÖLA ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.