Morgunblaðið - 13.06.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1957, Blaðsíða 1
20 sföur 44. árgangur 129. tbl. — Fimmtudagur 13. júní 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins Ég œtla að bjarga frank- anum og Alsír - segir Maunoury og ho&ar nýja skatta og harðnandi baráttu gegn uppreisnar- rnönnum í Alsir París, 12. júní. í GÆR lagði Maurice Bourges-Maunoury, foringi róttæka flofcks- ins, ráðherralista sinn fyrir Coty Frakklandsforseta. Hefur hann farið fram á traustsyfirlýsingu í þinginu og búizt var við því að atkvæðagreiðslan færi fram í nótt. Athygli vekur, að Pineau er enn utanríkisráðrerra og Lacoste Alsírmálaráðherra svo að sýnt Donir spnrðir ólits KAUPMANNAHÖFN, 12. júní — Skýrt var frá því hér í kvöld, að stjórninni hefði borizt fyrir- spurn um það frá Bandaríkja- stjórn hvaða afstöðu Danir mundu taka til þess, ef reynt yrði að ná samkomulagi við Rússa um gagnkvæmt eftirlit úr lofti yfir heimskautssvæðinu, en hluti Grænlands mundi falla und- ir það eftirlitssvæði. — Danska stjórnin hefur enn ekkert látið uppi um málið annað en það, að hún sé hlynnt öllum tilraunum er miða að því að draga úr víg- búnaðarkapphlaupinu. er, að stefna hins nýja forsætis- ráðherra í Alsírmálunum verður svipuð stefnu Mollets. í dag birti Maunoury stefnu- yfirlýsingu sína í þinginu og sagði, að aðalverkefni hans væri að bjarga frankanum og Alsír. Uppreisnarmönnum mundi ekki líðast lengur að tefja fyrir end- urskipulagningu á stjórn Alsír, hinu nýja Alsír. Sagði hann, að í undirbúningi væri ný stjórnar- löggjöf fyrir Alsír þar sem land- □- -□ Maunoury hlaut í nótt traust franska þingsins me ðlitlum at- kvæðamun. □------------- -------o inu yrði skipt í fylki með eigin stjórn. Mundi slíkt fyrirkomulag auðvelda baráttuna gegn hermd- arverkamönnum. Síðan yrði kjörnum þingmönnum í Alsír falið að setja fram tillögur um framtíðarstjórnskipun landsins. Framh. á bls. 2. I Myndin er tekin þegar þeir Bulgain og Krúsjeff komu til Helsingfors fyrir þrem dögum i hina opinberu heimsókn til Finnlands. Kanna þeir þarna finnskan heiðursvörð. Eru félagarnir auðþekktir — sá breiði lengst til vinstri er Krjúsjeff, þá kemur Bulgan- in, en dökkklæddi maðurinn að baki hans er Sukselainen, hinn nýi forsætisráðherra Finnlands. Norðurhluti Nato-svœðisins opinn fyrir Rússum, ef Norðmenn ganga úr ' bandalaginu Washington, 12. júnf. MIKIÐ hefur verið rætt um tillögu Knowlands öldungadeddar- þingmanns í Bandaríkjaþingi um að Rússum verði gert það tilboð, að Noregur gangi úr NATO gegn því, að Rússar flytji. her sinn brott úr Ungverjalandi og frjálsar kosningar fari fram í land- inu undir eftirliti SÞ. — O — Hefur tillögunni víðast hvar verið tekið illa. Knowland hef- ur snúizt til varnar — og sagt, að í tillögu sinni væri ekki gert ráð fyrir „hrossakaupum" án samþykkis Noregs og annarra NATO-landa. — O — Norstad, yfirforingi herafla NATO, lét svo um mælt í dag, að allur norðurhluti NATO- svæðisins lægi opinn fyrir Rúss- um, ef Norðmenn gengju úr bandalaginu. NATO-löndin væru skuldbundin til þess að gæta hinnar 6,400 km. löngu marka- Vara pllagríma við árásum AMMAN, 12. júní. — Stjórnir Jórdaníu og Saudi-Arabíu hafa varað pílagríma á för til Mekka við að fara um Akaþaflóa þar sem mikil hætta sé á árásum Israels- manna þar. Fyrir tveim dögum fullyrti stjórn ísraels, að ásíæðu- laust væri að óttast árás ísraels- manna á pílagríma, sem fara vildu um Akabaflóa eða Elatb. borg ísraelsmanna við flóaiin. línu milli NATO-landanna og yfirráðasvæðis Sovétríkjanna. Þessarar markalínu yrði að gæta með nægilegum styrk svo að eng- inn reyndi að rjúfa þessa línu án þess að vera þess meðvitandi, að slíkt hafi í för með sér eigin tortímingu. Miklar skemmdir FILIPPSEYJUM, 12. júní. — Snarpar jarðhræringar urðu á Luzon-eyju í Filippseyjaklas- anum í dag. Miklar skemmdir urðu á húsum um alla eyjuna, en ekki hefur frétzt um mann- tjón. Vöruðu hræringarnar í eina mínútu. Noiðmenn fúsir til snmvinnu um myndun eftirlitssvæðis í heimshuutslöndunum Ósló, 12. júní. FORMÆLANDI norska utanríkisráðuneytisins lét svo um mælt í dag, að norska stjórnin væri fús til samvinnu við Bandarikja- stjórn um að norðurhluti Noregs yrði innan eftirlitssvæðis — og gerði norska stjómin ráð fyrir því að hún fengi tillögu Banda- ríkjamanna um eftirlitssvæði til nákvæmrar athugunar áður. Dulles lét þess getið í gær, að Bandaríkjastjórn væri reiðuhúin til þess að bera fram tillögu við Ráðstjórnina um að gagnkvæmt eftirlit yrði heimilað á norðurheimskautssvæðinu, en Bandaríkja- stjórn mundi ræða áður við stjórnir Kanada, Noregs og Danmerkur. Undirnefnd afvopnunarnefndar SÞ mun sennilega koma saman á föstudaginn. Stassen er nú vestra til viðræðna við stjórn sína — og ræddi hann við Dulles í dag. Kínverjar skutu á bandaríska flugvél HONGKONG, 12. júní. — Peking-útvarpið skýrir svo frá að flugvél frá bandaríska flug vélamóðurskipinu Hornet hafi orðið fyrir sprengikúlu kín- versks stórskotaliðs yfir kín- verskri landhelgi á móts við Formósiu. Segir og, að tvær Mayflower var 53 daga á leiðinni NEW YORK, 12. júní. — Mayflow- er II. hefur nú tekið land á meg- Í&1^ÍV JfjT t ' * . inlandi Ameríku. Skipið er nákvæm eftirlíking May- flower, sem puri- tanar sigldu vest- ur um haf á 17. öld. Var þessi ferð farin í minningu þeirrar siglingar. Tók skipin land í Massashussets í dag eftir 53 daga útivist. Hrakti það af leið og tafðist mjög þess vegna, en var samt 13 dögum skemur á TTi^ÍÍ5iifliir1ÍÍÍlÍÍT»‘ .. ‘ - .tt„r"®*9 " U^ leiðnni en May- flower forðum. — Sigldí skipið 5 þús. sjómílur. — Mikið er um hátíðahöld vegna koinu skipsins. Mun það innan skamms halda til New York, en þar mun einna mest verða um dýrðir. Síðan verð ur skipið afhent Bandaríkjunum til eignar og minningar um land nemana. flugvélar kínverskra þjóðern- issinna hafi verið skotnar nið- ur. Þá segir, að bandaríska flug vélin hafi horfið ásamt tveim öðrum og hafi reykjarstrókur staðið aftur úr þeirri löskuðu. Kvartað er yfir því, að fyrr- greint flugvélamó&urskip á- samt fjórum öðrum banda- rískum herskipum hafi sigtt inn í landhelgi Kina. ★ I kvöld bárust fregnir þess efnis frá Washington, að flug- vélin hefði verið 14 km. fyrir utan ströndina er skotið var á hana og laskaðist hún lítil- lega. Var flugvél þessi ásamt öðrum í venjulegri eftirlits- ferð, en skyggni var slæmt — segir í bandarísku fréttinni. Norðmenn sigruðu Ungverju með 2:1 , Osló, 12. júní W DAG fór fram landsleikur í knattspyrnu milli Noregs og Ung- 1 verjalands, og var það einn leikurinn í heimsmeistarakeppn- inni. Leikar fóru þannig, að Norðmenn sigruðu með 2 mörkum gegn 1. í hálfleik stóðu mörk 1:1. Leikurinn fór fram á Ullevaal I var og völlurinn mjög blautur, leikvellinum. Grenjandi rigning | f'rj1 ^ 5js jg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.